Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.04.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 33 LISTIR Saga Sálumess- unnar AF ÞEIM fjölbreytilegu kaþólsku messum, sem sungnar eru við hin ýmsu tilefni, er sálumessan „missa pro defunctis" eða Requiem, eins og hún er oftast nefnd, ein af þeim mikilvægustu. Hún er sungin í rómversk-kaþólskum kirkjum á allra sálna messu (2. nóvember ár hvert) til minningar um látna ást- vini og dregur nafn sitt frá fyrsta orði fyrsta þáttar mess- unnar, „Requiem aet- ernam dona eis, Dom- ine“. Megin innihald Sálumcssunnar er bæn fyrir hinum látnu og kemur það fram í öllum þáttunum nema i Sanctus-kaflanum. Tveir aðalþættir kaþ- ólsku hámessunnar, Gloría og Credo, eru ekki notaðir, en þeirra í stað er sungið „Dies irae“, þar sem fjallað er um hinn efsta dóm á hádramatiskan hátt. „Dies irae“ er fyrirferðarmesti texti messunnar, tekur næstum helming alls textans og því venju- lega mest áberandi í tónverkum þeim sem samin hafa verið um sál- umessuna. Hægt er að rekja tón- smíðar samdar um þessa messu allt aftur til 14. aldar, en það eru seinni tima tónskáld sem hafa samið stór- brotnustu tónverkin, Mozart (1791), Cherubini (1816), Berlioz (1837), Verdi (1873) og Fauré (1888), ýmist af einhverju gefnu til- efni eða samkvæmt beiðni. Nægir þar að nefna Gabriel Fauré, sem samdi sálumessu til minningar um föður sinn nýlátinn og á hinn bóg- inn Mozart, sem samdi sálumessu samkvæmt pöntun dularfulls manns. Tilurð sálumessu Verdis var af dálítið öðrum toga. Sameiginleg sálumessa Við fráfall ítalska tónskáldsins Gioacchino Rossini 1868 vaknaði sú hugmynd að fá fremstu tónskáld Italíu til að semja sameiginlega sálumessu og heiðra þannig minn- ingu þessa ástsæla tónskálds. Ætl- unin var að hvert tónskáld fyrir sig semdi einn þátt og að verkið yrði flutt 13. nóvember 1869 í Bologna þegar ár væri liðið frá andláti Rossinis. Verdi hófst þegar handa og samdi þáttinn Libera me í þessa sameiginlegu sálumcssu. Fljótlega fóru að koma fram ýmsir annmar- kar á því að af þessum minningar- tónleikum gæti orðið, m.a. vegna þess að enginn fékkst til að Ijár- magna þá, hvorki einstaklingar né opinberir aðilar. Þegar endanlega var fallið frá hugmyndinni hættu tónskáldin við að semja sína þætti og Verdi lagði Libera me-þáttinn til hliðar. Um sama leyti barst hon- um boð um að semja óperu í tilefni af opnun Suez-skurðarins, svo næstu mánuði vann hann að samn- ingu óperunnar AYda, sem frum- flutt var í Kaíró 24. desember 1871. Libera me-þátturinn var Verdi stöðugt í huga og hann sendi vini sínum raddskrána til skoðunar. . Vinurinn lauk miklu lofsorði á tónsmíðina og hvatti Verdi í bréfi til að halda áfram og full- gera sálumessu. Skömmu seinna skrif- aði Verdi vini sínum til baka og sagði: „Þessi vinsamlegu orð þín vöktu svo sterka löngun hjá mér til að semja tónverk við all- an textann að ég hef nú þegar lokið við Requiem-þátt og Dies irae og Libera me- þátturinn er jú full- kláraður. Hugsaðu þér hve samviska þín má naga þig að þessi lofsyrði þín skuli hafa orðið þessa óskapnaðar valdandi! “ Rúmu ári seinna lést einn fremsti rithöfundur ítala, Al- essandro Manzoni, sem Verdi dáði mjög. Andlát þessa manns, sem Verdi hafði reyndar aðeins hitt einu sinni, fékk mikið á hann og varð til þess að hann ákvað að full- gera sálumessuna í minningu hans. Undirtektir blendnar Sálumessan var frumflutt 22. maí 1874 í Markúsarkirkjunni í Mflanó af bestu einsöngvurum La Scala-óperunnar, 120 manna kór og 100 manna hljómsveit undir stjórn tónskáldsins. Verdi var löngu orðinn heimsfrægur og dáð- ur í heimalandinu fyrir óperur sín- ar sem sungnar voru um allan hinn siðmenntaða heim, en nafn hans var einvörðungu tengt við óperur í hugum fólks. Það þótti því nýlunda