Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAI 2000 55
Skák í Vesturheimi
SKAK
New York
NEW YORK OPEN
5.-11. maí 2000
ALÞJÓÐLEG skákmót í Banda-
ríkjunum eru venjulega skipulögð
með öðrum hætti en víðast hvar ann-
ai’s staðar. Þar eru að öllu jöfnu há
verðlaun í boði, en hins vegar þurfa
allir keppendur, atvinnumenn jafnt
sem áhugamenn, að greiða sjálfir all-
an þann kostnað sem til fellur vegna
þátttökunnar. Kostnaður áhuga-
manna við að taka þátt er töluvert
hærri en atvinnumanna, en það sem
vegur hinsvegar upp á móti því er að
verðlaun í áhugamannaílokkum eru
geysihá eða líkt því sem gerist á
bestu atvinnumannaskákmótum í
öðrum löndum! Eitt skýrasta dæmið
um þetta er sigur dönsku skákkon-
unnar Christine Jorgenssen, en hún
er gift bandaríska stórmeistaranum
Nick DeFirmian, fyrir nokkrum ár-
um í áhugamannaflokki opna móts-
ins í Fíladelfíu. Með sigrinum vann
hún sér inn það væna summu að full-
yrða má að fáir eða enginn atvinnu-
skákmaður á Norðuriöndum hafí
þénað jafn mikið og hún á einu móti á
því ári! Annað sterkt einkenni
bandarískra móta er hversu fáum
dögum er varið í að ljúka þeim. Oft
lýkur 9 umferða opnu móti á 4-5 dög-
um. Sem betur fer fyrir margan
skákmanninn voni fleiri dagar, eða
alls sjö, nýttir til að ljúka opna mót-
inu í New York í ár. Einn af íslensku
stórmeisturunum tók þar þátt og
stóð sig með prýði.
Þröstur Þórhallsson fékk 6 vinn-
inga af 9 mögulegum og lenti í 16.-40.
sæti. Gengi Þrastar hefur verið
skrykkjótt að undanförnu en von-
andi nær þessi góða frammistaða
hans að gefa honum byr undir báða
vængi íyrir enn stærri sigra á kom-
andi misserum. Stærsti vinningur
sem honum tókst að innbyrða var
gegn stórmeistaranum Alexander
Shabalov, en kraftmikil taflmennska
Þrastar í skákinni vakti mikla at-
hygli á mótinu. Shabalov þessi er
með u.þ.b. 2.600 skákstig og er Letti
að uppruna, en eins og svo margir
sterkir skákmenn frá fyrrum lýð-
veldum Sovétríkjanna fluttist hann
búferlum til Bandaríkjanna skömmu
eftir fall járntjaldsins og hefur síðan
telft undir fána Bandaríkjanna.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Alexander Shabalov
Sikileyjai-vöm
1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 - cxd4
4. Rxd4 - e5 5. Rb5 - d6 6. c4 - Be7
7. Be2 -f5 8. exf5 - Bxf5 9. Be3
9. Bg5 er annar athyglisverður
möguleiki
9. - Rf6 10. Rlc3 - a6 11. Ra3 -
0-0 12. 0-0 - Dd7?!
Svartur verður að tefla af ná-
kvæmni og hugkvæmni til þess að fá
mótspil fyrir veikingarnar á d5 og d6
punktunum. Jafnframt verður hann
að geta vakið svartreita biskup sinn
til lífsins með einum eða öðrum
hætti. Helsta von svarts til þess að fá
mótspil er að hefja árásir á kóngs-
væng hvíts og nýta sér d4-reitinn
þegar færi gefst. Textaleikurinn er
ekki nógu kraftmikill til þess að færi
svarts verði nýtt. Annaðhvort var
betra að bíða með að ákveða hvar
drottningin eigi að vera með að leika
12. - Hc8 eða að leika 12. - De8 og
svara 13. Rd5 með 13. -Dg6 eins og í
skák stórmeistaranna Christopher
Lutz - Vladimir Kramnik 1996.
