Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Reiðvegabæt- ur í Grímsnesi og Tungum HELDUR miðar á leið í gerð reið- vega víða um land þótt verkefnin séu yfrin á þeim vettvangi. Eru verkefn- in að stórum hluta veglagning með- fram akvegum og sumum hverjum - fjölfömum. Á félagssvæði Loga í Biskupstungum er nú unnið að reið- vegagerð meðfram Biskupstungna- braut frá Bræðratunguafleggjara og upp að Heiði við Biskupstungna- braut. Formaður Loga, Kristján Kristjánsson, sagði að þetta væri annar tveggja spotta sem fyrirhugað væri að leggja á þessu ári. Hinn spottinn væri meðfram vegarkaflan- um frá Brúará að Skálholti. Hann sagði ástand í reiðvegamálum í Bisk- upstungum vægast sagt slæmt. Þama væri mikil umferð allt suma- rið, fjöldi þéttbýlisbúa sé með reið- hesta í hagagöngu á sumrin í Tung- unum og þá sé ótalinn sá mikli fjöldi sem fer þarna um á leið upp á há- • lendið. Segir Kristján að upphaflega hafi þeir fjármunir sem varið er í þessa tvo spotta átt að fara í reið- vegalagningu frá Geysi að Gullfossi sem sé mjög slæmur bæði fyrir um- ferð bíla og hesta en þar sem fyrir- hugað sé að endurgera þann veg og breikka hafi verið ákveðið að fresta því. Þá sagði hann mjög brýnt að leggja reiðveg meðfram veginum frá Brúará við Efri-Reyki að Andalæk við Úthh'ð. Fyrir skömmu var lagður reiðveg- ur meðfram þjóðveginum frá Búr- fellsafleggjara í Grímsnesi að Borg og þurfti þá að ryðja brautina gegn- um snjóklamma sem lá meðfram ak- veginum í reiðvegastæðinu sjálfu. Var síðan ekið rauðamöl í snjógöng- in. Að sögn Bjarna Þorkelssonar á Þóroddsstöðum í Laugardalshreppi fer ástand í reiðvegamálum á félags- svæði hestamannafélagsins Trausta, sem nær yfir Grímsnes, Laugardal, Grafning og Þingvallasveit, heldur batnandi þótt óunnin verkefni séu mörg. „Þetta er mjög víðfeðmt svæði og Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Sigurður B. Sigurðsson, sem vinnur hjá Ketilbimi ehf., notaði góða veðrið í vikunni til að keyra í reiðveginn meðfram Biskupstungnabraut. gríðarlega fjölfarið á vorin og sumr- in. Flestir vestanheiðamenn sem eru með hross í Árnes- eða Rangárvalla- sýslum fara þarna um á vorin þegar þeir sleppa hrossum sínum í haga og segja má að þarna sé stöðug umferð ríðandi manna allt sumarið. Er þar bæði um að ræða hestafólk í styttri ferðum um byggð og svo hópum á leið í hálendisferðir með stóra rekstra. Þörfin á góðum og öruggum reiðvegum á félagssvæðinu er því mikil,“ sagði Bjarni. Þessi reiðvegagerð er í báðum til- vikum fjármögnuð með framlagi úr reiðvegasjóði Landssambands hestamannafélaga og með framlagi frá sveitarfélögum. MorgunblaðiðA'aldimar Kristinsson Blæja og Egill mætt suður Svartur fer til Danmerkur í haust foT., .eJsf ‘vi 1'- ■: ■lí'wjr MorgunblaðiðA'aldimar Krsitinsson Auk frábærs árangurs í kynbótíisýningum hefur Svartur frá Unalæk staðið sig með prýði í gæðingakeppni og er meðfylgjandi mynd frá þvi hann tók þátt í keppni hjá Fáki. Knapi er Þórður Þorgeirsson. ÍSLANDSMEISTARARNIR í tölti, Egill Þórarinsson og Blæja frá Hól- um, eru mætt suður til þátttöku í af- mælissýningu FT í Reiðhöllinni f Víðidal. Blæja er að komast í sitt besta form þótt Egill segi þau eiga nokkur tromp