Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Islandsbanki
byggir upp
víðnet
VIÐSKIPTI
Flugleiðir gera 3,4 milljarða króna lánasamning undir markaðsvöxtum
A að skila félaginu
300 milljónum
króna betri kjörum
FLUGLEIÐIR hafa undirritað
lánasamninga, að jafnvirði 3,4
milljarðar króna, vegna kaupa á
nýrri Boeing 757 200 flugvél sem
félagið fær afhenta frá Boeing
verksmiðjunum í síðustu viku apríl.
Samkvæmt upplýsingum frá Flug-
leiðum er lánið til tíu ára og nemur
það 46,4 milljónum bandaríkjadoll-
ara. Mestur hluti lánsins, eða 86%,
er með ábyrgð frá Export Credits
Guarantee Department í Bretlandi
og ber fasta vexti sem eru um 2%
undir markaðskjörum lánsfjár á
markaði í dag.
Þetta eru hagstæðustu lána-
samningar sem Flugleiðir hafa
gert vegna flugvélakaupa í meira
en áratug, og á samningurinn að
skila Flugleiðum um 300 milljónum
króna betri kjörum en markaðs-
vextir eins og þeir eru nú og ef
miðað er við líftíma lánsins.
Lánveitandi er H.S.B.C Invest-
ment bank ple. Auk þess hluta
heildarlánsfjárhæðarinnar sem ber
fasta vexti lánar bankinn um 14%
fjárhæðarinnar á breytilegum
vöxtum. Flugleiðir og H.S.B.C In-
vestment bank byrjuðu árið 1997
að leita hófanna hjá Export
Credits Guarantee Department um
Frá undirritun lánsins í London. Sitjandi við borðið frá vinstri eru Kevin
Jones frá ECGD, Halldór Vilhjálmsson frá Flugleiðum, Dean Cooper og
Michael Davis frá HSBC.
hvort Flugleiðir gætu fengið láns-
ábyrgð af þessu tagi vegna kaupa
á Rolls Royce hreyflum fyrir
Boeing 757 flugvélar félagsins.
Gerð samninga um lánið og
ábyrgðina lauk fyrir skömmu og
voru þeir undirritaðir fyrr í þess-
um mánuði.
Dýrustu verslunarhúsnæðin
Leiga, þúsund kr. hver fermetri á ári
New York, Madison Avenue
París, Avenue des Champs Elysées
London, Oxford Street
Moskva, Verslunarhúsiö Gum
Munchen, Kaufmgerstrasse
Dubiin, Grafton Street
Kaupmannahöfn, Strikið
Brussel, Rue Neuve
Stokkhólmur, Biblioteksgatan
Madrid, Preciados
Helsinki, Miðborgin
Bankok, Miðborgin H
Osló, Karl Johans gata | 28
Reykjavík, Miðborgin K 28
Kiev, Miðborgin |i 26
Kiev, S-Afríka, CBD | 26
Drjúgur munur á
leiguverði versl-
unarhúsnæðis
Sr13 ct
• •
Ossuri
NÆSTKOMANDI mánudag hefst
áskriftartímabil fyrir forgangsrétt-
arhafa í hlutafjárútboði Össurar hf.
og miðast forkaupsrétturinn við
hlutaskrá félagsins 8. apríl. Óskað er
eftir áskrift í nýtt hlutafé Össurar hf.
að nafnverði 60 milljónir króna, eða
22,1% af heildarhlutafé að teknu til-
liti til hlutafjáraukningar.
I tilkynningu til Verðbréfaþings
kemur fram að nýti hluthafar sér
ekki allan forgangsrétt sinn eða
framselja ekki forgangsrétt sinn eigi
aðrir hluthafar aukinn rétt til þess
hlutafjár að tiltölu við hlutafjáreign
sína. Ef hinir nýju hlutir seljast ekki
allir til hluthafa verða þeir seldir í al-
mennu útboði. Gengi til forkaups-
réttarhafa verður 64 og miðað við
það nemur heildarfjárhæð útboðsins
rúmum 3,8 milljörðum króna.
