Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 35
LISTIR
Sýning til heiðurs minningu frú Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur
Morgunblaðið/Golli
Chihuly kveðst stundum sækja innblástur til hafsins og
segir glerið oft ósjálfrátt taka á sig form sjávardýra.
Morgunblaðið/Golli
Jennifer P. Lewis sýningarstjóri.
Morgunblaðið/Golli
Chihuly hefur mikið unnið með opin form sem hann kallar
körfur og nýtir litrófið til hins ýtrasta.
Glerið er farvegur
ljóss og lita
Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson, opnar í dag kl. 17.30 sýninguna
---------------7-------------------------
„Chihuly á Islandi - Form úr eldi“ á
Kjarvalsstöðum. Sýningin er haldin til
heiðurs minningu frú Guðrúnar Katrínar
Þorbergsdóttur. Sigurbjörg Þrastardóttir
kynnti sér verklag glerlistamannsins
Dale Chihuly sem þykir einn sá fremsti
á sínu sviði í heiminum.
LITADÝRÐ setur svip á
Kjarvalsstaði næsta mán-
uðinn þar sem fjölbreytt-
um glerskúlptúrum
Bandaríkjamannsins Dale Chihuly
hefur verið komið fyrir í vestursal.
Samverkamenn listamannsins hafa
unnið að samsetningu og uppsetn-
ingu verkanna síðustu daga og er
það ærinn starfí, enda verkin ekki
aðeins brothætt heldur mörg hver
flókin að byggingu. Nefna má að eitt
verkanna var flutt til Kjarvalsstaða í
yfir eitt þúsund pörtum sem geymd-
ir voru í ónúmeruðum kössum.
„Dale er hrifinn af dálítilli óreiðu
og því er sama verkið aldrei sett
tvisvar nákvæmlega eins saman. Þó
er ekki þar með sagt að hver sem er
geti tekið að sér samsetninguna,
fagurfræði listamannsins lýtur
ákveðnum reglum sem við í starfs-
liðinu höfum numið af honum í ára-
NEMENDUR annars og þriðja árs
leirlistadeildar Listaháskóla ís-
lands opnuðu sýningu í gær, 13.
aprfl, í Kósý, sýningarsal skólans
við Skipholt.
Sýndur er afrakstur hönnunar á
löngu samstarfi," segir Jennifer P.
Lewis, hægri hönd Chihulys. Sjálfur
er listamaðurinn fjarri góðu gamni,
en í gærkvöld varð ljóst að af komu
hans til landsins gæti ekki orðið.
Samvinna er
lykilhugtak
„Öll verkin á sýningunni eru valin
eða sérstaklega smíðuð með þetta
sýningarrými í huga. Út frá upplýs-
ingum um lofthæð, veggjaskipan,
lýsingu og fleira valdi Dale ákveðin
verk, bjó til ný og gaf jafnframt fyr-
irmæli um uppröðun þeirra innbyrð-
is,“ útskýrir Lewis sem haft hefur
yfirumsjón með undirbúningi sýn-
ingarinnar. Hún lofar samstarfið við
starfsfólk Kjarvalsstaða og segir
einstaklega góða samvinnu hafa tek-
ist um framkvæmdina.
„Við erum að okkar hálfu vön
teymisvinnu þar sem verk Dale
matarstellum og er bæði sýnt
morgunverðarborð og hádegis-
verðarborð.
Sýningin stendur til föstudags-
ins 28. aprfl og er opin á skóla-
tíma.
Dale Chihuly
byggjast alfarið á slíku verklagi.
Hann kynntist því í Feneyjum þar
sem hann fullnam sig í glerhstinni á
sjöunda áratugnum, að listamenn-
irnir þurfa ekki að pukrast hver í
sínu homi, eins og títt var vestan
hafs á þeim tíma. Asetningur hans
varð að skapa stærri og metnaðar-
fyllri verk með víðtækri samvinnu.“
Þessi hugsjón Chihulys birtist
skýrt í verkinu „Chihuly over Ven-
ice“ þar sem hann vann með gler-
blástursmönnum frá fjórum löndum
að stórum skúlptúrum sem hengd
voru yfir síki Feneyja árið 1997.
„Segja má að Dale vinni eins og
arkitekt eða jafnvel kvikmyndaleik-
stjóri," segir Lewis. „Hugmyndim-
ar em hans en margir vinna að því
að fullskapa verkin. Allir hafa skoð-
anir á verkunum og stundum tekur
hann mið af ábendingum - hann not-
ar þær þó sjaldnast óbreyttar held-
ur fer um þær eigin höndum eins og
alvöru listamanna er siður. Dale
hefur ákveðna sýn, það má segja að
hann sjái fegurð í fleiru en við hin og
með verkum sínum opnar hann augu
okkar fyrir þeirri fegurð."
