Morgunblaðið - 06.05.2000, Blaðsíða 1
11
STOFNAÐ 1913
TBL. 88. ARG.
LAUGARDAGUR 6. MAI 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ken Livingstone kjörinn borgarstjóri London
Ken Livingstone, nýkjörinn borgarstjóri iLondon, var syfjaður er hann tók sér að venju far mcð jarðlcstinni inn
í miðborgina í gærmorgun.
Kosningaúrslitin
áfall fyrir Blair
London. AP, The Daily Telegraph.
VINSTRISINNINN Ken Living-
stone sigraði í borgarstjórakosning-
unum í London sem fram fóru á
fimmtudag og hlaut um 38% at-
kvæða í fyrsta sætið. Annar varð
íhaldsmaðurinn Steve Norris með
26,5% en frambjóðandi Verka-
mannaflokks Tony Blairs forsætis-
ráðherra, Frank Dobson, rétt marði
þriðja sætið. Er talin voru saman at-
kvæði í fyrsta og annað sæti hlaut
Livingstone 58% en Norris 42%.
Kjörsókn var að sögn BBC aðeins
rúmlega 30 af hundraði í sveitar-
stjórnarkosningunum í landinu öllu
en nokkru meiri í London, 33,6%.
Ihaldsflokkurinn vann alls nær
600 sæti í sveitarstjórnum og er það
mun betri árangur en spáð hafði
verið. Norris þykir einnig geta unað
vel sínum hlut en hann átti mjög á
brattann að sækja framan af barátt-
unni gegn Livingstone og Dobson.
Niðurstaða kosninganna er sögð
áfall fyrir Verkamannaflokkinn og
einkum Tony Blair forsætisráð-
herra. A hinn bóginn tapaði íhalds-
flokkurinn óvænt þingsæti í auka-
kosningum, sem fram fóru í
kjördæminu Romsey, yfir til flokks
frjálslyndra demókrata. William
Hague, leiðtogi íhaldsflokksins,
fagnaði mjög úrslitum sveitarstjórn-
arkosninganna en ósigurinn í Rom-
sey dró úr sigurgleðinni í herbúðum
ihaldsmanna.
Livingstone, sem bauð sig fram
utanflokka, hrósaði keppinautum
sínum fyrir drengilega baráttu og
bauð þeim að vinna með sér.
„Fólk hefur sagt margt kjánalegt
í kosningabaráttunni en að henni
lokinni verða menn að sætta sig við
þann veruleika sem kjósendur hafa
búið til,“ sagði Livingstone.
Framkvæmdastjóri mikilvægustu
samtaka atvinnufyrirtækja í Bret-
landi, Digby Jones, sagðist viður-
kenna að Livingstone væri lýðræðis-
lega kjörinn borgarstjóri en minnti
hann á að ef hann ætlaði sér að
hrinda í framkvæmd umbótum
þyrfti hann á skatttekjum að halda
og blómleg fyrirtæki í London væru
undirstaða slíkra tekna.
Róttækni á níunda
áratugnum
Livingstone gegndi embætti
borgarstjóra sem Margaret That-
cher afnam fyrir 14 árum. Hann
lækkaði þá fargjöld í jarðlestunum
og studdi aukin réttindi samkyn-
hneigðra, fordæmdi konungsfjöl-
skylduna og lögregluna. Einnig lýsti
hann borgina kjarnorkuvopnalaust
svæði og veitti liðsmönnum írska
lýðveldishersins, IRA, á Norður-ír-
landi aðstoð. Litið hefur borið á mál-
efnaágreiningi hans við Dobson en
Livingstone hefur samt beitt sér
eindregið gegn áformum stjórnar-
innar um að einkavæða að hluta
jarðlestakerfi borgarinnar. Hefur
hann fengið mikinn stuðning við þá
stefnu sína í könnunum vegna út-
breiddrar óánægju með einkavætt
járnbrautakerfi Bretlands.
Blair, sem hefur fordæmt'vinstri-
sáherslur Livingstones, viðurkenndi
í gær að sums staðar hefði flokkur-
inn fengið slæma útreið en sagði að
annars staðar hefði hann staðið sig
vel. Hann hvatti Livingstone til að
starfa með ríkisstjórninni en sagðist
ekki hafa skipt um skoðun á mann-
inum sjálfum. „En það er fortíðin,
íbúar London hafa nú kveðið upp
sinn dóm og ég ber ábyrgð á því að
niðurstaðan gagnist þeim,“ sagði
ráðherrann en hann var staddur á
Norður-írlandi. Blair útilokaði að
Livingstone yrði tekinn aftur inn í
flokkinn.
■ Riddari fólksins/32
Ný afbrigði
„ástarveiru“
valda skaða
Washington, Manila. AP, AFP, The Washington Post.
NÝ afbrigði tölvuveiru sem síðustu
daga hefur valdið miklum skaða á
tölvukerfum víða um heim komu
fram í gær. Tölvunotendur fengu
send netbréf undir ýmsum nöfnum
og innihéldu þau tölvuveiru af svip-
uðu tagi og hina sk. „ástarveiru", en
hana fengu tugir milljóna tölvunot-
enda um viða veröld senda í tölvu-
pósti á fimmtudag. Veiran dregur
nafn af titli netbréfsins, I Love You,
sem gat bent til að ástarhugur byggi
að baki sendingunni.
Bandaríska alríkislögreglan (FBI)
hefur hafið viðamikla rannsókn á
uppruna ástarveirunnar og beinist
grunur manna nú að Filippseyjum.