13. Rc2 - Hae8 14. Rd5 - Bd8
Venjulega vill svartur að hvítur fái
peð á d5 þar sem þá hverfur sterki
punktur hvíts á d5 og d6-peðið verð-
ur ekki lengur veikt. Vandamálið
viðl4. - Rxd5 15. cxd5 er hinsvegar
að þá á riddarinn á c6 ekki gott með
að hörfa á góðan reit.
15. Rxf6+ gxf6?
Aívarleg taktísk yfirsjón sem hvít-
ur færir sér í nyt til hins ýtrasta. Eft-
ir 15. - Bxf6 stendur svartur traust,
en passíft.
16. Bh6! - HU 17. Re3! -Bg6
Með þessu tapar svartur skipta-
mun. 17. - Rd4 hefði hugsanlega ver-
ið skárra en eftir 18. Rxf5 - Rxe2+
19. Dxe2 - Dxf5 20. Hadl er frum-
kvæðið í höndum hvíts.
18. c5! - dxc5 19. Bc4 - Rd4 (Sjá
stöðumynd í næsta dálki.)
Þó að hvítur vinni núna skiptamun
verður hann að tefla af fítonskrafti
til þess að viðhalda og auka frum-
kvæði sitt. Að öðrum kosti mun
svartur standa ákjósanlega að vígi.
Fyrsta skrefið í að takmarka mótspil
svarts er að ráðast á peðamiðborðs-
keðju hans og því markmiði er náð
með næsta firnasterka leik hvíts.
20. f4! - exf4 21. Bxf7+ - Kxf7 22.
Bxf4 - Bc7 23. Bxc7 - Hxe3 24. Bg3
- Dd5 25. Hf2!
Afbragðs varnarleikur sem ver
aðra reitaröðina ákaflega vel. Eftir
þetta fjarar mótspil svarts hægt og
sígandi út.
25. - De6 26. Khl - h5 27. Dd2 -
Kg7 28. Hafl - Hd3 29. Df4 -Rf5 30.
Hf3 - Hd7 31. b3 - h4 32. Bf2 - b6
33. Hel - Dc6
Hvítt hefur bætt vígstöðu sína
með markvissum hætti og nú er tími
til að láta til skarar skríða.
34. Dg4!
Fellur ekki í gildruna 34. Bxh4 -
Hd4!. Textaleikurinn þvingar fram
fall annaðhvort h-peðs svarts eða
riddarans á f5 og með því hrynur
svai-ta staðan til grunna. Svartur
ákvað að reyna á taktískt auga hvits
með því að reyna að halda riddaran-
um á f5. Hinsvegar varð honum ekki
kápan úr þvi klæðinu að hvítur léti
slíkt tækifæri framhjá sér fara.
34. - Hd5 35. Hxf5! - Hxf5 36.
He7+ - og svartur gafst upp þar sem
eftir 36. - Kf8 37. Dxg6 - Kxe7 38.
Dxf5 er hvítur manni yfir.
Hannes á Kúbu
Eftir stórkostlegan sigur Hannes-
ar Hlífars á Reykjavíkurskákmótinu
hélt hann til Kúbu til að taka þátt í
minningarmóti um Capablanca.
Hannes fór illa af stað í mótinu og
tapaði fyrstu þremur skákunum.
Hann er hins vegar að ná sér á strik
á nýjan leik og fór taplaus í gegnum
4.-8. umferð. Hann hefur því smám
saman verið að vinna sig upp töfluna
og er nú einungis hálfum vinningi á
eftir sex skákmönnum sem eru í 5,-
10. sæti. I níundu umferð tefldi hann
við skákmanninn í 14. og neðsta sæti,
kúbverska stórmeistarann Reinaldo
Vera (2.546).
