Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 45

Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 45 ÚLFAR MAGNÚSSON + Úlfar Magnús- son fæddist að Kambi í Holtum 23. septeniber 1922. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans 5. aprí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurveig Jónsdóttir frá Nýja- bæ, Grindavík og Magnús Ólafsson, bóndi, Kambi í Holt- um.Úlfar var elstur sjö barna þeirra hjóna: Guðrún, f. 1923, d. 1993, maki Gestur Finnsson (sk.); Guðmund- ur, f. 1925, maki Gróa Þórðar- dóttir, látin; Ólafur Þórarinn, f. 1927, d. 1976, maki Guðbjörg Hannesdóttir; Rannveig, f. 1929, maki Ragnar Georgsson; Jón, f. 1930, maki Lilja Þórðardóttir; Sigurveig, f. 1930, d. 1931. Hálf- bróðir Úlfars sammæðra var Guðjón Sæmundsson, f. 1913, d. 1993, maki Kristín Jóhannes- dóttir, d. 1999. Eftirlifandi eiginkona Úlfars er Bjarndís Kristrún Guðjóns- dóttir, f. 20. nóvember 1926. Þau gengu í hjónaband 4. mars 1948. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Sveinsdóttir og Guðjón Elsku afi minn. Þá er þessi erfiða þrautarganga loks á enda. Afi minn, þú sem varst alltaf svo hress og kátur varst búinn að vera sárþjáður sl. tvo mánuði. Eg vonaði svo innilega að þér myndi batna en það fór á ann- an veg. Ekki er hægt að neita því að ég naut góðs af því að vera nafni þinn og eini strákurinn í fjölskyldunni. Þú tókst mig strax undir verndar- væng þinn og varst alltaf boðinn og búinn að þóknast Úlla yngri. Það skipti litlu máli hvað það var. Hvort sem það var að spila fótbolta úti í Hlíðaskóla meðan amma var að þrífa, hjálpa mér við kofasmíðar eða skutla mér heim á kvöldin áður en þú fórst að vinna og blikkaðir svo taxaljósinu þegar þú keyrðir í burtu. Bfllinn þinn, sem þér þótti svo vænt um, stóð alltaf við hliðina á ömmu bfl úti á stæði, báðir stífbón- aðir og hreinir. Ég veit þó hvaðan ég hef þessa fullkomnunaráráttu í sambandi við bflinn minn, hún kemur frá þér, afi minn, og ég er mjög ánægður með það. Ég man eftir því að þú gerðir oft grín að því þegar leigubílstjórinn í Spaugstofunni sagði „Ég er nú búinn að vera leigubílstjóri í 25 ár“, þá bættir þú við „Ég er nú að verða búinn að vera leigubflstjóri í 50 ár“. Ég er svo ánægður að hafa farið í heimsókn til þín og ömmu þegar þú komst heim af spítalanum þótt það væri ekki nema í stutta stund. Þá áttum þú, ég og amma notalega stund inni í stofu þar sem við spjölluðum saman og þið sögðuð mér sögur frá liðinni tíð. En dag- inn eftir versnaði þér aftur og þú fórst aftur inn á sjúkrahús og nokkrum dögum síðar var þessu öllu lokið. Elsku afi minn, ég á eftir að sakna þín svo mikið. Það verður tómlegt að koma í Blönduhlíðina núna og sjá ekki afa frammi á klós- etti að raka sig og greiða sér eða inni í eldhúsi með ömmu. Einnig verður tómlegt í Steinskoti, en þar hafðir þú eytt miklu af tíma þínum undanfarin sumur. Þar verður eng- inn að gera við húsið og hjóla á hjólinu hans Eyfa um þorpið, í úlp- unni hans með húfuna hans á höfð- inu, svo að konurnar í þorpinu héldu að hann væri upprisinn. Þér þótti svo fyndið að þær skyldu halda það. Afi minn, ég veit að það tók mik- ið á þig eins og okkur öll þegar Ai-na okkar dó, en ég veit að hún hefur tekið vel á móti þér. Ég sé Bjarnason. Fóstur- foreldrar hjónin Ingileif Eyjólfsdótt- ir og Agústínus Daníelsson, Stein- skoti, Eyrarbakka. Dætur þeirra eru: 1) Ágústa, f. 10. október 1946, maki Gunnar Magnússon (sk). Dóttir hennar Ólöf Kristdís Gunn- arsdóttir, f. 28. marsl970, sambýl- ismaður Patrick A. E. Immler og búa þau í Þýzkalandi. 