Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 24

Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Þjónustusvæði Tals hf. mun ná til 90% landsmanna í sumar Uppbygging GSM-kerfís fyrir 3,1 milljarð króna Morgunblaöið/Golli Þórólfur Árnason, forstjóri Tals hf., og Jóakim Reyn- isson, framkvæmdastjóri tæknisviðs, kynna stækkun á GSM-þjónustusvæði Tals hf. TAL hf. hefur Qárfest fyrir tæplega 2,5 milljarða króna í uppbyggingu GSM-þjónustu sinnar frá upphafi en á þessu ári nema fjárfestingamar 600 milljónum króna. Með þessum fjórða áfanga í upp- byggingu dreifikerfis Tals hf. mun GSM-þjónustusvæði Tals ná til 90% landsmanna, að því er fram kom á blaða- mannafundi í gær, og fjár- festingin frá upphafi nemur því 3,1 milljarði króna. Viðskiptavinir Tals eru nú um 40 þúsund og hefur fyrir- tækið að markmiði að þeir verði orðnir 50 þúsund í árs- lok, að sögn Þórólfs Áma- sonar forstjóra. I sumar verða sendar fyrirtækisins orðnir 52 um allt land. Þegar hafa verið teknir í notkun sendar á Sauðárkróki og í Hrísey, prófanir stóðu yfir á ísafirði í gær, sendir á Húsavík verður kominn í gagnið skömmu eftir páska og send- ar á Egilsstöðum og Homafirði í maí. Fjárfesting Tals hf. í uppbyggingu GSM-dreifikerfisins á þessu ári nem- ur 600 milljónum króna og felst í kaupum á nýjum tækjabúnaði og tvö- foldun á símstöð, þéttingu dreifikerf- isins og almennri uppbyggingu úti á landi og á SV-hominu, að því er fram kom á fundinum. Þórólfur telur tvi- mælalaust þörf fyrir tvö GSM-kerfi á markaðnum, öryggisins vegna, en lét ósagt hvort rúm væri fyrir fleiri. Stef nt að hagnaði á þessu ári Þórólfur Ámason og Jóakim Reynisson, framkvæmdastjóri tæknisviðs, lögðu áherslu á að Tal fylgi ströngum gæðastöðlum hvað varðar m.a. frávísanir, þ.e. þegar all- ar rásir eru uppteknar. Hjá Tali hafa frávísanir sjaldan farið yfir 1%, að sögn Þórólfs, en miðað er við 2% í flestum GSM-kerfum. Tal hf. hefur starfað í tæp 2 ár og em starfsmenn fyrirtækisins nú 125 talsins. Fram kom á fundinum að fjölgun starfsmanna tækni- og upp- lýsingasviðs standi fyrir dymrn. Markaðshlutdeild fyrirtækisins er í samræmi við markmið sem sett vom í upphafi, og er nú um 25% í GSM- þjónustu og liðlega 20% í farsíma- kerfunum þegar NMT-kerfið er talið með. Tal hf. hefur ekki birt ársreikninga sína hingað til og verður ekki breyting þar á nú, að því er Þórólfur segir í samtali við Morgunblaðið. Hann gefur þó upp að stefnt sé að því að skila hagnaði á þessu starfsári. Jákvæð framlegð var af rekstrinum á síðasta ári en vegna upp- byggingar skuldi fyrirtækið þó nokkuð. Hlutafé Tals hf. er 550 milljónir. Eigendur Tals hf. em bandaríska fjarskiptaíyrirtækið West- em Wireless og tengd félög með tæpa % hluta, Norður- ljós eiga tæpan þriðjung og aðrir 1,5%. Þórólfur segir breytingar á eignarhaldi ekki fyrirsjáanlegar og ákvörðun um hvort eða hve- nær hlutabréf verði seld á almennum markaði hefur ekki verið tekin. Megináhersla á þráðlaus fjarskipti Þórólfur telur mikilvægt að auka áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum þekkingar- og hátæknifyrirtækjum. Tal hf. á í nánu samstarfi við stærsta eigandann í fyrirtækinu, Westem Wireless, um hugbúnaðarþróun til útflutnings. Tal hf. leggur að hans sögn megináherslu á þráðlaus fjar- skipti og næstu kynslóð farsíma. Þórólfur telur ísland ákjósanlegt svæði til prófunar á ýmiss konar tæknilausnum, sökum góðrar þekk- ingar íslendinga á Netinu og mikillar útbreiðslu farsíma, en fram kom að skráðir GSM- og NMT-farsímar hér á landi eru um 175 þúsund talsins. Nasdaq lækkar um 27% á einum mánuði MESTI gróskutími í sögu Nasdaq- hlutabréfamarkaðsins virðist hafa runnið sitt skeið á enda og hnignun tekið við. I