Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stnórnsýsluendurskoðun á Áformi - átaksverkefni með vistvænar afurðir Meiri hækk- Skortur á formfestu við framkvæmdina RÍKISENDURSKOÐUN telur að verkefnaval Aforms - átaksverkefnis spanni of vítt svið miðað við þá fjármuni sem verkefnið hafði til ráðstöfun- ar og það sé ekki síst af þeirri ástæðu sem árang- ur, sem mælanlegur er eftir tölulegum mæli- kvörðum, hefur ekki náðst. Á árinu 1995 voru samþykkt lög um átaksverk- efni um framleiðslu og markaðssetningu vist- vænna og lífrænna afurða. Hefur verkefnisstjóm síðan unnið að málinu og haft um 25 milljóna króna árlegt framlag á fjárlögum til ráðstöfunar. Ríkisendurskoðun ákvað í haust að gera stjómsýsluendurskoðun á verkefninu og hefur nú sent frá sér niðurstöðurnar í skýrsluformi. Stuðlað að viðhorfsbreytingu Fram kemur í skýrslunni það mat að Áform hafi náð nokkram árangri með starfi sínu. Stuðl- að hafi verið að viðhorfsbreytingum og aukinni þekkingu á þessu sviði sem nýtast muni við vöra- þróun og sölu íslenskra afurða. Þó er tekið fram að árangur verkefnisins verði ekki mældur í tölu- legum upplýsingum um atvinnusköpun, magn seldra afurða og verðmæti þeirra. Fram kemur að landbúnaðarráðherra hefur ekki sett reglugerð eða gert athugasemdir við framkvæmd verkefnisins. Telur Ríkisendurskoð- un að nokkuð skorti á að landbúnaðarráðuneytið hafi sinnt þvi forystuhlutverki sem því bar að gegna í málinu. I skýrslunni segir að frá því verkefnið hófst hafi stjórn þess ekki sett sér skriflegar verklags- reglur eða mótað sér skýr markmið. Þá hafi styrkir hvorki verið auglýstir né bréfum verið svarað skriflega. Þannig skorti þá formfestu sem telja verði nauðsynlega þegar um ráðstöfun á op- inberu fé er að ræða. Leggur stofnunin áherslu á að styrkir séu auglýstir þannig að allir hafi jafna möguleika á að sækja um þá. Fram kemur í skýrslunni að stjórn Áforms hefur í svari sínu vakið athygli á að það sé fram- kvöðulsverkefni og hafi stjórn þess frá upphafi þurft að leita uppi aðila sem hefðu áhuga og getu til að reyna fyrir sér með nýjungar á verksviði átaksins. Tilgangslaust hafi verið að auglýsa styrki þar sem aðeins einn aðili hafi í flestum til- vikum verið hæfur til að taka verkefni að sér, auk þess sem þurft hafi að hvetja þá til þess. Loks kemur fram að rekstur á verkefninu sjálfu tók til sín 37% af útgjöldum þess, eða mest einstakra útgjalda. Er það að mati Ríkisendur- skoðunar of hátt hlutfall en þess jafnframt getið að líta verði til þess að heildarráðstöfunarfé verkefnisins er ekki mikið og því hljóti stjórnar- kostnaður að vera hlutfallslega hár. Þegar á heildina er litið hafa 35% útgjalda verið til mark- aðsmála og 17% til rannsókna. Munar þar mestu að á áranum 1995 og 1996 var miklum fjármun- um varið til markaðssetningar á dilkakjöti í Bandaríkjunum. un personu- afsláttar samþykkt ALÞINGI samþykkti í gær lög um hækkun skattleysismarka og pers- ónuafsláttar. Um var að ræða framvarp sem samið var í tengslum við samninga- gerð Flóabandalagsins og Samtaka atvinnulífsins fyrr í vetur. Gerð var breyting á framvarpinu við af- greiðslu þess í gær, í kjölfar samn- inga Samtaka atvinnulífsins og VMSÍ, og fól hún í sér enn frekari hækkun persónuafsláttar 2003 þann- ig að persónuafsláttur þá verði um 2,75% í stað 2,25%. Hækkar fjárhæð persónuafsláttar, þegar tekið hefur verið tillit til allra þeirra hækkana sem fram eiga að koma í áfongum ár- in 2000-2003, því ekki úr 286.944 kr. í 319.056 kr. eins og upphaflegt framvarp gerir ráð fyrir heldur í 320.616 kr. ■ Enn frekari /10 Morgunblaðið/Golli Vaskafat reist VEGAFRAMKVÆMDIR era í fullum gangi í Þúsaldarhverfinu í Grafarholti. Sigurður Skarphéð- insson gatnamálastjóri segir að samkvæmt fjárhagsáætlun kosti gatnagerðin 570 miHjónir kr. Þar til viðbótar era framkvæmdir Orkuveitunnar sem m.a. felast í því að gera skál sem heitavatns- tankamir sex eiga að standa í. Mannvirkið gengur undir nafninu vaskafatið og á að tryggja það að vatn flæði ekki út fyrir svæðið ef tankur gefur sig. Þama er sprunga og verður