Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI EFA leiðir Kaupás hf. í nýja samsetningu leiðandi eigenda og farfjárfesta Liður í að styrkja sam- keppni á mat- vörumarkaði Kaup Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn, EFA, á öllum hlutabréfum í Kaupási hf. er framhald á þróun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum hjá þeim félögum sem mynda Kaupás. Grétar Jiiníus Guðmunds- son kannaði bakgrunn þessa máls. Morgunblaðið/Þorkell C«ri» svo vd! Nóatún 17 þar sem fyrsta Nóatúnsverslunin var opnuð á árinu 1965. TILBOÐ Eignarhaldsfélagsins Al- þýðubankinn, EFA, í öll hlutabréf Kaupáss hf. er tilkomið fyrir tilstilli íslandsbanka F&M, að sögn Gylfa Ambjörnssonar, framkvæmdastjóra EFA. Tilboðið er liður í því að gera Kaupás hf. að almennu hlutafélagi og skrá það á Verðbréfaþingi ís- lands. Gylfi sagði að bankinn hafi kannað vilja EFA til að koma inn í það ferli svo og hvort áhugi væri á kaupum EFA á hlut í félaginu. Nið- urstaðan úr því var að tilkynnt var í síðustu viku um tilboð EFA í öll hlutabréf í Kaupási hf. Gylfi vildi ekki gefa upp hvaða fjárhæðir væru í tilboðinu. Einar Örn Jónsson, stjórnarfor- maður Kaupáss hf., vildi ekki tjá sig um tilboð EFA á þessu stigi að öðru leyti en því að félagið hafi falið Is- landsbanka F&M að vinna að þessu máli og útkoman úr því hafi verið til- boð EFA, sem félagið samþykkti. Hann sagði þó að salan á Kaupási nú væri eðlileg í framhaldi af þróun sem hafi átt sér stað allt frá því að Nóa- tún eignaðist helmingshlut í 11-11- verslununum á árinu 1996 á móti Kaupfélagi Arnesinga. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er salan á hlutabréfum Kaupáss hf. gerð í góðu samstarfi við Þorstein Pálsson, framkvæmda- stjóra félagsins annarra, sem að mál- inu koma. Tilkynnt að stefnt skyldi að skráningu Stjórnir Nóatúns, 11-11 og Kaup- félags Arnesinga samþykktu í mars á síðasta ári að sameinast og mynda keðju verslana á höfuðborgarsvæð- inu og Suðurlandi undir nafninu Kaupás. Þá var þegar tilkynnt að stefnt skyldi að þvi að setja hið nýja félag á almennan hlutabréfamarkað og að Joað yrði skráð á Verðbréfa- þingi Islands. Sameiningin varð að veruleika 1. maí á síðasta ári. Is- landsbanki F&M annaðist ráðgjöf til handa verslununum varðandi sam- eininguna og var einnig falið að vinna að því að félagið verði skráð á hlutabréfamarkað. Reynt var að fá fleiri til samstarfs Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fóru viðræður fram milli eigenda Nóatúns, Kaupfélags Ár- nesinga, KEA og Kaupfélags Suður- nesja haustið 1998 um hugsanlega sameiningu þessara verslana auk 11- 11-verslananna. Tilraunum þar að lútandi var hins vegar hætt um ára- mótin 1998/1999 og ákveðið að leggja þessar hugmyndir til hliðai’. I fram- haldinu hófust hins vegar viðræður milli Nóatúns og Kaupfélags Ames- inga í febrúar 1999, sem leiddu til framangreindrar ákvörðunar mán- uði síðar um sameiningu þeiira í Kaupási. Samstarf verslananna tveggja hófst þó fyrr, eða á árinu 1995 er þau