Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
89. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þúsundir mótmælenda safnast saman í Litlu-Havana
>
Afrýj unar dómstóll
kyrrsetur Elian
Miami. AP, AFP.
„KÚBUDRENGURINN" Elian
Gonzalez hefur verið kyrrsettur í
BandanTgunum af áfrýjunardóm-
stóli alríkisyflrvalda á meðan þar-
lend yfírvöld og ættingjar drengsins
í Miami deila um hvort hann skuli
sendur til Kúbu á ný. Fallist var á
beiðni um kyrrsetningu sem lögð
var fram af Lazaro Gonzalez,
frænda Elians, aðeins nokkrum tím-
um eftir að Lazaro virti að vettugi
skipun Janet Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, um að Elian
skyldi afhentur innflytjendaeftirlit-
inu (INS) á Opa-Locka-flugvellinum
í gærdag.
Að sögn talsmanna stjórnvalda
var búist við kyrrsetningarbeiðninni
og hefur dómsmálaráðuneytið sam-
þykkt að aðhafast ekkert frekar í
málinu fyrr en dómstólar hafa kynnt
sér beiðnina. Að sögn Reno var búist
við að það tæki þrjá til fjóra daga.
Alríkisyfirvöld höfðu áður sagst
reiðubúin að skerast í leikinn yrði
Elian ekki afhentur INS og sagði
Reno að þá myndu stjórnvöld bregð-
ast við á „skynsamlegan og yfirveg-
Stjórnar-
andstaðan
sigrar í
S-Kóreu
Seoul. AP, AFP.
STÓRI þjóðarflokkurinn (GNP), sem
nú er í stjórnarandstöðu, fór með sig-
ur af hólmi í þingkosningum sem
fram fóru í Suður-
Kóreu í gær. Út-
gönguspár höfðu
áður bent til að
stjómarflokkur
Kim Dae-Jung,
forseta landsins,
Þúsaldar-lýðræð-
isflokkurinn
(MDPj, myndi
hljóta flest at-
kvæði.
Þegar úrslit
lágu endanlega fyrir hafði MDP hlot-
ið 115 þingsæti af 273 en GNP 133.
Leiðtogar MDP virtust agndofa á
niðurstöðunum, en útgönguspár
höfðu áður spáð flokknum sigri.
„Þetta er tilskipun kjósenda um að
flokkur okkar taki að sér það hlut-
verk að sigrast á valdníðslu hinnar
hrokafullu stjómar Kim Dae-Jung,“
sagði Lee Hoi-Chang, formaður
GNP, eftir að úrslit kosninganna vora
ljós. Stuðningur kjósenda við MDP
hafði þó aukist umtalsvert síðustu
daga fyrir kosningamar og rekja
sérfræðingar það til frétta af væntan-
legum leiðtogafundi N- og S-Kóreu.
Kosningaþátttaka í gær mældist sú
minnsta til þessa og mættu aðeins
56,4% af 33,5 milljónum kjósenda á
kjörstað, en kjósendur era margir
sagðir ósáttir við spillingu innan
stjórnarinnar.
Lee
Hoi-Chang
AP
Univision-sjónvarpsstöðin sýndi
á miðvikudagskvöldið mynd-
band þar sem Elian sést ávarpa
föður sinn á spænsku og segist
ekki vilja fara til Kúbu.
aðan máta. Við höfum rétt á að grípa
inn í, en ábyrg valdnotkun er að vita
ekki bara hvenær eigi að grípa inn í,
heldur líka hvernig,“ sagði Reno.
Vakti fögnuð mótmælenda
Mikil fagnaðarlæti brutust út við
heimili Gonzalez-fjölskyldunnar í
Litlu-Havana í Miami þegar til-
kynnt var um ákvörðun áfrýjunar-
dómstólsins. En þúsundir mótmæl-
enda, flestir kúbverskir
innflytjendur, höfðu safnast þar
saman til að mótmæla því að Elian
yrði afhentur yfirvöldum. í hópi
mótmælendanna mátti sjá söngkon-
una Gloriu Estefan og Hollywood-
leikarann Andy Garcia, sem bæði
eru kúbversk að uppruna.
Mikil spenna ríkti á svæðinu áður
en kyrrsetning Elians var kunngerð
og hrópuðu sumir: „Stríð! Stríð!
Stríð!“ á spænsku á meðan aðrir
ítrekuðu að þeir myndu ekki grípa
til ofbeldis. Þá hafði lögregla hlekkj-
að saman vegatálma og hópur mót-
mælenda komið sér fyrir í hliðar-
götu fyrir aftan hús
Gonzalez-fjölskyldunnar af ótta við
að yfirvöld myndu laumast inn bak-
dyramegin.
AP
Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman fyrir framan heimili Lazaro
Gonzalez í gær til að mótmæla því að Elian yrði afhentur bandaríska
innflytjendaeftirlitinu.
Stefndi í uppgjör með Mugabe og dómskerfínu 1 Zimbabwe
Varaforsetinn skipar
iandtökufólki burt
Harare. AP, AFP.
