Morgunblaðið - 13.05.2000, Page 45

Morgunblaðið - 13.05.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 45 stafur tugabrotsins er óháður hin- um og í rauninni sjálfstætt verk- efni. Það verkefni að reikna pí sem tugabrot er óendanlegt. Með sífellt öflugri tölvum hafa orðið miklar framfarir í verkefn- um á borð við það að reikna pí með fleiri og fleiri aukastöfum. Stöðugt er verið að reikna út fleiri stafi og nú hafa 40 trilljón auka- stafir verið fundnir. Enn er verið að setja ný met með æ hrað- virkari og öflugri tölv- um. Ef við ættum að sýna alla þessa stafi hér mundi tölva Vís- indavefjarins ekki duga til þess og auk þess er hætt við les- endum þætti það ekki skemmtilegur lestur!? A vefsíðunni er mynd af formúlu sem uppgötvuð var árið 1995 af David Bailey, Peter Borwein og Sim- on Plouffe, en hún var notuð til að finna 10 milljarðasta aukastaf- inn í pí þegar það er skrifað sem tugabrot með grunn- tölunni 16 sem er oft notuð í tölv- um nú á dögum eins og kunnugt er. Fleiri formúlur hafa verið upp- götvaðar síðan, sem byggjast á þeirri fyrri, en aðalmarkmið þeirra hefur verið að finna leiðir til að reikna dæmið á einfaldari hátt. Ahugavert er að skoða fróðlegt vefsetur Mathsoft um þróun á því hvernig pí er reiknað. Þar má meðal annars finna tengla við heimasíðu PiHex sem býður hverj- um sem vill að taka þátt í að setja ný met með notkun PC-heim- ilistölva. Hægt er að nálgast síðasta út- reikning pí með því að hafa samband við um- sjónarmenn vefseturs- ins PiHex. Hrannar Baldursson háskdlancmi í Mexíkd og starfsmaður VísindaveQarins Þorsteinn Vilhjálmsson prdfessor í eðlisfræði og vísindasögu við Háskdla íslands og ritstjdri Vísindavefjarins Hvað er kertalogi? SVAR: Kertalogi er til kom- inn við það að vaxið í kertinu brennur. Bruni efnis felst í því að viðkomandi efni gengur í efna- samband við súrefni andrúms- loftsins. Við það rofna súrefn- issameindir sem eru táknaðar með 02(g), þar sem bókstafurinn g . táknar að efnið er í gasham.Sam- eindirnar í vaxinu má rita sem CnHmþar sem C táknar kolefni, H táknar vetni og n og m geta verið ýmsar heilar tölur. Þær rofna einnig og mynda óstöðug lít- il sameindabrot. Rofnun þessi veldur því að það myndast orka sem kemur fram með tvennum hætti, sem Ijósorka og varmaorka, en þessar tvær teg- undir orku eru þó skyldar. Mis- munandi ljósorku skynjar manns- augað sem mismunandi liti, svo sem blátt (orkuríkt) og gult (orku- minna). Varmaorkuna skynjum við sem aukinn hita sem stafar frá loganum. Sameindabrotin sem þessu valda leita upp frá loganum og sameinast á nýjan leik og mynda stöðugar sameindir í formi vatns- gufu (H20(g)) og sem lofttegundir á borð við koltvíildi (C02 (g)) og koleinildi (CO(g)). Einnig geta kolefnisfrumeindir (C) sameinast og raðast á margbreytilegan hátt (Cn) og mynda þá sót. Hlutföll hinna ýmsu sam- eindabrota sem og lokamyndefna ráðast af hlutfallslegu magni súr- efnis og kertavax í efnabreyting- unni. Ef magn súrefnis er hlut- fallslega lítið borið saman við vaxið er litur logans áberandi gulur, minni varmaorka stafar frá honum og sót getur myndast. í því tilviki er talað um að kertið ósi. Ef hins vegar nægilegt súrefni er til staðar ber meira á bláa litn- um í loganum, hann verður heitari og óverulegt sót myndast. Þá myndast þeim mun meira af kol- tvíildi. Ágúst Kvaran pröfessor í efnafræði við Hásköla íslands. Vestf írðir í NANOQ Vestfjariakynnlng INANOQ 6.-14. maí. Vestflrskir ferðaþjónustuaðilar kynna Vestfirði i máli og myndum alla dagana mllli kl. 14:00 og 18:00. Verið velkomin! NANOQ+ Krlnglunnl 4-12 • Slml 575 5100 SKRAUT SKILTI L eÉb 31 J ; FAGRAKOT Tilvalin tækifærisgjöf! Málmsteypan kaplahrauni 5 Tf'PT T 7V Uf 220 HAFNARFJÖRÐUR nidLLrl IU. SÍMI 565 1022 FAX 565 1587 C-Vitamin ■**** T Sorktiiii tg Btoiljmpe Apótekin LOTTUR! TískufatnaSur frá Timberland Timberland framleiðir ekki aðeins vandaða skó heldur einnig hágæða tískufatnað fyrir böm jafnt sem fullorðna. Það er kominn tími til að kynna Timberland-merkið fyrir íslendingum og þess vegna verðum við með sérstaka kynningardaga um helgina: laugardag kl. 10-18, skar sunnudag kl. 13-17. Gríptu tækifærið!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.