fyrradag lækkaði vísitalan um 7%, í kjölfar þess að fjárfestar seldu hlutabréf í tæknifyrirtækjum. Var það næstmesta lækkun á vísitöl- unni í stigum talið frá upphafi og sjötti versti dagurinn í sögu hennar. Veruleg áhrif þennan dag höfðu mikl- ar lækkanir á gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjunum Hewlett-Pack- ard, Intemational Business Machin- es, Intel og Microsoft. Lækkunin hélt áfram í gær, og nam 2,46%. Hefur vís- italan lækkað um 27% frá 10. mars sl., á rúmum einum mánuði. Eins og kunnugt er varð mesta lækkunarhrinan á Nasdaq 4. apríl sl., þegar vísitalan hrapaði um 13,6%. Hmnið reyndist meira en árið 1987, þegar vísitalan lækkaði um 11,4% á einum degi. Meginskýringuna má telja dóm í máli bandarískra yfirvalda gegn tölvurisanum Microsoft. Olli hann miklum straumhvörfum á mark- aðinum, gríðarleg óvissa skapaðist og hlutabréf urðu skyndilega ekki eins áhugaverður fjárfestingarkostur. Einkum eru það verð bréfa í há- tæknifyrirtækjum sem hafa lækkað að undanfómu. Þrátt fyrir það hafa ýmis önnur hlutabréf haldið sér í verði. Til marks um það hefur Dow Jones iðnaðarvísitalan hækkað um 12% frá 10. mars, og bréf í bönkum, sem skráðir eru á Nasdaq, hafa verið að gera það gott. Sagt er að gömlu ris- amir á hlutabréfamarkaðinum séu að vinna traust fjárfesta á ný, en hin svo- nefndu nýaldar-fyrirtæki dala. Sérfræðingar á bandaríska mark- aðinum benda á að hlutabréfamark- aður hafi verið óstöðugur frá áramót- um. í nær helming þess tíma sem liðinn er frá áramótum hefur Dow Jones hlutabréfavísitalan færst upp eða niður um 1% eða meira, sem eru mun rneiri breytingar en verða á venjulegum degi á vísitölunni. Þá er ennfremur bent á að þrátt fyrir lækk- animar nú hafi Nasdaq vísitalan hækkað á síðastliðnu einu ári um 45%, á móti um 8% hækkun Dow Jones. Því er spáð að verð tæknifyrir- tækja sé einungis að leiðréttast með þeim sveiflum sem orðið hafa á mark- aðinum. Muni það svo hafa þau áhrif að erfiðara reynist fyrir netfyrirtækin að afla fjármagns í hlutafjárútboðum vestanhafs. Hvort Nasdaq markaðurinn nær aftur fyrra flugi mun ráðast af því hvort fjárfestar eru tilbúnir til þess að veðja aftur á gott gengi bréfa í tækni- fyrirtækjum. Tekjur íslandsslma hf. af sölu 9 milljónir króna í fyrra en markaðsvirði 7 milljarðar króna Ahersla á vöxt fremur en skammtímahagnað EYÞÓR Amalds, framkvæmdastjóri Íslandssíma, segir ólíklegt að íslan- dssími skili hagnaði af rekstrinum á þessu ári. „Við leggjum áherslu á vöxt fyrirtækisins. Við viljum frekar auka eigið fé og efla starfsemina, heldur en að skera niður kostnað og ná fram skammtímahagnaði," segir Eyþór í samtali við Morgunblaðið. Áðalfundur Íslandssíma var hald- inn í fyrradag og var afkoma félags- ins kynnt þar. Félagið var rekið með 90,6 milljóna króna tapi en tekjur af sölu námu rúmum 9 milljónum. Gert var ráð fyrir 119 milljóna króna tapi. Eigið fé Íslandssíma nam um 422 milljónum króna í árslok 1999. Hlutabréf Íslandssíma eru ekki skráð á opinberan verðbréfamarkað og ber fyrirtækinu því ekki að birta ársreikning sinn opinberlega. Við- skipti hafa hins vegar skapast með bréf félagsins á svokölluðum gráum markaði þar sem gengi bréfanna hefur verið um 25. Hlutafé íslands- síma er alls 400 milljónir króna, að valréttarbréfum meðtöldum. Miðað við það er markaðsverðmæti fyrir- tækisins um 10 milljarðar. Eyþór segir ljóst að væntingar til félagsins séu stór hluti af þessu verð- mati. „Þetta þrýstir á um stækkun fyrirtækisins. Kannski telja fjárfest- ar að við höfum skýra framtíðarsýn og við gerum okkar besta til að standa undir þessum væntingum. Við höfum hingað til staðið við áætl- anir okkar,“ segir Eyþór. Að hans mati skapast ákveðin