Morgunblaðið - 03.03.2000, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 5
FRÉTTIR
föður hans, Hrímni frá Vilmundar-
stöðum, sem var einnig grár, fæddur
svartur. Páll telur því varla annað
hægt en að líta á það sem staðreynd
að hvorugur þeirra sé litföróttur og
að litförótt liggi ekki falið á bak við
gráu hrossin sem hér koma við sögu.
Páll þekkir aðrar svipaðar sögur
um að þetta hafi gerst á sama hátt
áður hér á landi, en ekki verður leng-
ur hægt að staðfesta þær þar sem
hrossin sem um ræðir eru dauð.
Hann segir þó talið að svona hafi lit-
förótt hrossakyn á Mýrum í Álftaveri
komið upp á sínum tíma fyrir tilstuðl-
an hvits fola af ætt Þokka 134 frá
Brún og brúnnar hryssu. Hugsan-
lega er til annað dæmi hér á landi
sem tilvalið væri að rannsaka.
Þótt liturinn hyrfi gæti hann
komið fram aftur
Páll telur því líklegt að möguleiki
sé á því að litförótt komi fram aftur
þó að það hverfi úr stofninum, en þó
sé ekki á það að treysta. Þessi sér-
staka aðferð við að skila erfðum er
ekki þess eðlis að á grundvelli hennar
sé hægt að rækta litförótt hross. Hún
byggist á tilviljanakenndri erfðaað-
ferð sem virðist vera mjög sjaldgæf
og ómögulegt er að hafa áhrif á.
Því sé mjög mikilvægt að viðhalda
litförótta litnum í stofninum með því
að rækta hross undan litföróttum
hrossum. Vegna þess að ekki er talið
mögulegt að fá fram arfhreinan ein-
stakling undan tveimur litföróttum
hrossum er lítið fengið með því að
halda saman tveimur litföróttum ein-
staklingum. Ef afkvæmið er arf-
hreint lætur hryssan fóstrinu fljót-
lega og ekkert folald fæðist, eins og
áður hefur komið fram. Ef t.d. 20 lit-
föróttar hryssur ganga með litförótt-
um fola annaðhvort fyrra eða seinna
gangmál má búast við að 25%
hryssnanna verði geldar en af þeim
folöldum sem fæddust yrðu 67% lit-
förótt og 33% einlit. Ef stóðið gengi
saman heilt sumar mætti búast við að
allar hryssurnar héldu og 13-14 fol-
öld yrðu litfórótt en 67 einlit. Vand-
ræðin sem því fylgdu yrðu mikið álag
á stóðið og margir síðgotungar.
Vænlegra að halda
litföróttu og einlitu saman
Hvað ræktunina varðar virðist
vera vænlegra til árangurs að halda
einlitu hrossi og litföróttu saman,
enda þá um meira úrval að ræða sem
mun flýta fyrir því að fá fram úrvals-
góða litfórótta einstaklinga til fram-
haldsræktunar. Þar sem öll litforótt
hross eru arfblendin má búast við að
litföróttir folar gefí litförótt afkvæmi
á móti einlitum hryssum í u.þ.b.
helmingi tilvika og sama gildir um
litföróttar hryssur og einlita fola.
Páll segir að auðvelt sé að rækta lit-
förótt. Fólk þurfi að leggja áherslu á
að rækta góð hross sem bera litinn.
Til að hægt verði að ganga úr
skugga um að Reglubrjótur sé í öllu
eðli sínu litföróttur var hann notaður
á nokkrar hryssur á Lágafelli síðast-
liðið sumar. Það kemur svo í ljós á
næstu árum hvort um hagana á
Lágafelli hlaupi litforótt afkvæmi
Reglubrjóts.
Aðalfundur Olíufélagsins hf. verður haldinn
miðvikudaginn 22. mars 2000 á Hótel Loftleiðum,
þingsal 1-3, og hefst fundurinn kl. 14.00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
skv. 12. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingar á samþykktum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endaniegar tillögur og reikningar
félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á aðalskrifstofu félagsins, Suðurlandsbraut 18,
4. hæð, frá og með 20. mars, fram að
hádegi fundardags.
Stjórn Olíufélagsins hf.
Ohufélagsðhf
www.esso.is
Komdu og kynntu þér dásemdir fasta farðans, Revelation Light
Responsive Compact Makeup SPF 15, hjá sérfræðingum
Estée Lauder í dag, föstudag kl. 13-18, og á morgun, laugardag
kl. 12-16, og fáðu leiðbeiningar um val á þeim lit sem fer þér best.
T¥ A /1 YF A TT TJ Snyrtivörudeild Kringlunni,
11 AUTlkAU 1 sími 568 9300.
Fenguboli
að gjöf
FYRIR skömmu hlutu nemendur 15
bekkja boli að gjöf en þeir voru
dregnir út í aukaútdrætti í Evrópu-
samkeppni meðal reyklausra 7. og
8. bekkja.
Tóbaksvarnanefhd og Krabba-
mcinsfélagið standa að keppninni
en alls eru yfir 320 bekkir skráðir
til þátttöku á Islandi. Auk Islands
taka þrettán önnur Evrópulönd
þátt í keppninni en aðalvinningur-
inn, ferð til Berlínar fyrir allan
bekkinn auk kennara, verður dreg-
inn út í maí. Einnig verða dagsferð-
ir, helgarferð, geislaspilarar og
fleira í verðlaun fyrir reyklausa
bekki. Á myndinni eru nemendur í
7. bekk í grunnskóla Skútustaða-
hrepps, Reykjahlíðarskóla við Mýv-
atn, en þeir voru í hópi hinna 15
heppnu bekkja.
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- -
ir vitnum að ákeyrslu á kyrrstæða
bifreið við Háskólabíó.
Atvikið átti sér stað klukkan 10:50
að morgni fimmtudagsins 2. mars
þegar ekið var á rauða Suzuki Swift
bifreið á bifreiðastæði við Háskóla-
bíó. Sá er það gerði ók á brott án
þess að tilkynna um óhappið. Vitni
gáfu sig fram við eiganda bifreiðar-
innar á staðnum og sögðu að um hafi
verið að ræða gráa og bláa MMC
Pajero jeppabifreið. Láðist eiganda
að taka niður nöfn þessara vitna.
Vitnin eru beðin um að gefa sig
fram við lögregluna í Reykjavík. -
Nú getur húð þín verið frábærlega frískleg og lýtalaus ásýndum
í hvaða Ijósi sem er - hvort heldur dagsbirtu eða rafljósum.
Leyndardómurinn felst í þessum nýja andlitsfarða sem í eru sérstök
litarefni er laga sig að birtunni og stýra þekjuhæfni farðans.
Tregsmitandi efnablandan veitir húðinni nauðsynlega
vernd og þægilega áferð daglangt.
í réttu Ijósi frá morgni til kvölds
Estée Lauder kynnir
Revelation
Light Responsive Compact Makeup SPF 15
M E A N D I
0
L/nð.rifci