Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
;>
Sjálfsbjörg hættir úthlutun
P-merkja 1. maí nk.
SJALFSBJORG,
landssamband fatlaðra
hefur séð um úthlutun
svokallaðra P-merlq'a,
eða bifreiðastæðisskír-
teina fyrir hreyfihaml-
aða, frá árinu 1968.
Sjálfsbjörg hefur frá
upphafi borið allan
kostnað af úthlutun
merkjanna, nema kort-
hafar hafa greitt fyrir
plastspjaldið sjálft, sem
lagt er við framrúðu
bflsins. Upphaflega var
það tiltölulega lítill hóp-
ur félagsmanna Sjálfs- Sigurður
bjargar sem gat fengið Einarsson
úthlutað slíkum merkj-
um en í áranna rás hefur sá hópur
farið sístækkandi svo sem með
hjarta-, asthma- og nýmasjúkling-
um, eldri borgurum o.fl. Sem dæmi
um þetta má nefna að fjöldi útgefinna
P-merkja fimmtánfaldaðist á árumun
1968-1994. Einnig var það æ skýrara
að óeðlilegt er í mörgum tilfellum að
Sjálfsbjörg fjalli um umsóknir sinna
eigin félagsmanna, sérstaklega þegar
um vafaumsóknir er að ræða.
I árslok 1994 þegar starfsmenn
Sjálfsbjargar höfðu haft með hönd-
um þessa úthlutun í um 26 ár var
vinnan við hana orðin svo umfangs-
mikil að samtökin sáu sig tilneydd að
leita til dómsmálaráðuneytisins um
að ráðuneytið eða aðrir opinberir að-
ilar yfirtækju þessa úthlutun eða
greiddu a.m.k. þann kostnað sem af
henni hlytist. Samtökin voru mjög
illa stödd fjárhagslega, m.a. vegna
annarra aðgerða ríkis-
valdsins nokkrum árum
áður, sem höfðu skert
tekjur Sjálfsbjargar
um margar milljónir ár-
lega.
A þeim 5 árum sem
liðin eru frá fyrsta fundi
Sjálfsbjargar með þá-
verandi dómsmálaráð-
herra vegna þessa máls
hafa margir fundir ver-
ið haldnir með ráðherra
dómsmála og starfs-
mönnum ráðuneytisins,
rituð ótal bréf og rætt
við lögfræðinga og aðra
starfsmenn ráðuneytis-
ins í mörgum símtölum.
Fyrri hluta árs 1996 var skipuð nefnd
með fulltrúum ráðuneytisins, Sjálfs-
bjargar, lögreglunnar og fleiri aðila
til að útbúa vinnureglur um úthlutun
merkjanna og skilaði hún tillögum
sínum til ráðuneytisins eftir u.þ.b.
hálfs árs vinnu. Þegar sýnt þótti síðar
á árinu að frekari vinna ráðuneytis-
ins að þessu máli léti bíða eftir sér til-
kynnti Sjálfsbjörg ráðuneytinu að
samtökin myndu einhliða hætta út-
hlutun merkjanna hinn 1. september
það ár. Gegn loforði ráðuneytisins
um að breytingu á umferðarlögum og
setningu reglugerðar um P-merki
yrði hraðað, tók Sjálfsbjörg þó aftur
við úthlutuninni tímabundið, seinna
um haustið 1996.
Eini árangurinn sem Sjálfsbjörg
sá framanaf úr öllu þessu málavafstri
var að loks vorið 1997 breytti þáver-
andi dómsmálaráðherra umferðar-
Eigum örfá stvkki í pessum fágaða stíl.
Maghony
Spesill
Verð áður:
Borð á hjólum
Verð áðun 94.000.-
Verð nú: 19.000.-
-----------O
Snyiti / skrifborð
Verð áður: 38.000.'