2) Sigurveig, f. 6. ágúst 1948, maki Haraldur Á. Haraldsson og áttu þau þrjú börn. Elfa Huld, f. 19. september 1972, sambýlismaður Matthías Helgi Júlfusson. Arna Rún, f. 24. apríl 1975, d. 8.apríl 1997, sambýlismaður hennar var Sigurður Oddur Einarsson. tílf- ar Gauti, f. 2. ágúst 1981. tílfar stundaði leigubifreiða- akstur á Hreyfli 1947 til 1995. Hann var mjög virkur í Knatt- spyrnu- og íþróttafélagi Hreyfils og einnig var hann í Karlakór Hreyfils. títfdr tílfars fer fram frá Há- teigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. bara fyrir mér fagnaðarfundina þegar þið hittust aftur. Ég veit að núna líður þér vel og þú hittir aft- ur Eyfa og fleiri vini þína og kunn- ingja. Við eigum líka eftir að hitt- ast síðar, afi minn, og þá eigum við eflaust eftir að bralla ýmislegt saman. Ástarfadir himinhæða, Heyr þú barna þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðar faðm mig tak. (Steingn'mur Thorsteinsson) Hvíl \ friði elsku afi minn. tíjfar Gauti Haraldsson (tílli yngri). Elsku afi, mig langar að kveðja þig og þakka fyrir samfylgdina í þessu lífi. Þegar ég sat við rúm- stokkinn hjá þér í erfiðum veikind- um var margt sem leitaði á hugann og margar góðar minningar rifjuð- ust upp. Þegar ég var lítil telpa fannst mér að það hlyti að vera afskap- lega spennandi starf að vera leigu- bílstjóri og fá að vaka svona lengi. Auk þess mátti alltaf finna eitt- hvert góðgæti í bílnum að ógleymdum „fjársjóðunum" sem við systkinin fundum í aftursætinu og á gólfinu. Þú taldir okkur trú um að farþegarnir hefðu verið svona klaufskir þegar þeir borguðu bflinn en raunin var sú að þú settir sjálfur klink hér og þar til að gleðja okkur. Ég gleymi aldrei hvað mér fannst þú alltaf glerfínn þegar þú fórst í vinnuna í bláa mittisjakkanum, hárið alltaf svo vel greitt og nýrakaður. Frá því að þú varst smágutti hafðirðu óbilandi áhuga á íþróttum og varst lengst á kafí bæði í hand- bolta og fótbolta eða þar til fyrir nokkrum árum. Ef þú hefðir verið upp á þitt besta í dag hefðirðu sjálfsagt endað í atvinnumennsku. Ekki er hægt að segja um þig, afi, að þú hafir verið nýjungagjarn, því alltaf fannst þér það gamla best. Yfirleitt tókst þúsundþjala- smiðnum að tjasla aftur saman því sem aflaga fór með hinum ýmsu úrræðum. Oftar en ekki hafði það eitthvað með lím eða snæri að gera. Einnig var það ákveðin hefð hjá þér að geyma öll ný föt í a.m.k. tvö ár inni í skáp en oftar en ekki vildi það brenna við að „vöðvarnir" höfðu stækkað það mikið að flík- urnar pössuðu ekki lengur. Eftir að þú hættir að keyra eydduð þið amma drýgstum hluta sumarsins í Steinskoti. Þar hafð- irðu nóg að sýsla enda var margt sem þurfti að gera. Trjáræktin stóð þó upp úr sem afrakstur síð- astliðins sumars