Kasparov teflir í Sarajevo
Bosna 2000 skákmótið í Sarajevo
hófst 16. maí og lýkur 29. maí. Þetta
er eitt af sterkustu skákmótum árs-
ins og sjálfur Gary Kasparov er með-
al þátttakenda. Einni umferð er lok-
ið og urðu úrslit þessi:
Kiril Georgiev - Sergei Movsesian 1-0
Gary Kasparov - Etienne Bacrot 1-0
Alexander Morozevich - Mikh. Gurevich 1-0
Alexei Shirov - Michael Adams '/ir-'-k
Ivan Sokolov - Evgeny Bareev '/t-'h
Nigel D. Short - Veselin Topalov 0-1
Jóhann sigrar á
mánaðarmótum TG
Urslit mánaðarmóta TG fóru fram
15. maí (undanúrslit og úrslit). Þar
sem Bjöm Jónsson var efstur á stig-
um eftir forkeppnina fékk hann að
velja hvorn þeirra (Jóhann eða
Kjartan), sem lentu í 3. og 4. sæti,
hann fengi sem andstæðing. Björn
valdi Kjartan og þess vegna mættust
í undanúrslitum Björn Jónsson -
Kjartan Thor Wiktfeld og Leifur I.
Vilmundarson - Jóhann H. Ragnar-
sson. Tefldar voru 5 skákir og Björn
og Leifur höfðu hvítt í oddaskák. Um
þriðja sætið voru einnig tefldar 5
skákir en 7 um efsta sætið. Urslit
urðu eftirfarandi:
Undanúrslit:
Björn - Kjartan 3-0
Leifur - Jóhann 1-3
3. sæti:
Leifur - Kjartan Z'/t-'h
1. sæti:
Björn - Jóhann 1-4
Frá Skákfélagi Akureyrar
Vetrarstarfi Skákfélags Akureyr-
ar er að ljúka, og úrslit í þrem síð-
ustu mótum félagsins hafa verið
þessi:
Coca-Cola-hraðskákmótið. 1. Ólaf-
ur Kristjánsson, 12 v. af 14, 2. Gylfi
Þórhallsson, 10 v. 3.-4. Smári Ólafs-
son og Jón Björgvinsson 8V2 v.
Fischer-klukkumót 3+2: 1. Hall-
dór Brynjar Halldórsson, 14'/2 v. af
18, 2. Þór Valtýsson, 13 v. 3. Stefán
Bergsson, 12 v.
15 mínútna mót: 1. Ólafur Krist-
jánsson, 6 v. af 7, 2. Guðmundur
Gíslason, 6 v., lægri á stigum, 3. Jón-
as Jónasson, 5 v. 4.-5. Þór Valtýsson
og Sigurður Eiríksson, 4'/2 v. 6.-8.
Haraldur Baldursson, Halldór B.
Halldórsson og Stefán Bergsson, 4 v.
Uppskeruhátíð félagsins var hald-
in 14. maí þar sem veitt voru verð-
laun fyrir tímabilið frá áramótum.
Baldur Möller sigrar á atkvöldi
Baldur Möller sigraði á maí-at-
kvöldi Taflfélagsins Hellis, fékk 5?L_
vinning í 6 skákum. Tefldar voru 3
hraðskákir og þrjár atskákir. Röð
efstu manna varð þessi:
Baldur Möller, 5'/2 v.
2.-4.
Vigfús Ó. Vigfússon, Finnur Kr.
Finnsson, Sigurjón Kjæmested, 4 v.
5. Öm Ragnarsson, 3'/2 v.
6. -9. Benedikt Öm Bjarnason,
Grímur Daníelsson, Halldór Heiðar
Hallsson, Þórður Ingólfsson, 3 v.
o.s.frv.
Aðalfundur Grandrokk
Aðalfundur Skákfélags Grand®-
rokk var haldinn laugardaginn 13.
maí. Hrafn Jökulsson, forseti félags-
ins, fór yfir síðasta starfsár og rakti
helstu stórræði sem Grandrokk hef-
ur staðið í. Hæst ber sigur liða fé-
lagsins í 3. og 4. deild, og er stefnan
að vinna sæti í 1. deild næsta vetur
en þá sendir félagið þrjú lið til
keppni í jafnmörgum deildum.
