Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ársreikningur Reykjavíkurborgar
ræddur í borgarstjórn
Agreining’ur
um árangur
Uppsögn yfír-
læknis ógild
ÁRSREIKNINGUR Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1999 var lagður
fram til fyrri umræðu í borgarstjóm
í gærkvöldi. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri fylgdi reikningn-
um úr hlaði og sagði meðal annars að
hann fæli í sér staðfestingu á að
árangur hefði náðst í fjármálastjórn-
un Reykjavíkur sem vart ætti sér
hliðstæðu.
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjóm,
sagði ársreikninginn hins vegar bera
eyðslu- og útþenslustefnu yfírvalda
borgarinnar vitni. Þrátt fyrir mikla
tekjuaukningu borgarinnar, meðal
annars í formi skatta, tækist ekki
enn að lækka skuldir borgarinnar.
Borgarstjóri hafnaði þessari túlk-
un Ingu Jónu á niðurstöðum árs-
reikningsins og benti á að nú hefði í
fyrsta sinn verið hægt að nota hluta
af skatttekjum borgarinnar til að
greiða niður skuldir borgarsjóðs.
Lítið frávik frá fjárhagsáætlun
í skýrslu Borgarendurskoðanda
með ársreikningnum segir að sé
horft framhjá gjaldfærslu á hækkun
h'feyrissjóðsskuldbindinga sem staf-
aði af breyttri framsetningu reikn-
ingsskila sveitarfélaga hafí rekstur
málaflokka borgarinnar aðeins farið
0,07 % fram úr fjárhagsáætlun.
Skuldir borgarsjóðs em greiddar
niður um tæplega 1,4 milljarða
króna. Þar af er um 1 milljarður
króna sem Orkuveita Reykjavíkur
greiddi til borgarsjóðs en afgangur-
inn er greiddur með skatttekjum.
I ársreikningi nú er í fyrsta sinn
samstæðureikningur reksturs borg-
arsjóðs og fyrirtækja borgarinnar.
Reikningurinn sýnir að skuldir sam-
stæðunnar hafa aukist um ríflega 1,2
milljarða milli ára. Helstu ástæður
þess eru tilteknar lántaka Orkuveit-
unnar og Reykjavíkurhafnar vegna
framkvæmda, lántaka vegna íbúða-
kaupa Félagsbústaða og yfirteknar
skuldir vegna kaupa Vélamiðstöðv-
arinnar á Gylfaflöt.
Erfiðleik-
ar vegna
hálku
FLUTNIN G ABÍLL fór útaf vegin-
um á Tjöraesi í gærmorgun vegna
hálku. Dráttarvagn bilsins stór-
skemmdist. Vegurinn um Tjörnes
er einnig erfiður vegna aurbleytu.
Bílar lentu víða í erfíðleikum
vegna hálku á Norðausturlandi og
víða varð Vegagerðin að ryðja snjó.
Aðeins var jeppafærttil Siglu-
fjarðar í gærmorgun og moka
þurfti einnig Kísilveginn. Þá voru
hálkublettir á heiðum á Vestfjörð-
um. Hvasst var einnig á Mýrdals-
sandi og þar var sandfok.
Kalt verður áfram víðast hvar á
landinu. Hiti norðanlands verður
vart meiri en við frostmark og sums
staðar er gert ráð fyrir tveggja
stiga frosti. Sunnanlands er spáð
eins til fimm stiga hita. Ekki er
spáð neinni úrkomu að ráði.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt upp-
sögn yfirlæknis á Landspítala, há-
skólasjúkrahúsi, ógilda. Rétturinn
staðfestir þar með niðurstöðu hér-
aðsdóms, en málinu var vísað aftur
heim í hérað í vetur, þar sem
Hæstiréttur sagði héraðsdóm ekki
hafa tekið afstöðu til allra þátta í
málflutningi mannsins.
Sjúkrahús Reykjavíkur, sem nú
heitir Landspítali - háskólasjúkra-
hús, sagði Gunnari Þór Jónssyni
upp starfi yfirlæknis slysa- og
bæklunarlækningadeildar í júlí í
fyrra, en starfinu gegndi hann jafn-
framt því að vera prófessor í slysa-
lækningum við læknadeild Háskóla
íslands.
Staðan hluti af prófessorsstöðu
Hæstiréttur segir ekki vafa leika
á því að út frá því hefði verið gengið
að yfirlæknisstaða á slysadeild
sjúkrahússins yrði hluti prófessors-
embættis í slysalækningum og að
starfi prófessors yrði ekki sinnt
eins og til var ætlast nema umrædd
staða á spítalanum fylgdi því. Það
hafi eingöngu verið á valdi þeirra
sem veittu prófessorsembættið að
víkja honum úr starfi. Hafi forráða-
mönnum spítalans því borið að snúa
sér til læknadeildar Háskóla Is-
lands með ósk um atbeina hennar,
teldu þeir nauðsynlegt að maðurinn
yrði færður úr starfi við spítalann.
Sjúkrahúsið hefði ekki verið réttur
aðili til að segja honum upp störf-
um.
Hæstiréttur staðfesti þar með
niðurstöðu héraðsdóms um ógild-
ingu uppsagnarinnar og dæmdi
sjúkrahúsið til að greiða lækninum
300 þúsund krónur í málskostnað.
*
Islenskir og breskir sérfræðingar ræða næst um Hatton Rockall í haust
Breyttar forsendur
vegna áhuga olíufélaga
VIÐRÆÐUR hafa verið teknar upp
við Breta um Hatton Rockall og hafa
embættismenn landanna þegar hist
einu sinni. Frekari fundir eru ráð-
gerðir í haust.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að hann hafi tekið málið
upp við John Prescott, varaforsætis-
ráðherra Bretlands, þegar þeir hitt-
ust á Þingvöllum síðastliðið sumar og
á fundi hans með Robin Cook, utan-
ríkisráðherra Bretlands, í febrúar
hefði orðið að samkomulagi að sér-
fræðingar landanna myndu hittast til
að ræða málið.
