Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 1

Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913 53. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Augusto Pinochet leystur úr lialdi í Bretlandi og heldur aftur til Chile Fagnað sem hetju í Chile en saksókn er hugsanleg London. Reuters, AFP. AUGUSTO Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, hélt í gær til heimalands síns eftir að Jack Straw, innanríkisráðherra Bretlands, ókvað að leysa hann úr haldi á þeirri forsendu að hann væri ekki fær um að verja sig fyrir rétti sökum heilsu- brests. Andstæðingar Pinochets lýstu ákvörðuninni sem „afbökun á réttlætinu" en stuðningsmenn hans í Chile bjuggu sig undir að fagna honum sem hetju við heimkomu hans í dag. Rannsóknardómari í Chile hefur hins vegar undirbúið málsókn á hendur Pinochet og kvaðst í gær ætla að helga sig því verkefni á næstunni þar sem hann teldi „góð skilyrði" í landinu fyrir réttarhöld- um í máli hans. Skömmu eftir að Straw tilkynnti ákvörðun sína var Pinochet fluttur í bifreið frá dvalarstað sínum nálægt London þar sem hann hafði verið í stofufangelsi. Herþota frá Chile beið eftir honum á herflugvelli í austurhluta Englands og hélt af stað laust eftir klukkan eitt eftir hádegi. Straw varði ákvörðun sína í bréfi til sendiherra fjögurra Evrópuríkja, Spánar, Frakklands, Sviss og Belg- íu, sem höfðu vonast til þess að geta sótt Pinochet til saka. Hann sagði að breskir læknar hefðu komist að þeirri niðurstöðu að Pinochet gæti ekki komið fyrir rétt vegna heila- skemmda eftir að hafa tvívegis feng- ið vægt heilablóðfall í haust. „Málið hefur rennt stoðum undir þá megin- reglu að þeir sem fremja mannrétt- indabrot í einu landi geta ekki álitið sig óhulta annars staðar. Þetta verð- ur varanlegur afrakstur þessa máls,“ bætti ráðherrann við. Hreyfing útlaga frá Chile í Bret- landi sagði hins vegar að Straw hefði „brugðist mannréttindamál- staðnum" og sakaði stjórnvöld í Bretlandi, Chile og á Spáni um að hafa lagt á ráðin um að leysa deiluna um framsal Pinochet til að komast AP Belgi heldur á mynd af Pin- ochet með áletruninni „morð- ingi“ í kröfugöngu í Brussel. sagði Reed Brody, talsmaður Hum- an Rights Watch. „En sú staðreynd að hann var handtekinn og að kröfu hans um friðhelgi var hafnað hefúr þegar orðið til þess að heimurinn hefur skroppið saman í augum ein- ræðisherra úti um allan heim.“ ■ Sviptur friðhelgi?/28 Stuðningsmenn Augustos Pinochets í Santiago í Chile fagna þeirri ákvörðun breskra stjórnvalda að leysa hann úr haldi og fylgjast með brottför flugvélar hans frá Brctlandi í beinni sjónvarpsútsendingu. hjá frekari vandræðum. „Það er ein- faldlega of hentugt fyrir viðkomandi ríki að Pinochet, sem gat veitt löng og greinargóð viðtöl fyrir örfáum mánuðum, skuli nú allt í einu teljast ófær um að skilja ákærurnar á hendur sér.“ Spánverjar sætta sig við ákvörðunina Spænsk stjórnvöld sögðust ætla að virða ákvörðun Straws en Balt- azar Garzon, dómarinn sem óskaði eftir þvi að Pinochet yrði framseldur til Spánar, hét því að óska eftir handtöku Pinochets ef hann færi aftur frá Chile. Franska stjórnin kvaðst harma ákvörðun Straws og vona að Pin- ochet yrði sóttur til saka í Chile. Svissneskur saksóknari, sem hafði reynt að fá Pinochet framseldan til Sviss, gagnrýndi ákvörðun Straws harkalega og lýsti Bretlandi sem „gi'iðastað glæpamanna". Belgísk yfirvöld sögðust ekkert ætla að aðhafast frekar í málinu. Forystumenn mannréttinda- hreyfmga voru vonsviknir en sögðu að málið hefði beint athyglinni að öðrum einræðisherrum. „Það eru hræðileg vonbrigði fyrir þúsundir fórnarlamba Pinoehets að hann verði ekki sóttur til saka á Spáni,“ Enn meiri flóðum spáð í Mósambík og annar fellibylur stefnir að landinu Óttast að hjálpin berist of seint Maputo. Reuters, AFP. