Morgunblaðið - 13.05.2000, Side 30
30 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
§ig|l
Sími: 5511520, fax: 55! 8100
*■
ÚRVERINU
í Faxafem 12.
laugardögum frá 10:00 - 14:00,
verið flutt og sameinuð versluninni
Sími: 588 6600, fax: 588 6510.
METAÐSÓKN var að sjávarút-
vegssýningunni, sem haldin var í
Brussel í Belgíu í vikunni. Um
10.000 manns sóttu sýninguna í
fyrra en að sögn mótshaldara
fjölgaði þeim verulega í ár. ís-
lenskir framleiðendur hafa heldur
aldrei verið fleiri á sýningunni í
Brussel en nú, en hún er sú
stærsta sem tengist sjávarútvegi í
heiminum og sú besta sem haldin
hefur verið í Brussel, að sögn
Ivars Pálssonar hjá Sameinuðum
útílytjendum.
Sýnendur voru tæplega 1.000 frá
72 löndum. Sýningarsvæðið var um
14.000 fermetrar en á fjórða tug ís-
lenskra fyrirtækja var í bás sem
Utflutningsráð Islands skipulagði
á rúmlega 500 fermetra gólffleti.
Auk þess voru SH, SÍF og Bakka-
vör með eigin bása en Nýsköpun-
arsjóður styrkti þátttöku íslensku
fyrirtækjanna.
Talið er að 300 til 400 fulltrúar
íslenskra fyrirtækja hafi sótt sýn-
inguna að þessu sinni en hópur
framleiðenda frá íslandi var stærri
en nokkru sinni fyrr.
Fleiri frá Asíu
Að sögn sýningarhaldara var nú
meira um fyrirtæki frá Asíu en
verið hefur áður á sýningunni og
endurspeglaði sýningin að mörgu
leyti breytt umhverfi í sölu sjáv-
arafurða.
Eftir því sem næst verður kom-
ist var almenn ánægja með sýning-
una og greinilegt að hana sækja
fyrst og fremst fulltrúar fyrir-
tækja sem eru markvisst í við-
skiptahugleiðingum.
Mikil ánægja var með sjávarútvegssýninguna sem haldin var í Brussel í vikunni og vöktu íslensku fyrirtækin athygli.
Sameinaðir útflytjendur eiga um
fjórðung í Sindrabergi á Isafirði
sem framleiðir fryst sushi og voru
fyrirtækin saman á bás á svæði
Utflutningsráðs. Ivar Pálsson sér
um útflutning á neytendavörum
hjá Sameinuðum útflytjendum og
var yfir sig ánægður með sýning-
una. „Þetta tókst alveg frábær-
lega,“ sagði hann. „Eg hef verið á
þessari sýningu í Brussel frá upp-
hafi og þessi var sú langbesta."
ívar sagði áberandi að ekki að-
eins hefðu innkaupastjórar stór-
fyrirtækja í Evrópu sótt sýninguna
heldur forstjórarnir sjálfir og hefði
áhugi þeirra haft mikið að segja.
„Þeir mættu til að hitta hver ann-
an en ekki síður til að sjá hvað er
að gerast og kynna sér málin.“
Sindraberg hóf framleiðslu á
frystu sushi í vetur og var fram-
leiðslan og markaðssetningin mið-
uð við sýninguna í Brussel, að sögn
ívars. „Áætlunin gekk eftir, innan-
landsmarkaðurinn tók vörunni vel
og við fengum tækifæri til að bæta
það sem þurfti með erlendan
markað í huga. Tæknilega er erfið-
ast að frysta hrísgrjónin en við
höfum náð þeirri tækni og varan
vakti óneitanlega athygli. Meira að
segja sýndu Asíumenn okkur mik-
inn áhuga og vildu selja okkur hrá-
efni.“
Að sögn ívars tókst öll kynning
vel en ekkert er ákveðið með
samninga. „Það á eftir að vinna úr
þessu og úrvinnslan er gífurlega
mikilvæg en ekkert er frágengið.
Hins vegar vöktum við meiri at-
hygli en áður og það á eftir að
koma í ljós hvað það þýðir.“
ívar sagði að almennt hefðu ís-
lendingarnir verið mjög ánægðir
með sýninguna. „Það hafði mikið
að segja að íslandsbásinn var á
mjög góðum stað og í alfaraleið."
Vfkingnr AK í Smugunni
Rannsókna-
skipin hafa ekki
enn fundið sild
NORSK-íslenska sfldin hefrn- ekki
enn fundist en þrjú rannsóknaskip
auk nokkurra fiskiskipa eru við leit
á stóru svæði milli íslands, Færeyja
og Noregs.
Víkingur AK kom norður í Smug-
una nálægt norsku landhelginni í
fyrrinótt en hafði ekki séð neina sfld
um miðjan dag í gær frekar en aðrir
á miðunum. „Það hefur ekkert fund-
ist,“ sagði Viðar Karlsson, skipstjóri
á Vfldngi, við Morgunblaðið. „Það
hefur ekkert sést af viti. Tvö leitar-
skip fóru hérna yfir í liðinni viku og
Árni Friðriksson er nýbyrjaður í
færeysku lögsögunni en það eina
sem hefur fundist er síld á mjög
miklu dýpi sem nýtist engum.“
Viðar segir að þetta sé ekki
venjulegt ástand því áður hafi sfldin
sést á þessum tíma þó hún hafi ekki
veiðst fyrr en síðar. „Samt er hita-
stigið ósköp vænt hérna og allt í lagi
með allar aðstæður. Hins vegar er
aldrei að vita hvað þessi síld gerir.
Þess vegna gæti hún farið hérna
norður eftir og látið ekki sjá sig en
ástæðulaust er að vera að hugsa um
það, enn sem komið er.“
Norskt og hollenskt rannsókna-
skip hafa verið að leita saman í
Smugunni en til stendur að haf-
rannsóknaskipið Árni Friðriksson
og færeyskt rannsóknaskip kanni
vesturhluta svæðisins. Viðar sagði
að færeyska skipið hefði reyndar
bilað og væri því ekki byrjað.
„Björg Jónsdóttir er skammt frá
okkur og Jóna Eðvalds á útleið,“
sagði hann. „En það er ekkert að
sjá. Héma hafa verið norsk skip án
árangurs og færeysk skip hættu í
gær en dönsk skip eru héma norð-
ar. Svona er ástandið núna en ekki
er um annað að gera en sjá til og
ástæðulaust að örvænta."
I heimsókn
í Færeyjum
VARÐSKIPIÐ Ægir var í kurteisis-
heimsókn í Færeyjum í vikunni að
lokinni björgunaræfingu með Fær-
eyingum og Dönum á mánudag.
Islendingar, Danir og Færeying-
ar hafa verið með sameiginlegar
björgunai- og leitaræfingar á vorin
og að þessu sinni vora þær á svæði
mitt á milli íslands og Færeyja. í
kjölfarið var haldið til Færeyja þar
sem rætt var um framgang æfing-
anna.
Töluvert langt er síðan íslenskt
varðskip hefur komið til Færeyja en
skipherra á Ægi er Kristján Þ.
Jónsson.
Sjávarútvegssýningin í Brussel sú stærsta sem tengist sjávarútvegi í heiminum
Besta
sýning’in
í Brussel
til þessa