uppi í erminni sem verða dregin fram þegar þau reyna að veija titilinn á íslandsmótinu í Melgerðismelum í sumar. STÓÐHESTURINN Svartur frá Unalæk hefur verið seldur dönskum hrossaræktanda, Nils Österby og ís- lenskum námsmanni, Ómari Péturs- syni. Sá danski hóf hrossarækt fýrir fáum árum og hefur Ómar séð um þjálfun hrossa hans og aðstoðað á ýmsa lund. Seljandi hestsins er Odd- ur Bjömsson bóndi á Unalæk, en kaupverðið fæst ekki uppgefið. Þess má geta að eftir landsmótið 1994 voru boðnar sex milljónir króna í klárinn en því boði var þá hafnað. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um er söluverðið talsvert lægra en þetta tilboð. Svartur á sér glæstan feril að baki allt frá því hann kom fyrst fram á stóðhestastöðinni í Gunnarsholti 1992 fjögurra vetra gamall. Þá hlaut hann 8,16 í aðaleinkunn, 8,18 fyrir sköpulag og 8,14 fyrir hæfileika. Stóð hann þar efstur og einnig árið eftir á sama stað en þá hafði hann bætt heldur í hæfileikana og var kominn með 8,70 og sömu sköpulag- seinkunn og árið áður. Hlaut hann meðal annars 9,0 fyrir skeið, stökk og vilja og 8,5 fyrir tölt og brokk, geðslag og fegurð í reið. Á landsmóti 1994 bætti hann enn um betur og fór í 8,90 fyrir hæfileika og hafði þá hækkað sig í 10 fyrir skeið, 9,5 fyrir vilja og 9,0 fyrir fegurð í reið en lækkaði í 98,0 fyrir tölt. Stóð hann þar annar í röð stóðhesta sex vetra og eldri. Það vekur athygli að Svart- ur hefur haldið sömu einkunn fyrir sköpulag, 8,18, í þau fjögur skipti sem hann kom fyrir dóm. Svartur er undan Kjarval frá Sauðárkróki og Fiðlu frá Snartar- stöðum en hún var undan Ófeigi 818 frá Hvanneyri. Svartur var sýndur með afkvæmum á landsmóti á Mel- gerðismelum 1998 og hlaut þá fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Hann þykir gefa falleg afkvæmi enda sjálfur vel gerður. Skeiðið er hans aðal, bæði hvað hann sjálfan varðar og svo gef- ur hann gott skeið í ríkum mæli. Einn sona hans Númi frá Þórodds- stöðum hefur meðal annars hlorið 10 fýrir skeið og einn sona hans, Erpur Snær frá Efstadal, hefur hlotið 9,5 fyrir skeið. Hann þykir gefa frekar hreingeng hross en helst er fundið að fótaburði í afkvæmum hans. Gengið hefur verið frá kaupunum en klárinn verður afhentur nýjum eigendum 1. maí n.k. Hann mun hinsvegar ekki fara utan fýrr en í september og er stefnt með hann í a- flokk gæðinga á landsmóti. Það verð- ur þó aðeins gert ef núverandi þjálf- ari Trausti Þór Guðmundsson telur hann eiga möguleika á góðu sæti á landsmóti og er þá væntanlega verið að tala um eitt af toppsætunum. Ekki er ljóst hjá hvaða hestamanna- félagi hann verður sýndur til að hljóta brautargengi inn á landsmótið en Ómar Pétursson, annar eigenda hestsins, mun ver félagi í Faxa í Borgarfirði. Svartur verður í hús- notkun samhliða þjálfun hjá Trausta í Kirkjuferjuhjáleigu í Ólfusi, þá væntanlega fram að landsmóti ef allt gengur eftir sem að er stefnt. Eftir landsmót verður hann í girðingu í Hrunamannahreppi en fer svo utan að því loknu. nSTUflD Fermingargjafir Fermingartilboð Hnakkar, beisli, skóreiðbuxur með GSM-vösum Munið vinsælu gjafakortin Póstsendum Simi 568 4240 FREMSTIR FYRIR GÆÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.