Morgunblaðið - 13.05.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 13.05.2000, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Stjórn Fiskeldis Eyjafjarðar sendir bæjaryfírvöldum erindi Ótti við eldis- stöðvar í grennd við Hjalteyri BÆJARRÁÐ Akureyrar fjallaði á fundi sínum í vikunni um erindi frá stjórn Fiskeldis Eyjafjarðar, þar sem hún mótmælir alfarið hugmynd- um AGVA ehf. um laxeldi í Eyjafirði. I bókun bæjarráðs kemur jafnframt fram að landbúnaðarráðuneytið hafi hafnað umsókn fyrirtækisins. Þó hefur verið ákveðið að vinna áfram að málinu. Þá hefur stjórn Fiskeldis Eyja- fjarðar gert athugasemdir vegna starfsleyfistillögu Heilbrigðiseftir- lits Norðurlands eystra varðandi staðsetningu kræklingaeldisstöðvar í nágrenni starfsemi Fiskeldis Eyja- fjarðar á Hjalteyri, þar sem lúðu- seiðaeldi fyrirtækisins fer fram. Ólafur Halldórsson framkvæmda- stjóri Fiskeldis Eyjafjarðar sagði að fyrirtækið væri eingöngu að mót- mæla hugmyndum um 8.000 tonna laxeldi í nágrenni við þeirra starf- semi. Við erum ekki að mótmæla lax- eldi, enda er laxeldi í firðinum, held- ur einungis af þessari stærðargráðu. Varðandi kræklinginn sagðist ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG Eyjafjarðar hefur nýlokið þriðju út- hlutun úr Verkefnasjóði félagsins á fyrri hluta þessa árs. Að þessu sinni sóttu 15 aðilar um styrk úr sjóðnum og var 11 fyrirtækjum og einstak- lingum veittur styrkur. Styrkþegar koma víða af svæðinu og úr mismunandi starfsgreinum, iðnaði, landbúnaði, fiskeldi, hand- Ólafur einungis vera að mótmæla þessu tilraunaeldi sem fram átti að fara í nágrenni við sjóinntak Fisk- eldis Eyjafjarðar á Hjalteyri. „Ég gerði ekki athugasemdir við starf- semina sem er fyrirhuguð við Skjaldarvík, Dagverðareyri og Nunnuhólma.“ Ólafur sagði að aukinni starfsemi fylgdi hætta á sjúkdómum og öðru. „Við erum búnir að vera í þessu í 13 ár og erum ekki tilbúnir að sam- þykkja að það sé svona starfsemi í allra næsta nágrenni við okkar starf- semi. Starfsemi Fiskeldis Eyjafjarð- ar hefur gengið vel, búið er að fram- leiða mikið af seiðum og útlitið framundan bjart.“ Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins náði tali af Ólafi í gær, var hann staddur á stórri fiskeldisráðstefnu í Stavanger í Noregi, sem sitja 450 manns frá 24 þjóðlöndum. „Hér er verið að fjalla um framtíð fiskeldis og hvernig menn sjá þessa atvinnugrein þróast og dafna í framtíðinni,“ sagði Ólafur að lokum. verki, tölvugeiranum og ferða- mennsku. Alls voru rúmar 2,6 millj- ónir króna til skiptanna að þessu sinni en hæsti einstaki styrkurinn var upp á 400 þúsund krónur. Alls hafa 33 aðilar fengið styrk úr Verkefnasjóði félagsins, samtals að fjárhæð 15 milljónir króna frá því hann tók til starfa fyrir einu og hálfu ári. Isinn vinsæll í veður- blíðunni VEÐRIÐ hefur leikið við Akureyr- inga síðustu daga og líkur á að svo verði áfram um helgina. Mæðg- urnar, Ellen Guðmundsdóttir og Indíra, dóttir hennar, voru í mak- indum á Ráðhústorgi og kældu sig niður með ís. Fleiri fóru að dæmi þeirra, því hvarvetna mátti sjá fólk spóka í miðbæ Akureyrar með ís í hönd. Kirkjustarf AKURE YRE YRARKIRK J A: KA- messa kl. 14 á morgun, sunnudag. KA-kórinn syngur, Stefán Ingólfs- son deildarstjóri SÁÁ á Akureyri predikar. Kaffisala á vegum KA- kórsins í Safnaðarheimili eftir messu. Fundur æskulýðsfélagsins kl. 17 sama dag. Morgunsöngur í kirkjunni kl. 9 á þriðjudag. Mömmumorgunn í Safnaðarheimili frá 10 til 12 á miðvikudag, sá síð- asti í bili. GLERÁRKIRKJA: Messa í kirkjunni kl. 11 á morgun, sunnu- dag. