Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Efi á upp- lýsingaöld „ Upplýsingabyltingin “kallar á breyting- ar í skólum en aðlögun að nýjum veru- leika verður ekki eingöngu tryggð með tækjum og tólum. SÍÐUSTU árin hefur farið fram fyrirferðar- mikil umræða um þær breytingar, sem „upp- lýsingaþjóðfélagið" hafi í för með sér. Fræðingar og framtíðarmenni hafa boðað um- skiptí á öllum lífsháttum al- mennings sökum „tölvubyltingar- innar“. Islendingar hafa ekki farið varhluta af þessari umræðu því mökkur fólks hefur atvinnu sína af því að viðhalda henni. Drjúgur hluti þjóðarinnar ver enda frítíma sínum í biðröðum eftir því að fá keypt tölvustýrð tæki. Er það vísast marktækasti mælikvarðinn á gleðina, sem ein- kennir lífið í lýðveldi hamingjunn- ar. Því verður vart mótmælt að breytingar hafa fylgt nýrri tækni á ákveðnum sviðum mannlífsins á Vesturlönd- um. Þær hafa þó hvergi nærri reynst eins djúp- VIÐHORF Eftlr Asgelr Sverrisson stæðar og spáð var fyrir 20 árum eða svo. Enn fer t.a.m. þorri laun- þega til vinnu að morgni dags og þjónar auðvaldinu. Enn eru börn- in búin í skólana og enn er manns- heilinn eini heilinn, sem fær er um að koma bíldruslunni út úr snjóskaflinum. Eitt er þó það svið þar sem óhjákvæmilegt er að tölvutæknin og hinn netvæddi veruleiki kalli fram breytingar. Hér ræðir um skólastarf og kennslufræði. Ætla verður að sá hindrunarlitli að- gangur að upplýsingum, sem tölv- ur og Net veita, hafi í för með sér að aukin áhersla verði lögð á að gera skólabörnum kleift að sækja sér sjálf fróðleik og safna saman upplýsingum. Utanbókarlærdóm- ur og staðreyndanám hlýtur því að víkja á vissum sviðum. Bjöm Bjamason menntamála- ráðherra vék að því, sem hér hef- ur verið ritað, í stórgóðri ræðu, er hann flutti á stofnþingi Kennara- sambands Islands í nóvember í fyrra. Ráðherra minntist m.a. á Howard Gardner, þekktan banda- rískan skólamann. Rakti Björn Bjamason m.a. tillögur Gardners að verkefnaáætlun menntamála- ráðherra þar sem horft væri til framtíðar. Tillögumar em í sjö liðum og er þriðji liðurinn svohijóðandi í endursögn mennta- málaráðherra: „Staðreyndir og vald á upp- lýsingum ættu ekki að vera í fyr- irrúmi. Mestum tíma í skólum um víða veröld hefði til þessa verið varið til að kenna staðreyndir og tryggja að nemendur hefðu þær á valdi sínu. Óskynsamlegt væri að halda áfram á sömu braut og fyrir því væra tvær ástæður. í fyrsta lagi tvöfaldaðist magn upplýsinga á fárra ára fresti og það væri eng- in leið fyrir neinn að hafa þær sæmilega á valdi sínu. í öðra lagi gerðu tölvur okkur nú kleift að hafa upplýsingar við fingurgóm- ana í orðsins fyllstu merkingu. Ef við gætum með því að ýta á hnapp eða segja orð fengið að vita, hvað höfuðborgin í Bosníu heitir eða þrjár helstu ámar fyrir sunnan Sahara í Afríku, hvers vegna ætt- um við þá að eyða tíma í að læra þessar staðreyndir?