upplýsinga- skylda þegar viðskipti mjmdast með bréf félags á gráum markaði. Hann segir stefnt að því að hefja skoðun á skráningu hlutabréfa félagsins á markað í árslok. GSM-þjónusta nauðsynleg til að standast samkeppni Islandssími hefur í samstarfi við Línu.Net staðið fyrir lagningu ljós- leiðara á höfuðborgarsvæðinu og býður nú símaþjónustu um það kerfi. Fyrirtækið hefur einnig veitt net- þjónustu og opnaði WAP-gátt í jan- úar sl. í byrjun þessa mánaðar hóf Íslandssími að bjóða áskrift að milli- landasímtölum. Að sögn Eyþórs hef- ur fyrirtækið náð markmiðum sínum að öllu leyti, utan því að áætlað var að bjóða millilandaþjónustu um síð- ustu áramót en tafðist vegna tafa á reglugerð, að sögn Eyþórs. Islandssími bíður nú leyfis til reksturs GSM-kerfis. Eyþór segir nauðsynlegt að stækka fyrirtækið ef það ætli að standast samkeppni. „Við verðum því að geta boðið góða GSM- þjónustu.“ Sérstakt dótturfélag hef- ur verið stofnað um rekstur GSM- kerfisins, sem áætlað er að hefjist á þessu ári. Eyþór segir stefnu fyrirtækisins að halda mismunandi rekstri sjálf- stæðum innan nokkurra eininga eins og raun ber vitni. Íslandssími hefur keypt 90% í Intís og á meirihluta í íslandsneti. Íslandssími stofnaði Hýsingu hf. í janúar ásamt EJS og mun fyrirtækið hefja starfsemi í sumar. Hlutverk þess er m.a. að reka miðlæga gagnagrunna og vista gögn fyrir fyrirtæki. Annað dótturfélag, c- well.com, er óstofnað en starfsemi þess verður á sviði hugbúnaðarþró- unar, m.a. birtingar reikninga á Net- inu. Hugbúnaður Islandssíma sem notaður er á þjónustuvef félagsins gæti orðið sjálfstæð vara fyrir önnur fjarskiptafyrirtæki. Innan móðurfélagsins íslands- síma er fjarskiptakerfið rekið og gerir það einkum samninga við fyrir- tæki. Aðspurður segist Eyþór sjá fram á mestan vöxt í GSM-kerfinu, ljósleiðaratengingum og miðlægri þjónustu á árinu. Stefnt á stofnun fyrirtækis erlendis á árinu Að sögn Eyþórs hefur Íslandssími verið í sambandi við erlend fjar- skiptafyrirtæki í nokkrum löndum og sér hann fram á tækifæri til að opna fyrirtæki erlendis á þessu ári, en getur ekki tilgreint það nánar. Um verður að ræða sameiginlegt eignarhald Íslandssíma og viðkom- andi fyrirtækis. „Sú þekking sem hefur myndast hér innanlands í mjög framsæknu fjarskiptaumhverfi, get- ur nýst erlendis. Vaxtartækifærin eru til staðar og við verðum að nýta þau, nýta hagkvæmni stærðarinnar og vaxa hratt,“ segir Eyþór. Aðspurður segir hann reksturinn hafa gengið jafnt og þétt á fyrsta fjórðungi ársins og í samræmi við áætlanir. Eyþór vill ekki fara nánar út í tölur. „Við erum ánægð með að hafa náð samningum við 55 fyrir- tæki. Við ætlum að efla söludeild og auka veltuna. Markmið okkar fyrir árið er að ná samningum við yfir 100 fyrirtæki." Hann á von á að 100 fyr- irtækja markmiðið náist síðla sum- ars. „Það er hins vegar mikill munur á viðskiptavinum og við munum í sí- vaxandi mæli einbeita okkur að kröfuhörðum viðskiptavinum og leggja áherslu á þjónustuna." Islandssími gerir ráð fyrir 500 mil- ljóna króna tekjum á yfirstandandi ári en á síðasta ári veitti Íslandssími fjarskiptaþjónustu í tvo mánuði og sköpuðust níu milljóna króna tekjui' af því. Eyþór segir að búist sé við mun meiri tekjum á seinni hluta ár- sins en þeim fyrri, þar sem eðli reksturs fjarskiptafyrirtækis sé á þann hátt. „Veltan er sívaxandi þar sem tekjur safnast upp og leggjast saman,“ segir Eyþór. Hann segir ekki ákveðið hvort milliuppgjör verði birt en ljóst að árs- fjórðungsuppgjör verði ekki birt sér- staklega. : 15: i m Fardu fram úr Síminn býðurfjölbreyttar heildarlausnir í Internettengingum fyrir lítil sem stór fyrirtæki. sjálfvm þér...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.