Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Högg
samtímans
Berrassað skáld, handritahúðaður Fend-
er og hræ af pilti og stúlku eru meðal
þess sem getur að líta á sýningu
Kjartans Olasonar í Asmundarsal við
Freyjugötu. Orri Páll Ormarsson
tók hús á listamanninum.
ARNA blasir það við, um
leið og komið er upp stig-
ann, sjálft listaskáldið -
kviknakið. Afhjúpunin algjör.
Ekki svo að skilja að skáldinu sé
brugðið. Það lætur ekki annarlegt
ástandið hrófla við æðruleysinu.
Jónas lætur ekki að sér hæða.
„Þetta er auðvitað tilbúin mynd
af Jónasi. Samtíðarmenn hans
þekktu hann ekki af lýsingunni
sem við sjáum í þessum prófíl,“
segir listamaðurinn á bak við
verkið, Kjartan Ólason. Vett-
vangurinn er Ásmundarsalur við
Freyjugötu.
Og vinur listamannsins, Isak
Harðarson skáld, bætir um betur í
forspjalli í sýningarskrá: „Nakinn
er Jónas kannski sviptur virðuleik
hefðarinnar en um leið koma sann-
leiki hans og einlægni í ljós: hann
er bara eins og ég og þú - og
stendur fyrir sínu.“
Þar til hliðar fellur vel búinn
maður af holdlegu atgervi fram á
rafmagnsgítar, Fender. Hann er
húðaður handritum, eins og fund-
inn í jörðu, safngripur. Þetta eru
h'fsteygjur en ekki dauðateygjur
hins eilífa Fenders, segir Isak, sem
óma af steindauðum veggjunum.
Þar undir er mynd af Jónasi frá
Hriflu, Ólafi Thors og fleiri mönn-
um að bera bein Jónasar lista-
skálds, eða ónefnds dansks bak-
ara, eins og einhverjir héldu fram,
í þjóðargrafreitinn á Þingvöllum.
Kjartan setur verkið upp eins og
um beina sjónvarpsútsendingu sé
að ræða.
Það var einmitt með hliðsjón af
þessari mynd sem Kjartani þótti
gráupplagt að hafa jafnframt á
sýningunni tilbúna mynd af Jónasi
þar sem „hann er eins og strfð-
alinn nautgripur tilbúinn til átu“.
Hræin vel búin til fótanna
Listamaðurinn kveðst velta mik-
ið fyrir sér þeirri örþunnu húð
sem skilur á milli þess sem er
hættulegt og þess sem er varan-
legt. Vísar hann þar í hræ á miðju
gólfi undir yfírskriftinni Piltur og
stúlka II - vinsamlegast snertið
ekki. „Ég tek ekki afstöðu til þess
hvort hræin eigi eftir að rísa upp
eða ekki. En eins og fólk getur séð
eru þau vel búin til fótanna."
Þetta er mynd Kjartans af
menningu þjóðarinnar og um leið
mynd hans sjálfs. „Ég hef fundið
að þessi húð umlykur mig líka sem
cinstakling. Ég finn ekki alltaf
samsömun við samfélagið - finnst
ég oft vera einn þegar ég geng
örsnauður umlukinn pólarloftinu.
Þá sækja á mig ýmsar hugsanir.“
- Er þetta hlutskipti mynd-
listarmannsins ?
„Það að vera myndlistarmaður
er afskaplega erfitt hlutskipti.
Reykjavík er einhver erfiðasta
borg í Norður-Evrópu til að starfa
að myndlist! Mér finnst ég oft vera
gestur í ókunnri borg.“
- Hvers vegna?
„Það er ekkert sem tekur við.
Þú heldur þína sýningu. Það er
engin sala á verkum og styrkir
nánast engir heldur. Þetta er ein-
hver óskilgreinanleg þráhyggja.“
- Starfsumhverfíð er óhagstætt.
„Mjög. Þjóðfélagið sljórnast af
poppi og stuði. Það er afskaplega
lítið stuð í heimi myndlistarmanns-
ins. Samt vil ég sækja inn í þennan
kúltúr, með þeim aðferðum sem ég
kann að beita. Myndlistin þarf
ekki að vera einangruð og há-
timbruð."