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag. Opið hús fyr- ir mæður og börn næsta fimmtu- dag. HJÁLPRÆÐISHERINN: Al- menn samkoma annað kvöld, sunnudagskvöld kl. 20, ath. breytt- an tíma. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl. 20 á laugardag. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á morgun, sunnudag. Kennsla úr Orði Guðs fyrir alla aldurshópa. Þórir Páll Agnarsson predikar. Léttur málsverður að samkomu lokinni. AJmenn vakn- ingarsamkoma kl. 16.30 á morgun þar sem Gunnar Rúnar Guðnason predikar. Fyrirbænaþjónusta og barnapössun. LAUGALANDSPRESTAKALL: Messa í Grundarkirkju kl. 13.30 á morgun, sunnudag. Safnaðarstjórn Dómkirkjunnar í Reykjavík í heimsókn og mun sr. Jakob Hjálmarsson Dómkirkjuprestur predika og Martin Hunger dóm- organisti leika á orgelið í messu- lok. Barnakór Hrafnagilsskóla syngur, m.a. lag eftir Karl Frí- mannsson skólastjóra undir stjórn Garðars Karlssonar. Kirkjukórinn undir stjórn Dóroteu Tómasdóttur syngur, m.a lag eftir Eirík Bóas- son. Boðið verður upp á kaffi og með því í Laugaborg að lokinni messu. Þar mun Birgir Þórðarson flytja erindi um kirkjusögu Grund- arþinga. Messa sem vera átti á Kristnesspítala sama dag fellur niður. Aglowfundur AGLOW- kristileg samtök kvenna halda opinn fund næstkomandi mánu- dagskvöld, 15. maí kl. 20 í félagsmið- stöðinni Víðilundi 22 á Akureyri. Vilborg Schram flytur ræðu kvöldsins, og þá er söngur, lofgjörð og fyrirbænaþjónusta. Kaffihlaðborð í lokin. Þetta er síðasti fundur vetrar- ins. Ballettskólinn Yorsýning VORSÝNING Ballettskólans á Ak- ureyri verður haldin í Sjallanum á morgun, sunnudag. Sýningin hefst kl. 16. Auk þess sem nemendur skól- ans sýna koma gestadansarar frá Listdansskóla íslands í heimsókn. N emendasýning ALMENN nemendasýning í Mynd- listarskóla Arnar Inga fer fram að Klettagerði 6 á Akureyri sunnudag- inn 14. maí frá kl. 14-19. Á næstu vikum munu svo fjórir nemendur skólans halda einkasýn- ingar í tilefni námsloka sinna. MyndlistaskóDnn á Akuroyrf auglýsir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 2000 - 2001 Fomámsdeitd. Tilgangur fomámsdeildar er að veita nemendum alhliöa undirbúningsmenntun f myndiist. í deiidinni fer fram listrænn og taeknilegur undirbúningur fyrir nám sérnámsdeildum skólans og Listaháskóla (slands. Umsóknarfrestur um skólavist er tli 22. maí 2000 Allar nánari upplýsingar veittar í sima 462 4958 Netfang: info@myndak.ls Heimasíða: http://iwww.myndak.is/ Myndlistaskóllnn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Pósthölf 39 - 602 Akureyri mVKOUSTflSKÖUHH AAKUKVBi 80 fyrirtæki á stórsýningu í íþróttahöllinni 12.-14. maí Verð kr. 400 Frítt fyrir börn með fullorðnum Ekki missa af bessu! TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Innritun vegna skólaársins 2000—2001 fer fram á skrifstofu skólans dagana 15.-31. maí 2000. Athugið að nemendur sem óska eftir áfram- haldandi skólavist þurfa að endurnýja umsóknir sínar skriflega fýrir 31. maí. TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Hafnarstræti 81, 600 Akureyri sími 462 1788 fax 461 1280 Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar Ellefu aðilar fengu styrki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.