Morgunblaðið - 23.01.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000 21
LISTIR
Á safninu sjálfu
Morgunblaðið/Jim Smart
Verk eftir Ástu Ólafsdóttur á sýningunni í Nýlistasafninu.
Skúlptúr í
nýju ljósi
TUNGLIÐ og Calder-skúlptúrinn í
borginni Grand Rapids íMichigan-
rfld í Bandaríkjunum fengu á sig
sérkennilega rauðleita birtu í
tunglmyrkvanum sem var aðfara-
nótt föstudags.
Form og litir skúlptúrs og tungls
bindast sérkennilegum böndum á
myndinni og má segja að þar mynd-
ist í raun nýtt listaverk þar sem
hlutir aðskildir í tíma og rúmi njóta
sín á nýja vegu.
MYNDLIST
IV ý 1 i s t a s a f n i ð
ÝMSIR
BLANDAÐEFNI
Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 14 til 18 og stend-
ur til 13. febrúar.
í NÝLISTASAFNINU hefur
verið opnuð sýning þar sem tekist
er á við hið mikla og kaótíska safn
listaverka sem þar hefur hrannast
upp á þeim rúmlega tuttugu árum
sem félagið hefur starfað. Þegar
Nýlistasafnið var sett á laggirnar
var gert ráð fyrir því að hver sá
listamaður sem væri meðlimur í
safninu gæfi til þess eitt listaverk á
ári; seinna var reglunni breytt og
sagt að gefa ætti eitt verk á fimm
ára fresti. Auk þessa hafa ýmiss
konar listaverk gegnum tíðina end-
að í geymslum Nýlistasafnsins án
þess að nokkur kunni endilega
skýringu á því. Sumt hefur gleymst
á sýningum eða verið skilið eftir,
sumt hefur verið gefið og sumt hef-
ur kannski lent á safninu af því að
enginn vissi hvar annars staðar það
ætti heima. Niðurstaðan af þessari
tuttugu ára söfnun er að Nýlista-
safnið á líklega mörg þúsund lista-
verk en enginn veit með nokkurri
vissu hvað er hvað, hver saga verk-
anna er eða hvað eigi að gera við
þau. Þess vegna hefur nú verið
brugðið á það ráð að sýna þau.
Líkt og ofangreind lýsing er sýn-
ingin í léttum dúr og tekur þannig
mið af því hvemig listaverkaeign
Nýlistasafnsins hefur byggst upp. í
stað þess að reyna að flokka safnið,
búa til þema og byggja þannig upp
sýningu hafa verið fengnir til
verksins fimm sýningarstjórar sem
gefnar eru frjálsar hendur við að
túlka safneignina. Það eru þau Alda
Sigurðardóttir, Benedikt Krist-
þórsson, Einar Garibaldi Eiríksson,
Ingirafn Steinarsson og Sigurbjörg
Eiðsdóttir. Hvert þeirra hefur
gramsað gegnum safnaeignina og
fundið sína nálgun við þá sögu sem
þar er geymd og spannar fram-
sækna íslenska myndlist allt aftur
til SÚM-tímans, auk margra og oft
dularfullra gripa eftir erlenda lista-
menn.
Ingirafn hefur gripið á það ráð að
láta taka röntgenmyndir af ýmsum
verkum í safninu og geta gestir
þannig skoðað innri byggingu list-
arinnar á ljósaskermi. Einar Gari-
baldi sýnir verk ýmissa listamanna
án þess að taka þau úr umbúðunum
sem þau voru flutt í til safnsins.
Benedikt Kristþórsson fjallar um
Dieter Roth með því að sýna ekki
grafíkmynd sem safnið á eftir hann.
Sigurborg sýnir verk úr safninu og
myndir af fólki með verkin í fang-
inu. Alda tekur síðan á innheimtu-
stefnu safnsins með því að hafa
samband við stofnfélaga og sýna
eftir þá bæði gömul og ný verk.
Safnaeign Nýlistasafnsins er
mikil og fjölbreytt og henni verða
líklega seint gerð tæmandi skil en
hér er tekist á við hana á frumlegan
og skapandi hátt. Uppsetning sýn-
ingarinnar lýsir í senn ást og virð-
ingu sýningarstjóranna fyrir safn-
inu og hæfilegum húmor sem er
ómissandi þegar tekist er á við sýn-
ingarverkefni af þessu tagi. Aðferð-
in sem hér er beitt - að fá til verks-
ins fimm utanaðkomandi listamenn
sem hver tekst á við verkið á sínum
forsendum - gengur vel upp og skil-
ar sér í skemmtilegri og forvitni-
legri sýningu. Þetta er sýningar-
form sem vel mætti hugsa sér að
beita á fleiri söfnum, til að mynda á
Listasafni Islands þar sem safna-
sýningar hafa undanfarið verið
frekar blóðlitlar. Það er ástæða til
að hvetja alla listunnendur til að
drífa sig í Nýlistasafnið og kynnast
þeim fjársjóðum listarinnar sem
þar eru geymdir en fá því miður allt
of sjaldan að sjást.