og gaman verður að sjá hvernig til tókst. Ég er nokkuð viss um að ef þú hefðir ekki orðið bflstjóri hefðirðu endað sem bóndi því þú heillaðist alltaf af sveitinni og þar leið þér svo vel. Elsku afi, ég veit að þú ert á góðum stað umvafinn hlýju, öryggi og ástvinum. Guð geymi þig. Hér áttu blómsveig bundinn af elsku Blíðri þökk og blikandi tárum. Hann fólnar ei en fagur geymist í hjörtum allra ástvina þinna. Látinn er Úlfar Magnússon eftir stranga og erfiða sjúkdómsbaráttu. Hann var einn af þessum traustu mönnum sem alltaf voru tilbúnir að hjájpa vinum sínum. Ég kynntist honum fyrir tæpri hálfri öld er ég fór að vera með 01- afi, fyrri manni mínum, sem var bróðir Úlfars. Það var mikið og gott samband milli þeirra bræðra og réttu þeir hvor öðrum hjálpar- hönd en oftar var það _ nú tílfar sem lagði á sig erfiðið. Ólafur lést fyi-ir 24 árum og voru Úlfar og eig- inkona hans þá og ætíð síðar sér- staklega hjálpsöm og vinveitt mér sem ég mun ávallt muna. Úlfar var alveg sérstakt prúð- og snyrtimenni. Bílar hans báru þess merki. Þeir voru alltaf eins og þeir væru nýkomnir úr kassanum og ófá skipti bónaði Úlfar minn bíl líka. Úlfar fæddist að Kambi í Holt- um, Rangárvallasýslu, en fluttist til Reykjavíkur þriggja ára og ólst þar upp, en kynntist sveitinni á sumrin, er hann dvaldi að Herríð- arhóli í Holtum. Magnús faðir hans var ávallt með kindur eftir að hann fluttist til Reykjavíkur og var Úlf- ar hjálplegur við hann og hafði mikla ánægju af að umgangast skepnurnar. Upp úr 1950 var farið með kindurnar til sumarbeitar út í Viðey á smábátum og þurftu þá all- ir að hjálpast að. Síðar voru kind- urnar hér fyrir austan Reykjavík og Úlfar hjálpaði til við smölun og réttir. Úlfar kvæntist ungur góðri konu, Bjarndísi (Dúnu) Guðjóns- dóttur frá Eyi-arbakka, og var það hans mesta gæfuspor. Þau eignuð- ust tvær mannvænlegar dætur, sem hann bar mikla umhyggju fyr- ir, og hafa þær reynst foreldrum sínum stoð og stytta. Fjölskyldan dvaldist mikið á Eyrarbakka gegn- um árin hjá fjölskyldu Dúnu. Eftir að Eyjólfur bróðir hennar var einn eftir þar sinntu þau honum mjög vel og var Úlfar alveg einstaklega góður og hjálpsamur við hann. Úlfar keyrði leigubifreið á Hreyfli frá 1947 til 1995. Hann hafði mikinn áhuga fyrir hand- og fótbolta. Þeir voru nokkrir ungir menn á Hreyfli sem keyptu sér fót- bolta og fóru að sparka á Háskóla- vellinum. 1949 var stofnað Knatt- spyrnufélag Hreyfils og keppt við ýms fyrirtæki, en 1966 var nafninu breytt í íþróttafélag Hreyfils. Þá var farið að æfa handbolta af krafti og var Úlfar með þeim beztu í lið- inu og stundaði hann handbolta fram á síðustu ár. Einnig var hann í Karlakór Hreyfils. Úlfar ók leigubifreið hér í bæn- um eins lengi og hann mátti vegna aldurs og var mikil raun fyrir hann að þurfa að hætta akstri. Þá áttu þau hjónin sinn sælureit á Eyrar- bakka, æskuheimili Dúnu. Þar voru næg verkefni og var hann duglegur þar bæði við smíðar og ræktun og var að koma sér upp trjágarði. Líka átti hann mörg handtök á lóðinni við heimili sitt, og naut hann þessara starfa því hann þurfti að hafa eitthvað fyrir stafni. Við Guðmundur sendum