að frá honum kæmi tónverk af þessum toga og var ekki laust við að undirtektir væru nokkuð blendnar. Verdi fór í mikla tón- leikaför strax að loknunt frum- fiutningnum og stjórnaði flutningi Sálumessunnar í ýmsum stórborg- um Evrópu. Einnig þar urðu undir- tektir dálftið misjafnar. Menn voru sammála um ágæti verksins en mörgum fannst það ekki hafa þann kirkjulega blæ sem hæfði sálu- messu. Ymsir þekktir tónlistar- rnenn töluðu frekar niðrandi um verkið og sögðu það vera „bestu óperu Verdis“ og einn frægasti hljómsveitarstjóri þess tfma talaði um hana sem „nýjustu „kirkju- skrúða“-óperu Verdis“. Þó fór svo að verkið hlaut mikið lof og menn áttuðu sig á þvi að Sálumessan væri eitt af bestu tónverkum Verdis. Giuseppe Verdi Ferðir Guðríðar Þorbjarnardottur Fjöldi sýninga í Vesturheimi „ÞETTA er fyrsta úthlaupið af þremur sem við leggjum í til Vestur- heims á þessu ári,“ sagði Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri og höf- undur leikritsins um ferðir Guðríðar Þorbjarnardóttur sem sýnt verður víða í Bandaríkjunum og Kanada á þessu ári í tilefni landafundahátíða- halda. Það er Tristan Gribbin, hin írsk- amerísk ættaða leikkona, sem fer með hlutverk Guðríðar. Tristan er búsett á íslandi og hefur leikið verk- ið á ensku (The Saga of Gudridur) í Skemmtihúsinu, írlandi, Kanada og Grænlandi undanfarin þrjú ár. „Must see“ í Dublin „Leiksýningin sló í gegn í Dublin ’98 en Irish Times valdi hana leiksýninguna MUST SEE þann hálfa mánuð sem hún var á fjölunum þar.Sýnt var fyrir fullu húsi í 14 daga og voru við- tökurnar afbragðs góðar,“ seg- ir Brynja. „Ég byrjaði að vinna að þessari hugmynd að einhverju viti fyrir nærri fjórum árum, reyndar á írlandi og fékk Kal- eidoscope styrkinn frá Menn- ingaráætlun Evrópusam- bandsins. Styrkurinn var skilyrtur þannig að, ég varð að frumsýna verkið í þremur Evrópulöndum á árinu ’98. Reyndar byrjaði ég að skrifa verkið bæði á íslensku og ensku, þegar ég setti fyrst nið- ur pennann og bjó til þrjár mis- munandi útgáfur með sama þema. Nú hafa þessar sýningar verið í gangi í Svíþjóð og Finnl- andi með Báru Lyngdal sem Guðríði og heitir sú sýning Járnviljinn (Vilja av Járn). ís- lenska sýningin með Ragnhildi Rúriksdóttur var frumsýnd í Færeyjum og sýnd stutt í Skemmtihúsinu vegna brott- flutnings leikkonunnar til Bandaríkjanna. Nú er ég að vinna íslensku útgáfuna uppá nýtt fyrir Þórunni Lárusdóttur í hlutverki Guðríðar, þar sem Suður- ganga Guðríðar verður stærri þáttur en fyrr. Þórunn verður einnig að leika ensku útgáfuna, vegna þess við Tristan getum ekki annað eftir- spum. Þórunn mun byrja í júní í Skemmtihúsinu, á meðan Tristan er í Ameríku,“ segir Brynja. „Það er mikið á leikkonurnar lagt að leika þessar sýningar. Leiksýn- ingin byggir mjög á látbragðsleik, auk þess sem leikkkonurnar syngja og dansa verða þær að bregða sér í allra kvikinda líki, leika karlana í lífi Guðríðar og jafnvel túlka sjálf nátt- úruöflin. En verkið byggist að mestu Tristan Gribbin Icikkona og Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri og höfundur. ferðafélagi er Jóhann Bjami Pálmason, ljósahönnuður, við Tristan vinnum með honum að undirbúningi hverrar sýningar sem sviðsmenn og aðstoðar- tæknimenn. Tónlistin er leikin af geisladiski. Hú er samin af Margréti Ornólfsdóttur. Rebekka Rán Samper hannaði grímur og leikmynd og Filippía Elísdóttir kjólinn hennar Guð- ríðar og nunnukuflinn sem Guðríður birtist í í upphafi og enda verks en notar hann svo alla sýninguna á mismunandi hátt, svo sem til að búa til segl fyrir vindi, hafrótið og skýin. Margir lagt hönd á plóginn Vesturförin er farin að til- hlutan Landafundanefndar. Sendiherramir Jón Baldvin Hannibalsson í Washington og Svavar Gestsson í Winnipeg hafa sannarlega lagt hönd á plóginn og