Komi til almenns útboðs mun það
nýju hlutafé í
hf. að hefjast
standa frá 3.-5. maí nk. Útboðsgengi
í almennu útboði verður 69 og gefst
þátttakendum kostur á að skrá sig
fyrir kr. 15.000 að nafnverði að há-
marki, eða kr. 1.035.000. Kaupþing
hf. hefur umsjón með útboðinu og
tekur við áskriftum á útboðstímabili.
Breyting á rekstraráætlunum
Flex-Foot, Inc., sem Össur hf. hef-
ur keypt, verður gert upp í samstæð-
ureikningi Össurar hf. frá og með 1.
aprfl síðastliðnum, og því hefur orðið
breyting á áætlunum félagsins eins
og þær voru kynntar við birtingu
uppgjörs og í fyrri útboðs- og skrán-
ingarlýsingu. Gert er ráð fyrir að
rekstrartekjur verði 3.410 milljónir
króna árið 2000 og hagnaður fyrir af-
skriftir 690 milljónir króna. Áætlað
er að hagnaður fyrir fjármagnsliði
verði 600 milljónir króna.
Afskrift viðskiptavildar í tengslum
við kaupin á Flex-Foot verður allt að
3.150 milljónir króna á yfirstandandi
ári þar sem tekin hefur verið ákvörð-
un um að afskrifa eins mikið og
mögulegt er samkvæmt góðri reikn-
ingsskilavenju. Samkvæmt þessu er
gert ráð fyrir að rekstrartap félags-
ins á þessu ári geti numið allt að
2.820 milljónum króna.
Stjómendur þess telja að það sé
viðunandi niðurstaða þar sem fjár-
munamyndun sé sterk og tapið ein-
ungis bókhaldsleg reiknistærð. Til-
gangurinn með því að fara þessa leið
sé að ná fram skattalegu hagræði og
gera reikningsskil félagsins gagn-
særri. Þar að auki sé ekki talið
heppilegt að vera með mikla við-
skiptavild á bókum félagsins ef færi
gefast á frekari kaupum á fyrirtækj-
um.
Morgunblaðið/Kristinn
Seðlabankinn kaup-
ir afgreiðslukerfi
sparisjóðanna
LEIGA fyrir hvern fermetra af
verslunarhúsnæði á Laugaveginum
er á bilinu 1.500 til 2.500 krónur á
mánuði eða 24-30 þúsund á ári, að
því er Teitur Atlason hjá Leigulist-
anum ehf. segir. „Það veltur nokkuð
á ástandi húsnæðisins," segir hann
til frekari skýringar. Formaður
Laugavegssamtakanna, Ragna Ósk-
arsdóttir, kaupmaður í bamafata-
versluninni Krílinu, er sama sinnis
en segir enn fremur að reikna megi
með að mánaðarleiga fyrir fermetra í
stómm verslunum sé á bilinu 2.000
til 2.500 krónur.
Sá sem rekur verslun í leigðu hús-
næði á Madison Avenue í New York
borg þarf aftur á móti að greiða
leigusala sínum 6.459 dollara eða
tæpar 475 þúsund krónur fyrir hvem
fermetra á ári hverju samkvæmt
frétt í dagblaðinu Dagens Næríngs-
liv. Mánaðarleigan er þá rétt innan
við 40 þúsund krónur fyrir hvem fer-
metra. Hærri leiga á verslunarhús-
ríæði þekkist að því er fram kemur í
blaðinu.
Upplýsingamar hefur blaðið úr
könnun sem gerð var á vegum mark-
aðs- og fasteignafyrirtækisins Hea-
ley & Baker. Healey & Baker rekur
íjölda útibúa um heim allan, þó ekki á
Islandi. Laugavegur í Reykjavík var
ekki með í úrtaki Healey & Baker.
Könnunin miðaðist við verslunar-
húsnæði með 6 metra breiðum
gluggum sem snúa að verslunargöt-
unni og sem em 25 metrar að dýpt
frá glugga og innúr. Fá slík verslun-
arhúsnæði em við Laugaveg.
Vart þarf að taka það fram að
leiguverð verslunarhúsnæðis við
mun fleiri verslunargötur en fram
kemur í listanum sem hér er er birt-
ur var athugað í könnun Healey &
Baker.