Bjarn- dísi, dætrum, tengdasyni, barna- börnum og allri fjölskyldu Úlfars innilegar samúðarkveðjur. Minning um góðan dreng mun lifa. Blessuð sé minning hans. Hvíl þú í friði. Guðbjörg Hannesdóttir. Að leiðarlokum langar mig að minnast Úlfars Magnússonar, fyrr- um vinnufélaga míns í tvo áratugi, með fáeinum orðum. Kynni okkar hófust fyrir nær hálfri öld þegar við unnum saman á Hreyfli. Starfs- ævi hans var bundin þeim vinnu- stað að mestu til loka. Minningarn- ar tengjast mest samstarfi okkar í íþróttafélagi Hreyfils þar sem Úlf- ar var ætíð hinn trausti og góði fé- lagi sem aldrei brást. Lengi áttum . við athvarf til æfinga hjá Knatt- spyrnufélaginu Val á Hlíðarenda og það voru ekki margar æfingarn- ar, hvort sem var í knattspyrnu eða handbolta, þar sem Úlfar vant- aði. En eins og allir vita sem komið hafa nálægt hópíþróttum eru góðar mætingar lykilatriði árangurs og ánægju. Fyrsti kappleikur Úlfars fyrir Hreyfil, sem sögur fara af, var knattspyrnuleikur í heimsókn að Hvanneyri 13. nóvember 1949 þar sem Hreyfilsmenn unnu Hvanneyi’inga með þremur mörk- um gegn tveimur. Vel getur verið að hann hafi keppt fyrir Hreyfil áður, en margir urðu leikir hans eftir þetta fyrir Hreyfil. Ég hef > haft spurnir af því að eftir að ég hætti störfum á Hreyfli hafi Úlfar stundað íþróttir í um það bil ald- arfjórðung, þó að mæting á æfing- ar hafi verið minni en þegar við vorum þar samtíða. Ég hygg að lengri íþróttaferill sé ekki algengur hjá áhugamönnum á því sviði og alls ekki í stétt leigubifreiðastjóra. Að endingu vil ég láta í ljósi þakk- læti fyrir liðnar samverustundir og ég veit að miklu fleiri en ég minn- ast þeirra með ánægju, hvort sem þær voru á snævi þöktum túnum á Hvanneyri, Valsvellinum eða ann- arsstaðar á lífsleiðinni. Sigpirður Flosason. + Bjarni Guð- mundsson, bif- reiðarstjóri fæddist í Túni í Flóa 26. janúar 1908. Hann lést á Landakoti 4. aprfl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Guðmund- ur Bjarnason, f. 26.3. 1875, d. 8.6. 1953 og Ragnheiður Jónsdótt- ir, f. 12.5.1878, d. 4.3. 1931 og bjuggu þau í Túni, Hraun- gerðishreppi. Systk- ini Bjarna voru sex: 1) Guðrún, f. 28.12.1911 d. 27. 4 1996 var gift Sigmundi Ámundasyni, f. 12. 3.1906, d. 8.10. 1976 og eignuðust þau fjögur böm. 2) Guðfinna, f. 3.9. 1912, gift Stefáni Jasonarsyni, f. 19.9. 1914 og eiga þau fimm böm. 3) Jón, f. 7.3. 1914, d. 4.3. 2000 var kvæntur Rut Margrét Jansen, f. 10.8. 1934 Okkur systkinin langar að minn- ast Bjarna frænda okkar með nokkrum orðum. Við eigum marg- ar góðar minningar um þennan líf- lega og glaðværa mann, sem afrek- að hefur margt á sinni löngu ævi. Það var ekki lítill bílaflotinn sem stóð við BSÍ, allir bílarnir hans; flestir rauðir og hvítir á lit. I barnsaugum okkar voru bílarnir þeir flottustu sem til voru. Þessir bílar fóru ófáar ferðir austur í Flóa, þar sem ýmist Bjarni, Nonni, bróðir hans, eða Alli, góður vinur hans, sátu undir stýri. Þeir voru heldur ekki fáir pokarnir af méli eða áburði sem fluttir voru austur og hent af bílunum á bæina. Bjarni og félagar voru eins miklir sumar- boðar og farfuglarnir er þeir komu með áburðinn austur á vorin. Bjarni var léttur og skemmtileg- og eignuðust þau þrjú börn og átti Rut tvö áður. 4) Einar, f. 17.9. 