“ Þessi greining er athyglisverð og á erindi við skólafólk og al- menning allan. Mikilvægt er þó að menn upp- hefji ekki um of áhrif „upp- lýsingabyltingarinnar" og þeirra umskipta, sem henni fylgja. Að auki er utanbókarlærdómur oftar en ekld af hinu góða og ungu fólki er hollt að þjálfa minnið. Utan- bókarlærdómi fylgir vinna, skipu- lagogagi. Aukinheldur sýnist oft vilja gleymast að menn gátu nálgast margvíslegar staðreyndir fljótt og vel fyrir daga tölvu og Nets. Tæknin ein og sér getur ekki gef- ið tilefni til fullyrðinga um að allt staðreyndanám og utanbókar- lærdómur hljóti að teíjast tíma- eyðsla. Þótt reiknivélar séu nú til á hveiju heimili verður því ekki haldið fram að óþarft sé með öllu að nemendur læri margföldunar- töfluna utanbókar. Hið sáma á við um hugarreikning, sem því miður virðist á hröðu undanhaldi í menntakerfinu. Og ef til vill er staðreyndanám fallið til að gera Islendinga við- ræðuhæfa um annað en GSM- síma og hlutabréf? í þessu efni er vafalítið heppi- legast að leita meðalvegar þótt vafist geti fyrir foreldram að verja utanbókarlærdóm enda er sannanlega um það að ræða í grannskólum landsins að nem- endum sé gert að leggja fáránleg- ustu staðreyndir á minnið. Tölvu- væðing í grannskólum hefur reyndar verið lygilega hæg en lík- legt sýnist að henni fylgi nokkrar breytingar á kennsluháttum í flestum námsgreinum á næstu ár- um. Mestu skiptir að reynsla kenn- ara verði nýtt og að sjálfstæði skóla verði tryggt þegar hafist verður handa við að þróa fram breytingar á námsaðferðum. Það mikla starf má undir engum kringumstæðum fella undir mið- stýrandi fyrirbrigði á borð við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, sem kennarar í höfuðborginni telja upp til hópa gagnslaust skrifstofubákn og dragbít á fram- farir. Þótt aðlögun að „upp- lýsingabyltingunni" kalli vafa- laust á nokkuð breytt vinnulag í kennslustofum er þetta þó ef til viU ekki brýnasta verkefnið á sviði grannmenntunar í landinu. Þegar enginn fær flúið upp- lýsingar og staðreyndir og þessi fyrirbrigði móta í síauknum mæli allt líf manna er líkast til mikil- vægast að kenna ungu fólki að ef- ast. Um efann gildir að hann hef- ur aldrei hlotið sama virðingar- sess hjá íslendingum og hjá flestum menningarþjóðum. Er það tæpast undrunarefni í landi þar sem heimspeki er talin vera námsgrein fyrir sérvitringa á há- skólastigi og umhugsun er höfð til marks um óþjóðlegan skort á „festu". Ahrif þessa má víða greina á í s- landi. Skortur á hefð fyrir efa- hyggju og rökræðu er t.a.m. ein haldþesta skýringin á því fram- stæða stjómmálalífi, sem þróast hefur fram hér á landi með al- kunnum afleiðingum. Aðlögun að breyttum veraleika verður ekki tryggð með tækjum og tólum einum saman. Gagnrýn- in hugsun og heilbrigður efi verða eftirsóttir eiginleikar í einsleitum framtíðarheimi hinnar samein- andi tækni.... líka á íslandi. LISTIR Mynd Sigurðar Þóris við ljóð Þórs Stefánssonar. Þrjár list- greinar leggjast á eitt SIGURÐUR Þórir, listmálari í Reykjavík, opnar sýningu í Svarta pakkhúsinu, húsi myndlistarmanna í Reykjanesbæ að Hafnargötu 2 í Keflavik, á morgun, laugardag, kl. 14. Á sýningunni eru teikningar Sigurðar við ljóð Þórs Stefánssonar í bókinni Ljóð út í veður og vind. Bókin kom út í Reykjavík haustið 1998. Á sýningunni koma frum- myndimar í fyrsta sinn fyrir al- menningssjónir ásamt vatnslita- myndum og olíumálverkum sem Sigurður hefur unnið út frá teikn- ingunum. Alls era um 30 verk á sýningunni. Á opnunardaginn, kl. 16, les Þór nokkur Ijóð úr bókinni og Guð- mundur Hermannsson frumflytur nokkur lög sín við Ijóð Þórs úr sömu bók. Á lokadegi sýningarinnar verður dagskráin endurtekin á sama tima. I tilefni af sýningunni eru gefin út póstkort með teikningum og Ijóð- um. Sýningin stendur fram á annan páskadag og verður opin virka daga kl. 16-18 og 14-18 á laugar- dögum og helgidögum. Dugnaðarforkar TOIVLIST Langholtskirkja KÓRATÓNLEIKAR Ýmis innlend og erlend lög, frum- samin, útsett eða umrituð. Kvenna- kór Reykjavíkur u. stj. Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Þórhildur Bjöms- dóttir, píanó; Szymon Kuran, fiðla. Þriðjudaginn 11. aprfl kl. 20:30. FRÁGANGUR tónleikaskrár Kvennakórs Reykjavflmr fyrir fjöl- sóttu tónleika hans sl. þriðjudags- kvöld í Langholtskirkju (nr. 2 af þrennum; endurteknir í Ými nk. laugardag) var til fyrirmyndar skýr. Flestar mikilvægustu upplýsingar vora gefnar, allir söngtextar birtir (hinir erlendu auk þess með lausleg- um þýðingum Rannveigar Pálsdótt- ur) og liðnu og áformuðu kórstarfi lýst í hæfilega stuttu máli. Þar kom m.a. fram að kórinn hyggst standa fyrir að líkindum fyrsta norræna kvennakóramóti sögunnar í lok þessa mánaðar með þáttöku 950 kvenna, þ. á m. kvennakór Gliére-tónlistar- háskólans í Kænugarði. Ekki laust við að slíkur myndarskapur ætti með réttu að örva til dáða í karlakóralandi sem íslandi! Eða hvenær var hér síð- ast haldið norrænt karlakóramót - eða, til þess að gera, mót blandaðra kóra? I framhaldi af téðum stórhug KKR lægi síðan beinast við að fá hingað undraraddir búlgarska kvennakórsins heimsfræga frá Sofíu í vonandi ekki allt of fjarlægri fram- tíð. Dagskráin mótaðist af íslenzkum þjóðlögum, Sigfúsi Halldórssyni og vor- og sumarlögum frá hinum Norð- urlöndunum. Hljómur kórsins í fyrstu atriðum, Siglingavísum (úts. Marteins H. Friðrikssonar), Krummavísum og Sofðu, unga ástin mín (bæði í radds. Jóns Ásgeirsson- ar), svo ogí hinu hressilega Þjóðlífs- myndin (JÁ) var í einu orði sagt full- kominn og vakti strax miklar vonir um framhaldið, sem og stóðust að mestu, þrátt fyrir nokkurt tónsig í næstu fjórum lögum kórsins, er kom mjög á óvart eftir jafnglæsilega byrj- un. Þar á milli léku píanisti kórsins Þórhildur Björnsdóttir og gesta- spilarinn Szymon Kuran á fiðlu Int- ermezzo og söng Dimmalimm úr samnefndri bamaópera Atla Heimis Sveinssonar. Eftir sama höfund kom síðan endurreisnar-pastísjan Við svala lind (madrigaletto úr Dansleik Odds Bjömssonar) í laglega hæg- ferðugum flutningi a cappella, burt- séð frá fyrrgreindu sigi í tónstöðu, er síðan ágerðist nokkuð í hinu fær- eyska Sóljunar og náttin (Sunleif Rasmussen), hinu Brahmsleita Hvile eftir dönsku tónskáldkonnna Agathe Backer Grpndahl (úr 7 Sange for Damekor Op. 67) og Váren eftir öflu kunnari samtímakollega hennar Edvard Grieg. Af einhverjum heillavænlegum ástæðum færðist tónstaða kórsins aftur í upphaflegt fyrirmyndarhorf í litlu en fallegu lagi Waldemars Áhléns, Sumarsálmi, sem var bráðvel sungið. Hélzt hún síðan mjög góð það sem eftir var, nema kannski í finnsku lögum Toivos Kuula, Aamulaulu og (einkum) hinu kyrrlátu Sefur jörð um sumamótt, og styður það reynslu manns af öðram kórum hvað þennan agnúa snertir. M.