Morgunblaðið - 03.03.2000, Page 27

Morgunblaðið - 03.03.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 27 Rússar hafna sáttaum- leitunum Maskhadovs Rússneskir hermenn taka sér stöðu í fjalllendi í Vedeno-gljúfri í Suður-Tsjetsjníu. Þangað hafa skæruliðar aðskilnaðarsinna hörfað undan sókn Rússa. Rætt um Tsjet- sjníudeiluna á fundi Rússa og Vesturlanda í Portúgal Moskvu, Gudermes, Lissabon. AP, AFP. EINN yflrmaður rússneska hers- ins í Tsjetsjníu sagði í gær að Rússar stefndu að því að hafa unn- ið fullnaðarsigur yfir aðskilnaðar- sinnum á innan við viku. En haft er eftir öðrum foringja í hernum að átökin geti átt eftir að dragast fram á sumar. Hermt er að Tsjet- sjenar berjist enn í litlum hópum í nágrenni við bæinn Shatoi, sem Rússar náðu á sitt vald á mánudag. Aðskilnaðarsinnar halda enn fjór- um þorpum í suðurhluta Tsjetsjníu en ekki er vitað hversu margir þeirra eru enn bardagafærir. Rússnesk yfirvöld segjast vera byi'juð að draga herlið sitt til baka frá Tsjetsjníu og að lögreglumenn leysi nú í vaxandi mæli hermenn af hólmi. Forseti Tsjetsjníu og leiðtogi uppreisnarmanna, Aslan Maskh- adov, hvatti í gær stjórnvöld í Kreml til að ganga til samninga- viðræðna við Tsjetsjena til að binda enda á átökin. Rússnesk stjórnvöld höfnuðu þegar í stað umleitan Maskhadovs. Talsmaður rússneskra stjórnvalda í málefnum Tsjetsjníu, Sergei Jastrzhembsky, minnti á að Maskhadov væri eftir- lýstur uppreisnarmaður í Moskvu. Igor Sergeyev, varnarmálaráð- herra landsins, kvað fastar að orði. „Maðurinn er glæpamaður, það þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð,“ sagði Sergeyev. Robinson fær að fara til Tsjetsjníu Rússar féllust í gær á að leyfa yfirmanni mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, Mary Robinson, að ferðast til Tsjetsjníu til að kynna sér ástand mála þar af eigin raun. Robinson hefur ítrekað farið fram á að fá að fara til Tsjet- sjníu en hingað til hafa Rússar ekki viljað verða við þeirri beiðni. í yfírlýsingu frá rússneska utanrík- isráðuneytinu í gær var þó tekið skýrt fram að ferð Robinson feli ekki í sér staðfestingu á því að Rússar séu reiðubúnir að vinna með alþjóðlegum stofnunum að mannúðarmálum í Tsjetsjníu. í gær komu fulltrúar Evrópu- sambandsins, Bandaríkjanna og Rússa saman til tveggja daga fundar í Lissabon, höfuðborg Portúgals. Upphaflega var ætlunin að ræða samvinnu ríkjanna í mál- efnum Balkanskaga og Mið-Aust- urlanda en búist er við að ástandið í Tsjetsjníu verði fyrirferðarmikið umræðuefni. Vesturlönd hafa gagnrýnt Rússa harðlega fyrir meint mannréttindabrot rússneska hersins í héraðinu. Nokkuð hefur þó dregið úr reiði Vesturlanda eft- ir að upp komst að myndbands- upptaka sem sagt var að staðfesti grimmdarverk Rússa, var ekki það sem menn höfðu ætlað. Þýskur sjónvarpsfréttamaður sagðist hafa SALTVATNSFYLLINGAR, sem notaðar hafa verið til brjósta- stækkana, hafa verið til athugun- ar hjá matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) sem nú hef- ur samþykkt áframhaldandi sölu fyllinganna gegn því að konum sé gerð grein fyrir mögulegum fylg- ikvillum aðgerðarinnar. Algengt er að fyllingarnar