Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 10

Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Alþingi samþykkir lög um hækkun skattleysismarka Enn frekari hækk- un persónuafsláttar á árinu 2003 Tekinn verði af allur vafí um tengsl tannsmiða við heilbrigðisstéttir ALÞINGI samþykkti í gœr sem lög frumvarp fj árm ál aráðh erra um hækkun skattleysismarka og pers- ónuafsláttar sem samið var í tengsl- um við samningagerð Flóabandalag- sins og Samtaka atvinnulífsins fyrr í vetur. Gerð var breyting á frum- varpinu við afgreiðslu þess í gær og fól hún í sér enn frekari hækkun persónuafsláttar á árinu 2003. Sigríður Anna Þórðardóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokks, gerði grein fyrir nefndaráliti efnahags- og við- skiptanefndar er frumvarpið var tekið til annarrar umræðu í gær. Lagði nefndin til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt. Geir H. Haarde Qármálaráðherra steig hins vegar næst í pontu og gerði grein fyrir breytingartillögu sem hann sagði ríkisstjómina hafa afráðið að leggja Páskahlé á Alþingi PÁSKAHLÉ verður nú gert á störf- um Alþingis og kemur þing næst sam- an miðvikudaginn 26. apríl. Þingdög- um fer nú óðum fækkandi og eru aðeins sjö fundardagar eftir skv. starfsáætlun en ekki er ólíklegt að þeir verði fleiri og að áætluðum nefndadögum fækki á móti. Gert er ráð fyrir að eldhúsdagsumræður fari fram miðvikudaginn 10. maí og að frestun 125. löggjafarþings verði síð- an daginn eftir, fimmtudaginn 11. maí. fram í kjölfar kjarasamninga Verka- mannasambandsins og SA sem tók- ust í gærmorgun. Sagði Geir að breytingin ætti að endurspegla þá launabreytingu sem samningar VMSI og SA gerðu ráð fyrir á árinu 2003 umfrarn það sem áður var fyr- irséð í samningum Flóabanda- lagsins. Felur breytingin í sér að pers- ónuafsláttur hækki á árinu 2003 um 2,75% í stað þess að hækka um 2,25%. Hækkar fjárhæð pers- ónuafsláttar, þegar tekið hefur ver- ið tillit til allra þeirra hækkana sem fram eiga að koma í áföngum árin 2000-2003, því ekki úr 286.944 kr. í 319.056 kr. eins og upphaflegt frumvarp gerir ráð fyrir heldur í 320.616 kr. Tók Geir fram að haft hefði verið samráð við forseta Al- þýðusambandsins vegna þessarar breytingar. Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylk- ingu, og Ogmundur Jónasson, vinstri grænum, lýstu bæði ánægju sinni með breytinguna en þau skrifa undir nefndarálit efnahags- og við- skiptanefndar. Vildu þau þó halda til haga þeirri afstöðu fulltrúa Ör- yrkjabandalags íslands að pers- ónuafsláttur ætti að fylgja launavísi- tölu. Frumvarp fj ánnálaráðh erra var því næst afgreitt með fyrmefndri breytingu til þriðju umræðu og at- kvæðagreiðslu. Var frumvarpið þar samþykkt sem lög með öllum greiddum atkvæðum. IÐNAÐARNEFND Alþingis mæl- ir með samþykkt umdeilds laga- frumvarps iðnaðarráðherra um starfsréttindi tannsmiða en áliti nefndarinnar var dreift á Alþingi í gær. Nefndin leggur þó til þær breytingar að sú krafa verði gerð að viðskiptavinur tannsmiðs fram- visi vottorði læknis um að munnhol hans sé heilbrigt og ósýkt áður en vinna tannsmiðs getur hafist og að við smíði tannparta þurfi tannsmið- ir að starfa í samvinnu við tann- lækni. Loks vill nefndin að tekinn verði af allur vafi um tengsl tannsmiða við heilbrigðisstéttir þó að hún líti jafnframt svo á að eðli- legt sé að tannsmiðir teljist eftir sem áður til iðnstétta. í frumvarpinu er lagt til að tannsmiðum með meistararéttindi verði veittur réttur til að vinna sjálfstætt í iðngrein sinni án þess að þurfa að treysta á úthlutun verkefna frá tannlæknum. Verður þeim þó gert skylt að sækja nám- skeið til starfsréttinda fyrst, skv. frumvarpinu. Segir í nefndaráliti iðnaðarnefndar að fram hafi komið við meðferð málsins að í iðnaðar- ráðuneytinu sé fyrirhugað að tak- marka rétt tannsmiða með reglum þannig að ef einhverjar tennur eru í munnholi viðskiptavinar verði tannsmiður að hafa samráð við tannlækni við smíði tanngóms eða tannparts fyrir viðkomandi við- skiptavin. I frumvarpinu er það gert að skilyrði fyrir því að tannsmiðir með meistararéttindi geti starfað sjálf- stætt að ekki séu sjúklegar breyt- ingar eða meðfæddir gallar í munni