Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 44

Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BERGÞÓR GUÐJÓNSSON + Bergþór Guð- jónsson fæddist á Akranesi 18. mars 1913. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 26. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðjón Þórðar- son, f. 8.12. 1885, d. 23.6. 1941, og Ingi- ríður Bergþórsdótt- ir,f. 1.11.1889, d.3.9. 1958. Bergþór var ; <?lst.ur fimm systkina, en þau eru Ingileif, f. 10.2.1916; Jóhannes, f. 27.9.1920, d. 8.3.1999; Þórður, f. 10.10.1923; og Helga, f. 1.8.1928. Bergþór kvæntist hinn 30.jan.1937 Guðrúnu Brynjólfs- dóttur, f. 1.4. 1918, húsmóður. Foreldrar hennar voru Brynjólfur Nikulásson skipsfjóri, f. 18.11. 1890, d. 4.1. 1979, og Guðrún Jónsdóttir, f. 7.8. 1887, d. 12.4. 1918. Börn Bergþórs og Guðrúnar eru: 1) Brynjar, f. 28.10.1937. 2) Guðjón f. 21.3. 1944, d. 2.3. 1994, maki Salome Guðmun- ^lsdóttir, f. 17.9. 1946. Dóttir þeirra er Lára Huld, lögfræðing- ur, f. 21.5. 1968, sambýlismaður hennar er Flosi Arnórsson skip- stjóri og eiga þau soninn Guðjón Alex. 2 Ósk, f. 1.9. 1948, maki ÓIi Jón Gunnarsson. Synir þeirra eru a) Berg- þór, f. 26.9. 1975, há- skólanemi, b) Jó- hann Gunnar, f. 3.1. 1980, fjölbrautaskól- anemi, c) Rúnar, f. 26.6.1986, nemi. Bergþór ólst upp í foreldrahúsum að Ökrum á Akranesi og hóf ungur sjó- mennsku, skipstjóri varð hann tvítugur og reri á bátum frá Haraldi Böðv- arssyni & Co. Fyrsta bátinn eign- aðist hann 26 ára og stóð í eigin útgerð upp frá því. Fiskimanna- próf tók hann árið 1932 og meira fiskimannapróf frá Stýrimanna- skólanum árið 1949. Hann var einn af þrem stofn- endum útgerðarfyrirtækisins Fiskivers hf. á Akranesi 1947 og var útgerðarstjóri þess. Síðar keypti hann Sigurfara Ak 95 með Guðjóni syni sínum og rak hann í mörg ár. Frá sextugu reri hann á smábátum frá Akranesi, með Brynjari syni sínum, í rúma tvo áratugi. Utför Bergþórs fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þegar Guðrún tengdamóðir mín hringdi snemma á laugardagsmorg- uninn og sagði að Bergþór hefði verið fluttur niður á spítala, grunaði mig að þetta væri hans síðasta ferðalag. Við hjónin drifum okkur strax af stað úr Stykkishólmi, en það var um seinan, við höfðum átt okkar síðustu samverustundir með honum. Þótt heilsunni hafi hrakað kom kallið snöggt. Kynnti okkar Bergþórs hófust fyrir tæplega þrjátíu árum þegar ég kynntist dóttur hans. Þá komu strax fram einkenni hans, kraftur og vilja- t Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, GUÐBJÖRG SVAFA BJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis i Miðtúni 18, Selfossi, er lést á Ljósheimum mánudaginn 28. febrúar, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag- inn 4. mars kl. 13.30. Hörður Þórhallsson, Halldóra Guðjónsdóttir, Erla Þórhallsdóttir, Ástráður Ólafsson. t Ástkær sonur okkar og bróðir, ADAM KRZYSZTOF BEDNAREK, Hellisbraut 13, Hellissandi, er lést af slysförum laugardaginn 26. febrúar, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugar- daginn 4. mars kl. 11.00. Jarðsett verður frá Ingjaldshóli. Stefanía Bednarek, Ryszard Bednarek og systkini. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR Þ. GUÐMUNDSDÓTTUR, Doddu frá Urriðaá, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi. Jóna Sigurðardóttir, Kjartan Magnússon, Erlendur Sigurðsson, Gunnfríður Harðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurbjörn J. Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. styrkur, sem einkenndu öll hans störf. Hann gekk ætíð af miklum krafti til sinna verka og var kapps- maður. Gilti það sama hvort um sjó- sókn var að ræða eða lax- eða rjúpnaveiðar. Sjómennskan var hans ævistarf, en Bergþóri kynntist ég ekki fyrr en hann var hættur annarri útgerð en veiðum á smábát- um. Hann fór þó í tvö sumur sem stýrimaður með Guðjóni syni sínum á síldveiðar á Norðursjó, en það var þó meira til gamans gert. Hafði hann af þeim veiðum mikla ánægju. Það fékk mikið á Bergþór þegar Guðjón sonur hans greindist með krabbamein og andaðist langt um aldur fram, tæplega fimmtugur. Honum var mjög annt um velferð sinna nánustu þótt hann væri á viss- an hátt mjög dulur maður og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Bergþór var alla tíð fengsæll skipstjóri og hélt vel sinni skips- höfn. Á góðum stundum rifjaði hann oft upp og sagði frá minnisverðum at- vikum af veiðum og veðrum. Þótt áratugir væru stundum liðnir var minnið slíkt að það var eins og at- burðurinn væri nýliðinn. Ofarlega í huga hans var ævintýrið frá 1947 þegar Hvalfjarðarsíldin var, en þá veiddi hann með áhöfn sinni 18 þús- und mál á 60 tonna báti, Sigurfara Ak. Hann var afskaplega stoltur og ánægður þegar hann kom að landi úr einum róðri sumarið 1978 á 1,5 tonna trillu sinni, með 130 kg. lúðu, en í þetta sinn hafði hann verið einn um borð. Við fórum saman í nokkrar lax- veiðiferðir sem voru þá gjarnan gerðar að fjölskylduferðum og eru þær ferðir mjög minnisstæðar, þó einkum veiðiferðir í Flekkudalsá. Það var lærdómsríkt að njóta leið- sagnar hans, hvernig best væri að standa að veiðum og hvar veiðivon væri mest. Áin var kortlögð í höfði hans og hver stund nýtt til að fanga laxinn. Bergþór var mjög veðurglöggur og gaf sínum nánustu oft til kynna að nú væri best að fara að koma sér af stað áður en veður skylli á. Oft notfærði ég mér veðurkunnáttu hans, þegar sæta þurfti veðri til ferðalaga. Bergþór lenti í aftakaveðrum þar sem skipskaðar urðu en hann var farsæll skipstjóri og tapaði aldrei manni á sínum ferli. Hann taldi sig aldrei hafa lent í lífsháska en tæpt var það þó, þegar þeir Brynjar son- ur hans rétt náðu landi daginn áður en Bergþór fagnaði áttræðisafmæli sínu. Við leiðarlok þakka ég Bergþóri fyrir trausta vináttu og handleiðslu í lífsins ólgusjó, og allt er hann var mér og minni fjölskyldu. Eg bið góðan Guð að styrkja Guðrúnu tengdamóður mína og venslafólk allt. Óli Jón Gunnarsson. Nú þegar þú ert farinn frá okkur er mér efst í huga þakklæti fyrir all- ar þær stundir sem ég fékk að njóta með þér og allar þær yndislegu minningar sem þeim fylgja. Hvort sem það var rúnturinn á bryggjuna þegar ég var lítill eða veiðitúrarnir sem urðu svo margir og eftirminni- legir. Ferðirnar í Flekkudalsá