Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 39

Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ bands iðnverkafólks við Samtök iirritaðir í gærmorgun Morgunblaðið/Jim Smart Finnur Geirsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Elísabet S. Ólafsdóttir, >g Hervar Gunnarsson, starfandi varaformaður Verkamannasambandsins. sekka um rstímanum ífaranótt 4. maí ekki gleymast að kröfugerðin sem sett hefði verið fram hefði verið sett fram í allt öðru umhverfí en því sem samningarnir væru síðan gerðir í. Kjarasamningar hefðu verið gerðir í millitíðinni og síðan yrði hann að viðurkenna að niðurstaáa atkvæða- greiðslu um verkföll hefði valdið honum svolitlum vonbrigðum. Und- irtektirnar hefðu ekki verið eins víð- tækar og hann hefði vonað og það hefði sýnt að baklandið væri ekki eins sterkt og talið hefði verið mið- að við hljóðið þegar kröfugerðin var undirbúin. Hervar sagði að verulegur árang- ur hefði náðst á ýmsum sviðum og nokkuð umfram það sem samist hefði um í samningum Flóabanda- lagsins. Um væri að ræða lítilshátt- ar meiri launabreytingar, aukaor- lofsdag fyrir þá sem hefðu starfað í tíu ár og lengur, hærri greiðslur í starfsmenntasjóð og fleira. Lægstu laun hækkuðu um tæp 35%, en í samningum Flóabandalagsins væri hækkunin um 30%. Áherslurnar nokkuð aðrar Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist vera mjög sáttur við að samningar skuli hafa tekist við Verkamannasam- bandið og verkfallsátökum afstýrt. Samningarnir séu sambærilegir við aðra samninga sem gerðir hafi ver- ið, en áherslurnar séu nokkuð aðrar og það sé ekki annað en gott um það að segja ef viðræðuferlið geti leitt til þess að það spilist þannig úr því svigrúmi sem sé til kostnaðar- hækkunar að báðir aðilar geti verið sáttari við niðurstöðuna. Að vísu sé kostnaðarhækkun ívið meiri sam- fara þessum samningum en samn- ingum Flóabandalagsins, en það skýrist einkum af því að samnings- tíminn sé nokkru lengri en í samn- ingum við Flóabandalagið eða til áramóta 2003. Ari sagði að launakostnaðarhækk- un samfara þessum samningum væri metin á um 19,8% á samnings- tímanum sem væri ríflega einu prósentustigi meira en í samningum Flóabandalagsins. Peir mætu það þannig að kostnaðarhækkun fyrir- tækjanna sem greiddu laun eftir þessum samningi á samningstíman- um væri um þrír milljarðar króna. Hann benti á að samkvæmt þeim samningum sem gerðir hefðu verið væri launakostnaður áfram að auk- ast um tvöfalt meira hér á landi en í samkeppnislöndunum. „Það er alveg ljóst að þessi þróun setur mjög mik- inn þrýsting á atvinnureksturinn og allt efnahagslífið. Það segir sig sjálft að það er erfitt fyrir atvinnu- reksturinn að rísa undir því að bera tvöfaldar árlegar launahækkanir á við það sem keppinautar í öðrum löndum bera,“ sagði Ari. Hann sagði að teflt væri á tæp- asta vað í þessum samningum, en þeir væru að vinna út frá þeim raunveruleika sem fyrir lægi og efnahagsumhverfinu að öðru leyti. I ljósi þess teldu þeir þetta ásættan- lega niðurstöðu. „Við metum það svo að langvinnt verkfall á landsbyggðinni hefði vald- ið atvinnurekstri þar miklum búsifj- um, þannig að það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt að það skuli hafa tekist að koma í veg fyrir það og vonandi getur það framlag til stöð- ugs efnahagslífs, sem þessi langi samningstími er, veitt fyrirtækjum viðspyrnu til þess að eflast og tak- ast á við það verkefni að rísa undir hækkununum,11 sagði Ari ennfrem- ur. FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 39 á Nýgerður^kjarasamningur aðildar- félaga VMSI og Samtaka atvinnulífsins Gefur ekki til- efni til endur- skoðunar þjóð- hagsáætlunar Þórður Friðjónsson Aðalsteinn Baldursson Sigurður Bessason Pétur Sigurðsson ÞÓRÐUR Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofn- unar segir þjóðhagsleg áhrif nýgerðs kjara- samnings atvinnurek- enda og aðildarfélaga VMSÍ ekki koma til með að verða tilfinnanleg og gefi ekki tilefni til end- urskoðunar þjóðhags- áætlunar. Sigurður Bessason verðandi formaður Efl- ingar segir samninginn góðan og fagnar því að deila samningsaðila skyldi leysast án þess að til verkfalls kæmi. Þórður Friðjónsson segir að samningagerðin ætti að öllu samanlögðu ekki að tefla stöðugleik- anum í tvísýnu. „Þessir launasamningar gefa ekki tilefni til að hrinda af stað verðbólguskriðu en hins vegar gerir samningurinn ráð fyrir talsverðum breytingum á launahlutföllum og við slíkar aðstæður er þó ákveðin hætta á að launahækkanir verði meiri en gert var ráð fyrir í kjarasamning- um,“ segir Þórður. Hann segir að þótt samningurinn gefi ekki tilefni til að endurskoða áætlanir Þjóðhagsstofnunar teygi hann engu að síður á þeim forsendum sem byggt var á í fyrri þjóðhagsáætlun- um Þjóðhagsstofnunar. Hliðstæður samningi Flóabandalags og SA Sigurður Bessason segir samn- inginn hliðstæðan