eða kjálka viðskiptavinar. Var mik- ið rætt um þetta atriði í iðnaðar- nefnd og um það hver ætti að meta hvort þessi skilyrði væru fyrir hendi. Varð niðurstaða nefndarinn- ar sú að eðlilegt væri að gera þá kröfu að viðskiptavinur tannsmiðs framvísaði vottorði læknis um að munnhol hans væri heilbrigt og ósýkt áður en vinna tannsmiðsins gæti hafíst. Tannlæknar gerðu verulegar athugasemdir I frumvarpinu er ennfremur gert ráð fyrir að tannsmiðir með meistararéttindi geti á eigin ábyrgð smíðað og gert við tanngóma og tannparta. Segir í nefndaráliti iðn- aðarnefndar að af hálfu Tann- læknafélags Islands og tannlækna- deildar Háskóla íslands hafi hins vegar verið gerðar verulegar at- hugasemdir við þetta. Segist nefnd- in því gera það að tillögu sinni að 1. gr. frumvarpsins verði breytt á þann veg að við smíði tannparta þurfi tannsmiðir að starfa í sam- vinnu við tannlækni. „Tannsmiðum verður þá ekki heimilt að vinna sjálfstætt að frumsmíði tannparta heldur verður heimild þeirra til sjálfstæðrar vinnu við tannparta takmörkuð við viðgerð þeirra,“ segir í nefndarálit- inu. „Nefndin telur hins vegar eðli- legt að tannsmiðir geti sjálfir ann- ast töku móta og mátun við smíði heilgóma. Ef mótataka og mátun ættu skilyrðislaust að heyra undir tannlækni væri verulega vegið að tannsmiðum og starfsgrundvelli þeirra þar sem töluverðar líkur væru á að viðkomandi tannlæknir mundi þá bjóða upp á áframhald- andi þjónustu, þ.e. smíði tann- góms.“ Það er mat iðnaðamefndar að eðlilegt sé að tannsmiðir teljist eft- ir sem áður til iðnstétta, en um þetta hafa staðið nokkrar deilur. „Til þess að taka af allan vafa um tengsl tannsmiða við heilbrigðis- stéttir," segir síðan í álitinu, „gerir nefndin breytingartillögu við frum- varpið þess efnis að iðnaðarráð- herra verði skylt að setja reglur um að hluti af starfi tannsmiða skuli unninn í samstarfi við tannlækni, sem og reglur um skilyrði starf- sleyfa tannsmiða, m.a. um eftirlit landlæknis með tannsmiðum, og hafa við það samráð við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra." Segist nefndin líta svo á að það muni leiða til aukinnar samkeppni milli tannlækna og tannsmiða verði tannsmiðum veitt aukin starfsrétt- indi, samkeppni sem muni hafa í för með sér aukið hagræði og töluverð- an sparnað fyrir ríkissjóð jafnt sem einstaklinga, og þá einkum aldraða sem þurfi oft og tíðum að bera háan tannsmíðakostnað. Lítur nefndin svo á að aukinni ábyrgð hljóti að fylgja vönduð vinnubrögð og telur hún æskilegt að meistarar í tann- smíði geti að mestu leyti starfað sjálfstætt og á eigin ábyrgð að starfsgrein sinni. Yfírlitsskýrsla utanríkisráðherra um alþjóðamál til umræðu á Alþingi Búið að tilkynna um framboð Islands til öryggisráðs SÞ HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra gerði Alþingi í gær grein fyrir helstu tíðindum í utanríkisþjón- ustunni íslensku og stöðu alþjóða- mála. Margir þingmenn kvöddu sér hljóðs við umræðu um utanríkismál- in og var m.a. sérstaklega rætt um stofnun sendiráðs í Austurríki, við- skiptabann Sameinuðu þjóðanna á írak, varnarsamstarf á Evrópuvett- vangi og um framboð Islands til ör- yggisráðs SÞ. I ræðu sinni stiklaði Halldór á stóru um efni yfirlitsskýrslu sinnar um alþjóðamál og lagði hann áherslu á að halda yrði áfram að efla íslenska utanríkisþjónustu. Erlend samskipti og alþjóðamál væru sívaxandi þáttur í starfsemi ráðuneyta, Alþingis, ým- issa stofnana, sveitarfélaga, fyrir- tækja og fiestir íslendingar fyndu meiri samkennd og nálægð með öðr- um þjóðum en nokkru sinni fyrr. „Á breyttum tímum í alþjóðamál- um þarf nýja hugsun," sagði Halldór. „Við þurfum að skilgreina stöðu okk- ar af vandvirkni og framsýni. Fyrir litla þjóð er mikilvægt að leggja rækt við þá vináttu og þann velvilja sem við njótum í samfélagi þjóð- anna.