Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 67

Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 67 FÓLK í FRÉTTUM Franskt spæj- ara fönk C3PO og R2-D2 láta sjá sig á sýningunni. Hetjur og ómenni Stjörnustríðs til sýnis ENN og aftur hefur verið kynt undir aðdáun á Stjörnustríðs- myndunum. Að þessu sinni er það stór sýning sem opnuð verður í Barbican Centre London og þar mun saga myndanna verða rakin. Til sýnis verða 250 málverk, hannanir, módel og búningar sem notuð hafa verið við gerð mynd- anna fjögurra. Flestir þessir hlut- ir hafa aldrei komið fyrir augu almennings fyrr en einnig verður að finna á sýningunni hluti sem aldrei voru notaðir í myndunum. Sýningunni er skipt í tólf hluta. Á einum stað geta gestir kynnt sér tækni- og tölvubrellur og förðun persónanna. Sjálfur Svart- höfði fær síðan deild út af fyrir sig. Búningur Darth Maul, nýj- asta illvirkja myndanna, verður einnig til sýnis auk búninga Ami- dölu drottningar. Þá verður sýnt hvernig Jar Jar Binks varð til og hvernig þeim Watto og Yoda var gefið líf á hvíta tjaldinu. Tónlist myndanna leikur auðvitað stórt hlutverk í sýningunni. Börnum mun ekki leiðast því þau munu geta mátað búninga, sett á sig grímur og spilað tölvuleiki í sér- stökum sal. Sýningin hefur verið opnuð og stendur til 3. september. Þeir sem vilja kynnast Jar Jar Binks og drottningunni Amidala geta komið við á Barbican-safn- inu í London. ^ema'/iMÁúsú) Urval fermi DEMANTAHUSIÐ Nýju Kringlunni, sími 588 9944 hljómsveit Hafrót Ókeypis aðgangur til kl. 24. Sími 587 6080. Jakkar Gallabuxur með kanti Flíspeysur nú 4.990 áður 7.990 nú 3.990 áður 6.990 2.490 Bolir 990 Nœturqatinn í kvöld leikur hin eldhressa ...og mörg önnur tilboð 20% afsláttur af öðrum vörum Laugavegi 54 - Sími 5525201 Dimitri from Paris er franskur töffari sem hefur meðal annars til- einkað sér spæjaratón- list sjöunda áratugarins og ætlar að spila í partíi hjá Playboy-kónginum Hugh Hefner í lok mán- - --------7------------- aðarins. Aður staldrar hann þó við á Islandi og opnar tónleikaseríu út- varpsþáttarins Party Zone á Kaffí Thomsen í kvöld. Kristín Björk Kristjánsdóttir heyrði hljóðið í kappanum. I L0K þessa mánaðar er væntan- !eg safnskífan A Night at the Playboy Mansion sem Dimitri from Paris sauð saman. „Mig langaði til að gera leyndar- dómsfullri sögu þessarar stórkost- legu partíhallar viðeigandi skil og votta henni virðingu mína,“ segir Dimitri um þetta musteri kláms- ins. En hvernig stemmningar skyldi hann ætla að seiða fram á Thomsen í kvöld? „Ég þoli ekki að gefa tónlist nöfn, það er eiginlega móðgun við fyrirbærið. Mér finnst gaman að koma fólki á óvart og fikra mig áfram eftir stemmning- unni og áheyrendum sjálfum. Mörgum plötusnúðum í dag þykir svalt að spila harða, drungalega og laglínulausa tónlist, en ég elti ekki þá tísku. Mér finnst best að spila á litlum stöðum sem eru ekki of Dimitri from Paris er kominn til landsins. dimmir, þannig að ég getir séð svipinn á fólki og fylgst með því hvernig því líður. Starf mitt snýst um að skapa gott andrúmsloft þannig að fólki líði vel og það sé hamingjusamt. Ef ég sé svipinn á fólki er auðveldara fyrir mig að komast nær því og finna út hvað það er sem það þarfnast. Þar sem ég er plötusnúður af gamla skólan- um [,,old school"], legg ég áherslu á að tónlistin sé miðpunktur at- hyglinnar en ekki ég sjálfur. Ég hef ákveðna þörf til að deila ást minni á tónlist með fólki en ég læt tónlistina sjá um að koma skila- boðunum áfram. Ég er frekar feiminn og mér líður ekki vel í sviðsljósi, því kýs ég að tónlistin segi allt sem segja þarf.“ Algjör þögn er best Dimitri er ekki aðeins plötu- snúður. Árið 1997 gaf hann út sína fyrstu breiðskífu, Sacre Bleu, og undir lok þessa árs er von á nýrri plötu frá honum sem hefur enn ekki fengið nafn. Þegar Dimitri er ekki að vinna í hljóðveri sínu, úti að kaupa plötur eða að spila á ein- hverjum klúbbi, finnst honum best að sitja aðgerðalaus í algerri þögn. „Ég hlusta eiginlega aldrei á tón- list heima hjá mér og vil hafa þögn í kringum mig þegar ég slaka á. Ég kveiki ekki einu sinni á sjón- varpi eða neinu sem gefur frá sér hinn minnsta hávaða. Ég get vel setið klukkutímunum saman án þess að gera nokkurn skapaðan hlut. Núna er ég reyndar að lesa Lolitu eftir Nabokov og bókina Last Night a DJ saved my life.“ Ætli plötusnúður hafi einhvern tíma bjargað lífi Dimitris? „Nei, en tónlist hefur hins vegar bjargað lífi mínu. Ég veit ekki hvað ég myndi eiginlega gera við sjálfan mig ef tónlistar nyti ekki við. Ég er reyndar ágætis kokkur, þannig að ég myndi kannski bara snúa mér að matreiðslu,” segir Dimitri hlæjandi. Það er ljóst að Dimitri from Paris er ekki aðeins einn svalasti plötusnúður Frakka, heldur er hann líka einlægur í því sem hann gerir og gerir það vel. Búast má við fönkuðu spæjara- stuði með frumdiskóbragði, orku- ríkri sveiflu sem stuðlar að velh'ð- an og kátínu viðstaddra. DJ Grétar sér um að kynda undir áheyrendum fyrir franska fjörið. GLæsibær - Glæsibær Dönsum í kvöLd frá kl. 22.00-2.00, með Hjördísi, Siffa og Ragnari Páli. Fjölbreyttir dansar. Nú verða allir að mæta stundvíslega! Missið ekki af því sem gerist í kvöld. Sími 553 8969 og 568 5660. BOH Wl ká EROTÍSKL JR SKEMMTISTAÐUR Grensásvegi 7 Glœsileg „Betri stofa“ Opið frá kLj20 alla daga og til kl. 6 um helgar V XT Lokaö á mánudögum Dimitri from Paris á Kaffi Thomsen í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.