Morgunblaðið - 23.01.2000, Blaðsíða 64
VlÐSKIPTAHUCBÚNAÐUR
A HEIMSMÆUKVARÐA
D
NÝHERJI
S: 569 7700
heim að dyrum
<5íjV
PÓSTURINN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, FÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-Aí'GREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJlSMBL.IS, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Heimilisbankinn opnar útibú
($) BÚNADARBANKINN
Tniuíilur Imnki
Islensk erfðagreining fær rekstrarleyfí fyrir gagnagrunn á heilbrigðissviði
Morgunblaðið/Kristinn
Rekstrarleyfið fyrir gagnagrunninn á heilbrigðissviði með skilmálum sínum og skilgreiningum er mikið að vöxtum. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra afhenti Kára Stefánssyni, forstjóra íslenskrar erfðagreiningar, leyfið f Ráðherrabústaðnum í hádeginu í gær.
Arlegt gjald til ríkisins get-
ur orðið 70-140 milliónir
INGIB JÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra afhenti í gær Kára Stef-
ánssyni, forstjóra íslenskrar erfða-
greiningar ehf., rekstrarleyfi til
gerðar og starfrækslu gagnagrunns
á heilbrigðissviði í tólf ár. Markmið
gagnagrunnsins er að „auka þekk-
ingu til þess að bæta heilsu og efla
Áfeilbrigðisþjónstu“, segir í fyrstu
grein rekstrarleyfisins. Árgjald ÍE
fyrir leyfið verður 70 milljónir króna
auk hlutdeildar í hagnaði sem verður
þó aldrei meiri en 70 milljónir. Verja
skal gjaldinu til að efla heilbrigðis-
þjónustu, rannsóknir og þróun.
„Það er von mín og trú að þetta
verði íslenskri þjóð til mikils gagns,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir meðal
annars er hún afhenti leyfið. Hún
sagði gagnagrunnsmálið hafa fengið
ýtarlega umfjöllun í ráðuneytinu,
margir sérfræðingar verið kallaðir
til og það tekið ýmsum breytingum.
Hún sagði mikla vinnu hafa verið
lagða í undirbúning rekstrarleyfis-
ins frá því í maí þegar ákveðið var að
^%anga til samninga við ÍE. „Það hef-
ur verið mikilvægast fyrir okkur að
allur almenningur fengi að fylgjast
með málinu frá fyrstu tíð. Þetta er
stórt og mikið og viðkvæmt mál.“
GAGNAGRUNNUR
Á HEILBRIGÐISSVIÐI
I Hafist verði handa/2
I Söfnun og vinnsla/4
I Allar upplýsingar/10
■ Samkomulag/16
■ Reykjavíkurbréf/32
Kári Stefánsson sagði að fyrir-
tækið myndi gera sitt besta til að
rísa undir því trausti sem ráðherra
auðsýndi „og ég vona heitt og inni-
lega að þessi miðlægi gagnagrunnur
á heilbrigðissviði verði það tæki sem
við höfum vonast til“, sagði Kári og
lét í ljósi þá ósk að hann muni búa til
mikla þekkingu og auka hróður ís-
lendinga um allan heim, bæði að því
er varðar nýja þekkingu og rann-
sóknir í læknisfræði.
í rekstrarleyfinu segir að gerð og
starfræksla gagnagrunnsins miði að
því að móta heildstætt safn með
ópersónugreinanlegum upplýsing-
um úr meginhluta sjúkraskráa sem
nú liggi fyrir og ekki sé takmarkað-
ur aðgangur að. Starfrækslunefnd
skal hafa umsjón með gerð samn-
inga rekstrarleyfishafa við heil-
brigðisstofnanir og heilbrigðis-
starfsmenn og gæta hagsmuna
heilbrigðisyfirvalda og rekstrarleyf-
ishafa ber að uppfylla gildandi
tækni-, öryggis- og skipulagsskil-
mála tölvunefndar á hverjum tíma.
Fram kom á fundi með frétta-
mönnum í gær þegar heilbrigðisráð-
herra kynnti rekstrarleyfið ásamt
fleirum að leyfið getur tekið breyt-
ingum þar sem það kemur til endur-
skoðunar ef það samræmist ekki ís-
lenskri löggjöf eða reglum eða
alþjóðlegum samningum, sáttmálum
og samþykktum sem ísland er aðili
að á hveijum tíma en leyfið er háð
lögunum um gagnagrunn sem sam-
þykkt voru á Alþingi í október 1998.
íslensk erfðagreining skal í júlí ár
hvert á leyfistímanum greiða 70
milljónir króna auk 6% af hagnaði
fyrir skatta. Viðbótargreiðslan skal
þó aldrei verða hærri en 70 milljónir.
Endurskoða má árgjaldið að sex ár-
um liðnum. Rekstrarleyfið gildir til
21. janúar árið 2012 en verður tekið
til endurskoðunar eigi síðar en 1.
október 2008.