Verð nú: 18.000.-
Sófaborð m/ marmaraplötu
Verðáður: 38.000.-
Verð nú: 15.000.-
Skatthol
Verð áður: 38.000.-
Verð nú: 17.000.-
EUROCARD I
MasterCard. VÍSA wmsmmm
Kommóða
með 8 skúffum
Verð áður:
39.000.-
Verð nú:
19.000.-
COLONY
Vörur fyrir vandláta
Síðumúla 34
(Homlð 6 SÍOumúla og Fetlsmúla)
Sími 568 7500
863 2317-863 2319
P-merki
Ekki er ljóst á þessari
stundu hvernig úthlutun
merkjanna verður hátt-
að eftir 1. maí, segir Sig-
urður Einarsson, en það
er von okkar að engin
óþægindi hljótist af
þessari yfírfærslu.
lögum á þann veg að honum varð
heimilt að „setja reglugerð um bif-
reiðastæðisskírteini hreyfihamlaða"
eins og það var orðað. Enn liðu tæp
tvö ár þar til að drög að reglugerð var
send Sjálfsbjörg til umsagnar og skil-
uðu samtökin skriflegri umsögn í
upphafi árs 1999. Fundum, bréfa-
skriftum og símtölum var þó haldið
áfram að tilhlutan Sjálfsbjargar og
m.a. var fundað með ráðuneytis-
stjóra, lögfræðingi ráðuneytisins og
fulltrúa Sambands íslenskra sveitar-
félaga í aprfl á síðasta ári þar sem
ræddur var sá möguleiki að Samband
íslenskra sveitarfélaga tæki að sér
úthlutunina. Fulltrúi sambandsins á
þessum fundi taldi það af og frá, sér-
staklega með vísan til kostnaðarins
sem af þessu hlytist. Fulltrúar
Sjálfsbjargar bentu þá á að fyrst
Samband íslenskra sveitarfélaga
ti'eysti sér ekki til að yfirtaka þessa
úthlutun vegna kostnaðar, hlyti það
að vera augljóst mál að samtök á
borð við Sjálfsbjörg hefðu enga burði
til að bera þennan kostnað ein. Kom
þá fram sú hugmynd hjá ráðuneytis-
mönnum að hægt væri að fela sýslu-
mönnum úthlutun merkjanna. Rétt
er að geta þess að þegar hér var kom-
ið sögu voru að ganga í gildi reglur
sem Evrópusambandið hafði sett um
sameiginlegt útlit og gildistöku P-
merkja í Evrópusambandinu og að-
ildarlöndum EES, þ.m.t. á íslandi.
Sl. haust þótti svo sambandsstjórn
Sjálfsbjargar nóg komið af öllum
þeim drætti sem orðið hafði í málinu
og á fundi sínum í nóvember 1999
samþykkti stjómin eftirfarandi
ákvörðun:
Sambandsstjóm Sjálfsbjargar fel-
ur formanni og framkvæmdastjóra
að ganga á fund dómsmálaráðherra
og fara fram á að vinnu ráðuneytisins
við að fela sýslumönnum úthlutun P-
merkja verði hraðað eins og kostur
er. Jafnframt verði ráðhema til-
kynnt, að hafi sýslumenn eða aðrir
aðilai', sem ráðuneytið telur til þess
hæfa, ekki yfirtekið þessa úthlutun
hinn 1. maí árið 2000 muni Sjálfs-
björg Isf. einhliða hætta úthlutun
merkjanna. Ályktunin vai' send ráðu-
neytinu og í desember sl. fóru for-
maður og framkvæmdastjóri Sjálfs-
bjargar, lsf. á fund núverandi dóms-
málaráðherra til að ítreka þessa
ákvörðun. Þegar þetta er ritað era
rúmlega 3 mánuðir liðnir frá þeim
fundi en ráðuneytið hefur enn ekki
haft samband við Sjálfsbjörg til að fá
upplýsingar um hvemig úthlutun
merkjanna er háttað, um gagna-
granninn sem notaður hefur verið til
að halda utan um hana né annað sem
að úthlutuninni lýtur. Hins vegar
hafði undirritaður samband við lög-
fræðing ráðuneytisins í febrúar sl. til
að fullvissa sig um að verið væri að
undirbúa yfirtöku á úthlutun merkj-
anna þannig að umsækjendur yrðu
fyrir sem minnstum óþægindum eftir
1. maí nk. Fengust þau svör að þessi
vinna væri í fullum gangi og treystir
Sjálfbjörg því að svo sé.