stofnuðu innkaupafyrir- tækið Búr, sem sér um innkaup á nýlenduvörum fyrir verslanirnar. Sama ár keypti Kaupfélag Árnes- inga 11-11-verslanimar og ári síðar keypti Nóatún síðan helmingshlut í þeim af Kaupfélaginu. Mikilvægt að eyða óvissu Gylfi Arnbjörnsson sagði að hug- myndir eigenda Kaupáss hf. og EFA um með hvaða hætti félagið ætti að fara inn á hlutabréfamarkað hafi ekki alveg farið saman. EFA vildi kaupa stærri hlut en Kaupás hafði í byrjun hugsað sér að selja. Upphaf- legar hugmyndir Kaupáss hf. vom að selja einungis um 20-30% hlut í fé- laginu. Það varð hins vegar úr að EFA gerði tilboð í öll hlutabréf fé- lagsins. Gylfi sagði að það hafi verið gert því það væri mat EFA að mikil- vægt sé fyrir væntanlega fjárfesta að ekki ríki óvissa um hverjir verði helstu eigendur félagsins. Hlutverk EFA er að leiða félagið inn í aðra samsetningu, mynda hóp fjárfesta, bæði leiðandi eigenda og fagfjár- festa, sem síðan munu standa saman að skráningu Kaupáss hf. á hluta- bréfamarkaði á næsta ári. Gylfi sagði að EFA vildi sjá ákveðna þætti klár- aða áður en félagið yrði sett á al- mennan markað. Það væri mikilvægt til að minnka áhættu, en Ijóst væri að félagið muni fara í skráningu. Skrán- ing Kaupáss hf. á hlutabréfamarkaði muni stuðla að því að styrkja sam- keppni á matvörumarkaði. Samstarf við erlenda aðiia hugsanlegt Aðspurður um hvort til greina komi að leita til erlendra fjárfesta sagði Gylfi að ekkert væri útilokað í þeim efnum, þó viðræður um slíkt hafi ekki farið fram. Hann sagði ís- land hluta af umhverfinu. Sam- keppni á matvörumarkaði væri hörð og skynsamlegt væri að eiga mjög náið samstarf við erlenda aðila. Sam- starf við erlenda aðila komi því vel til greina. Hann bætti við að fjárfestar erlendis væru í vaxandi mæli að sjá að ísland væri áhugaverður kostur fyrir fjárfestingar, hér væri mikill hagvöxtur, menntunarstig lands- manna væri hátt og samfélagið fram- arlega á öllum mælikvörðum. EFA hefur átt samstarf við erlenda aðila á A Ití i einu r !■ 1 Ljósritari/prentari AR-161 • 16 eintöká mínútu • Afritastærð stærst A3 • Frumritastærð stærst A3 • Minnkun & stækkun 50% - 200% • Sjálfvirk lýsing afrita • Sérstök Ijósmyndastilling • 250 blaða pappírsskúffa • 100 blaða sjálfvirkurframhjámatari • 600 x 600 dpi upplausn • 1200 x 1200 með “smoothing" • Aukabúnaður: Prentaratengi, netkort, frumritamatari, rafrænn raðari, verkaðskiljari, 2 x 250 blaða skúffa RdDIOfMUST Glerárgötu 32 • Síml 462 3626 Morgunblaöið/Þorkell 11-11 við Grensásveg, önnur af fyrstu tveimur klukkuverslununum hér á landi, opnuð árið 1991. öðrum sviðum og það mun án efa aukast. Gamalgróin fyrirtæki verða almenningshiutafélög Fram kom hjá Gylfa að hugsunin að baki þessari sölu sé á vissan hátt svipuð og þegar FBA og Kaupþing keyptu 75% eignarhlut í Hagkaup, Bónus og tengdum félögum í júní 1998. Markmiðið með þeim viðskipt- um var að brúa bilið og aðstoða við umbreytingu á gamalgrónu fjöl- skyldufyrirtæki í almenningshluta- félag. Nóatún er gamalgróið