Andlit í hálmi
í Ásmundarsal getur einnig að
líta verkið Sagnarandi. Tveir
tvíkynjungar falla fram eins og
þeir hafi orðið fýrir höggi.
Kannski höggi samtímans? veltir
Kjartan fyrir sér. Sama verki
heyrir til andlit í hálmi sem Kjart-
an segir að gæti verið hinn eilífi
sagnarandi. Hann vakir og sefur
eftir því sem menn vilja. „Ég get
ímyndað mér að þetta sé Matthías
Jochumsson. Veit það þó ekki fyrir
víst. Hitt er þó víst að hann er á
safni, falinn bak við gler.“
Loks er á sýningunni verkið
Máttarstólpi. Þrískipt verk með
einhverri kynlausri skepnu í miðið
en storknandi hraun til annarrar
hliðar og vísun í stuðlaberg Þjóð-
leikhússins til hinnar. „Þetta er
vísun í verk snillingsins Guðjóns
Samúelssonar. Ég sé það fyrir mér
sem erótískt tákn - er það ekki
hreyfiaflið?"
Svari nú hver fyrir sig!
Sýning stendur til 23 apríl.
Málþing
umkristni
á Islandi
ALÞINGI, í samvinnu við Háskól-
ann á Akureyri, efnir til málþings á
morgun, laugardag, kl. 13, í tilefni af
útgáfu ritverksins Kristni á Islandi.
Málþingið fer fram í Oddfellowhús-
inu við Sjafnarstíg á Akureyri.
Kristni á Islandi er framlag Al-
þingis til hátíðarhalda þeirra sem
efnt er til í tilefni af því að 1000 ár
eru liðin frá kristnitökunni. Verkinu
er ætlað að varpa ljósi á sambúð
kirkju og þjóðar á Islandi sem og
kristna menningu íslendinga frá
upphafi og til loka 20. aldar.
Gunnar F. Guðmundsson sagn-
fræðingur og Þóra Kristjánsdóttir
listfræðingur kynna Kristni á Is-
landi í máli og myndum. Bragi Guð-
mundsson dósent og sr. Dalla Þórð-
ardóttir prófastur fjalla um verkið út
frá sjónarhóli sagnfræðings og guð-
fræðings. Þá verður flutt tónlist og
trúarljóð frá ýmsum tímum. Avörp
flytja Halldór Blöndal forseti AI-
þingis og herra Karl Sigurbjörnsson
biskup. Öllum er heimil þátttaka.
---------------------
Vatnslita-
myndir á Hót-
el Skaftafelli
LJÓSDÆGUR á íslandi heitir sýn-
ing á vatnslitamyndum Kristínar
Þorkelsdóttur sem opnuð verður á
morgun, laugardag, kl. 14, á Hótel
Skaftafelli.
Þetta er 10. einkasýning Kristínar
og sýnir hún nú um 60 myndir, flest-
ar málaðar í skjóli jökla á Suðaustur-
landi. Náttúruöílin eru kveikjan í
verkum hennar og Suðausturlandið
hefur verið leikvangur Kristínar síð-
an sumarið 1985. Elsta verkið á sýn-
ingunni er frá því sumri en yngstu
verkin eru frá nýliðnum vordögum.
Kristín hefur sýnt erlendis og hér
heima, nú síðast í Hafnarborg í
fýrra.
Hún er ein af stofnendum Akvar-
ell íslands hópsins og hefur tekið
þátt í samsýningum hans.
Sýningin í Hótel Skaftafelli er
sölusýning og er opin alla daga.
stendur til 12. júní.
M-2000
Föstudagur 14. apríl.
Háskólabíó. Kl. 20
Requiem eftir Verdi - Sin-
fóníuhljómsveit Is-
lands.
Requiem
Verdis er ein
stórbrotn-
asta sálu-
messa sem samin
hefur verið. Með
hljómsveitinni koma
fram einsöngvararnir Georg-
ina Lukács, Ildiko Komlosi,
Gianni Mongiardino , Edward
Crafts og Kór íslensku óper-
unnar. Stjórnandi er Rico
Saccani. Kórstjóri: Garðar
Cortes. Sálumessan verður
einnig flutt í Háskólabíói, á
morgun, 15. apríl klukkan
16:00.
www.sinfonia.is.
www.reykjavik2000.is.