Netþjónustufyrirtækið Supernet á
Filippseyjum, þar sem umrætt net-
fang er vistað, gaf í gær til kynna að
það grunaði 23 ára gamlan íbúa
Manila um að standa að baki
skemmdarverkunum. En forráða-
menn fyrirtækisins tóku jafnframt
fram að mögulegt væri að tölvuþrjót-
urinn væri staddur allt annars stað-
ar í heiminum. Stjómvöld í Litháen
eru sögð vera að rannsaka hvort
þrjóturinn kunni að vera litháískur,
eftir að setning á litháísku uppgötv-
aðist í kóða veiru á borð við ástar-
CNN-fréttastofan ræddi við spáði
því að á mánudag yrði tjónið komið
upp í allt að 1 milljarði dollara, jafn-
virði 75 milljarða íslenskra króna.
Erfitt mun þó verða að reikna upp-
hæðina nákvæmlega út.
Mikið fjárhagslegt tjón
Fjölmargir einstaklingar, íyrir-
tæki og opinberar stofnanir hafa
orðið fyrir skaða af völdum ástar-
veirunnar. Mörg fyrirtæki hafa
brugðið á það ráð að loka alveg tölvu-
póstkerfum sínum vegna hættu á
skemmdum af völdum hennar.
I gær var áætlað að fjárhagslegt
tjón vegna veirunnar næmi þegar
tugum milljóna Bandaríkjadollara
og er óttast að upphæðin eigi eftir að
hækka til muna. Sérfræðingur sem
■ lllskeyttari/31
----------------
Fortíð CDU
Fé frá A-
Þýskalandi?
Berlin. AFP.
TALSMAÐUR Helmuts Kohls, fym-
verandi kanslara Þýskalands, vísaði í
gær á bug sem algerri firru blaða-
fréttum um að hann hefði tekið við
peningum í flokkssjóði kristilegra
demókrata, CDU, frá austur-þýskum
kommúnistum. Um væri að ræða
„nýja tilraun til að sverta ímynd“ leið-
togans fyrrverandi.
Blaðið Siiddeutsche Zeitung skýrði
frá því að kommúnistaflokkurinn,
SED, hefði flutt 500 milljónir marka,
rúmlega 16 milljarða króna, til Ung-
verjalands eftir hrunið 1989. Gaf
blaðið í skyn að féð væri hluti þess
sem Kohl hefur viðurkennt að hafa
tekið við sem framlagi í sjóði CDU.
Hann neitar enn að gefa upp nöfn
þeirra sem afhentu honum peningana
og segist hafa heitið þeim nafnleynd.
Yfír 300 friðargæslu-
liðar í gíslingu
Freetown, Monroviu. AP, AFP.
UPPREISNARMENN úr röðum
byltingarfylkingar Fodays San-
kohs, RUF, í Sierra Leone létu í
gær lausa sex starfsmenn Samein-
Nýr forseti Tyrklands
Ankara. AP, AFP.
TYRKNESKA þingið kaus í gær
Ahmet Necdet Sezer, fyrrverandi
yfirdómara við stjórnarskrárdóm-
stól landsins, í embætti forseta
Tyrklands. Sezer, sem verður tíundi
forseti landsins, hlaut 330 atkvæði af
550 í kosningunum. Skæðasti keppi-
nautur hans, Nevzat Yalcintas, fékk
mun minna eða 113 atkvæði.
Kosning Sezers er talin munu
auka líkur á því að ýmsar umbætur
verði framkvæmdar í landinu sem
greiða muni fyrir hugsanlegri inn-
göngu þess í Evrópusambandið
(ESB). Á blaða-
mannafundi eftir
sigurinn í gær
talaði Sezer um
þörfina fyrir auk-
ið lýðræði í land-
inu. „Rætur
nokkurra af þeim
vandamálum sem
við er að etja í
Tyrklandi liggja í
óhlýðni við lög og
reglu," sagði hinn nýkjörni forseti.
„Skilningur á lýðræði hefur ekki
Ahmet Necdet
Sezer
þróast í samfélagi og í stjórnmálalífi
okkar og ekki hefur tekist að skapa
lýðræðishefð í landinu."
Sezer er sagður hafa verið ötull
baráttumaður fyrir lýðræðisumbót-
um í Tyrklandi þau ár sem hann hef-
ur gegnt embætti yfirdómara. Hann
hefur m.a. lýst því yfir að stjórnar-
skrá landsins virði ekki grundvallar-
réttindi þegnanna. Sezer, sem er 58
ára, er fyrsti dómarinn sem kjörinn
er forseti Tyrklands. Sex af níu fyrr-
verandi forsetum hafa verið hers-
höfðingjar.
uðu þjóðanna sem þeir höfðu í gísl-
ingu en talið er að þeir hafi enn 318
friðargæsluhermenn á valdi sínu.
Blóðug borgarastyrjöld hefur
geisað í Sierra Leone með hléum í
nær áratug og hafa deiluaðilar verið
sakaðir um mikla grimmd. Gæslu-
liðarnir eru flestir frá Zambíu og
fleiri Afríkulöndum en einnig Ind-
landi.
Að sögn talsmanns SÞ í New
York, Freds Eckhards, er talið að
fjórir þeirra séu látnir en hinir
munu vera í haldi einhvers staðar í
frumskógum landsins. Liðsmenn
Sankohs fullyrða að gæsluliðarnir
hafi reynt að afvopna þá með valdi.
MORGUNBLAÐIÐ 6. MAÍ 2000
690900
090000