fjölskyldu- fyrirtæki. Jón Júlíusson opnaði fyrstu Nóatúnsverslunina í Nóatúni 17 í Reykjavík í október 1965. Önnur Nóatúnsverslun bættist við á árinu 1973. Frekari fjölgun verslana varð síðan ekki fyrr en á árinu 1988 en í dag er fjöldi þeirra samtals 11 á höf- uðborgarsvæðinu. Kaupfélag Árnesinga er enn eldra en Nóatún en það var stofnað árið 1930. Kaupfélagið hóf mikla sókn á matvörumarkaði á árinu 1994 og upp frá því fór verslunum þess að fjölga. Velta verslunarsviðs félagsins á ár- inu 1994 var um einn milljarður króna en hún var komin upp í um 2,7 milljarða á árinu 1998. Með þátttöku Kaupfélags Árnesinga í Kaupási hf. 1. maí á síðasta ári hætti Kaupfélagið þar með sjálft verslunarreksti. Svip- aðar breytingar hafa átt sér stað varðandi flest kaupfélögin í landinu á undanförnum árum og einungis örfá þeirra eru enn í verslunarrekstri. Mikligarður, sem var í eigu Sam- bandsins sáluga, opnaði fyrstu tvær 11-11-verslanirnar í Reykjavík á ár- inu 1991. Þar var um nýjung að ræða á matvörumarkaði með svonefndum klukkuverslunum. Markmiðið með þeim var upphaflega að ná til þeirra sem ekki koma í stórmarkaði og eiga erfitt með að koma á hefðbundnum opnunartíma verslana. Heildarfjöldi verslana Kaupáss hf. er 41, þai- af eru 11 Nóatúnsverslan- ir, 16 verslanir undir merkjum 11-11 og 13 verslanir Kaupfélags Árnes- inga. Þessu til viðbótar rekur Kaup- ás lágvöruverslunina Kostakaup á Selfossi. Heildarfjöldi starfsmanna er um 1.000 í um 700 stöðugildum. Velta Kaupáss hf. á síðasta ári var um 10 milljarðar króna. Til saman- burðar má geta þess að velta Baugs var um 25 milljarðar króna, en þar inní er einnig sérvara, s.s. fatnaður. Hvað er kostgæfnisúttekt? Tilboð EFA um kaup á hlutabréf- um í Kaupási hf. var skilyrt af EFA hálfu og mun endanleg niðurstaða liggja fyrir síðar í þessum mánuði. í fréttatilkynningu frá EFA frá síð- astliðnum föstudegi segir að fram til þess tíma verði unnið að kostgæfnis- úttekt á félaginu. Kostgæfnisúttekt vísar til hugtaksins tilhlýðileg kost- gæfni (e.: Due Diligence). Um til- hlýðilega kostgæfni segir í upplýs- ingahandbók Verðbréfaþings ís- lands að það sé hugtak sem „snúist um ábyrgð þeirra sem veita upplýs- ingar á því að þær séu áreiðanlegar og nægjanlegar. Að gerð skráning- ar- og útboðslýsinga koma margs konar sérfræðingar og er þeim ætlað að sjá til þess að upplýsingarnar sem fram koma séu tæmandi og fullnægi þeim stöðlum sem settir eru fyrir slíka upplýsingagjöf‘. Að sögn Gylfa Arnbjörnssonar munu starfsmenn EFA vinna þann hluta kostgæfnisúttektarinnar er varðar viðskiptalega þætti í starf- semi Kaupáss hf. en vinna sérfræð- inga verður keypt að varðandi aðra þætti. Hann sagði EFA hafa beitt þeirri aðferð á undanförnum árum í æ ríkari mæli að ganga fyrst frá til- boðum, þegar um kaup á félögum eða fyrirtækjum er að ræða, en fara síðan í skoðun á því hvort þær upp- lýsingar sem fram koma af hálfu seljenda séu réttar. Þetta hafi sparn- að í för með sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.