Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Hundalíf
Ferdinand
Smáfólk
Fyrirgefðu, en það
er svo erfitt að
slá þá beint á þig.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329
Það er ekki alltaf best að standa á rétti sínum. Stundum er betra að gefa
forgang sinn en að lenda í alvarlegu óhappi.
Ferð þú varlega
um gatnamót?
Frá ungum ökumönnum í ökuskóla
Sjóvár-Almennra:
VIÐ ERUM tveir hópar sem sóttu
umferðarskóla Sjóvár-Almennra fyr-
ir unga ökumenn í mars. Við veltum
fyrir okkur mikilvægum þætti er
snertir öryggi okkar í umferðinni.
Akstri um gatnamót. Við vitum að
stór hluti umferðaróhappa verður
þegar forgangsreglur eru ekki virtar
á gatnamótum. Því viljum við benda
ykkur, kæru jafnaldrar, á nokkur at-
riði sem skipt geta sköpum við akstur
um gatnamót.
Þegar við nálgumst gatnamót
verðum við að draga úr hraða. Vera á
varðbergi og athuga hver eigi for-
gang. Er það hægri reglan eða bið-
eða stöðvunarskylda sem á við á
gatnamótunum framundan. Eða eru
það umferðarljósin sem segja til um
forganginn.
Þegar á gatnamótin er komið er
bara að taka það rólega, gefa stefnu-
Ijós tímanlega ef við ætlum að
beygja. En munum þá eftir þeim
gangandi og hjólandi sem við verðum
að víkja fyrir. Ef við ætlum í vinstri
beygju þurfum við að vera vakandi
fyrir bflum á móti. Munum að bíll sem
á móti kemur, nálgast hratt, kannske
um 50-70 metra meðan við erum að
aka yfir. Því verðum við að sýna var-
úð og vera vakandi.
Á sumum gatnamótum er ekki
auðvelt að sjá umferð sem kemur frá
vinstri eða hægri og þá er enn nauð-
synlegra að fara varlega. Þetta á ekki
síður við þótt við eigum „forganginn".
Ef lögregla er við umferðarsjóm
eru það bendingar hennar sem gilda.
Þá gilda ekki lengur umferðarljósin
eða bið- og stöðvunarskyldumerkin.
Við fengum umferðarmerkin á
námskeiðinu og hvetjum þig til að
verða þér úti um slflct. Það er nauð-
synlegt að rifja þau reglulega upp.
Farðu varlega, þú ert mikilvæg(ur).
Með kveðju frá ungum ökumönn-
um í ökuskóla Sjóvá-Almennra í
Vestmannaeyjum og í Reykjavík í
mars.
EINAR GUÐMUNDSSON, for-
vamafulltrúi Sjóvár-AJmennra.
Góðir kennarar
Frá Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur:
HARALDUR Óli Haraldsson spyr í
bréfi til Morgunblaðsins 12. aprfl sl.
hvemig hægt sé að flokka alla kenn-
ara sem góða kennara. Spurningin
kemur í kjölfar umræðna um að
tengja laun grunnskólakennara við
árangur í starfi. Auðvitað er alhæfing
hjá mér að halda því fram að allir
kennarar séu góðir kennarar og
spyrja má hvemig góður kennari sé.
Er það kennari sem „gefur“ góðar
einkunnir? Eða kennari sem er góður
við nemendur sína? Ef til vill kennari
sem heldur uppi aga og er strangur?
Hugsanlega kennari sem kennir mik-
ið og hefur marga nemendur og af-
kastar þannig miklu? Eða aðeins þeir
sem uppfylla allt þetta? Dæmin sýna
hve erfitt er að koma á einhverju
mælikerfi um frammistöðu kennara.
Hvað sem öðm líður hefur mennt-
un grunnskólakennara aukist á und-
anfomum árum. Stöðugt em gerðar
meiri kröfur til kennara um símenn-
tun. Það er rangt að halda því fram
að allir kennarar séu á sömu launum
því launakerfi þeirra er þannig hátt-
að að því menntaðri sem þeir em
þeim mun hærri em launin.
Hins vegar er þetta kerfi gallað að
mörgu leyti og ég vona að samnings-
aðilar beri gæfu til að endurskoða
það og færa til betri vegar. Til að
hækka um launaflokk verður kennari
að sækja allt að 20 þriggja daga nám-
skeið en námskeið sem standa skem-
ur en þrjá daga gefa engin stig.
Ég vísa því á bug að kennarar með
kennsluréttindi séu „fúskarar". Ef
kennari brýtur af sér í starfi gilda um
það ákveðnar reglur og viðurlög.
Stuðli kennari að einelti er það mjög
alvarlegt mál og á skólastjóri að taka
á slíku máli eins og lög og reglur
kveða á um.
Skiptar skoðanir em um hvort yf-
irleitt sé hægt að tengja laun gmnn-
skólakennara við árangur í starfi, ef
til vill vegna þess að við eram ekki
sammála um hvað eigi að leggja til
grandvallar. Ef laun kennara em góð
stuðla þau að því að gera kennara-
starfið eftirsóknarvert. Ég vona að
um það séum við Haraldur sammála.
En fleira skiptir máli svo sem ánægja
í starfi og jákvætt starfsumhverfi.
Flestir hafa skoðun á málefnum
gmnnskólans og við fognum mál-
efnalegri og uppbyggilegri umræðu
um skólastarfið.
GUÐRÚN EBBA ÓLAFSDÓTTIR,
formaður Félags gmnnskólakennara
í Kennarasambandi Islands.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.