og Fáskrúð mun ég alltaf geyma í minningunni, sem og veiðitúra í aðr- ar ár. Alltaf vorum við nafnarnir saman á stöng og betri kennara gæti enginn ungur veiðimaður hugsað sér. Við veiddum nú líka ansi vel saman. Það er ómetanlegt fyrir ungan mann eins og mig að hafa haft fyrir- mynd sem þig, fyrirmynd sem ég gat alltaf leitað til og borið virðingu fyrir. Fyrirmynd sem sýndi mér gildi dugnaðar og ósérhlífni. Að eiga afa sem enn sótti sjóinn 82 ára gamall, kenndi mér að með viljastyrknum er allt mögulegt. Það er eiginleiki sem ég vona að ég muni erfa frá þér, því öðrum eins dugnað- arforki mun ég sennilega aldrei kynnast. Þú varst aldrei mikið fyrir að segja sögur af sjálfum þér, en sög- urnar sem ég heyrði frá þér og þó sérstaklega öðrum mun ég ávallt geyma með mér. Mér er sérstaklega minnisstæð sagan af því þegar þú varst á reknetaveiðum suðvestur af landi árið 1941 og sigldir þar fram á skipbrotsmenn af togara sem skot- inn hafði verið niður, þeir höfðu þá velkst um í einhverja daga. Fyrir þetta björgunarafrek varst þú gerð- ur að ævifélaga í Slysavarnafélagi íslands. Elsku afi, þú verður mér alla tíð fyrirmynd. Þú varst heill maður sem reyndist mér frábærlega. Ég vona að í lífinu takist mér að feta í fótspor þín, hvað kosti þína varðar. Að endingu bið ég þig, kæri afi, að hvíla í friði og vona að í lífinu takist mér að reynast öðrum jafn vel og þú reyndist mér. Kveðja, Bergþór. Elsku afi minn, nú ertu horfinn á braut og ég verð að segja bless í hinsta sinn. Mig langar að þakka þér fyrir það hve vel þú hefur reynst mér alla tíð. Þú varst mér ávallt mikil stoð og stytta. Þú gafst mér svo mikið og kenndir mér svo margt sem gerði mig að betri manni. Eg sakna þín mikið en get huggað mig við allar þær yndislegu minningar sem ég á af okkur saman. Ég minnist þess þegar ég var lítill polli og kom í heimsókn til þín og ömmu. Þegar ég var sestur við mat- arborðið sagðir þú gjarnan: „Gjörðu svo vel, frændi, skóflaðu þessu nú í þig áður en þetta verður kalt.“ Enn þann dag í dag „skófla“ ég í mig matnum. Þegar ég lít aftur á minn- ingar sem þessa, þá fær það mig - ávallt til að brosa. Ég bið Guð að varðveita þig, elsku afi minn. Vertu bless í hinsta sinn. Þinn Jóhann Gunnar. + Innilegar þakkir fyrir samúð við fráfall systur okkar, ÓSKAR JÓNU ÞÓRÐARDÓTTUR, \ TTpí Skjóli, áður til heimiiis í Hólmgarði 13, Reykjavík. Þórður Þórðarson, \ Gísli Þórðarson. Lokað í dag, föstudaginn 3. mars, verða skrifstofur okkar lokaðar frá kl. 13 vegna jarðarfarar vinar okkar, félaga og samstarfsmanns, BENEDIKTS RAGNARSSONAR. Geysir vélsleðaferðir, A-ferðir, Geysir bílaleiga, Avis bílaleiga. Elsku afi minn, nú ert þú horfinn frá okkur og mig langar til að segja þér að ég sakna þín mikið og þakka þér allt sem við áttum saman. Ég bið góðan guð að varðveita þig í þínum nýju heimkynnum. Vertu sæll, elsku afi minn. Þinn Rúnar. Mig langar til að minnast míns elskulega afa, Bergþórs Guðjóns- sonar, með nokkrum orðum. Afi var mjög traustur maður og góður sínu fólki. Hann var maður orða sinna og ávallt reiðubúinn til hjálpar og að- stoðar þeim er á þurftu að