Morgunblaðið - 05.02.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2000 23
Öflugasta díselvélin sem völ er á
eða beinskiptur, þitt er valið
Stjórn Mannesmann
mælir með vinveittu
tilboði Vodafone
Endi bundinn á deilur Mannesmann og Vodafone
Reuters
Frankfurt. AP.
STJÓRN þýska fjarskiptafyrir-
tækisins Mannesmann AG ákvað á
fundi sínum í fyrrakvöld að mæla
með 180 milljarða dollara samruna
fyrirtækisins við hið breska
Vodafone AirTouch PLC. Ljóst er
að yflrtakan verður sú stærsta í
heiminum hingað til, 13.000 millj-
arða króna virði, og slær þar með
út samruna AOL og Time Warner,
og samruna MCI WorldCom og
Sprint.
Búist er við að samningum um
samruna fyrirtækjanna ljúki í
mars. Hluthafar í Mannesmann
geta gert upp hug sinn til 17.
febrúar um hvort þeir vilja fram-
selja hlutabréf sín til Vodafone
gegn hlutabréfum í sameinuðu fé-
lagi, að því er fram kom í máli
Klaus Esser, aðalframkvæmda-
stjóra Mannesmann, eftir tveggja
klukkustunda stjórnarfund í fyrir-
tækinu í gær. Esser mun starfa
hjá sameinuðu fyrirtæki a.m.k.
næstu 5 mánuði og mun sitja í
stjórn Vodafone. Því hefur verið
lýst yfir af hálfu Vodafone að ekki
verði um uppsagnir að ræða í
kjölfar samrunans.
Síðasta óvinveitta tilboð Voda-
fone í Mannesmann átti að renna
út á mánudag en Vodafone hækk-
aði tilboð sitt á fimmtudag og
gerði það samskipti félaganna vin-
veittari. Endi er þar með bundinn
á deilur sem staðið hafa frá því
Vodafone gerði fyrst tilboð í
Mannesmann síðastliðið haust.
Fyrirtækin hafa hvort um sig var-
ið milljónum í auglýsingaherferðir
til að ná hluthöfum Mannesmann á
sitt band.
Fjórða stærsta fyrirtæki
heims að markaðsverði
Mannesmann fær 49,5% hlut í
sameinuðu fyrirtæki en Vodafone
fær ráðandi hlut, 50,5%. Upphaf-
lega tilboðið hljóðaði upp á 47,2%
hlut til handa Mannesmann. Sam-
einað fyrirtæki verður stærsta
fjarskiptafyrirtæki heims með 42
milljónir viðskiptavina og víðfeðmt
fjarskiptanet sem nær til 25 landa.
Höfuðstöðvar sameinaðs félags
verða bæði í Þýskalandi og Bret-
landi. Markaðsvirði fyrirtækisins
verður um 25.900 milljarðar króna
eða 350 milljarðar dollara. Á þeim
mælikvarða verður sameinað félag
hið fjórða stærsta í heimi, á eftir
Microsoft, General Electric og
Cisco.
Evrópusambandið þarf að sam-
þykkja samruna af þessu tagi en
búist er við niðurstöðu fram-
kvæmdastjórnar ESB 17. febrúar
nk. Athugun á samruna félaganna
hefur staðið yfir hjá ESB en allar
hliðar á málinu verða skoðaðar
m.t.t. lagaákvæða sem snerta sam-
keppni fyrirtækja. Ástæðan er
m.a. eignarhald Mannesmann á
breska farsímafélaginu Orange,
sem er þriðja stærsta fyrirtæki á
sviði farsímaþjónustu í Bretlandi
en Vodafone er stærst á sama
sviði. Þetta brýtur í bága við sam-
keppnislög í Bretlandi og kallar á
að Órange verði selt.
í forystuhlutverki við þráð-
lausar nettengingar
Talið er að sameinað fyrirtæki
Mannesmann og Vodafone muni
gera farsímanotendum kleift að
nota síma sína hvar sem er í heim-
inum, auk þess sem fyrirtækið
verði í forystuhlutverki hvað varð-
ar þráðlausar nettengingar.
Fyrr í vikunni tilkynnti Voda-
fone um samstarf við frönsku sam-
steypuna Vivendi SA en Mannes-
mann hafði áður reynt að ná
samningum við Vivendi.
Vodafone varð stærsta farsíma-
félag heims eftir yfirtöku á banda-
ríska fyrirtækinu AirTouch Com-
munications fyrir ári. Fyrirhugað
er að koma á samstarfssamningi
AirTouch og farsímahluta Bell Atl-
antic og mynda þannig umfangs-
mestu farsímaþjónustu í Banda-
ríkjunum.
Chris Gent, aðalframkvæmdastjóri Vodafone Airtouch Plc, til vinstri,
ásamt aðalframkvæmdastjóra Mannesmann AG, Klaus Esser. Búist er við
að samningum um samruna félaganna muni ljúka f mars.
Komdu, skoöaöu og prófaðu
öflugasta jeppann.
Bílheimar ehf.
Sœvarhöfða 2a Sími:525 9000
www.bilheimar.is