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og fjórum Evrópuríkjum sögðust í gær ætla að senda björgunarsveitir og hjálpargögn á flóðasvæðin í Mós- ambík eftir að hafa verið gagnrýnd fyrir að bregðast seint við náttúru- hamförunum. Hjálparstofnanir ótt- uðust að hjálpin dygði ekki og bærist of seint. Hundruð þúsunda manna eru enn í hættu á flóðasvæðunum og búist er við að ástandið versni á næstu dög- um. Spáð var enn meira úrhelli í næstu viku vegna fellibylsins Gloríu sem stefndi að strönd Mósambík í gær og búist var við vatnavöxtum í ám sem liggja um landið. Bandaríkjastjórn kvaðst ætla að senda 900 hermenn, sex stórar þyrl- ur og litla báta til að taka þátt í björgunarstarfinu í Mósambík, auk sex flutningavéla sem eiga að flytja þangað hjálpargögn. Bretar, Þjóðverjar, Spánverjar og Frakkar ákváðu einnig að senda þyrlur, flutningavélar, báta og hjálp- argögn til landsins. Aætlað er að um 10.000 manns bíði enn björgunar á húsþökum og trjám eftir mestu flóð í landinu í hálfa öld. Malaría, kólera og fleiri sjúkdómar hafa þegar breiðst út á flóðasvæðun- um, auk þess sem mikill skortur er á matvælum. Reuters Þorpsbúar i Músambík bíða björgunar á húsþaki nálægt mynni árinnar Limpopo, sem flæddi yfír bakka sína í mestu flúðum í landinu í hálfa öld. Sellafield Irar íhuga málsókn RÍKISSTJÓRN írlands hefur hug á að höfða mál gegn ríkis- stjórn Bretlands fyrir Evrópu- dómstólnum og krefjast þess að Sellafield-kj arnorkuendur- vinnslustöðinni verði lokað, að því er dagblaðið Irish Times greindi frá í gær. Nýleg skýrsla um brot á öryggisreglum stöðv- arinnar er talin veita írsku stjórninni lagalegan grundvöll til málsóknar í fyrsta skipti. Joe Jacob, ráðherra orku- og samskiptamála írsku stjórnar- innar, sagði eftir viðræður við Helen Liddel, viðskipta- og iðn- aðarráðherra Bretlands, að lokun Sellafield væri nú fyrir alvöru á dagskrá hjá írsku rík- isstjórninni. Skýrslan um Sella- field hefði leitt í Ijós, að víða væri pottur brotinn í öryggis- málum stöðvarinnar og niður- stöðumar væru einfaldlega slá- andi. I skýrslunni, sem birt var í febrúar, sagði breska kjarn- orkueftirlitið, að kerfisbundin stjórnunarmistök væru ástæða þess að starfsmönnum hefði reynst unnt að falsa öryggis- skýrslur. Jacob sagði, að Michael McDowell, háttsettur embætt- ismaður í dómsmálaráðuneyt- inu, hefði kannað lagalegar hliðar málsins undanfarið og allt benti til, að fljótlega yrði hægt að hefja málsókn fyrir Evrópudómstólnum. Irsku stjórninni hefði árum saman verið bent á að hana skorti lagalegan grundvöll til að krefj- ast lokunar Sellafield en nú væri loks hægt að grípa til að- gerða. Vilja auka olíu- framleiðsluna London. AFP. OLÍUMÁLARÁÐHERRAR Sádi- Arabíu, Venesúela og Mexíkó sögðu í gær að þörf væri á að auka olíufram- leiðsluna í heiminum vegna mikilla verðhækkana. Þeir bættu þó við að frekari samningaviðræður væru nauðsynlegar til að ákveða hversu mikið þyrfti að auka framleiðsluna og hvenær það yrði gert. Þetta er í fyrsta sinn sem olíu- málaráðherra Sádi-Arabíu lýsir því yfir opinberlega að auka þm-fi fram- leiðsluna. Ráðherrarnir komu saman í Lond- on til að undirbúa fund OPEC, sam- taka olíuútflutningsríkja, í Vín 27. þessa mánaðar. Búist er við að þá verði ákveðið að hækka framleiðslu- kvóta samtakanna. Olíumálaráðherrar ríkjanna þriggja áttu stóran þátt í því að OPEC náði samkomulagi á síðasta ári um að minnka framleiðsluna, sem varð til þess að olíuverðið þrefaldað- ist og hefur ekki verið hærra í níu ár. MORGUNBLAOW 3. MARS 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.