halda. Hann hafði mikið gert til að gleðja okkur barnabörnin og kom þá vel í ljós hversu fullur rausnar hann var. Afi var einstaklega barngóður maður og frá þvi ég man eftir mér var mér ávallt sýnd mikil hlýja á heimili afa og ömmu á Skólabraut- inni. Þar var gaman að fá að gista nótt og nótt þegar ég var lítil. Oft fórum við afi þá saman í bíltúr og eins var viss ljómi yfir því að fá að vera hjá honum úti í bflskúr, þar sem hann vann að netum sínum o.fl. Einu sinni fékk ég meira að segja að fara með þeim afa og pabba í grá- sleppuróður og var það mikið ævin- týri fyrir mig, þá sex ára gamla. Þannig eru allar mínar minningar um afa; fullar af hlýju og kærleika. Afi stundaði sjómennsku allt sitt líf. Fyrr á árum var hann mikill af- laskipstjóri og stundaði m.a. mikið sfldveiðar. Hin seinni ár reri hann síðan á eigin trillu, allt fram að átt- ræðu. Starfsævin var því orðin æði löng og víst að oft hefur afi verið mikið þreyttur eftir erfiða róðra síð- ustu árin. Hann talaði hins vegar ekki um slíkt og sýndi einatt af sér mikla ósérhlífni við starf sitt. Afi var mikill veiðimaður í sér. Þar sem fiskveiðunum sleppti tóku laxveiði og rjúpnaskitterí við. Hann var einstaklega laginn við veiðarnar og stundaði þær af ástríðu. Hugsun- in var þó ekki sú að veiða eingöngu ánægjunnar vegna, heldur var hann ávallt að færa björg í bú. Núna síðustu misserin hafði heilsu afa hrakað allmikið. Það var okkur Flosa því mikil ánægja að hann skyldi fá að lifa það að sjá langafabarn sitt, hann Guðjón Alex, skírðan í janúar sl. Ég bið góðan guð að styrkja ömmu og aðra aðstandendur afa og þakka fyrir að hafa fengið að alast upp í nálægð og njóta samvista við þennan góða mann. Lára Huld Guðjónsdóttir. Ljómar heimur logafagur, lífið fossar, hlær og grær. Nú er sól og sumardagur, söngvar óma fjær og nær. Vorsins englarvængjum blaka, vakir lífsins heilög þrá. Sumarglaðir svanir kvaka suður um heiðavötnin blá. Þessar ljóðlínur Friðriks Hansen koma í hugann þegar ég minnist föðurbróður míns, Bergþórs Guð- jónssonar, sem í dag er kvaddur hinstu kveðju að loknu löngu og giftudrjúgu æviskeiði. I minning- unni hljómar þetta lag af vörum hans - söngur náttúrubarnsins. Á bak við alvörugefið og yfirvegað fas hversdagsins bjó glettni og ljúf- mennska. Á góðum stundum þegar gleðin ríkti og hvfld var tekin frá amstri daganna hljómaði söngurinn. Sterka röddin hans, glettnislega brosið og ólgandi lífsfjörið er minn- isstætt. Bergþór var veiðimaður af guðs náð. Ef ekki var verið að stunda sjóinn var haldið fram til heiða og inn til dala til rjúpnaveiða eða lax- og silungsveiða. Nálægð og átök við náttúruna voru lífsnauð- synleg og um leið var haldin í heiðri sú virðing við hana sem öllum sönn- um veiðimönnum er í blóð borin. Bergþór var fæddur að Hvítanesi á Akranesi, sonur hjónanna Guð- jóns Þórðarsonar og Ingiríðar Bergþórsdóttur, sem síðar fluttu að Ökrum og bjuggu þar allan sinn bú- skap. Var fjölskyldan jafnan kennd við það hús á Akranesi. Ingiríður var dóttir hjónanna Bergþórs Árna- sonar og Ingiríðar Jóhannesdóttur,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.