Jón Proppé
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Jónas Ingimundarson og Arnar Jónsson í Salnum.
Tónlist, ljóð og myndir í
Salnum, Kópavogi
ÓHEFÐBUDNIR tónleikar verða
mánudagskvöldið 24. janúar kl. 20.30
í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs. Á
efnisskránni er Óður steinsins,
Myndir, ljóð og tónar.
Fyrir allmörgum árum kom út bók
sem hafði að geyma myndir af ís-
lenskum steinum eftir Agúst Jóns-
son. Á myndunum gefur að líta eins
konar sneiðmyndir af steinum - lita-
dýrð og fjölbreytileg form náttúrunn-
ar. Skáldið Kristján Einarsson frá
Djúpalæk orti kvæði fyrir áhrif þess-
ara mynda, sem hann kallaði Óður
steinsins. Myndirnar eru þrjátíu tals-
ins og kvæðið að sama skapi þrjátíu
erindi. Atli Heimir Sveinsson tón-
skáld samdi síðan jafnmörg píanó-
stykki og er verkið þrefalt eða þríeitt
sem flutt verður á mánudagskvöldið.
Arnar Jónsson leikari les ljóð Krist-
jáns og Jónas Ingimundarson leikur
tónamyndir Atla Heimis um leið og
myndir Ágústar Jónssonar era sýnd-
ar á stóru sýningartjaldi. Salurinn í
Tónlistarhúsi Kópavogs er ríkuleg
búinn tæknilega og gefast þar bestu
skilyrði til að flytja þetta óvenjuleg
verk.
Auk þess að flytja ljóð Kristjáns,
mun Arnar Jónsson lesa úr eftirmála
bókarinnar, sem ritaður er af Stein-
dóri Steindórssyni frá Hlöðum og ber
heitið Steinninn leystur úr álögum.
Verk þetta var frumflutt á 40 ára af-
mæli Tónlistarfélags Akureyrar og
síðan nokkrum sinnum í Norræna
húsinu. Jónas Ingimundarson flutti
verkið víða, t.d. í Skandinavíu og er
Ijóð Kristjáns til þýtt á ýmsum
tungumálum (ensku - sænsku -
þýsku og frönsku).
I tengslum við tónleikana, mun
Náttúrufræðistofa Kópavogs standa
fyrir sýningu í anddyri Salarins á
völdum steinum úr safni Náttúru-
fræðistofu, draugasteinum, berg-
kristöllum, japisum o.fl. tegundum.
Miðasala Salarins er opin alla virka
daga frá kl. 9-16 og tónleikadaga frá
kl. 19 nema laugardaga frá kl. 14.
Djasskvöld í
Listaklúbbnum
DJASS verður leikinn í Leikhús-
kjallaranum á mánudagskvöld.
Fram kemur píanótríó sem í eru
Agnar Már Magnússon á píanó,
Matthías Hemstock á trommur og
Gunnlaugur Guðmundsson á
kontrabassa.
Agnar Már útskrifaðist frá lista-
háskólanum í Amsterdam í djass-
píanóleik í vor og er nú á leiðinni til
New York í einkanám hjá Larry
Goldings, þekktum djasspíanista í
New York.
Gunnlaugur Guðmundsson er
búsettur í Haag í Hollandi. Hann
útskrifaðist frá Konunglega listahá-
skólanum í Haag í djasskontra-
bassaleik í vor og starfar nú í Hol-
landi með tveimur hljómsveitum,
Wolfert Brederode-píanótríóinu og
Zenker/Kappe-kvartettinum.
Matthías Hemstock er einn af
okkar fremstu djasstrommurum.
Tríóið mun leika frumsamda tón-
list sem einkennist að miklu leyti af
óvenjulegum takttegundum og
hljómferlum. Að sögn strákanna má
búast við „Evrópu-hljómi“ frá tríó-
inu, en hann einkennist af opinni
spilamennsku. Einnig verða leiknir
nokkrir „standardar“ sem djass-
unnendur kannast við.
Dagskráin hefst kl. 20:30, en hús-
ið er opnað kl. 19:30.
Framkvæmdastjóri hættir
RAGNHEIÐUR Ragnarsdóttir læt-
ur senn af störfum sem fram-
kvæmdastjóri Nýlistasafnsins. Hún
tók við starfinu árið 1993 og varð þá
fyrsti launaði starfskraftur safnsins
sem tók til starfa árið 1978.
í frétt frá stjóm Nýlistasafnsins
segir að starfsemi og umfang safns-
ins hafí aukist til muna í tíð Ragn-
heiðar. Þá hafi fjárveitingar aukist
ár frá ári og eigi Ragnheiður stóran
þátt í því. Hún hafi borið hitann og
þungann af starfsemi safnsins og
gegnt starfinu af alúð og sóma.