Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hugmyndir
um flutning höfuð-
stöðva Rarik
Stuðningur
berst víða að
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar í
gær var lögð fram ályktun sem
bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fundi sínum í vikunni, þar sem lýst
er yfir stuðningi við framkomna
hugmynd um flutning Rarik til Ak-
ureyrar.
Áður hafði bæjaiyfirvöldum á
Akureyri borist samskonar stuðn-
ingur við málið frá sveitarfélögun-
um Austur-Héraði og Skagafirði.
Eins og komið hefur fram eru uppi
hugmyndir um að flytja höfuðstöðv-
ar Rafmagnsveitna ríkisins, Rarik,
frá Reykjavík til Akureyrar og í því
sambandi hefur einnig verið rætt
um möguleika á sameiningu Rarik
og orkufyrirtækjanna á Akureyri.
Ásgeir Magnússon formaður
bæjarráðs sagði mjög ánægjulegt
að fá þennan stuðning frá sveitar-
félögunum þremur og að sá stuðn-
ingur skipti heilmiklu máli.
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa
átt í viðræðum við ríkisvaldið um
möguleika á flutningi Rarik norður
og sagði Ásgeir að áfram væri unn-
ið að málinu. Hann sagði að gera
þyrfti sérstaka úttekt vegna máls-
ins og að ákveðið hefði verið að
bjóða út þá úttektarvinnu. Ásgeir
sagði að sú vinna tæki alltaf nokkra
mánuði.
UNGT fólk úr öllum heimsálfum
sameinaðist við það á dögum að
reisa heljarstórt snjóhús, en það
voru skiptinemasamtökin AFS,
Eyjaíjarðardeild sem stóð að
þessu uppátæki. Um var að ræða
maraþon til fjáröflunar fyrir
starfsemi deildarinnar og tókst
þetta verkefni vel að sögn Guð-
mundar Sigurðarsonar, eins
þeirra sem að því stóð.
Alls tóku ellefu skiptinemar
þátt í því að reisa snjóhúsið, fjórir
þeirra búa á Akureyri, fimm í
Ungt fólk úr
öllum heims-
álfum reisti
risasnjóhús
Reykjavík, einn á Bolungarvík og
einn f Ólafsfirði. Fleiri lögðu hönd
á plóginn, fólk sem tengist starf-
Morgunblaðið/Kristján
semi skiptinemasamtakanna og
þeir sem verið hafa skiptinemar.
Alls reisti þetta unga og dug-
mikla fólk um 117 fermetra snjó-
hús með þremur herbergjum, en í
verkið fóru um 260 rúmmetrar af
snjó. Þegar húsið var risið slök-
uðu menn á í heita pottinum í
Sundlaug Akureyrar og að lokum
var hópnum boðið í Nýja bíó, áður
en haldið var heim á leið til að
hvfla sig en maraþonið stóð yfir í
sólarhring og fólk því þreytt eftir
erfiði helgarinnar.
Eitt verka Iðunnar á sýningunni.
Blómaskálinn Vín
Aðalréttur Iðunnar
IÐUNN Ágústsdóttir opnar mynd-
listarsýningu í Blómaskálanum Vín í
Eyjafjarðarsveit á morgun, laugar-
daginn 15. apríl kl. 14.
Iðunn sýndi í blómaskálunum fyrr
á árinu nokkur verka sinna undir yf-
irskriftinni „forréttur" en nú er kom-
ið að aðalréttinum. Sem aðalrétt ber
Iðunn á borð iyrir gesti um 40 olíu-
málverk og pastelmyndir og getur
fólk notið hans fram að 24. apríl
næstkomandi, sem er annar páska-
dagur.
Iðunn hefur unnið að myndlist í
rúm 20 ár og hefur hún á þeim tíma
haldið um 20 einnkasýningar og tekið
þátt í íjölda samsýninga, eða á bilinu
20-30 alls, bæði heima og erlendis.
Kvenfélagið Hlíf skorar á Akureyringa
Samvinna í baráttu
gegn fíkniefnavá
KVENFÉLAGIÐ Hh'f á Akureyri
hefur skorað á foreldra á Akureyri,
kennara, félagasamtök, bæjaryfir-
völd og löggæslu um að hefja sam-
vinnu um að berjast gegn þeim voða
sem neysla á fíkniefnum er.
Fram kemur í ávarpi kvenfélags-
kvenna til bæjarbúa að Hlífarkonur
hafi um langt árabil unnið að fjár-
söfnun til að bæta og efla tækjakost
barnadeildar Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri. Þessi tæki hafi stuðl-
að að heilbrigði og jafnvel lífgjöf ht-
illa bama og ekki þurfi að lýsa
fögnuði þeirra foreldra sem fá böm
sín heilbrigð heim af sjúkrahúsi.