vatnið leitt í hana ef tankur gefur sig. í tönkunum er 80-90 stiga heitt vatn sem kemur frá Nesja- völlum. Gatnaframkvæmdir hófust skömmu íyrir áramót og segir Sig- urður að reiknað sé með því að unnt verði að afhenda fyrstu lóðir byggingarhæfar 1. júlí og næstu þrír áfangar verða 1. ágúst, 1. sept> ember og 1. október. Hann segir að uppbyggingin þama sé afar hröð og gerðar verði 650 bygging- arhæfar lóðir á árinu. Hann telur að þetta sé mesti íramkvæmda- hraði sem Reykjavíkurborg hefur náð í uppbyggingu gatnakerfis nokkra sinni. I hverfinu er gert ráð fyrir 1.500 íbúðum. Hannes Hlífar Stefánsson sigurvegari 19. alþjóðlega Reykjavíkurskákmótsins „Sigurinn kom mér mjög á óvart“ HANNES Hlífar Stefánsson, skák- meistari og sigurvegari 19. al- þjóðlega Reykjavíkurskákmdtsins, sem lauk í gær í Ráðhúsi Reykjavík- ur, fór taplaus í gegnum mótið og hlaut sjö og hálfan vinning af m'u mögulegum eftir jafntefli við Rúss- ann Alexander Grischuk. Rússinn var þremur sætum á undan Hannesi í stigaröð fyrir mótið og bauð Hann- esi jafhtefli eftir 20 Ieiki sem nægði honum til sigurs á mótinu. „Sigurinn kom mér mjög á óvart miðað við það hversu sterkir skák- menn tóku þátt í mótinu,“ sagði Hannes Hlífar f samtali við Morgun- blaðið skömmu eftir siðustu skák- ina. „Maður veit aldrei við hveija maður teflir á opnum mótum eins og þessu og aðalatriðið er því að undir- búa byijanirnar vel og hafa þær á hreinu. Öðru máli gegnir með lokuð skákmót þar sem maður veit hveijir keppa f mótinu. Þar keppa allir við alla og þannig er unnt að undirbúa sig fyrir hvern andstæðing." Eftirminnilegasta skákin við Kortsjnoj Hannes sagði aðspurður að eftir- minnilegasta skákin hefði verið skákin á móti Viktor Kortsjnoj á miðvikudag í áttundu umferð. Kortsjnoj var annar stigahæsti skákmaðurinn fyrir mótið þótt það dygði honum ekki til sigurs gegn Hannesi. „Skákin á móti Kortsjnoj Morgunblaðið/Ómar Hannes Hlífar Stefánsson leikur fyrsta leikinn í skák sinni við Alexander Grischuk í lokaumferð Reykjavíkurskákmótsins í gær. reyndi mjög mikið á og það var gaman að keppa við frægan skák- mann sem er enn að. Hann var ótrú- lega harður og frammistaða hans sýnir að menn geta haldið áfram að tefla langt fram eftir aldri. Ég fann hve mikil barátta var í honum og hann gaf hvergi eftir þrátt fyrir að vera orðinn 69 ára gamall." Hannes hafði svart gegn Kortsjnoj og beitti nýju afbrigði af drottningar- indverskri vöm, sem Anatoli Kar- pov, fyrverandi heimsmeistari, gerði fræga á sínum túna í heims- meistaraeinvígi þeirra tveggja árið 1974. „Kortsjnoj hefur gríðarlega reynslu frá einvíginu við Karpov og það var sérstaklega gaman að vinna skákina eftir að hafa unnið byijun- arbaráttuna í taflinu. Það er mjög mikilvægt, þegar maður teflir við svo sterka andstæðinga sem Kor- tsjnoj, að fara vel út úr byijunartafl- inu. Fái maður verri stöðu út úr því gegn mönnum eins og honum er maður í vondum málum.“ Fleiri keppendur á mótinu vöktu líka athygli Hannesar, einkum ung- ur Kínveiji, Xinangzhi Bu að nafni, sem var tólfti stigahæsti keppa- ndinn á mótinu. „Hann er aðeins fjórtán ára og hefur staðið sig gríð- arlega vel á mótinu og það á eftir að mæða mikið á honum í framtíðinni,“ sagði Hannes. Kínverjanum tókst að gera jafntefli við Bretann Nigel Short í áttundu umferð en Short var stigahæsti keppandinn fyrir mótið. Hannes mun væntanlega hækka um 25 skákstig eftir sigurinn á mót- inu, en hann hafði fyrir mótið 2.566 stig. Samkvæmt útreikningum samsvarar árangur hans 2.836 stig- um, sem er stigatala sem aðeins allra fremstu skákmenn heimsins hafa. Eftir mótið mun Hannes hafa 2.591 stig, sem telst óvenjumikil hækkun eftir eitt mót. Framundan hjá Hannesi er sterkt lokað skákmót á Kúbu í maí og enn- fremur hefur hann til athugunar að fara til Spánar í sumar og tefla á mörgum mótum án þess þó að hafa ákveðið neitt þar að lútandi. Sérblöð í dag ámsieetífí BÍÓBLAÐIÐ Á FÖSTUDÖGUM Guðjón Þórðarson á leið til íslands með Stoke?/Bl íslensku strákarnir lögðu Þjóðverja/B3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.