Skólatón-
leikar í
Salnum
VORTÓNLEIKAR yngri nemenda
Tónlistarskóla Kópavogs verða í
Salnum á morgun, laugardag, kl.
11.
M.a. koma fram suzuki-nemend-
ur skólans í fiðluleik.
Karlakór Selfoss
Vortónleikar
Karlakdrs Selfoss
FYRSTU vortónleikar Karlakórs
Selfoss verða í sal Fjölbrautaskóla
Suðurlands að kvöldi sunnudagsins
16. apríl nk., pálmasunnudag, og
hefjast kl. 20.30.
Blandað er saman eldri og yngri
karlakórslögum og meðal annars
verður frumflutt nýtt lag eftir
Björgvin Þ. Valdimarsson. Þrír
kórfélagar syngja einsöng með
kórnum; Helgi Helgason syngur
Sténka Rasin, Gunnar Þórðarson
syngur Ökuljóð og Ólafur Björns-
son syngur Nú andar suðrið. Fé-
lagarnir, Jónas Lilliendahl og Sig-
urður Karlsson, syngja dúett í
laginu Kveðja heimanað. í tilefni af
35 ára afmælis kórsins var Berg-
lind Einarsdóttir sópransöngkona
fengin til að syngja einsöng með
kórnum í þremur lögum. Söngda-
gskráin verður flutt í Þorlák-
skirkju sunnudaginn 30. apríl kl. 17
og mánudagskvöldið 1. maí syngur
kórinn í Selfosskirkju kl. 20.30.
Lokatónleikar Karlakór Selfoss
verða svo að Flúðum laugardag-
skvöldið 6. maí kl. 21. Undirleikari
kórsins er Helena Káradóttir en
kórstjórinn Ólafur Sigurjónsson,
sem stjórnað hefur kórnum í 10 ár,
er nú að láta af störfum.
Burtfararpróf í gítarleik
ÖGMUNDUR Þór Jó-
hannesson, nemandi í gít-
arleik við Tónlistarskóla
Kópavogs, heldur burt-
farartónleika í Salnum í
Kópavogi, á morgun,
laugardag, kl. 16.
A efnisskránni eru
verk eftir J.S. Bach,
Mauro Giuliani, Heitor
Villa-Lobos, Astor Pi-
azolla, Leo Brouwer og
Isaac Albéniz.
Kennari Ögmundar er
Kristinn Halldór Árna-
Ögmundur Þdr
Jóhannesson
son. Ögmundur hefur
einnig sótt námskeið hjá
Göran Söllscher og
Manuel Barrueco og
stundað nám í píanóleik
hjá Kristni Gestssyni.
Hann var valinn fulltrúi
nemenda til að koma
fram á opnunarhátíð Sal-
arins í Tónlistarhúsi Kóp-
vogs 1999. Hann útskrif-
ast sem stúdent á
tónlistarbraut við
Menntaskólann í Kópa-
vogi.
Vika bókarinnar
Föstudagur 14. apríl.
Lesið á Austurlandi
Iðunn og Kristín Steinsdætur lesa
í grunnskóla Egilsstaða kl. 9.40 og
grunnskóla Fellabæjar kl. 11.30.
KHÍ
Ráðstefna á vegum Hagþenkis kl.
14. Leitast verður við að varpa Ijósi á
þau áhrif sem nýjar námskrár fyrir
grunn- og framhaldsskóla, reynsla
og viðhorf útgefenda, höfunda og
kennara og þróun tölvu- og fjar-
skiptatækninnar hafa á námsefni og
verkefni námsefnahöfunda.
Hallveigarstígnr 1
Bókaball kl. 19.30. Skemmtidag-
skrá. Hljómsveitin Snillingar ásamt
Berglindi Björk.
Grand Hótel
Bókaverslun á nýrri öld heitir
morgunverðarfundur bóksala og
bókaútgefenda, kl. 8.30.
Bókasafn
Kópavogs
Birgir Svan Símonarson og Unnur
Sólrún Bragadóttir lesa sögur og
ljóð eftir sig kl. 16.
Háskólabíó
Kvikmyndin Aska Angelu
frumsýnd en Æskuminningar Frank
McCourt eru nýútkomnar í íslenskri
þýðingu.
Þjóðleikhúskjallarinn
Óvæntir bólfélagar - Súrrealískur
spjallþáttur. Kl. 22.