Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 55
UMRÆÐAN
Fiskveiðilöggj öfín
er pólitískt
viðfangsefni
HINN nýi dómur Hæstaréttar í
svo kölluðu Vatneyrarmáli er afger-
andi og varpar nýju Ijósi á ýmislegt
það sem sagt vai- í hinni opinberu um-
ræðu á liðnum vikum og mánuðum.
Aður en dómurinn var kveðinn upp
var því til að mynda mjög haldið fram
að dómur í málinu myndi valda mikl-
um þáttaskilum. Nú bregður hins
vegar svo við að fulltrúar þeirra sjón-
armiða hafa ákveðið að hrökkva frá
íyrri fullyrðingum sínum og gera sem
minnst úr hinni pólitísku þýðingu af
niðurstöðu Hæstaréttardómsins.
Skýringin er einföld: Niðurstaða
dómsins er þeim ekki þóknanleg. Þá
stendur eftir kjami málsins. Fisk-
veiðistjómarmálin em vitaskuld pól-
itískt úrlausnarefni, eins og flestum
Kvótinn
Hæstiréttur hefur skýrt
hinn stjórnskipulega
þátt fiskveiðistjórnar-
málsins, segir Einar K.
Guðfínnsson. Pólitíska
viðfangsefnið er eftir.
hefði átt að vera ljóst og Alþingi þarf
að leiða það mál til lykta. Að því hefur
alltaf verið stefnt af hálfu ríkisstjóm-
arinnar og þannig hafa þau mál verið
unnin.
Rétt viðbrögð
meirihluta Alþingis
Eftir að Hæstaréttardómurinn í
svo nefndu Valdemarsmáli var kveð-
inn upp 3. desember 1998, kvað sæg-
ur stjómmálamanna, lögmanna og
annarra upp úr um að sá dómur hefði
tekið í senn til útgáfu veiðiieyfa og
veiðiheimilda; þ.e ætti jafnt við um 5.
og hina 7. grein fiskveiðistjómarlag-
anna. Meirihluti Alþingis komst eins
og kunnugt er að annarri niðurstöðu
og breytti 5. grein laganna, sem tekur
til útgáfu veiðileyfa. Yfír þeirri
ákvörðun ærðust til að mynda tals-
menn Samfylkingarinnar og töldu
fráleitt annað en að dómurinn skír-
skotaði í senn tii 5 og 7. greinar lag-
anna. Nú hefur Hæstiréttur talað
mjög skýrt í dómi sínum frá 6. mars
sl. og staðfestir að túlkun meirihluta
Alþingis var rétt. í rökstuðningi sín-
um segir Hæstiréttur: „Samkvæmt
þessu verður ekki fallist á þann skiln-
Maestro
I
ÞITT FÉ
HVAR SEM
ÞÚ ERT
ing ákærðu að þessi dómur Hæsta-
réttar hafi falið í sér úrlausn um
stjómskipunarlegt gildi 7 gr. laga nr
38/1990.“ - Afdráttarlausara getur
það ekki verið.
Þá hefur verið reynt að búa til pólit-
ísk stórtíðindi úr þeim almæltu sann-
indum sem Hæstiréttur vekur athygli
á, að Alþingi geti breytt lögum um
fiskveiðistjómun, bundið réttinn til
fiskveiða skilyrðum eða innheimt fyr-
ir hann frekara fégjald
en nú er gert eins og
það er efnislega orðað
af Hæstarétti.
Flestum hefur
væntanlega verið
þetta ljóst. Að minnsta
kosti alþingismönn-
um, sem fást við það
alla daga að setja lög
og breyta lögum. Ótal
sinnum höfum við gert
breytingar á lögum
um stjóm fiskveiða,
sem hafa haft gríðar-
leg áhrif á hagsmuni
þeirra sem útgerð
stunda. Þannig höfum
við „bundið réttinn til fiskveiða skil-
yrðum“, svo vitnað sé til orðfæris
Hæstaréttar, í samræmi við það sem
hinn pólitíski meirihluti á Alþingi hef-
Einar K.
Guðfinnsson
ur talið rétt hverju sinni.
Nú stendur ennfremur
yfir heildarendurskoðun
á lögum um stjóm fisk-
veiða. Það mim því ör-
ugglega koma til kasta
Alþingi fyrr en síðar að
binda réttinn til fiskveiða
þeim skilyrðum sem nið-
urstaða verður um.
Um hitt atriðið, inn-
heimtu frekara fégjalds
fyrir réttinn til veiða, er
pólitískur ágreiningur í
landinu. Þeim pólitíska
ágreiningi var vísað tíl
skipulegrar meðferðar,
nákvæmlega að tillögu
stjómarandstöðuþingmanna á Al-
þingi, undir foiystu talsmanns Sam-
fylkingarinnar. Varla hefur Alþingi
gert það nema vera nokkuð sannfært
um að löggjafinn hefði heimildir til
þess að innheimta fjármuni af þeim
sem nýttu réttinn tii fiskveiða. Aukin-
heldur era nú þegar innheimt all-
nokkur ,/égjöld“ af sjávarútveginunM^
sem m.a. renna til þess að standa uncn'
ir veiðieftirlitinu.
Af því sem hér hefur verið reifað,
má ráða að Hæstiréttur hefur skýrt
hinn stjómskipulega þátt fiskveiði-
stjómarmálsins. Pólitíska viðfangs-
efiiið er eftir, alveg eins og sagt var af
hálfu rfldsstjórnarflokkanna. Dómur-
inn breytir þeirri stöðu ekki; ekki
frekar en að hann færi okkur ný sann-
indi um möguleika Alþingis til þess að
skipa fiskveiðistjóminni með lögum, í
samræmi við Stjómarskrá lýðveldis-
ins.
Höfundur er formaður sjávar-
útvegsnefndar Alþingis.
Segóu þaó
með sokkum!
Gæðasokkar fró SOCK SHOP
fást nú í öllum Selectverslunum.
Litríkir og ilhýrir sokkar sem
koma fótum allra landsmanna
í gott skap og rífandi feröastuð.