Fundað í mars og aftur í haust
„Viðræður embættismanna land-
anna fóru fram í London 23. mars,“
segir Halldór. „Voru þær að mínu
mati afar gagnlegar og komu aðilar
sér saman um að halda þeim áfram á
haustmánuðum. Báðir aðilar gera sér
grein fyrir því að til þess að ná sam-
komulagi í málinu þurfa hinir tveir
aðilamir, Færeyjar og írland, einnig
að koma að því.“
Halldór segir að í utanríkisráðu-
neytinu hafi verið talið tímabært,
m.a. í ljósi þróunar mála á undanföm-
um árum, að koma aftur á viðræðum
milli aðila Hatton Rockall-málsins,
þ.e. Islands, Færeyja, Bretlands og
Irlands, og endurmeta stöðu þess.
Breyttar forsendur
„I því sambandi má nefna í fyrsta
lagi að landgrunnsnefndin hefur
nýverið tekið til starfa á grundvelli
hafréttarsamningsins, sett sér starfs-
reglur og samþykkt tæknilegar og
vísindalegar viðmiðunarreglur," seg-
ir Halldór. „Nefndin er nú reiðubúin
til að taka á móti greinargerðum frá
strandríkjum um mörk landgrunns
þeirra utan 200 mílna. í öðm lagi eru
nú þrír af fjórum aðilum Hatton
Rockall-málsins, þ.e. ísland, írland
og Bretland, aðiíai- að hafréttarsamn-
ingnum og því með sameiginlegan
lagalegan grundvöll. í þriðja lagi hef-
ur, sem kunnugt er, náðst töluverður
árangur á undanförnum árum í af-
mörkun hafsvæða á Norðaustur-Atl-
antshafi og hafa ísland, Bretland og
Færeyjar meðal annars komið þar
við sögu. Síðast en ekki síst hefur að
undanfömu orðið vart við aukinn
áhuga olíufélaga á Hatton Rockall
svæðinu, m.a. hér á landi."
Samkvæmt ákvæðum hafréttai’-
samningsins gerir landgrunnsnefnd-
in tillögur um ytri mörk landgrunns
(þ.e. gagnvart alþjóðlega hafsbotnin-
um). Þegar um ytri mörk land-
grunnssvæðis er að ræða, sem tvö
eða fleiri ríki gera kröfu til, er hugs-
anlegt að þau hafi samstarf við fram-
lagningu greinargerða til land-
grunnsnefndarinnar.
Landgrunnsnefndin fjallar hins
vegar ekki um afmörkun landgrunns
milli tveggja eða fleiri ríkja. Þetta er
staðfest í starfsreglum nefndarinnar.
Viðkomandi ríki fara því sjálf með af-
mörkun landgrunns sín á milli og
nefndin má ekki gera neitt sem hefur
áhrif þar á.
Þarf samkomulag’ um skiptingu
eða sameiginlega nýtingu
Halldór segir að annars vegar sé
ljóst að nást þurfi niðurstaða um af-
mörkun ytri marka landgrunnsins á
Hatton Rockall-svæðinu, á grundvelli
tillagna landgrunnsnefndarinnar, og
hins vegar að aðilar þurfi að ná sam-
komulagi um skiptingu svæðisins sín
á milli eða um að svæðið verði sam-
eiginlegt nýtingarsvæði.
„Málið er býsna flókið og viðbúið
að erfitt verði að finna lausn á því,“
segir Halldór. „Við munum ekki láta
okkar eftir liggja í því efni, enda er
hætt við því að nái aðilar ekki sam-
komulagi muni kostnaðarsamar
greinargerðfr aðila til landgrunns-
nefndarinnar verða unnar fyrir gýS
og hugsanlegar auðlindir á svæðinu
liggja ónýttar í jörðu.“
Rockall er granítklettur í Atlants-
hafí, um 400 kílómetra norðvestur af
Irlandi. Bretar slógu eign sinni a
klettinn árið 1955. Kletturinn er að-
eins um 100 metrar að ummáli og
óbyggður. í Rockall-troginu svokall-
aða er nú talið vera eitt mest spenn-
andi olíuleitarsvæði í okkar heims-
hluta.
Krafa byggð á hafréttarsamn-
ingi Sameinuðu þjóðanna
Kletturinn leikur stórt hlutverk í
deilum Islands, Færeyja, Bretlands
og írlands um fiskveiðilögsögu og
hafsbotnsréttindi. ísland gerir kröfu
til víðáttumikils svæðis á landgrunn-
inu, sem nær allt suður undir fimw-
tugasta breiddarbaug. Krafa íslands
er byggð á hafréttarsamningi Sam-
einuðu þjóðanna, meðal annars
ákvæðum um „eðlilega framleng-
ingu“ landsvæðis strandrílds að ytri
mörkum landgrunnsins. Kröfugerð
íslands byggist á að fundnar séu ræt-
ur landgrunnshlíðarinnar og dregin
lína 60 sjómflur þar fyrir utan, eins og
hafréttarsamningurinn heimilar.
I Sérblöð í dag ' MS>
BÍÓBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖGUM
MEÐ Morgun-
blaðinu í dag er
dreift blaði frá
Sólheimum í
Grímsnesi,
„Hreindís".
s mmm
Ríkharður og Auðun með tilboð frá
Lokeren/Bl,B5
Guðmundur skoraði fyrsta markið
í Kef lavík/B8
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is