Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÁRNIBJÖRGVIN HALLDÓRSSON + Árni Björgvin Halldórsson hæstaréttarlögmað- ur fæddist á Borgar- firði eystra 17. októ- ber 1922. Hann lést á sjúrahúsinu í Nes- kaupstað 31. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Egilsstaðakirkju 8. apríl. Samtíðin þýtur frá okkur með ógnvænleg- um hraða. Ekkert stendur stöðugt. Dag- urinn í dag er allt öðru vísi en gær- dagurinn, morgundagurinn óráðin gáta. Margar „dagsláttur" af minn- ingargreinum í Morgunblaðinu í hverri viku. Sannarlega finnst mér veröldin enn hafa skipt um svip - og til hins verra - þegar vinur minn og vel- gerðamaður, Árni Halldórsson lög- maður, hefur kvatt hópinn fyrir fullt og allt, - þegar ég get aldrei framar búizt við hringingu „að austan". Velgerðamaður? kann einhver að segja. Hvað gerði hann þér svo sem gott? Já, ég sagði velgerðamaður, og sný ekki aftur með það. - Ég fluttist til Reykjavíkur í ársbyrjun 1957, og hokraði síðan næstu árin ásamt foreldrum mínum í lítilli kjallara- holu í Vesturbænum. Þetta gekk svo sem þolanlega, þangað til að því kom að gera skattskýrsluna fyrsta veturinn í henni Reykjavík. Þá kom dá- lítið babb í bátinn, því að þetta verk kunni ég ekki, hafði aldrei borið það við, og auk þess hafði allt sem við kom tölum og reikningi alla tíð verið mér furðulega fjarlægt og utan brautar. Ég gekk nú á fund Arna Halldórs- sonar og tjáði honum vandræði mín, en hann þekkti ég, og að góðu einu, heiman frá Vopnafirði. Vorið 1948 hafði hann verið skamman tíma hjá okkur í Fremri-Hlíð, með „Kaupfé- lagstraktorinn". Þá var mörgum þúfum í gamla túninu bylt og þær gerðar að sléttum, véltækum velli. Það voru skemmtilegir dagar. Árni tók beiðni minni um gerð skattskýrslunnar með þeirri ljúfu greiðasemi, sem honum var eigin- leg, og til þess nú að gera langa Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmæl- is- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust. Greinun- um er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykja- vík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling takmark- ast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitn- anir í sálma eða Ijóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöf- + undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birt- ar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir ásamt mynd í Dag- bók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að hand- rit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er mót- taka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru rit- vinnslukerfin Word og Wordper- fect einnig auðveld í úrvinnslu. Skilafrestur Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fimmtu- dags-, föstudags- og laugar- dagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dög- um fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er út- runninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekld unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Formáli minningargreina Æskilegt er að minningargrein- um fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upp- lýsingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. S Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÓLAFSDÓTTIR, Bræðraborgarstíg 37, Reykjavík, lést á heimili-sínu miðvikudaginn 12. apríl. Haraldur Karlsson, Karl Þórhalli Haraldsson, Ólöf Haraldsdóttir, Pétur Ottósson, Sigrún Ásta Haraldsdóttir, Þórður Adolfsson, Hjálmar Haraldsson, Svanhvít Ástvaldsdóttir, Jónas Haraldsson, Sigrún Sigurðardóttir, Kristbjörn Haraldsson, Ásdís Ástvaldsdóttir, Sigríður Haraldsdóttir, Magnús Bjarni Baldursson, barnabörn og barnabarnabörn. sögu mjög stutta, þá gerðist hann upp frá þessu framteljandi minn og fjármálalegur ráðunautur um langt árabil. - Það var víst strax eftir gerð fyrstu skattskýrslunnar, sem Arni sagði við mig: „Það er annars bölvuð skömm að því að þú sért að borga mér þetta í peningum. Kanntu ekki á ritvél?