Stefnt er að því að samningar um
aðgang að upplýsingum úr sjúkra-
skrám geti tekist fyrir árslok. Kveð-
ið er á um að fyrsta greiðsla árgjalds
skuli ekki fara fram fyrr en tekist
hafi samningar við Sjúkrahús
Reykjavíkur og/eða Ríkisspítala,
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
og tvær aðrar heilbrigðisstofnanir í
öðrum landsfjórðungum. Þegar
rekstrarleyfi fellur úr gildi ber leyf-
ishafa að afhenda leyfisveitanda
gagnagrunninn og öll gögn er varða
hugbúnað sem hann á eignarrétt að
og eru nauðsynleg til gerðar og
starfrækslu grunnsins.
400-500
milljóna
króna sjóður
í þágu barna
ÍSLENSK erfðagreining og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra
lýstu í gær yfir stofnun Velferðar-
sjóðs íslenskra barna sem hefur að
markmiði að hlúa að hagsmunamál-
um barna á Islandi. Kári Stefánsson,
forstjóri IE, lýsti við stofnunina
þeirri skoðun sinni að „ýmislegt í
okkar sögu [bendi til þessj að við höf-
um enn ekki komist úr þeirri stell-
ingu að líta á börn sem ómegð en
ekki blessun“.
Kári sagði þetta hafa verið áhuga-
mál sitt lengi. „Börn eru framtíð
þessarar þjóðar og það hvernig við
hlúum að börnum kemur til með að
ráða því hvernig þessi þjóð verður
þegar við stígum af sviðinu," sagði
Kári.
Hann sagði að slysatíðni meðal
barna væri hæst hér af Norðurlönd-
unum og við fjárfestum minna í
skólamálum en þjóðir sem eru á
svipuðu menningar- og fjárhagsstigi.
Skorar á önnur fyrirtæki
Gamli hugsunarhátturinn segði að
þessu ætti að breyta með auknum
framlögum ríkisins og auknum
skattgreiðslum en í anda hinna nýju
tíma, sem leggja áherslu á að flytja
ábyrgð yfir á einstaklinga og fyrir-
tæki, „finnst mér gaman að hafa
tækifæri til að koma fram fyrir hönd
einkaframtaksins til þess að setja
saman þennan sjóð“, sagði Kári.
„Það sem meira er þá lít ég á þetta
sem tækifæri til að skora á önnur
fyrirtæki á íslandi og þá einstakl-
inga, sem meira mega sín í íslensku
samfélagi, að stíga fram fyrir skjöldu
og leggja af mörkum til þessa sjóðs,“
sagði Kári. Um leið og menn krefjist
lægri skatta til þess að nota fé til að
búa til auð í fyrirtækjum verði þeir
að axla þá ábyrgð sem því fylgir og
ábyrgðin felist í því að fylla skarðið
sem verður til þegar framlög ríkisins
minnka.
íslensk erfðagreining leggur fram
stofnframlag sjóðsins, 150.000 hluti í
DeCODE genetics Inc„ móðurfyrir-
tæki íslenskrar erfðagreiningar.
Miðað við núverandi markaðsvirði er
verðmæti sjóðsins 400-500 milljónir
króna.
Kári vildi ekki tjá sig um verð-
mæti framlagsins við Morgunblaðið
en sagðist telja eðlilegt að stefna að
6% ávöxtun þess í banka. Hann vill
stefna að því að úthluta 50-60 m. kr.
á ári og sagði hlutverk sjóðsstjórnar-
innar vera að afla þess sem á vantaði
til að ávöxtun stofnframlagsins
hrykki til þess.
Ný staða í frumkvöðla- og,
nýsköpunarfræðum við HI
STOFNAÐ hefur verið til nýrrar
stöðu prófessors í frumkvöðla- og
nýsköpunarfræðum við viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla íslands.
Gunnar Björgvinsson, sem rekur
fyrirtæki með flugvélasölu í Liecht-
enstein, fjármagnar stöðuna sem
ráðið verður í til allt að þriggja ára.
Páll Skúlason háskólarektor seg-
ir að Gunnar, sem hafi sjálfur verið
frumkvöðull, hafi haft samband við
sig fyrir nokkru og viljað láta gott
af sér leiða og sett fram hugmynd
um þessa stöðu er snúast myndi um
nýsköpun. „Þetta er mikið fagnað-
arefni fyrir okkur og kemur þessi
staða í góðar þarfir nú til að mæta
þeim þörfum sem tengja má hugs-
unarhætti frumkvöðla og ný-
sköpunar í atvinnulífinu," sagði
rektor í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði milli 12 og 14 stöður við
Háskólann nú fjármagnaðar af
ýmsum fyrirtækjum en þetta væri í
fyrsta skipti sem einstaklingur
tæki slíkt verkefni að sér.
Prófessor í frumkvöðla- og ný-
sköpunarfræði er ætlað að taka
þátt í að byggja upp kennslu og
rannsóknir á sviði frumkvöðla og
nýsköpunar í viðskipta- og hag-
fræðideild en námið er að nokkru
leyti ætlað nemendum í öllum
deildum.
Páll Skúlason segir æskilegt að
fá sem fjölbreyttastar umsóknir
um þessa stöðu og ekki síst frá fólki
sem hafi víðtæka reynslu úr at-
vinnulífinu. Sagði hann það mikil-
vægt fyrir háskólann að geta tekið
upp kennslu til að mæta þörfum
þjóðfélagsins á þessum sviðum.
Ætlunin er að ráða í starfið frá 1.
september í haust verði störfum
dómnefndar þá lokið.