Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Menningar- og vor vaka hjá Emblu Kæra á Norður-Héraði vegna skólaaksturs Sveitarstjórn leggur til að borgað verði Stykkishólmi - Oft og tíðum hefur eitt það fyrsta sem minnt hefur Hólmara á vorkomuna verið vor- vaka Emblu-félagsins. Þar er boðið upp á menningarlegt efni sem flutt er af heimamönnum og gestum. Vorvakan er fastur liður í starf- semi Emblu-kvenna. Þær hafa und- anfarin ár verið með samkomuna síðasta vetrardag, en nú er sá dagur í páskavikunni svo þær ákváðu að flýta vorkomunni um nokkra daga. Vorvakan var haldin í Stykkis- hólmskirkju föstudagskvöldið 31. mars. Gestur samkomunnar var Einar Már Guðmundsson rithöf- undur. Hann las úr verkum sínum í bundnu og óbundnu máli. Harmon- íkusveit Tónlistarskólans spilaði og leikfélagið Grímnir flutti frumsam- inn leikþátt. Þá komu fram og karla- og kvennakór sem félagar úr kór Stykkishólmskirkju skipa og barnakór undir stjórn Sigrúnar Jónsdóttur fluttu nokkur lög. í lok kvöldvökunar var gestum boðið upp á þjóðlegar veitingar. I tengslum við vorvökuna stóðu Emblu-konur fyrir sýningu í Norska húsinu um helgina. Þar var haldið á lofti þjóðleg handíð og sýndur var íslenski búningurinn frá 19. og 20. öld. Búningarnir komu frá Heimilisiðnaðarfélaginu, Ingi- björgu Ágústsdóttur í Stykkishólmi og fleirum. Þá voru sýnd vinnu- brögð við saumaskap, balderingar og knipl. Á sýningunni voru ljós- myndir úr myndasafni Jóhanns Rafnssonar sem sýndar voru mynd- ir af konum á þjóðbúningum frá ýmsum tímum. Norður-Héraði - Sveitarstjóm Norð- ur-Héraðs hefur svarað félagsmála- ráðuneytinu vegna kæru íbúa sveitar- félagsins Sigurðar H. Jónssonar sem neitað var um greiðslu fyrir að aka eigin bömum til og frá skóla. I bókun frá oddvita sveitarfélags- ins kemur fram að „hann telur að Sig- urður eigi rétt á þessari greiðslu. Það byggist á upplýsingum úr fundar- gerðum sem sendar hafa verið til hans eins og annarra og á fundargerð frá 4. júní 1998 sem álit fékkst á frá lögmanni. Enginn reikningur hefur borist og er ekki venja að greiða án reiknings". Oddviti S-listans lagði fram eftir- farandi bókun „S-listinn hefur ekki breytt þeirri skoðun sinni að eigi skuli greiða akstur barna sem áttu að vera í heimavist að Skjöldólfsstöðum en vom sótt af foreldrum þegar skólabfll ók ekki. Kærur sem þessar koma þegar hinum almenna íbúa sveitarfé- lagsins blöskrar hið algera siðleysi núverandi meirihluta er syni oddvit- ans var greiddur akstur eigin bama og öðram hafnað. S-listinn bendir á að hér er um almannafé að ræða, en ekki einkafjármuni meirihlutans til ráðstöfunar til vina og ættingja." Að sögn sveitarstjóra Norður-Hér- aðs er vflji meirihluta sveitarstjómar að ganga til samninga við Sigurð og greiða honum þetta. Sigurður segir að ekki komi til greina af sinni hálfu neinir samningar og hafi aldrei komið til greina „það er best að þetta mál hafi sinn gang og sveitarstjóm svari þessu erindi til ráðuneytisins, ég hef falið Gísla Auðbergssyni héraðs- dómslögmanni að reka málið fyrir mig áfram og senda frekari rök til ráðuneytisins varðandi málið. Pen- ingamir skipta ekki öllu í þessu máli það er meginforsenda að sveitar- stjómin mismuni ekki þegnunum. Sveitarstjómin hafnaði því í tvígang að ræða við mig um málið og nú er best að þeir taki afleiðingum gerða sinna“. Morgunblaðið/Ásmundur Friðriksson Vel tekið á móti Islandsmeisturum í handbolta Vestmannaeyjum - Sl. sunnudag varð 5. flokkur kvenna frá ÍBV Is- landsmeistari í handbolta eftir harða baráttu við Framstúlkur í all- an vetur, en Eyjastúlkurnar höfðu betur en Framarar í þremur mótum af fimm. Við móttöku iiðsins þegar það kom til Eyja voru því færð blóm frá ÍBV auk þess sem bæjarstjór- inn, Guðjón Hjörleifsson, splæsti Fanta og Prince Polo á liðið en þar var eitthvert veðmál i gangi. Þá gladdi það ekki sist ungu hand- knattleiksstúlkumar að meistara- flokkur kvenna sem nú berst um íslandsmeistaratitilinn við Gróttu KR mætti í móttökuna og lofuðu þær í hástert og væntu þess að þær verði verðugir arftakar í framtíð- inni. Stúlkurnar þykja mjög efni- legar og sagði hinn kunni