SKRIFAÐ hefur verið undir samn-
ing um kaup Seðlabanka íslands á
afgreiðslukerfi sparisjóðanna.
Kerfið, sem þróað er af Tölvumið-
stöð sparisjóðanna I samvinnu við
EJS hf., er hannað til að sjá um
alla almenna afgreiðslu fjárhags-
legra færslna og bókana í íslensku
fjármálaumhverfi og tengist beint
greiðslumiðlunarkerfi landsins,
ásamt grannkerfum viðkomandi
fj ármálastofnana.
Jafnframt hafa Tölvumiðstöð
sparisjóðanna og Seðlabanki ís-
lands skrifað undir samning um
að Tölvumiðstöðin sjái um allan
rekstur og þjónustu við af-
greiðslukerfið. Starfsmenn Seðla-
bankans sem vinna við kerfið fá
aðgang að þjónustuborði Tölvu-
miðstöðvarinnar og einnig fær
Seðlabankinn ávallt nýjar útgáfur
kerfísins, en það er í stöðugri þró-
un hjá Tölvumiðstöð sparisjóð-
anna.
Notað í öllum afgreiðslum spari-
sjóðanna og i Landsbankanum
Afgreiðslukerfí sparisjóðanna,
sem var gangsett í desember 1997,
er í notkun í öllum afgreiðslum
sparisjóðanna. Árið 1998 festi
Landsbanki fslands kaup á þessu
kerfi, eftir ítarlegan samanburð
við bæði innlendar og erlendar
lausnir. Afgreiðslukerfi sparisjóð-
anna er því orðið útbreiddasta
kerfi sinnar tegundar á fslandi.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
VKS
B0 Sigurjón Péturs-
son hefurveriö ráð-
hf. VKS er dótturfé-
framt taka sæti í
framkvæmdastjórn Kögunar-
samsteypunnar. Sigurjón ervið-
skiptafræðingurfrá Háskóla tslands
1974 og með MBA próf frá The
Graduate School for Business Ad-
ministration - New York University
1977. Hann hefurfrá árinu 1996
verið framkvæmdastjóri Stjórnunar-
deildar Skýrr hf. en áöur var hann að-
stoðarframkvæmdastjóri Sjóvár-
Almennra trygginga hf. frá stofnun fé-
lagsins 1989. Sigurjón er49 ára
gamall. Eiginkona hans er Þóra
Hrönn Njálsdóttir og eiga þau þrjú
börn.
Fráfarandi framkvæmdastjóri VKS,
Ari Arnalds, er annar stofnenda fyrir-
tækisins og hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri þess frá því það var
stofnað árið 1979. Ari mun fara til
starfa á þróunarsviði Kögunar og
mun vinna að undirbúningi að stofn-
un nýs fyrirtækis innan Kögunar-
samsteypunnar.
Fyrr á þessu ári keypti Kögun hf. öll
hlutabréfin í VKS og er þaö því dótt-
urfélag Kögunar. VKS er hugbúnaðar-
og ráðgjafafyrirtæki og hjá því starfa
nú 40 manns. Fyrirtækið hefur eink-
um sérhæft sig í ráðgjöf á sviði upp-
lýsingatækni, hugbúnaöarþróun fyrir
fjármálamarkað, þróun sérhæfðra
tölvukerfa og hópvinnulausnir.
Sparis.jóður Bolungarvíkur
Hagnaðurinn 39
milljónir króna
HAGNAÐUR Sparisjóðs Bolung-
arvíkur á síðasta ári varð 128
milljónir króna fyrir skatta og
framlag í afskriftarreikning, en
eftir skatta varð hagnaðurinn 39
milljónir króna.
Eigið fé sparisjóðsins nam í árs-
lok 553 milljónum króna og jókst
um 12,6% frá árinu áður. Eigin-
fjárhlutfall samkvæmt CAD-
reglum var 13% í árslok 1999.
Innlánsaukning hækkaði um
15,4% en útlánaaukning varð
10,1%. Niðurstaða efnahagsreikn-
ings nam 4.048 milljónum króna
og stækkaði um 12,7% milli ára.