þeim samningi sem Flóabandalag Eflingar - stétt- arfélags í Reykjavík, Verkalýðsfé- lagsins hlífar og Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur og nágrennis gerði við Samtök atvinnu- lífsins fyrir fjórum vikum og tekur fram að sér hafi þótt sá samningur góður. „Það hlýtur að hafa verið mat manna að sættast á þá niðurstöðu sem fékkst að þessu sinni en það verður væntanlega félagsmanna [að- ildarfélaga VMSI] að svara til um framhaldið," segir Sigurður. Hann segist fagna því að ekki skyldi hafa þurft að koma til verkfalls, enda séu slík úrræði vopn sem grípa verði til í nauðvörn. „Það er ánægjuefni að menn skuli ekki þurfa að grípa til slíks vopns og það hefur væntanlega verið mat þeirra að ekki yrði komist lengra með samninginn, a.m.k. ekki eins og mál hafa staðið.“ Samstöðuleysi verkafólks alvarlegt mál Aðalsteinn Baldursson, formaður Alþýðusambands Norðulands, segir að menn hafi farið af stað með mjög metnaðarfullar kröfur, þó að vitað væri strax í upphafi að erfitt yrði að ná þeim fram. „En við treystum samt á sam- stöðu verkafólks og skilning at- vinnurekenda í að gera átak í að lyfta verulega þessum lægstu laun- um. Hins vegar virtist sá skilningur ekki vera fyrir hendi, ásamt því að stjórnvöld hafa á mjög undarlegan hátt komið að þessari deilu og haft veruleg áhrif á hana. Og ég gagn- rýni það. Síðan var hið mikla samstöðuleysi meðal verkafólks á landinu í heild mjög alvarlegur hlutur, sem við þurfum að laga." Hann telur ljóst að hægt hefði verið að ná fram mun hagstæðari samningum með meiri samstöðu, en menn hafi að lokum staðið frammi fyrir því í fyrrnótt að hafa annað- hvort drög að samningi, sem svipaði að hluta til samnings Flóabanda- lagsins eða að halda í langvinnt verkfall. „Okkur þótti síðan skárra að leggja þetta í dóm okkar félags- manna, heldur en að fara í verkfall. Miðað við aðstæður gátum við ekk- ert annað gert, það var bara þann- ig," sagði Aðalsteinn. Enginn fögnuður með þessa niðurstöðu Pétur Sigurðsson, formaður Al- þýðusambands Vestfjarða, sagði að lengra næðu menn ekki í samning- um sem að gera þyrfti í tvennu lagi. Síst af öllu gæti seinni hópurinn náð fram kröfum þegar að búið væri að marka stefnuna. „Ég álít að við höfum bara verið að ganga í kjölfarið á samningi Flóabandalagsins. Mér hugnast hins vegar ekki þegar menn segja að þar hafi menn náð fram öllu því sem þeir báðu um. Það segir mér að kröfurnar hafi ekki verið rétt stillt- ar. Menn misstu þarna af gullvægu tækifæri í bullandi góðæri til að ná árangri fyrir okkar fólk, sem það hefði átt skilið núna þegar flæðir úr öllum peningakössum í þjóðfélaginu, nema hjá verkafólki." Hann taldi að félagsmenn myndu ekki telja það vænlegan kost að fara í átök sem að menn gætu ekki séð fyrir endann á. Það hefði kannski verið einhver möguleiki, ef að öll fé- lögin á landsbyggðinni hefðu verið algerlega samstíga, en slíku væri ekki til að dreifa og taldi Pétur því líkur á að menn myndu samþykkja þessa samninga. „En ég er sannfærðu um það, að það er enginn fögnuður með þessa niðurstöðu." Fjármálaráðherra um nýja kjarasamninga GeirH. Haarde „Stærsti hjallinn að baki“ GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir það mjög jákvætt að samningar skyldu hafa náðst í sátt án átaka í kjaradeilum Verkamannasambands íslands (VMSÍ) og atvinnurekenda annars vegar og flugvirkja og Flug- leiða hins vegar. „Ég tel að með þessu sé stærsti hjallinn að baki að því er varðar almenna markaðinn. Vonandi koma þeir aðilar sem eftir eru fljót- lega í kjölfarið,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið í gær.Aðspurður segir hann ennfremur að vinnufriður um allt land skipti að sjálfsögðu miklu máli fyrir efnahagslífið í landinu. Utanríkisráðherra um nýja kjarasamninga Halldór Ásgrúnsson Anægður með bætt kjör lág- launafólks „ÉG er afskaplega ánægður með að verkfalli skuli hafa verið afstýrt,11 segir Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra þegar hann er spurður álits á nýgerðum kjarasamningi milli Verkamannasambands íslands og atvinnurekenda. „Ég hef látið það í ljós áður að það væri mikið áhyggjuefni fyrir landsbyggðina ef orðið hefði verkfall þar sérstaklega en ekki annars staðar í landinu og þess vegna er það mjög ánægjulegt að þessu skuli hafa verið afstýrt,“ segir hann. „Ég er mjög ánægður með að kjör láglaunafólks skuli sérstaklega hafa verið bætt í þessum samning- um og vonandi tekst að halda þeirri línu í kjarasamningum framvegis, því ef þeir sem meira hafa fá jafnari prósentuhækkanir verður ekki um að ræða þá jöfnun sem að er stefnt. Það er enginn vafi á því að að- gerðir ríkisstjórnarinnar hafa haft jákvæð áhrif í þessu sambandi og okkur er það ljóst að við höfum þar gengið mjög langt vegna þeirrar þenslu sem er í þjóðfélaginu," segir Halldór að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.