Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 59
UMRÆÐAN
Sjálfstæðir sjóræningjar
ÞAÐ er með eindæmum hvað
fólk hefur gaman af því að reikna
út hvað göng eru fljót að borga sig
þessa dagana. Það er líka með ein-
dæmum hvaða forsendur það gefur
sér. Miðað við það sem ég hef lesið
síðustu daga hefði mátt ætla að
Hvalfjarðargöngin hefðu verið
reiknuð út frá því hversu margir
Akurnesingar og Borgfirðingar
ferðuðust til vinnu á höfuðborgar-
svæðinu og tilbaka sama dag, 5
daga vikunnar. Síðan er heildar-
kostnaði deilt í ferðirnar og fundið
út hvað liðið þarf að hafa í laun til
að borga þetta upp á 50 árum. Síð-
an er tekin tvöföldun á einhverri
framkvæmda. Ef ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar hefði ekki verið svona
ótrúlega vitlaus að dreifa kvótanum
frítt á sínum tíma 1 stað þess að
leigja hann út fyrir um 17 árum
ættu Islendingar miklu meira en
nóg til fjölda framkvæmda á þessa
vegu. Ef við miðum við daginn í
dag þá standa veiðiheimildirnar í
u.þ.b. 270 þúsund þorskígildistonn-
um á ári. Segjum sem svo að kílóið
hefði verið leigt út á 20 kr. á sínum
tíma og allt fram til þessa dags. Út-
koman er 5,4 milljarðar í tekjutap
árlega. Margföldum það með 17 og
við fáum út 91,8 milljarða í tekju-
tap síðustu 17 árin. Ef þetta er ekki
Samgöngumál
Málið snýst einfaldlega
um miklu meira, segir
Krisiján Ragnar As-
geirsson, en íbúa stað-
anna sem um ræðir.
léleg stjórnun á heimsmælikvarða
þá veit ég ekki lengur hvað ég heiti.
Þetta er auðvitað einfaldað stór-
lega, en ef ég færi út í alvöru út-
reikninga með núvirði, framvirði,
vaxtatapi o.s.frv. yrði útkoman enn
hræðilegri fyrir ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar, sem getur að því er
virðist aldrei hætt að monta sig af
því að þeir reki besta kerfl í heimi
til að tapa milljörðum árlega.
Nú myndu margir efast um raun-
hæfi þess að slík leiga geti borgað
sig fyrir útgerðir landsins. Bátar
sem selja heilan fisk myndu fá eitt-
hvað um 80-100 kr. fyrir hann og
það er ágætis framlegð að hafa upp
úr því. Frystitogarar myndu mala
gull því ef við tökum 20 kr. og deil-
um með flakanýtingarstuðlinum
35% fáum við út 57 kr. í hráefnis-
kíló. Ef menn geta ekki rekið fyrir-
tæki sem borgar 57 kr. á kílóið fyr-
ir hráefnið og fær meira en 600 kr.
fyrir afurðina þá ættu þeir ekkert
að vera að standa í rekstri yfir höf-
uð. Það sem hins vegar hindrar *"
framfarir og hagsæld í þessu landi
er röð mistaka Davíðs og félaga,
því núverandi útgerðir liggja með
skuldabagga vegna okurkvóta-
kaupa sem bæði útgerðirnar og
bankarnir sem lánuðu þeim færu
illa út úr ef kerfinu yrði breytt. Því
er spurningin einföld: Hversu
miklu er þjóðin tilbúin að fórna fyr-
ir 2-3 banka og nokkur illa rekin
útgerðarfyrirtæki sem hvort eð er
myndu aftur rísa í nýju kerfi? Eru
fleiri tugir milljarða ekki nóg?
Höfundur er i sumarleyfi frá
Samvinnuháskólanum á Bifröst.
Kristján Ragnar
Ásgeirsson
hraðbraut á höfuðborgarsvæðinu
og deilt í allan fjöldann, eins og all-
ir ferðist þessa leið daglega. Þessar
forsendur voru notaðar í DV
þriðjudaginn 16. maí, mér til mikill-
ar skemmtunar. Það sem skelfir
mig á hinn bóginn er að það er til
fólk sem hugsar svona.
Sem Ólafsfirðingur hef ég mik-
inn áhuga á að fá göng á milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Eg
hef reyndar áhuga á að fá göng og
bættar samgöngur um allt land, en
þessi göng standa mér næst og því
á ég auðveldast með að fjalla um
ágæti þeirra. Málið snýst einfald-
lega um miklu meira en íbúa stað-
anna sem um ræðir. Ef göng kæmu
á milli Siglufjarðar og Olafsfjarðar
myndi ferðamannastraumurinn,
sem venjulega ferðast frá Akureyri
og yfir Öxnadalsheiði á leið sinni
vestur og suður, að verulegu leyti
færast í gegn um Dalvík, Ólafsfjörð
og Siglufjörð, að ógleymdum nær-
liggjandi sveitum. Þetta er mjög
mikilvægt fyrir þessi sveitarfélög
hvað gjaldeyristekjur varðar og
uppbyggingu í ferðaþjónustu. Við
erum að tala um margfaldan fólks-
fjölda þeirra staða sem um ræðir.
Ef horft er til annarra þátta sem
hafa mikil áhrif þá þjónar sjúkra-
húsið á Siglufirði miklu færri í dag
en möguleiki er til. Þarna erum við
að tala um verulegan sparnað í
heilbrigðiskerfinu vegna bættrar
nýtingar sjúkrahússins. Einnig hef
ég þann draum að reisa háskóla á
Ólafsfirði, því þar er mjög gott að
búa á veturna. Skíðaiðkun, vél-
sleðaferðir og ísveiði auk stórglæsi-
legrar íþróttaaðstöðu og sundlaug-
ar er bara hluti af þeim
möguleikum sem bærinn býður upp
á. I stuttu máli: Með því að greiða
leiðina á milli þessara sveitarfélaga
má ná fram sparnaði og hag-
kvæmni í rekstri þeirra sem leiðir
til aukinna vaxtarmöguleika.
Hvað kostnaðinn varðar kjósend-
ur góðir þá getið þið margir sjálf-
um ykkur um kennt að ekki liggi
þegar fyrir fjármagn til svona
QÁroaí
úisÁrifiargjafa
Teg. Edwige
Barbie
Litir: Bláir og hvítir.
Stærðir: 24-33
Verð 2.995,-
Teg. Retaliator
adidas
Litur: Hvítir.
Stærðir: 28-34
Verð 4.995,-
Teg. Aloha
Barbie
Litir: Hvítir og bleikir.
Stærðir: 24-33
Verð 2.995,-
Guru youth
DKNY
Litir: Hvítir og bláir.
Stærðir: 28-35
Verð 4.495,-
Teg. Roebia
adidas
Litur: Blár.
Stærðir: 28-
381/2
Verð
4.995,-
Teg. Ohm youth
DKNY
^ Litir: Bláir og gulir.
jr Stærðir: 28-35
Verð 4.495,-
Teg. 61439
Bull dozer
Litir: Gráir og svartir.
Stærðir: 28-35
Verð 3.995,-
Teg. Sphere
adidas
Litur: Bláir.
Stærðir: 28-35
Verð 4.995,-
•-n %v
Teg. Ambra
Barbie
Litur: Bleikir.
Stærðir: 24-33
Verð 2.995,-
SÍEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Sendum í póstkröfu
D0MUS MEDICA & KRINGLUNNI
SÍMAR: DOMUS 551 8519, KRINGLAN 568 9212