Þar sem nú styttist óðum í að
Sjálfsbjörg, lsf. hætti úthlutun þess-
ara merkja, sem samtökin hafa alfar-
ið séð um í 32 ár með öllum þeim til-
kostnaði og starfsmannahaldi sem
því hefur fylgt er rétt að gera núver-
andi P-merkishöfum og þeim, sem í
framtíðinni eiga eftir að sækja um P-
merki, grein iýrir öllum málavöxtum.
Af framansögðu er þó ekki ljóst á
þessari stundu hvemig úthlutun
merkjanna verður háttað eftir 1. maí
en það er von starfsmanna og stjórn-
ar Sjálfsbjargar að engin óþægindi
hljótist af þessari yfirfærslu og að
ráðuneytið eða þeir aðilar sem hún
kýs til þess, taka á henni af myndar-
skap.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra.
Togveiðabann
I FRAMHALDI af
máli Svavars Guðna-
sonar útgerðarmanns,
sem hefur talið sig hafa
rétt til jafns við aðra,
og einnig hafa frjáls-
ræði sem aðrir sam-
kvæmt hinni íslensku
stjómarskrá, til þess
að veiða fisk í íslenskri
landhelgi, þá finnst
mér að nýgenginn
hæstaréttardómur sé
sorgleg mistök.
Og óneitanlega kem-
ur upp í hugann hvort
rfldsstjómin og Alþingi Tryggvi
hafi að einhverju leyti Helgason
beitt sínum áhrifum til
þess að sveigja dómstólinn til íylgis
við hin meingölluðu fiskveiðilög, og
dæma gegn Svavari Guðnasyni og þá
jafnframt, sýnist mér, dæma and-
stætt frelsisákvæðum
íslensku stjómarskrár-
innar.
Þessi svokölluðu
kvótalög, sem betur
væra kölluð ólög, veita
sumum rétt til fiski-
veiða en aðrir eru úti-
lokaðirj og allt þetta er
réttlætt og gert með
því fororði að verið sé
að vernda fiskistofnana
í sjónum.
Þó má öllum vera
ljóst að því meir sem
botnvörpu- og togveið-
ai’ hafa aukist undan-
farna áratugi, þeim
mun meir hefur fiskur-
inn þorrið á miðunum.
Ef ekki á að enda með algjöram
ördauða á fiskislóðum, þá þarf, að
mínu mati, að afnema með öllu hin
Dómur
Ef ekki á að enda með
algjörum ördauða á
fískislóðum, þá þarf, að
mati Tryggva Helga-
sonar, að afnema með
öllu hin svokölluðu
kvótalög og jafnframt að
banna allar togveiðar.
svokölluðu kvótalög og jafnframt að
banna allar togveiðar, ef ekki í allri
íslenskri landhelgi, þá í það minnsta
á öllu svæðinu frá strönd að mörkum
100 sjómflna út frá grunnlínum.
Höfundur er flugmaður, búsetturí
Bandaríkjunum,
STÓRSÝNING A TRESRIIÍÐAVÉLUAfl
Stórsýning á trésmíðavélum og ýmsum öðrum vörum tengdum tréiðnaði verður
haldin dagana 14.-16. apríl á Smiðjuvegi 1, Kópavogi á 1.100 fm sýningarsvæði,
þar sem sýnt verður allt frá handverkfærum upp í tölvustýrðar vinnslustöðvar.
Opnunartími verður sem hér segir:
Föstudaginn 14. apríl frá kl. 13.00 - 18.00 .........
Laugardaginn 15. aprfl frá kl. 10.00 - 18.00 IflHi HEGAS ehf->
Sunnudaginn 16. apríl frá kl. 11.00 - 18.00 Smiðjuvegi 1,
Allir áhugamenn um trésmíðar eru velkomnir I§1 s°567Ó001V0 9fáx 567 0032
V