“ Jú, ég hélt nú það. „Og þú getur lagt saman á rafmagnsreikni- vél?“ - Ætli það hljóti ekki að vera, svaraði ég. „Értu ekki til í að vinna af þér þetta lítilræði, sem ég geri fyrir ykkur, kemur það ekki skár út fyrir þig?“ spurði Árni. Ég tók boð- inu, og þegar ég hafði unnið þar skamma hríð, sagði lögmaðurinn: „Heyrðu, þú vinnur miklu meira en sem svarar einu helv. framtali. Ég verð að borga þér fyrir þetta.“ Jahá! Þar með var ég farinn að vinna fyrir kaupi á lögfræðistofu Árna Hall- dórssonar! Á þessum árum vann ég vakta- vinnu, átti stundum frí fyrir hádegi, en stundum síðdegis. Og þegar framtalahrinan hófst hjá Árna Hall- dórssyni eftir áramótin, fór ég til hans nærri því á hverri einustu frí- vakt minni, þær vikur sem vinnan við skattframtölin stóð yfir, og stöku sinnum utan þess tíma, ef eitt- hvað lá fyrir sem bráðlá á að koma frá, og vann þar þau fáu störf sem ég var fær um. Þetta var ekki aðeins bráðskemmtileg tilbreyting fyrir mig, heldur þróaðist af samstarfi okkar Árna vinátta, sem varð æ því nánari sem lengra leið og entist „á meðan báðir lifðu“, eins og sagt er á fínu máli. Þó vorum við í rauninni alls ekkert líkir, og ekki vorum við sammála um alla hluti. Oðru nær. Eitt var þó sem leiddi okkur saman, öllu öðru fremur: íslenzk ljóðlist, forn og ný. Árni Halldórsson, þessi gallharði raunhyggjumaður og bók- halds- og talnaspekingur, var blátt áfram óþrjótandi hafsjór af ljóðum, sögum og hvers kyns fróðleik, göml- um og nýjum. Oft var vitnað í Rammaslag eftir Stephan G., og Árni hóf upp raust sína: Grána karapar græði á, gjálpir hampa skörum, titra glampar til og frá, tifur skvampa í fjörum. Taktu eftir þessu, sagði Árni, „tif- ur skvampa...", kvenkyns nafnorð í fleirtölu! Tifa, prýðisgott orð yfir smáöldu, litla báru. Ein tifa, margar tifur í fjöruborðinu! Eða þá þetta, hélt hann áfram, og ljóma brá á allt andlitið: Mastrið syngur sveigt í keng, seglið kringum hljómar, raddir þvinga úr stagi og streng stormsins fmgurgómar. Að hugsa sér, sagði Árni enn fremur. Að þetta skuli vera eftir sveitastrák úr Skagafirði, sem elur svo mestallan aldur sinn inni á meg- inlandi Ameríku. - Já, það var oft farið með þessar hendingar, „raddir þvinga úr stagi og streng / storms- ins fingurgómar". Og svona gátum við haldið áfram, lengi. Síðasta skiptið sem Ámi Hall- dórsson hringdi til mín, var einmitt til þess að spyrjast fyrir um tiltekn- ar hendingar eftir Stephan G. Hann sagðist ekki muna í svipinn úr hvaða kvæði þessar ódauðlegu línur væru: Hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi. Þegar leyst hafði verið úr því máli, sagði Árni, - og ég heyrði al- veg hvernig hann brosti í símann: „Já, það hlaut að vera. Þú kannt Andvökur." Það var þá helzt! Sá maður sem ég vissi komast einna næst því að kunna allt það mikla verk, var Óskar heitinn Halldórs- son, en að honum gengnum þykir mér enginn líklegur til slíks afreks. Og hreint ekki ég. En nú heyrði ég greinilega, að vinur minn, Árni Hall- dórsson, var sjúkur orðinn, og það meira en lítið. Enn var hann þó sjálfum sér líkur á flestan hátt. Fróðleiksfýsnin, þekkingarleitin, og meira að segja blessuð gamla gamansemin, - enn var þetta á sín- um stað, þrátt fyrir allt. Þegar Árni Halldórsson varð fimmtugur, var haldin veizla, ein af þessum stóru, sem þau hjónin voru alkunn fyrir. Því miður gat ég ekki verið þar, en varð að láta nægja að senda afmælisbarninu litla kveðju. Mig minnir niðurlag hennai’ hafa verið á þessa leið: Fylgi þér dýrð Dyrfjalla og bjartra nátta um Borgarfjörð. Segjum hvor öðrum sögu í tómi og hirðum aldrei þó haust nálgist. Með þessu fátæklega vísukorni vildi ég einnig mega kveðja vin minn nú, þegar haustgöngu hans er lokið og ekki þýðir lengur að vonast eftir sögu eða ljóði