Morgunblaðið - 13.05.2000, Page 78
78 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UPPLýSANDI, j^RDÓMS-
RIKIR OS ABYRSIR.
. PAÐ ER OKKAR FAS
ln-——ífs
OS NÆST A DASSKRA
ER„HEIMSINS
LJOTASTA FÓLK"
Smáfólk
I TRIEP TO élVE TME REP
BAROM A BlRTMPAY CAKE, ANP
ME 5M0T IT FULL OF M0LE5...
JE RE6RETTE 8EAUCOUP..
POM'T BE 5AP, FLYIN6 ACE...
YOU UJERE VERY 8KAVE, ANP
YOU MAPE MIM LOOK F00LI5H.
Ég rcyndi að færa Rauða barðninum
afmælisköku, en hann bara
skaut fullt af götum á hana.
Je regrette beaucoup. Vertu ekki
hryggur, flugás. Þú varst mjög
hugrakkur og nú lítur hans hlið
ekki mjög vel út.
TOUT VA BIEN! SOMEPAY
THEY LJILL LAU6M AMP 5AY,
,lME 5M0T POWN EI6MTY PLAME5
ANP ONE BlRTHPAY CAKE í"
Tout va bien. Einhvern tíma munum
við hlægja og segja, „Hann skau
niður 80 flugvélar og eina
afmælisköku".
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Mótmæli
stj órnley singj a
Frá Sigurði Harðarsyni:
í Morgunblaðinu þann 19. apríl síð-
astliðinn er m.a. grein um mót-
mælaaðgerðir hinna ýmsu hópa á
götum Washing-
ton gegn Alþjóða
Gjaldeyrissjóðn-
um og AJþjóða-
bankanum. Þar
er komið inn á
aðgerðir sam-
taka stjómleys-
ingja sem kalla
sig „Svarta kass-
ann“ og skrifað í
þá átt að sá hóp-
ur telji sig vera að bjarga heimin-
um og beiti til þess aðferðum eins
og að kasta öllu lauslegu um göt-
urnar og ýta til bflum.
Þessi hugmynd í greininni um
samtökin „Svarta kassann" held ég
að stafi af misskilningi viðkomandi
blaðamanns á fyrirbæri innan
hreyfinga stjórnleysingja sem kall-
að er „the black block“ (ekki „black
box“) og er ákveðið skipulag innan
mótmælaaðgerða stjórnleysingja.
Þá er ákveðinn hluti þeirra sem
ætla að taka þátt í þeim mótmæl-
um, sem verið er að skipuleggja
hverju sinni, sem klæðir sig upp í
svart og setur upp grímur sem
hylja höfuðið og andlitið, því ein af
baráttuaðferðum lögreglunnar
gegn mótmælendum er að ná and-
litum þeirra á filmu. Þessi hluti
þátttakenda í mótmælaaðgerðun-
um er með þessu að lýsa sig reiðu-
búinn til að berjast af hörku fyrir
málstað sínum og nota jafnvel til
þess aðferðir sem gætu leitt til
handtöku og ákæru.
Einhver stjórnleysingi sagði jafn
margar útgáfur vera til af líffspeki
og heimspeki stjórnleysingja og
stjórnleysingjar eru margir. Fólk-
ið, sem verður áberandi vegna
skemmdarverka í mótmælaaðgerð-
um, eins og þeim í Washington og í
Seattle-mótmælunum við fundar-
staði Alþjóða viðskiptastofnunar-
innar, er að fá útrás fyrir reiði
sína. Reiði þeirra beinist að fjár-
mála- og viðskiptafyrirtækjum sem
stunda viðskipti, sem eru siðlaus
þegar horft er til fjárhagslegs (ó)
jafnvægis í heiminum. Deilt er á
þessi skemmdarverk innan hópa
stjórnleysingja þar sem viðkom-
andi fjármálarisar komi ekki til
með að finna fyrir nokkrum brotn-
um rúðum en séu gerðir að fórnar-
lömbum í augum almennings með
dyggri aðstoð fjölmiðla sinna, með-
an allir stjórnleysingjar eru stimpl-
aðir sem fólk í lélegu andlegu jafn-
vægi. Það eru miklu fleiri
stjórnleysingjar til en þeir sem
slást við lögregluna á götum úti en
þeim er bara ekki hampað í fjöl-
miðlum því mikið af því fólki hefur
frá mörgum góðum hlutum að
segja og ef lífsspeki þeirra kæmist
óbrengluð til skila gæti hún fengið
nokkuð góðan hljómgrunn meðal
almennings. Fjölmiðlum er al-
mennt stjórnað af aðilum sem
myndu ekki hagnast á því að al-
menningur færi að gera hlutina
fyrir sig sjálft og hvort annað og
því eru stjórnleysingjar með góðar
fréttir ekki „prime-time“ efni.
Það er þó nokkuð víst að allir
stjórnleysingjar eru sammála um
að það er ekkert á því að græða að
setjast niður og bíða eftir því að
„lýðræðislega" kjörnir forsetar
komi með lausnir á málunum.
Þeirra lausnir koma alltaf til með
að þjóna hagsmunum þeirra þrýsti-
hópa sem hafa stærstan höfuðstól-
inn. Þessvegna eru stjórnleysingj-
ar og fleira gott fólk að æsa sig á
götum úti, þetta eru þrýstihóparn-
ir, sem hafa enga peninga, trúa
ekki ó peninga og eru því ekki í að-
stöðu til að leggja orð í belg í fund-
arsölunum. Þeirra barátta fer fram
á götunum og meðal fólksins.
SIGURÐUR HARÐARSON,
Reynimel 38, Reykjavík.
Fordómar gegn
ásatrúarfólki
Pamela Cecchi:
HÉR í Bandaríkjunum hafa okkur
borist til eyma sögur af gífurlegum
fordómum gegn frændum okkar,
ásatrúarmönnum á Islandi. Við ása-
trúarmenn erum almennt friðsamt
fólk en höfum mikla trú á réttlæti og
stöndum jafnan saman.
Það sem nú er að eiga sér stað á
íslandi minnir á þá hræðilegu að-
skilnaðarstefnu og afneitun mann-
réttinda sem Bandaríkjamenn höfðu
eitt sinn uppi gagnvart sumum íbú-
um Bandaríkjanna, af því að þeir
voru öðruvísi.
Það er mín von að þjóð ykkar geti
haft í hávegum a.m.k fjórar hinna
níu dyggða og sýnt af sér gestrisni,
hugrekki, drengskap og heiðarleika.
Að minnsta kosti þann heiðarleika að
gangast við að fordómar ríki á ís-
landi gegn trúarskoðunum fólks.
Þetta er gert með því að neita frið-
samlegum hópi fólks um að safnast
saman vegna helgiathafna og styðja
þess í stað trúarsöfnuð sem hefur í
gegnum söguna sýnt sig vera bæði
herskáan og grimman í samskiptum
sinum við aðra trúarhópa.
Kannski er kominn tími á að end-
urorða Biblíuna einu sinni enn svo
hún endurspegli núverandi viðhorf. í
stað þess að segja einfaldlega: „elsk-
aðu náunga þinn“, þá væri e.t.v.
meira viðeigandi fyrir íslendinga að
segja: „elskaðu náunga þinn, svo
framarlega sem hann trúir á sama
guð og þú!“
PAMELA CECCHI,
14336 Linck, Marion, Illinois.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.