þeirra starfslið hef- ur verið önnum kafið í skipu- lagsmálum. Ég hef svo haft samband við alla tengiliði í tölvupósti, sent upplýsingar og kynningarefni og fengiðsvör við tæknilausnum. Þessir tengiliðir í hverri borg em íslendingar eða ís- landsvinir sem leggja mikið starf á sig í sjálfboðavinnu. Og fyrsti mað- urinn sem við munum hitta vestan- hafs er dr. Örn Amar aðalræðismað- ur íslands í Minneapolis. Hann ætlar sjálfur að sækja okkur flökku- leikarana og allt okkar hafurtask á flugvöllinn og flytja okkur beint í leikhúsið til að undirbúa fyrstu sýn- inguna í Bandaríkjunum,“ segir Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri og höfundur sýningarinnar um Ferðir Guðríðar Þorbjarnardóttur. Tristan Gribbin í hlutverki sínu í Ferðum Guðríðar. á Eiríks sögu rauða og Grænlend- ingasögu, síðan skálda ég í eyðurnar. Sýning nr. 100 í San Francisco í þessari fyrstu ferð verður haldið til Minneapolis, svo Winnipeg, Geys- is, Regina, Vatnabyggðar, Edmon- ton, Calgary, Seattle, Salt Lake City, San Francisco og Los Angeles. í San Francisco mun Tristan leika sína 100 sýningu á The Saga of Gudridur... á sínum heimaslóðum. „Við Tristan verðum á ferð og flugi fram og aftur um Norður-Am- eríku, stundum leikum við í litlum leikhúsum, hina stundina í stómm. En lykilmaðurinn okkar og eini „Óþolandi örlög“ „ÉG FÓR að finna fyrir einhverj- um óþægindum á mánudagsmorg- uninn. Síðan smáágerðist þetta og á æfingunni á miðvikudag gat ég ekkert sungið. Það var því ekki um annað að ræða en draga sig út úr þessu. Það er hvorki sanngjarnt gagnvart mér né aðdáendum mín- um að ég fari að syngja tvisvar í röð hérna heima án þess að vera í toppformi. Eins og menn muna var ég heldur ekki nógu vel upplagður í Aida um daginn,“ sagði Kristján Jóhannsson þegar blaðamaður hringdi í hann á sjúkrabeðinn í Kópavogi eftir hádegi í gær. Kristján krækti sér í víms, er með sára hálsbólgu, bólgna eitla og hita. „Þetta eru óþolandi örlög. Ég er búinn að ganga með það í mag- anum í tólf ár að syngja Sálumessuna hérna heima, eða frá því ég söng hana fyrst í París og þetta eru þvi mikil vonbrigði.“ En við hálsbólguna ráða menn ekki, allra síst söngvarar. „Eftir meira en tuttugu ár í bransanum er maður ennþá með samvisk- una í lagi - vill alltaf gera sitt besta. Þann- ig að ég verð að játa mig sigraðan að þessu sinni. Stundum lætur maður sig raunar hafa það að syngja, en bara í neyð, eins og í Ai'da um daginn enda var ekki um það að ræða þá að fá staðgengil. Sú sýn- ing var mjög erfið fyrir mig andlega, þar sem ég gat ekki beitt mér að fullu - var að rífa úr mér sálina.“ Hljóðrita á Sálu- messuna með al- þjóðadreifingu í huga. Kristján verð- ur vitaskuld að draga sig út úr upp- tökunum líka. „Þú getur rétt ímyndað þér að ég hafi áhuga á því að fara að taka upp eitt af mínum uppáhaldsverkum fyrir al- þjóðamarkað svona á mig kominn." Kristján Jóhannsson Frumsýning frumsýnd í Vík Fagradal. Morgunbladið. Víkurleikflokkurinn í Vfk í Mýrdal var endurvakinn í vetur með miklum krafti. En öll starfsemi Ieik- flokksins hefur legið niðri frá árinu 1986. Starfsemin hófst á því að haldið var leiklistarnámskeið undir stjórn Margrétar Ákadótt- ur með u.þ.b. 30 þátttak- endum. f framhaldi af því var ákveðið að setja upp leikverk og varð Frumsýning eftir Iljörleif Iljartarson fyrir valinu. Leikstjóri er Margrét Ákadóttir, en þetta er þriðja verkið sem hún leikstýrir. Leiksýningunni var vel fagnað á frumsýningu í Leikskálum í Vík og Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ur leikritinu Frumsýning sem sýnt er í Vík í Mýrdal. verður hún sýnd að Heimalandi, Vestur-Eyjafjallahrepp, í dag, föstudag, og í Gunnarshólma, Austur-Landeyjum, á morgun, laugardag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.