„En margs konar voði steðjar að
bömum og unglingum í bænum okk-
ar - annar en sjúkdómar. Sala á eit-
urlyfjum og öðmm vímuefnum veð-
ur hér uppi og sölumenn þeirra láta
einskis ófreistað í þjónustu sinni við
Mammon. Það er sárara en támm
taki fyrir aðstandendur - og alla -
að horfa upp á ungmenni og börn
falla íyrir tálbeitum þeirra sem
leyfa sér að hafa þau að féþúfu á svo
samviskulausan og siðlausan hátt.
Minnumst þess að bak við hvem
þann sem missir fótanna á hálu
svelli vímuefnanna er fjölskylda
lömuð af harmi, segir í ávarpi kven-
félagskvenna til bæjarbúa.
------♦_4_*------
Tónleikar í
safnaðar-
heimilinu
STEINUNN AmbjörgStefánsdóttir
sehóleikari og Steinunn Bima Ragn-
arsdóttir píanóleikari halda tónleika í
safnaðarheimih Akureyrarkirkju
föstudaginn 14. apríl kl. 20.30.
Flutt verða verk eftir J.S. Bach,
Jón Norðdal, Mendelsohn og Prokof-
iev. Aðgangseyrir er 500 krónur en
frítt er fyrir skólafólk. Steinunn Am-
björg er rétt að Ijúka einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík,
þar sem kennari hennar var Gunnar
Kvaran. Steinunn Bima kennir við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Sóttum
lóðir undir
sumarhús í
Búðargili
BYGGINGANEFND Akur-
eyrar hefur óskað eftir heim-
ild bæjarráðs til að auglýsa
svæðið við Búðargil laust til
umsóknar. Bæjarráð fjallaði
um erindi bygginganefndar á
fundi sínum í gær með ósk
um að leitað verði leiða til að
verða við erindinu.
Knútur Karlsson formaður
bygginganefndar sagði aðila í
bænum hafa sótt um lóðir í
Búðargili til að byggja á að
minnsta kosti 10 sumarhús.
Um er að ræða svæðið á móti
hesthúsunum í gilinu.
Knútur sagði að samkvæmt
aðalskipulagi væri gert ráð
fyrir sumarhúsabyggð í Búð-
argilinu en áður en hægt yrði
að ráðast í framkvæmdir þar
þyrfti málið að fara í ákveðið
ferli - m.a. þyrfti að vinna
deiliskipulag svæðisins,
kynna það og auglýsa svæðið
laust til umsóknar. Hann
sagði að þeir aðilar sem sóst
hefðu eftir svæðinu hefðu
áhuga á að hefja framkvæmd-
ir næsta haust og að húsin
yrðu tilbúin til útleigu næsta
sumar.
Lúkas
24 í Deigl-
unni
ÁRNI Rúnar Sverrisson opn-
ar málverkasýningu í Deigl-
unni á Akureyri laugardaginn
15. aprfl nk. kl. 14. Yfirskrift
sýningarinnar er „Lúkas 24“.
Sum verkanna eru unnin á
vinnustofu í Palermo á Siki-
ley á sl. ári og önnur á al-
þjóðlegri vinnustofu í Lista-
miðstöðinni Straumi sl. sex
mánuði.
Málverkin eru unnin með
olíu á striga. Þetta er tólfta
einkasýning Árna Rúnars en
hann hefur einnig tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Sýningin stendur frá 15.
aprfl til 28. apríl 2000. Hún er
opin alla virka daga frá kl.
13-15, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14-18.
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kyrrðarstund í Grenivíkur-
kirkju á sunnudag, 16. apríl, kl.
21.
Allt annað líf !
„Ég er búin að taka NATEN í tæp tvö ár,
og þvíllkur munur! Ekkert mál að vakna
á morgnana, og hafa orku allan daginn.
Sofna um leið og ég leggst á koddann,
sem áðurtók mig 1-2 klukkutíma.
Brennslan jókst, ekkert mál að
halda sér grannri."
KYNNING í
Apóteki Garðabæjar
25% AFSLÁTTUR
laugardaginn 15.4 frá kl 12 -16
'O
8
O)
o
>
ro
Q.
i*
'O b
21
3 fO
2
UJ
ig
z
Fædubóiarefnid
sem fólk talar um!
NATEN
Til leigu
Húseignin Bræðraborgarstígur 16 er til leigu í heild eða í hlutum. Húsið
er í dag nýtt sem skrifstofur, verslun og lager. önnur og þriðja hæð
voru áður íbúðir sem auðvelt er að breyta i sama horf. Eignin er sam-
tals 1.078 fermetrar.
Áhugasamir geta leitaó nánari uppiýsinga á
netfangi: johann@gen.is eða sent fyrirspurnir í bréfi stílaö á Jóhann Pál
Valdimarsson, Genealogia islandorum hf., Lynghálsi 10,110 Reykjavík.