Brautryðjandi í
glerskúlptúr
Frá því Chihuly kynntist gler-
blæstri á sjöunda áratugnum hefur
hann verið óþreytandi við að vinna
greininni fylgi, bæði með stofnun
glerlistadeilda við skóla vestanhafs
og með markvissu alþjóðlegu sam-
starfi. Honum hafa hlotnast alþjóð-
legar viðurkenningar fyrir list sína
og heiðursdoktorsnafnbætur við
ýmsa skóla. Að sögn Lewis er hann
óumdeilanlegur brautryðjandi í
glerskúlptúr í Bandaríkjunum og
þótt víðar væri leitað.
„Hann var í fylkingarbrjósti gler-
bylgjunnar sem fór af stað í Banda-
ríkjunum eftir að aðferð fannst til
glerframleiðslu utan stóm verksm-
iðjanna um miðja síðustu öld. Litlar
vinnusmiðjur spruttu upp og hipp-
arnir tóku að nota gler í ýmsa gjöm-
inga og „performansa“. Áhrif þess-
arar hreyfingar hafa skilað sér til
samtímalistamanna sem nú nota
gler í æ ríkara mæli í skúlptúra
sína.“
í verkum Chihulys er mikil hreyf-
ing og í verkum sínum vinnur hann
Morgunblaðið/Jim Smart
Helga Birgisdóttir, Ingibjörg Klemenzdóttir, Katrin Karlsdóttir, Ingi-
björg Ása Gunnarsdóttir, Unnur Sæmundsdóttir og Carolyn Linda,
nemendur á 2. og 3. ári eiga verk á sýningunni.
„Atta í mat“
Morgunblaðið/Golli
Þessi veglega „Ijósakróna" vegur hátt í 300 kfló og er samsett úr hund-
ruðum glereininga sem veijast saman eftir kúnstarinnar reglum.
gjarnan með rými og tengsl skúlp-
túranna við umhverfið. „Glerblástur
snýst um hreyfingu þar sem fljót-
andi gler tekur á sig fast form. Gler
er líka farvegur fyrir ljós og liti og af
þeim sökum erum við með sérstakan
ljósameistara sem sér um lýsinguna
á sýningunum," segir Lewis og bæt-
ir við að Chihuly vinni ævinlega að
mörgum verkefnum samtímis. Um
þessar mundir stendur til að mynda
yfir viðamikil sýning á höggmynd-
um hans í Davíðsturni í gamla hluta
Jerúsalem, þar sem hann tengir
saman fornfrægar byggingar og
margbrotin höggmyndaverk úr
gleri, og í næstu viku hefst sýning á
verkum hans í Adelaide í Ástralíu.
Innsetningar á
Reylyanesi
Sýningin á Kjarvalsstöðum er til-
einkuð minningu frú Guðrúnar Kat-
rínar Þorbergsdóttur, en henni
kynntist Chihuly í gegnum sameig-
inlega kunningja þegar forsetafrúin
gekkst undir læknismeðferð í
Seattle. „Dale fann til mikillar sam-
kenndar með forsetanum og með ís-
lensku þjóðinni vegna missis þeirra
og vildi sýna hug sinn í verki með
því að heiðra minningu frú Guðrún-
ar Katrínar á þennan hátt. Dale hef-
ur einu sinni komið til íslands, sem
ungur maður, og heillaðist þá af
náttúrufegurðinni og ljölbreyttri
ásýnd landsins. Nú fær hann loksins
tækifæri til þess að vinna með Is-
lendingum, þótt óbeint sé í þetta
sinn,“ segir Lewis og vísar til þess
að dagana 15.-17. apríl muni sam-
starfsmenn Chihulys með fulltingi
35 íslenskra myndlistarmanna og
-nema byggja innsetningar undir
berum himni úr 600 glerformum
sem Chihuly lét blása fyrir sig í
Finnlandi með íslenska náttúru í
huga. Verkin verða vandlega mynd-
uð og kemur afraksturinn út á
myndbandi og bók með myndum
Guðmundar Ingólfssonar ljósmynd-
ara. Sigrún Ó. Einarsdóttir og Sör-
en S. Larsen hjá Gleri í Bergvík,
sem veitt hafa Chihuly og sam-
verkamönnum hans ráðgjöf við
þennan hluta sýningarinnar, lögðu
til að Reykjanes yrði vettvangur
innsetninganna. „Því var vel tekið
enda finnst þeim Reykjanesið hafa
til að bera hina hráu dramatík sem
hentar verkunum," segir Sigrún.
Innsetningarnar sem rísa munu á
auðn og söndum suður með sjó sam-
anstanda að stórum hluta af gler-
spjótum sem stillt er í trönur eða
stungið í jörðu eftir því hvað íslensk
náttúra blæs listamönnunum í
brjóst.
Sýningin á Kjarvalsstöðum stepd-
ur til 18. maí nk.