“ Halldór rifjaði upp að ákveðið hefði verið að opna tvö ný sendiráð á næsta ári, í Japan og Kanada. Þá væri stefnt að því að opnuð yrði á næsta ári íslensk sendiskrifstofa í ALÞINGI húsnæði sendiráða Danmerkur og Noregs í Mósambík, í því skyni m.a. að sinna þróunarmálum og efla póli- tísk samskipti við samstarfsríki í Afríku. Hann gerði Evrópusamstarf í ör- yggis- og varnarmálum að sérstöku umtalsefni. Sagði hann íslensk stjórnvöld standa heilshugar að baki Evrópusamstarfi í öryggis- og varn- armálum en með þeim fyrirvara að þróunin yrði ekki skilgreind á þröng- um grunni ESB-aðildar og að tryggt yrði að þessi þróun veikti ekki með nokkrum hætti Atlantshafsbanda- lagið (NATO) og tengslin yfir Atlantshafið. Ennfremur að þeim sex evrópsku aðildarríkjum NATO, sem stæðu ut- an ESB, og tóku þátt í að móta hug- myndir um aukna Evrópusamvinnu á sviði öryggis- og varnarmála á leið- togafundi NATO fyrir tæpu ári, yrði gert kleift að taka fullan þátt í mótun ákvarðana og að þau yrðu reglulegir þátttakendur innan stofnana ESB á sviði öryggis- og vamarmála. Sagði Halldór að ríkisstjórnin hefði mark- visst beitt sér í þessu máli gagnvart aðildarríkjum ESB innan NATO. Fram kom einnig í máli Halldórs að nýbúið væri að tilkynna um fram- boð íslands til öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna fyrir tímabilið 2009- 2010 en kosningar fara fram árið 2008. Sagði hann þetta í fyrsta skipt- ið sem ísland sæktist eftir setu í ráð- inu og að framboðið endurspeglaði þá stefnu stjórnvalda að láta meira að sér kveða á alþjóðavettvangi. Óeðlilegt að opna sendiráð í Vínarborg eins og stendur? Umræður um skýrslu utanríkis- ráðherra um alþjóðamál stóðu í allan gærdag og tóku margir þingmenn til máls. Sighvatur Björgvinsson, þing- maður Samfylkingar, gerði m.a. að umtalsefni það markmið stjórnvalda, sem greint er frá í yfirlitsskýrslunni, að breyta skrifstofu fastanefndar ís- lands í Vín, sem einkum sinnir Or- yggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSE), þannig að hún verði jafn- framt sendiráð íslands í Austurríki. Sagði Sighvatur að það skyti skökku við að ísland stefndi að því að stofna nýtt sendiráð í Austurríki nú þegar flokkur öfgamannsins Jörgs Morgunblaðið/Jim Smart Halldúr Ásgrímsson utanríkisráðherra stóð í ströngu í þingsal Alþingis. Haiders væri við völd þar í landi. Halldór svaraði því hins vegar til að sú ákvörðun, að breyta sendiskrif- stofunni í sendiráð, væri ekki nýtil- komin. Rökin væru þau að nýta skrifstofuna betur, Vínarborg væri vel staðsett, t.a.m. vegna aukinna hagsmuna Islands í Mið-Evrópu. Spurði Halldór hvort menn hefðu virkilega átt að fara að hætta við þessi áform vegna stjórnarþátttöku öfgamanna í Austurríki og sagði að þó að hann fordæmdi stefnu og skoð- anir Haiders og flokksbræðra hans bæri að dæma austurrísk stjómvöld af verkum þeirra. Tómas Ingi Olrich, formaður ut- anríkismálanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokks, tók í sama streng. Sagði hann það koma á óvart ef menn settu sig upp á móti því að opn- að væri sendiráð í Austurríki. Tómas sagði ennfremur að opnun sendiráðs í Japan væri orðin tímabær vegna viðskiptahagsmuna í Austurlöndum fjær og ekki síður væri það mikil- vægt skref að opna sendiráð í Kan- ada. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, gerði viðskiptabann SÞ á írak að sérstöku umtalsefni og sagði tímabært að íslendingar beittu sér fyrir afnámi þess. Á aðra milljón manns hefði dáið af völdum við- skiptabannsins og alþjóðasamfélagið gæti einfaldlega ekki lengur borið ábyrgð á þessum hörmungum. Viðræður vegna nýrrar bókun- ar við varnarsamning í haust Evrópumálin komu ekki til um- ræðu í gær en ákveðið hefur verið að sérstök umræða fari fram um skýrslu utanríkisráðherra um stöðu íslands í Evrópusamstarfi eftu páska. Halldór sagði þó í gær að stjórnvöld þyrftu að vera viðbúin þvi að forsendur EES-samstarfsins breyttust. Vandasamar ákvarðanir kynnu að vera framundan í þessum efnum. Ennfremur sagði utanríkisráð- herra í svari við spurningu Guðmundar Árna Stefánssonar, þingmanns Samfylkingar, að pf snemmt væri að segja til um hvernig viðræður vegna nýrrar bókunar við varnarsamning íslands og Banda- ríkjanna þróuðust, en skv. gildandi bókun getur hvor þjóð um sig óskað eftir því að hún verði endurskoðuð frá og með 9. aprfl síðastliðnum. Kvaðst Halldór gera ráð fyrir að formlegar viðræður hæfust í haust og hann sæi ekki fyrir sér að stór- kostlegar breytingar yrðu gerðar á bókuninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.