RÍKISSTJÓRNIN í Zimbabwe
hvatti í gær þá sem lagt hafa undir sig
bújarðir hvítra bænda tál að yfirgefa
þær. Þá hafði dómstóll í landinu úr-
skurðað, að jarðanámið væri ólöglegt
og því stefndi í uppgjör með dóms-
kerfinu og Robert Mugabe forseta en
hann hefur lagt blessun sína yfír bóta-
lausa töku bújarðanna.
Það var Joseph Msika, varaforseti
Zimbabwe, sem skoraði á landtöku-
fólkið að yfirgefa bújarðimar, en
Mugabe er nú í Havana á Kúbu. Tals-
menn landtökumannanna svöraðu því
aftur til að þeir myndu aðeins taka við
skipunum frá Mugabe sjálfum.
Auk þess að úrskurða öðra sinni að
landtakan væri ólögleg hafnaði rétt-
urinn einnig fullyrðingu Patricks
Chinamasa, dómsmálaráðherra
Zimbabwes, að reyndi lögreglan að
reka burt landtökumennina, sem era
vopnaðir, gæti það hleypt af stað
borgarastyrjöld í landinu og sögðu
dómarar að í þessu efni sem öðrum
yrði að fara að lögum.
Hefur áður beitt
sama bragði
Ljóst var eftir að úrskurðurinn
hafði verið kveðinn upp að til ein-
hverra tíðinda hlyti að draga en
Welshman Ncube, lagaprófessor við
Zimbabwe-háskóla, sagði að Mugabe
hefði notað stofnanir ríkisins til að
kynda undir lögleysu og upplausn.
„Hann hefur rofið þann eið sinn að
standa vörð um lögin og stjómar-
skrána," sagði Ncube.
Undirrót þessara atburða er að
flestra mati sá mikli ósigur sem
Mugabe beið í þjóðaratkvæðagreiðslu
í febrúar um breytingar á stjómar-
skránni. Brást hann við honum með
þvi að segja landlausum blökkumönn-
um að hann hygðist leggja hald á
bújarðir hvítu bændanna. Nokkram
dögum síðar fóru þeir að leggja undir
sig bændabýlin og er það raunar haft
eftir sumum þeirra að flokkur Mug-
abes hafi borgað þeim fyrir það.
Suharto
í stofu-
fangelsi?
Jakarta. AP.
FORSETI Indónesíu, Abdurr-
ahman Wahid, lagði í gær til
að Suharto, fyrrverandi ein-
ræðisherra landsins, yrði sett-
ur í stofufangelsi. Suharto
sætir nú rannsókn vegna spill-
ingar og hafa rannsakendur
meinað honum að yfirgefa
landið í eitt ár og höfuðborg-
ina Jakarta í tuttugu daga.
Saksóknarar hafa gagnrýnt
Suharto fyrir að aðstoða ekki
við rannsóknina og óttast þeir
jafnframt að hann muni reyna
að flýja land.
„Ef ekki er hægt að yfir-
heyra Suharto, eða ef hann vill
ekki láta yfirheyra sig, verður
hreinlega að setja hann í
stofufangelsi þannig að hann
fari ekki í burtu,“ hefur dag-
blaðið Suara Pembaruan eftir
forsetanum í gær.
Suharto er sakaður um að
hafa misnotað milljónir dollara
af opinberu fé en sjálfur hefur
hann neitað öllum ásökunum.
Hefur hann ítrekað verið
boðaður til yfirheyrslu en ekki
látið sjá sig til þessa. Suharto,
sem er 78 ára gamall, hefur
gefið þá skýringu að hann sé
of heilsuveill til að láta yfir-
heyra sig. Saksóknarar hafa
tvívegis mætt á heimili hans á
síðustu tveimur vikum en í
bæði skiptin verið meinað af
læknum að hitta Suharto.
Fyrrverandi leiðtogi Indón-
esíu hefur einu sinni áður ver-
ið settur í stofufangelsi. Það
var árið 1967 er Suharto, sem
þá var hershöfðingi, meinaði
Sukarno forseta að yfirgefa
heimili sitt.
Beinar við-
ræður við
Tsjetsjena
Moskvu. AP.
RÚSSNESKA stjómin greindi frá
því í gær að hún hefði hafið milliliða-
lausar viðræðm- við fulltrúa Tsje-
tsjena með það að markmiði að binda
enda á átökin í héraðinu.
Igor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagðist telja að viðræð-
urnar myndu leiða til haldbærrar
niðurstöðu. Hann vildi þó ekki til-
greina hveijir fulltrúar Tsjetsjena í
viðræðunum væra og var ekki Ijóst
hvort um fulltrúa skæruliða væri að
ræða. Sagði ívanov einungis að við-
ræðurnar hefðu verið í gangi um
nokkurt skeið og er það talin vís-
bending um að rússnesk stjórnvöld
leiti nú leiða til að finna lausn á deil-
unni í Tsjetsjníu en hingað til hefur
ríkisstjórnin alfarið neitað að ræða
við skæraliða nema þeir afhendi
vopnabúnað sinn fyrst.
MORGUNBLAÐIÐ 14. APRÍL 2000