frá honum. Minningai- um samfundi okkar á ég fjölmargar, og um þær væri hægt að skrifa langt mál, sem ýmsum kynni að þykja ekki óskemmtileg lesning. Það mun nú ekki verða gert. Hér verður, að leiðarlokum, látið við það sitja að þakka löng og góð kynni, um leið og aðstandendum hans öllum eru sendar samúðar- kveðjur. Valgeir Sigurðsson. STEINAR VILHJÁLMUR JÓHANNSSON tilveru og tilvistar. Ég leit í bókina Bítlar frá árinu 1994: Ég sat á stórum steini i fjöllunum Og horfði yfir dalinn mikla, Dal skáldanna. Ég reykti og lét hugann h'ða um Ókomnatíma + Steinar Vilhjálm- ur Jóhannsson fæddist í Reykjavík 6. febrúar 1967. Hann lést í Reykja- vík 27. mars síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Dóm- kirkjunni 31. mars. Þau voru þung skref- in sem vinir og aðstandendur Steinars Vilhjálms stigu þegar kvaddur var vinur í hartnær tuttugu ár. Leiðir okkar Steina lágu fyrst saman í Hagaskóla og síð- ar urðum við nánfr vinir í MR. Við gáfum okkur fram ásamt fleirum til starfa við útgáfu skólablaðsins einn veturinn. Margt var spáð og skrafað á þess- um árum. Steini fór að skrifa ljóð og annan texta á þessum árum. Fyrstu Ijóð hans og greinar birust í skóla- blaðinu 1985. Þegar maður les þessi ljóð núna, fimmtán árum síðar, sér maður hvað Steini er strax í MR magnaður höfundur og hve leit hans að æðri sannleika og vangaveltur um eigin tilvist og mannfólksins er knýj- andi og sterk. Ég fann gamlan texta úr blaði sem við Steinar stóðum að ásamt fleirum en á þessum árum gekk hann undir dulnefninu Raniets Konungur: Fylgdin nálgast Föl sviplaus. Orðskrýddblómum Berastmeðregninu. Minnist horfinnar ástar. Stendviðgarðdauðans. Hún líður hjá einsog ský áhimni. Reyniaðgráta. Slokknaður eldur skilur eftirtóm. Orðsegjaekkert. Hreyfing sýnir ekkert. Horfiátrénoglaufin Þarsemþaufalla. Síðar fór Steini til Egilsstaða, lauk þar stúdentsprófi, hóf nám í Háskóla Islands en gaf sig svo skáldagyðjunni á vald og sendi frá sér ljóðabækurnar Lýsingarháttur nútíðar 1988, Skrýt- in blóm, ljótar myndir og önnur ljóð 1990, Bítlar 1994, Hljóð nóta 1995 og Úranus 1996. Steini fór í langt ferða- lag til Indlands og fleiri landa á þeim slóðum. Steini hafði undirbúið sig vel undir langt ferðalag. Mér er minnis- stætt hvað Steina fannst magnað að upplifa þessar slóðir en hann hafði mikinn áhuga á trúarbrögðum, með- al annars búddisma og austrænni dulspeki. Hann var hafsjór af fróð- leik um þessi efni, hafði lesið ógrynni bóka og rita og gaman var að hlusta á Steina lýsa mörgum hliðum dulspek- innar, heimspekinnar og mannlegrar INNRÖMMUNW O FÁKAFENI 11 -S: 553 1788 Þokan settist á trjátoppana og Einsog úr loftinu kom fiðrildi gult Að lit, fljúgandi og Settist á handarbak mitt. Rödd kallaði: Sjáðu Sjáðu. Þettaboðargæfu. Svo flaug fiðrildið burt. Mér standa í fersku minni þau fjöl- mörgu upplestrarkvöld og samkom- ur sem við stóðum að á árunum 1988-92. Flestar samkomumar voru haldnar á gamla Hressó og einnig á fleiri kaffihúsum og galleríum víðs vegar um borgina. Steini kom að þeim með óbeinum hætti, þó hann hefði yfirleitt ekki áhuga á því að lesa upp sjálfur enda var hann yfirleitt til hlés með eigin verk, sannur listamað- ur og á vissan hátt einfari í listsköp- un sinni og lífi. GLÆSILEG FRAMTÍÐ AÐ BAKI Skammdegi Og myrkrið eignast liti Húsin felast ískuggumtrjánna Sem teikna annarlegar myndir Segja sögur á köldum veggjum I útjaðri daglegrarhegðunar Og atferlis skynjast mörk þess Aðveraogfara Löngun til að hverfa Áeinangraðribraut Hefja nýjan dag. Innií stofú Tómaugunstara Gegnumauðanglugga Ekkertbreytist Bylgjur Lengdir Skilja. (Lýsingarháttur nútíðar, Steinar Vilhjálmur 1988.) Mig langar að lokum að votta Sig- ríði, móður Steinars, og öðrum ást- vinum mína innilegustu samúð. Hvíl í friði, kæri vinur. Ari Gísli Bragason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.