Nokkrir sterkfr skákmenn hafa
gengið til liðs við félagið upp á síð-
kastið, m.a. Elvar Guðmundsson,
Einar K. Einarsson og Ólafur B.
Þórsson. Þá hefur Grandrokk efnt til
fjölda sterkra hraðskákmóta og hafa
hátt í þrjátíu stórmeistarar frá
mörgum löndum tekið þátt í þeim.
Fyrsta meistaramót Grandrokk í at- ~
skák var haldið á síðasta ári og sigr-
aði Dan Hansson með glæsibrag.
Dan, sem var drifkraftur við stofnun
félagsins fyrir tveimur árum, lést 20.
ágúst í íyrra, aðeins 47 ára og var
hans minnst með lófataki af fundar-
mönnum. Skákfélag Grandrokk hef-
ur ákveðið, í samvinnu við veitinga-
staðinn Grandrokk, að efna til
alþjóðlegs minningarmóts um Dan,
og verður það að öllum líkindum
haldið í haust.
í stjórn Skákfélags Grandrokk
voru kjörnir Hrafn Jökulsson foi^r'
seti, Róbert Harðarson varaforseti,
Kjartan Guðmundsson ritari,
Hrannar Jónsson gjaldkeri, Birgir
Berndsen, Hjálmar Blöndal og Karl
Hjaltested.
Skákmót á næstunni
19.5. SÍ. íslandsmót grunnskóla-
sveita.
20.5. SÍ. Aðalfundur Skák-
sambandsins.
21.5. SI og Síminn-Intemet.
Mátnetið.
26.5. Skákþing Norðlendinga.
26.5. Skákskólinn. Meistaramót.
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsso®
Aðalfundur Þroskaþjálfa-
félags íslands
verður haldinn á Hóte! Sögu A-sal laugardag-
inn 20. maí kl. 13.00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
Að loknum aðalfundi verður úthlutað úr
Minningarsjóði Guðnýjar Ellu Sigurðardóttur.
Stjórn Þroskaþjálfafélags íslands.
TÓNUSMRSKÓU
KÓPWOGS
Skólaslit
Tónlistarskóla Kópavogs verður slitið í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs, laugardaginn 20. maí
kl. 14.00. Að athöfn lokinni verður opið hús
í skólanum til kl. 16.30.
Skólastjóri.
I N B
SJÓMANNASKÓLINN
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
Skólaslit í dag
Stýrimannaskólanum verður slitið í hátíðarsal
skólans í dag kl. 14.00.
Afmælisárgangar eldri nemenda eru boðnir
sérstaklega velkomnir.
Skólameistari.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Húsnæði óskast til leigu
Fjölskylda óskar eftir einbýlishúsi til leigt
á höfuðborgarsvæðinu frá 1. júlí eða
1. ágúst í að minnsta kosti eitt ár.
Upplýsingar í síma 565 0305.
Norræna félagið
óskar eftir húsnæði
Norræna félagið óskar eftir leigu-
húsnæði í sumar í Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði, Garðabæ, Akranesi, Mos-
fellsbæ, Akureyri og Húsavík.
Alls konar húsnæði kemur til greina.
Nánari upplýsingar fást í síma 551 0165
eða 899 9210.
HUSNÆÐI í BOBI
Fossvogur — raðhús
í einkasölu glæsilegt endaraðhús með bílskúr
við Hjallaland. Húsið sem er um 220 fm er nær
allt endurnýjað. Nýtt eldhús, parket og flísa-
lögð gólf. 5 herbergi, 2 baðherbergi og góðar
stofur. Gott útsýni.
Vatnsholt — 2ja herbergja
Vorum að fá í einkasölu fallega um 60 fm 2ja
herbergja íbúð í kjallara í góðu þríbýlishúsi við
Vatnsholt í Reykjavík. Mjög gott hverfi.
Eignahöllin fasteignasala,
Hverfisgötu 76, Reykjavík,
sími 552 4111. «i