1915, d. 15.5. 1994. 5) Stefán, f. 14.6. 1919, kvæntur Jóruimi Jóhanns- dóttur, f. 1.12. 1920 og eiga þau sjö börn. 6) Unnur, f. 30.7. 1921, gift Herði Þor- geirssyni f. 15. 7. 1917. Bjarni hóf ungur að starfa við akstur og var atvinnubfl- sljóri í tæp 60 ár. Hann ók rútubfl frá árinu 1933 og var sérleyfishafi í Gaulvetjabæjar- og Hraungerðishreppi allt til árs- ins 1980. Samhliða sérleyfísferð- unum fór hann í fjalla- og öræfa- ferðir og tók að sér vöruflutninga. títför Bjama fór fram í Foss- vogskrikju 12. apríl. ur og ekki var langt í stríðnina og skopið þar sem hann var. Það vita þeir krakkar sem þekktu hann. Það var því léttur spenningur í okkur krökkunum er sást til ein- hvers af bflunum hans beyja heim að Túni. Hvaða brandara fengjum við að heyra eða hvaða stríðnisskot myndum við fá núna. Sérlega spennandi var það líka ef Bjarni hafði fengið derhúfur frá fóður- stöðvunum og gefið okkur en þær komu sér vel í sveitinni. Þegar við fórum í árlega heim- sóknarferð til Reykjavíkur rétt fyrir jólin var ekki um annað að ræða en að heimsækja Bjarna á Skarphéðinsgötuna. Hann fékk að heyra allt sem var að gerast fyrir austan, í sveitinni, í skólanum og um litlu jólin sem voru oftast fram- undan. Við bárum ómælda virðingu fyrir þessum hressa frænda okkar. Alltaf laumaði hann að okkur poka fullum af gotteríi, súkkulaði og brjóstsykri sem geymdur var til jólanna. Okkur er einnig sérlega minnisstæð kvöldstund ein í kring- um 90 ára afmælið hans er við átt- um með honum og Stefáni afa okk- ar. Þar rifjuðuð þeir upp margt sem drifið hafði á daga þeirra. Það var gaman að heyra hvernig lífið var er þeir voru á okkar aldri og ótrúlegt að heyra um þær miklu ,, breytingar sem þeir og kynslóð þeirra upplifði. Bjarni var heilsuhraustur maður og bar aldur sinn sérlega vel. Síð- ustu áburðarferðina austur í Tún fór hann 84 ára gamall og dró pok- ana af bílnum eins og í hinum ferð- unum. Hann fylgdist ávallt vel með öllu og þá sérstaklega því sem var að gerast á hans æskustöðvum. Hann fór oft þangað austur á góð- um dögum eftir að hann hætti flutningunum. Sumar voru ferðirn- ar í Flóann en aðrar voru að Geysi en þaðan er góður vinur hans og nafni. Þeir félagar hafa brallað margt saman og ekki fækkaði nú bröndurunum eða minnkaði grínið er þeir voru báðir saman komnir. Vinátta þeirra var sérsök og sterk sem sást vel þennan síðasta mán- uð. I vetur fór heilsu Bjarna að hraka. Hann lagðist á spítala fyrir rúmum mánuði og var það hans fyrsta sjúkrahúsdvöl. Hún varð líka hans síðasta. Þetta umhverfi átti ekki við hann og honum fannst vera nóg komið. Við þökkum Bjarna þær góðu stundir sem hann gaf okkur systkinunum. Minningar um þær munu fylgja okkur alla tíð. Mikið skarð er höggið í systkina- , hópinn frá Túni. Tveir bræður farnir með mánaðar millibili, Nonni 4. mars og nú Bjarni 4. apr- fl. Veturinn hefur þvi verið langur og erfiður þeim sem eftir eru. Blessuð sé minning þeirra bræðra. Jórunn Edda, Kristján Helgi og Ivar Freyr Hafsteinsbörn. v BJARNI GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.