Morgunblaðið - 13.05.2000, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ
± 72 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
UMRÆÐAN
Er munntóbakið
tímasprengja?
FIMMTUDAGINN 11. maí skrif-
aði Víðir Ragnarsson grein hér í
blaðið þar sem hann hélt því m.a.
fram að sænska munntóbakið
(„snúsið") sé að mestu hættulaust.
Því miður er þetta ekki rétt. Bæði
vegna þess að þær fáu rannsóknir
sem þó eru til sýna annað, en eins
hitt, að ennþá er svo stutt síðan
menn fóru að rannsaka langtíma-
áhrif „hreinnar snúsnotkunar“
(snúsarar sem aldrei hafa notað ann-
að tóbak) að ekki er búist við mark-
tækum niðurstöðum úr þeim rann-
sóknum fyrr en eftir 2010. Þangað til
er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig
og muna að það er ekki svo ýkja
langt síðan skoðanabræður Víðis
héldu fram skaðleysi reykinga á
grundvelli ónægra vísindalegra
sannana.
Krabbamein
Staðreyndin er sú að sænska
„snúsið“ inniheldur mörg þekkt eit-
urefni sem vitað er að geta valdið
krabbameini m.a. nitrosaminer og
geislavirkt polonium, en því miður
verðum við ennþá að
bíða í rúmlega 10 ár
eftir vísindalegum
niðurstöðum á
krabbameinsvaldandi
áhrifum „snús“-notk-
unar. Það er því allt
eins víst að „snúsið"
sé tímasprengja sem
eigi eftir að draga dilk
á eftir sér. Þó tíðni
munnholskrabba sé
ekki hærri í Svíþjóð
en víða annarstaðar
segir það ekkert um
„snúsið“ sem slíkt
nema tekið sé tillit til
áhrifa reykinganna,
en reykingar valda krabbameini í
munnholi eins og allir vita. Ennþá
hefur slík rannsókn ekki verið gerð
sem uppfyllir ströngustu kröfur
faraldsfræðilegra rann-
sókna. Enginn hefur
heldur rannsakað áhrif
„snús“-notkunar á
krabbamein í maga, nýr-
um, þvagfænim og brisi.
Hjarta- og
æðasjúkdómar
Þær fáu langtíma-
rannsóknir sem fyrir
liggja sýna að samband
er milli „snús“-notkunar
og þekktra áhættuþátta
hjarta- og æðasjúkdóma.
Því miður eru þessar
rannsóknir háðar þeim
annmörkum að þær inni-
halda fáa hreina „snúsara" sem gerir
það að verkum að erfítt er að fá fram
tölfi-æðilega marktækar niðurstöður
enn sem komið er. Þær niðurstöður
Ásgeir R Helgason
>
Pvott&stvé
Alltafferskt
ii
Snús
Staðreyndin er sú, segir
Asgeir R. Helgason,
að sænska „snúsið“ inni-
heldur mörg þekkt
eiturefni sem vitað er að
geta valdið krabbameini.
sem þó er unnt að fá fram í dag gefa
sterka vísbendingu um að „snúsar-
ar“ séu í meiri hættu á að þróa
hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem
aldrei hafa notað tóbak. Sænskur
„meðalsnúsari" innbyrðir daglega
álíka mikið nikótín og sá sem reykir
20-30 sígarettm- á dag. Þetta leiðir
til gífurlegs aukaálags á hjartað og
æðakerfið, svo það ætti ekki að koma
neinum á óvart ef langtímarann-
sóknir eiga eftir að leiða í ljós að
„snúsið" auki dánartíðni af völdum
hjartasjúkdóma. En það sama gildir
um þetta og krabbameinið að sann-
leikurinn mun ekki endanlega liggja
á borðinu fyrr en eftir nokkur ár.
Að snúsa eða reykja?
Það er rétt hjá Víði að samkvæmt
því sem við vitum best í dag er „snús-
ið“ ekki eins hættulegt og reykingar.
En þetta segir e.t.v. meira um stöðu
rannsóknanna en raunverulega
skaðsemi. Þó segir mér svo hugur að
reykingar séu talsvert hættulegri.
Það eru þó bara fordómar sem
byggjast meira á vonum en visku
enda langt í land að sannleikurinn
um „snúsið“ liggi á borðinu. í Sví-
þjóð hafa margir hætt að reykja á
undanfömum árum og skipt yfir í
„snús“.
Þótt það sé ennþá óvíst hve mikið
menn vinna heilsufarslega á þessu er
engum blöðum um það að fletta að
„snúsarinn" er umhverfisvænni fyrir
andrúmsloft félaga sinna en reyk-
ingamaðurinn.
Snús sem nikótínlyf?
Það er alls ekki hægt að mæla með
„snúsi“ sem nikótínlyfi eins og Víðir
reynir að gera í sinni grein. Þeir sem
nota nikótínlyf á réttan hátt fá í sig
u.þ.b. 10-15 mg af nikótíni á dag.
Meðal-„snúsari“ fær í sig margfalt
meira magn eða sem nemur allt að
30 sígarettum á dag. Hver „snús“-
biti inniheldur jafnmikið nikótín og2
sterkar sígarettur. Staðreyndin er
sú að „snús“ er það tóbaksform sem
inniheldur hlutfallslega mest af nikó-
tíni.
Það er því líklega meira vanabind-
andi en reykingar. Reynsla frá
„Sluta-röka linjen“ (sambærilegt við
„Ráðgjöf í reykbindindi - grænt
númer“ á íslandi) í Svíþjóð er líka sú
að erfiðara er fyrir „snúsara“ að
hætta að „snúsa“ en reykingamann
að hætta að reykja. Markmiðið með
nikótínlyfjameðferð er að losa sjúk-
linginn við áralanga fíkn. „Snúsið“
hefur þveröfug áhrif.
Höfundur er doktor í læknavfsindum
og starfar á samfélagslækningadeild
i Stokkhólmi.
ÞUMALÍNA
fyrir mæður og börn
Pósthússtræti 13 s. 5512136
pappírstætarar
SKmi'STOll A'ÖIU'K
J. flSTVfllDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavik, Simi 533 3535
Örugg framleiðsla
Margar stærðir
Leiðandi
merki
Þýsk
gæði