leki þannig að nýrrar aðgerðar sé þörf. Um 130.000 konur fóru í brjóstastækkun í Bandaríkjunum á sfðasta ári, þar sem sílikonpok- ar með saltvatnsfyllingu voru not- aðir til stækkunarinnar. En nýleg könnun Mentors, eins framleið- anda saltvatnsfyllingana, fyrir FDA leiddi í ljós að 27% fylling- anna höfðu verið fjarlægð innan þriggja ára frá aðgerð. I flestum tilfellum voru fyllingarnar fjar- lægðar vegna sýkingar eða leka, að sögn talsmanns FDA. f um 9% tilfella leka fyllingarnar innan þriggja ára og rýrnar þá brjóstið þannig að nýrrar aðgerðar er þörf. Því lengur sem konur eru hins vegar með saltvatnsfyllingar, því líklegra er að þær þjáist af hliðarverkunum vegna fylling- anna. En skv. einni rannsókn þjáðust um 73% kvenna með salt- vatnsfyllingar af hliðarverkunum. fest á band er rússneskir hermenn lögðu illa út leikin lík tsjetsjneskra uppreisnarmanna í fjöldagröf og var fullyrt að merki um pyntingar hefðu sést á líkunum. Komið hefur í ljós að þýski fréttamaðurinn hafði keypt upptökuna af blaðamanni rússneska dagblaðsins Izvestia og sagði sá að myndbandið sýndi greftrun uppreisnarmanna sem fallið hefðu í bardögum. Rússnesk- ir ráðamenn hafa sagt að upp- ákoman sýni að fjölmiðlar á Vest- urlöndum séu reiðubúnir að trúa öllu upp á rússneska herinn í Tsjetsjníu. „Það er ótrúlegt að litið sé svo á að þetta sé eitthvað sem þú verðir að umbera ef þú ert með brjóstafyllingar," sagði dr. Steph- en Li frá séraðgerðasjúkrahúsi í New York og kvað tíðni mistaka hættulega háa. Ekkert þykir hins vegar benda til að saltvatnsfyllingarnar séu heilsuspillandi eða valdi hættu- legum sjúkdómum, en nokkuð hefur borið á að konur með salt- vatnsfyllingar haldi hinu gagn- stæða fram. Saltvatnsfyllingar sjaldgæfar hér á landi Saltvatnsbrjóstafyllingar eru algengasta gerð brjóstafyllinga í Bandaríkjunum þar sem notkun sílikonfyllinga hefur að mestu verið bönnuð. Að sögn lýtalæknanna Sigurðar E. Þorvaldssonar og Rafns A. Ragnarssonar eru saltvatnsfyll- ingar hins vegar tiltölulega sjald- gæfar í Evrópu, sem og hér á landi, þar sem sílikonfyllingar njóta meiri vinsælda. Að sögn Rafns leka saltvatnsfyllingarnar einhvern tímann í langflestum til- vika þannig að þörf er á nýrri að- gerð, en hann sagði salt.vatnið sjálft þó ekki valda neinu tjóni. Albright ekki forseti í Tékklandi MADELEINE Albright, ut- anríkisráðherra Bandaríkj- anna, hefur bundið enda á vangaveltur um, að hún verði næsti forseti Tékklands. í yf- irlýsingu, sem hún lét frá sér fara í gær, segist hún vera upp með sér vegna þessara bollalegginga en ekki muni þó til þess koma, að hún verði eft- irmaður Vaclavs Havels, nú- verandi forseta. Albright er fædd í Tékklandi, skírð Marie Jana Korbelova, en fluttist þaðan 10 ára gömul 1949. Flýði fjölskyldan ofsóknir kommúnista. Albright fer í fjögurra daga heimsókn til gamla landsins í næstu viku en þá verður þess minnst, að 150 ár eru frá fæðingu Tomas Masaryks, fyrsta forseta tékkóslóvakíska lýðveldisins 1918. Hamas-liðar felldir ÍSRAELSKIR sérsveitamenn felldu þrjá Palestínumenn í gær er þeir umkringdu hús í þorpinu Taibeh í Norður-ísra- el. Er það eingöngu byggt