hand- knattleiksmaður, Bjarki Sigurðsson, að hér væri á ferðinni einhvem efnilegasti hópur sem hann hefði séð. Þjálfarar stúlkn- anna em Stefanía Guðjónsdóttir og yfirþjáifari Mikhail Akbashev. Stærðfræði- keppni FNV Sauðárkróki - Stærðfræðikeppnin er samvinnuverkefni FNV, grann- skóla og fyrirtækja og stofnana á Norðurlandi en Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki hafði framkvæði að því að koma keppninni á og annast fram- kvæmd hennar. Öllum grannskólum í kjördæminu er gefinn kostur á þátttöku, þeir leggja til keppend- uma og annast forkeppni en fyrir- tækin og stofnanirnar sjá um fjár- mögnun hennar. Keppninni er ætlað að styrkja tengslin milli þessara þriggja aðila í einu sameiginlegu átaki um leið og nemendur eru hvattir til dáða í stærðfræðinni. Að sögn Ársæls Guð- mundssonar, aðstoðarskólameistara er þetta keppni á jákvæðu nótunum þar sem vegleg verðaun eru í boði. Að þessu sinni fór keppnin fram 2. mars og tóku 157 nemendur úr 9. bekk úr öllum grannskólum á Norð- urlandi vestra þátt í henni en af þeim komust 16 í úrslitakeppnina sem haldin var laugardaginn 8. aprfl í Bóknámshúsi FNV. Athygli hefur vakið góður árangur nemenda úr Varmahlíðarskóla og að þessu sinni var hann ekki síðri en undanfarin ár en 7 nemendur komust í úrslita- keppnina eða 44% nemendanna í 9. bekk skólans. Þegar keppnin var haldin í fyrsta sinn fyrir þremur áram var sigur- vegarinn Isak Siguijón Bragason úr Varmahlíðarskóla. Að þessu sinni kepptu 7 nemendur úr Varmahlíðarskóla, 4 frá Árskóla á Sauðárkróki, 2 frá Hofsósi, 2 frá Blönduósi og 1 frá Hvammstanga. Höfundar stærðfræðiþrautanna era Bjöm Fr. Bjömsson, Gísli Áma- son og Hjörleifur Sveinbjömsson, stærðfræðikennarar við FNV. í ár nam heildarverðmæti vinn- inga 370 þúsund krónum, þar af fékk sigurvegarinn, Gauti Ásbjörnsson, Árskóla, í sinn hlut verðlaun að verð- mæti 114 þúsund auk farandbikars og eignarbikars. Bjöm Þór Her- mannsson, Grannskólanum Hvamm- stanga, fékk verðlaun að verðmæti 62 þúsund fyrir 2. sætið og í þriðja sæti, Sigurður Á. Matthíasson, Varmahlíðarskóla, og námu hans verðlaun 32 þúsund krónum. Aðrir keppendur fengu verðlaun að verð- mæti 10 þúsund krónur fyrir þátt- tökuna og þann árangur að vera í hópi 16 bestu. Fyrirtæki á Norðurlandi hafa sýnt þessu framtaki sérstakan velvilja og styrkt það mjög myndarlega nú sem alltaf áður. Allmargir gestir fylgdust með keppninni og fengu þeir að reyna sig við nokkrar stærðfræðiþrautir á meðan þeir biðu, þá var þeim einnig boðið að skoða hið glæsilega húsnæði skólans og stúdentsefni höfðu opið kaffihús þar sem boðið var upp á gimilegt hlaðborð á meðan á keppn- inni stóð. Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson Söngskemmtun í Finnbogastaðaskóla Ströndum - Andrea Gylfadóttir söngskemmtun og fóru með leik- hefur kennt nemendum Finnboga- þætti, en aðeins sjö nemendur eru staðaskóla söng í nokkra daga og nú við skólann á aldrinum sjö til nemendur héldu nú fyrir stuttu þrettán ára. Héraðsþing Hrafnaflóka Tálknafirði - í byrjun aprfl hélt Héraðssambandið Hrafnaflóki árs- þing á Tálknafirði. Á þinginu vora tekin fyrir ýmis mál sem snerta starfsemi ungmennafélaganna á svæðinu. Fram kom á þinginu að vegna smæðar og fámennis væri orðið erfiðara að halda úti jafn fjöl- breyttri starfsemi og áður, þrátt fyrir mikið og óeigingjarnt sjálf- boðastarf sem unnið er í félögun- um. Á þinginu var lýst kjöri íþrótta- manns ársins hjá Hrafnaflóka. Að þessu sinni var Jónas Þrastarson útnefndur íþróttamaður ársins. Valið fer þannig fram að kjömir era íþróttamenn úr einstökum íþróttagreinum og úr þeirra hópi er íþróttamaður ársins síðan valinn. Mikill hugur er í þeim Hrafna- flókamönnum að gera unglinga- landsmót UMFÍ, sem haldið verður á Tálknafirði og í Vesturbyggð 4.-6. ágúst í sumar, sem glæsileg- ast. Skjöldur Pálmason, formaður undirbúningsnefndar, kynnti fyrir þinginu hvemig undirbúningi mið- ar og hvað er á döfinni í þeim efn- um. Morgunblaðið/Finnur Frá verðlaunaafhendingu þegar kjöri íþróttamanna ársins var lýst á héraðsþingi Hrafnaflóka, sem haldið var á Hópinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.