ö.o.: Ef ná skal full- kominni inntónun, þarf innri einbeit- ing kórsöngvarans að standa beinlín- is á nálum í rólegum lögum á litlum styrk! Líkt og sóló-oktettinn í hinu seið- andi þjóðlega og frábærlega vel flutta lagi Mattis Hyökki í síðari hluta, On suuri sun rantas autíus, myndaði sextett kórfélaga “concert- ino“-hóp í Musik, lagi Hugos Hamm- arströms (d. 1974), er beitti sérkenni- legri samstígri krómatík á köflum. Fyrri hluta tónleikanna lauk svo á dunandi Hranadansi, ósviknum sænskum þjóðlaga-hambo frá Hels- ingjalandi, Hárgaláten (radds. Sigrid Amkoff), svo svuntumar kipptust og faldamir lyftust, við hófastappandi píanó- og fiðluundirleik og - að von- um - dynjandi undirtektir. Sænski trúbadúrinn Evert Taube var efstur á blaði eftir hlé með Sjösalavalsi í ódauðlegri staðfærslu Sigurðar Þórarinssonar, Vorkvöld í Reykjavík (radds. Skarphéðinn Hjartarson), Næturljóði og Dansen pá Sunnanö. 011 vora dável sungin, þar af Vorkvöldið með framlegu hægu hraðavali í 1. erindi, og fram- reidd með prýðilegum meðleik á pí- anó og fiðlu, þó að snarstefjuð fiðlu- röddin í fyrstu tveim lögum hefði fallið betur að heildinni ef hún hefði verið skrifuð við í ró og næði. Sama var upp á teningnum í hinu annars afar vel heppnaða Enn syngur vorn- óttin eftir Mogens Schrader í umrit- un kórstjórans aftar á dagskrá, þar sem blöndun fiðlarans á staðnum var frekar til óþurftar en hitt. í Tango jalousie eftir Gade sem þau Szymon og Þórhildur fluttu þar á eftir var hinsvegar allt á nótum og leikið með ólgandi tilþrifum, ekki sízt píanó- parturinn. Síðustu þijú lög á skrá vora eftir meistara Sigfús Halldórsson í liprum raddsetningum Skarphéðins. Dagný var frábærlega vel mótað af kómum, tangó-twistarinn Vegir liggja til ailra átta ekki síður (með skondinni inn- skotstilvitnun, líklega frá hendi radd- setjarans, í Habanerana úr Carmen) og tónleikunum lauk með enn einum smellinum, Við eigum samleið, sem eins og fyrri lögin var sungið af smit- andi fjöri með aðstoð á píanó og fiðlu. Kvennakór Reykjavíkur gaf í þessu létta en skemmtilega prógrammi vís- bendingu um væntanlega sigra í viðameiri verkum, og verður mynd- arskapur hans með boðuðu kóramóti efalítið hérlendri kórmennt drífandi hvatning til frekari dáða á næstunni. Ríkarður Ö. Pálsson -------------------- Nýjar bækur • VÆNGJAÐ myrkur er eftir Willi- am Heinesen með myndskreyting- um eftir færeyska listamanninn Edward Fuglp. Bókin er gefin út í tilefni af því að öld er liðin frá fæð- ingu Heinesens og kemur hún út samtímis í Færeyjum, Danmörku og á íslandi. Þetta er ein af hinum kunnustu smásögum skáldsins sem á seinni ár- um skoðaði heiminn gjarnan með augum barnsins sem verður sjálft að sigrast á hinu óþekkta. Hér segir frá Antoníu og Litla-bróður sem era á heimleið frá ströndinni þegar myrkrið skellur á og ímyndunaraflið tekur völdin. Börnin hafa líka heyrt um ýmsar dularvættir; huldufólk, dverga og álfkonur, sem fara á kreik þegar dimma tekur, verar sem bæði ógna þeim og vekja kitlandi spennu. Sagan er í þýðingu Hannesar Sig- fússonar og birtist fyrst í smásagna- safninu í töfrabirtu. Utgefandi er Mál og menning. Bókin er 40 bls., prentuð í Dan- mörku. Verð: 1.880 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.