ar- öbum. Sagt er, að mikið af sprengiefni hafi verið- í húsinu og hafi mennirnir verið að undirbúa hryðjuverk. ísraelsk yfirvöld fullyrða, að mennimir hafi tilheyrt hinum herskáu Hamassamtökum meðal Pal- estínumanna. Kínverjar varnarlitlir gegn alnæmi KÍNVERJAR eru hugsanlega varnarlausari gegn alnæmi en sumir aðrir kynþættir og er ástæðan sú, að í þeim er yfir- leitt ekki að finna erfðafræði- lega stökkbreytingu, sem veit- ir nokkra vörn gegn veirunni. Hafa kínverskir vísindamenn komist að þessari niðurstöðu. I Bandaríkjunum finnst stökk- breytingin í tíunda hverjum manni en aðeins í einum af hverju þúsundi í Kína. Talið er, að um 400.000 Kínverjar hafi smitast af alnæmi. Veldur of mikið joð ðfrjósemi? Á SÍÐUSTU árum hafa oft verið fréttir um, að frjósemi karla fari minnkandi og eink- anlega í svokölluðum velferð- arríkjum. Bandarískir vísinda- menn telja sig nú hafa fundið ástæðuna: Joðbætt salt. Segja þeir, að fyrst hafi orðið vart við minni sæðisframleiðslu hjá karlmönnum um 1960 og eink- anlega hjá þeim, sem voru fæddir um 1924. Þá var fyrst farið að joðbæta salt í Banda- ríkjunum. Það var vegna þess, að joðskortur getur valdið andlegum vanþroska. Vísinda- mennirnir sýndu fram á með rannsóknum á músarungum, að þeir, sem fengu lítið joð, höfðu helmingi stærri eistu og meiri sæðisframleiðslu en þeir, sem fengu meira en nóg af joðinu. „Ofurkennarar“ settir yfír breska „tossaskóla“ Daily Telegraph. NÝR hópur „yfirskólameistara" verður ráðinn til að hafa yfir- umsjón með þeim gagnfræða- skólum í Bretlandi sem sýna lé- legan náms- árangur að því er dag- blaðið Daily Telegraph greindi frá í gær. Skóla- meistararnir, sem verða alls tíu talsins, hljóta um fimm sinn- um hærri laun en kennarar í Bretlandi almennt, eða 100.000 pund á ári, andvirði um 12 millj- óna ki’óna. Hverjum skólameist- ara verður falið að hafa yfirum- sjón með 3-5 skólum og ber þeim að bæta námsárangurinn. Hissa á ofurlaunum Kennarar tóku andköf þegar David Blunkett, menntamála- ráðherra Bretlands, gaf upp hver áformuð laun „ofurkennaranna" yrðu, og Doug McAvoy, formað- ur bresku kennarasamtakanna, sakaði Blunkett um að horfa að- eins á tölfræðina við samanburð á skólunum. „Ég hvet til, að tillit sé tekið til annarra þátta eins og heimilisaðstæðna, kyns, sér- kennsluþarfa og fjölda nem- enda,“ sagði McAvoy. Að mati Blunketts eru auknir erfiðleikar, sem skólar í efna- minni hverfum þurfa að sigrast á, ekki afsökun fyrir lélegum árangri nemenda. McAvoy telur hins vegar, að þá sé um leið verið að gefa í skyn að kennarar geri minni kröfur til fátækari nem- enda, sem sé móðgun við þá sem leggi allt sitt af mörkum til að bæta kennslu í þeim skólum. 70 skólar af 3.000 Ný reglugerð menntamála í Bretlandi kveður svo á að a.m.k. 15% nemenda í hverjum skóla verði að ná grunnskólaprófi ár hvert. Þeim skólum sem hafi ekki náð þessu takmarki fyrir 2003 verður síðan hugsanlega lokað. En 70 af rúmlega 3.000 gagnfræðaskólum í Bretlandi hafa verið undir þessum mörkum sl. tvö ár. Vandkvæði brjósta- stækkunar könnuð hjá FDA Gaithersburg, Maryland. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.