Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Jón Kjart- ansson reynir að landa í Færeyjum RÍKISSÁTTASEMJARI hefur boð- að til fundar á morgun í kjaradeilu starfsmanna fiskimjölsverksmiðja á Norður- og Austurlandi sem nú eru í verkfalli. Jón Kjartansson er á leið til Færeyja með fullfermi af kolmunna. Að sögn Emils K. Thorarensen, út- gerðarstjóra hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar, hefur ASÍ sent systur- samtökum sínum í Færeyjum ósk um að ekki verði landað. Samninganefndir starfsmanna átta fiskimjölsverksmiðja hafa beitt sér fyrir því að ekki verði landað úr ákveðnum skipum í öðrum höfnum en þeim sem verkfallið nær til, en út- gerðarmenn eru ósáttir við það og segir Emil það furðulegt að skipin séu bundin slíkum átthagafjötrum. „Við gengum frá því að fá löndun í Færeyjum fyrir nokkrum dögum, en það kom eitthvað bakslag í það. For- svarsmaður verksmiðjunnar í Fugla- firði hafði samband og sagði að AI- þýðusamband íslands hefði sent systursamtökum sínum í Færeyjum beiðni um stuðning, sem fælist þá í því að landa ekki úr skipinu. En for- ystumenn Alþýðusambandsins hér á landi gáfu nú út að landað yrði úr skipum sem voru byrjuð að veiða áð- ur en verkfall skall á.“ Bagalegt að draga úr kolmunnaveiðum Emil segir það bagalegt fyrir ís- lendinga ef ekki verður hægt að veiða kolmunna af fullum krafti, þar sem að verið sé að undirbúa kröfur hjá Evrópusambandinu um kvóta í kol- munnastofninum. „Við erum að reyna að vinna okkur rétt áður en kol- munnastofninum verður skipt upp og veiða sem mest. Okkur er ekki ætlað- ur stór hlutur frá Evrópusamband- inu.“ Hann telur öruggt að fleiri skip verði send á veiðar og að látið verði reyna á löndun að veiðiferð lokinni. 16 ára fangelsi fynr að bana manni HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og dæmt Þórhall Ölver Gunnlaugsson, 42 ára Reykvíking, í 16 ára fangelsi fyrir að bana Agnari Wilhelm Agn- arssyni, 48 ára, á heimili þess síðar- nefnda á Leifsgötu 28 aðfaranótt 14. júlí á síðasta ári. í dóminum kemur fram að Þór- hallur Ölver hafi banað Agnari með því að stinga hann með hm'fi eða hníf- ^i^im mörgum sinnum í brjósthol, bæði framan og aftan frá. Hæstiréttur segir að þegar skoðuð séu annai-s vegar ummerki á vettvangi og áverk- ar á líkinu og hins vegar lítilfjörlegir áverkar á Þórhalli Ölveri þyki sannað að hann hafi veist að Agnari Wilhelm á hrottalegan hátt og sú aðför hljóti að hafa leitt til dauða hans. Þórhallur Ölver viðurkenndi átök við Agnar, en dró þann framburð sinn til baka. Hæstiréttur benti á að Þórhallur Ölver hefði margsinnis viðurkennt fyrir lögreglu að hann hefði banað Ágnari Wilhelm og hafði hann fyrir aðalmeðferð málsins staðfest skýrslu þess efnis fyrir dómi. Hæstiréttur segir að af læknis- fræðilegum gögnum málsins megi ráða að fíkniefnaneysla ákærða, ásamt persónuleikaröskun, hafi haft áhrif á gerðir hans. Hæstiréttur vís- aði til þess, að samkvæmt hegningar- lögum á það ekki að hafa áhrif á refs- ingu ákærða að verknaðurinn var framinn undir áhrifum ííkniefna. -------------------- Flestir vilja búa í Hafnar- fírði en fæstir á Högunum Arni Friðriksson RE 200 til heimahafnar í fyrsta sinn Morgunblaðið/Sverrir Hafrannsdknaskipin Árni Friðriksson og Dröfn sigla saman inn í Reykjavíkurhöfn. Hafrannsóknastofnun fær nauðsynlega aðstöðu VIÐ komu nýja hafrannsóknaskips- ins Áma Friðrikssonar RE 200 til Reykjavíkur í gær lýsti Ámi Þór Sigurðsson, formaður stjórnar Reykjavíkurhafnar, því yfir að í breytingum sem framundan væm við austurhöfnina yrði Hafrann- sóknastofnuninni, skipum hennar og útgerð, séð fyrir þeirri aðstöðu sem hún þyrfti á að halda til að sinna hlutverki sínu. Árni Friðriksson er rnjög fullkom- ið rannsóknaskip. í því er fellikjölur sem hægt er að slaka þrjá metra nið- ur fyrir fastan kjöl skipsins. I honum er botnstykki fyrir bergmálsmæli- tæki sem notuð em við stofnmæling- ar á uppsjávarfiskum. Með tilkomu þessa búnaðar verður unnt að berg- málsmæla stofna uppsjávarfiska í mun verra veðri en áður var mögu- legt- Þetta gjörbreytir allri aðstöðu til bergmálsmælinga, ekki síst að vetrarlagi þegar veður em válynd. Öflugur fjölgeislabergmálsmælir verður í skipinu. Skipið hefur mikinn togkraft sem gerir því kleift að athafna sig með veiðarfæri á djúpslóð. Á siðustu missemm hefur athyglin meðal ann- ars beinst að Suðurdjúpi og Reykja- neshrygg en á því svæði hafa íslend- ingar mikilla hagsmuna að gæta. I skipinu eru þrjár togvindur. Því verður unnt að toga með tveimur botnvörpum í einu en við það batnar öll aðstaða til veiðarfærarannsókna. Skjöldur frá Reykjavíkurhöfn Með tilkomu þessa nýja og full- komna rannsóknaskips munu mögu- leikar til rannsókna á umhverfi sjáv- ar og nytjastofnum aukast verulega. Sérstaklega á það við um úthaf og djúpmið við landið. Ámi Þór sagði að framtíð austur- hafnarinnar, þar sem m.a. Miðbakk- inn er, hefði verið talsvert til um- fjöllunar að undanförau og ráðgert væri í samstarfi ríkissljómar og borgarstjórnar að skipuleggja tón- Iistar- og ráðstefnuhús á mörkum hafnar og miðborgar. Fyrir hönd Reykjavíkurhafnar bauð Árni Þór Áraa Friðriksson vel- kominn til heimahafnar, afhenti Guðmundi Bjamasyni skipsstjóra skjöld frá Reykjavíkurhöfn og ósk- aði áhöfninni, Hafrannsóknastofnun og landsmönnum öllum til hamingju með þetta glæsilega skip. ■ Þetta er stór stund/40-41 FÆSTIR vilja búa á Högunum í Reykjavík en flestir í Hafnarfirði, að því er fram kemur í könnun Gall- ups á viðhorfi til höfuðborgarinnar sem unnin var fyrir Samvinnunefnd svæðisskipulags höfuðborgarsvæð- isins. Sögðust 9,4% helst vilja búa í Hafnarfirði en 0,4% á Högunum. Nefndu 69,5% svarenda staðsetn- ingu húsnæðis, umhverfi og svæði sem þá þætti sem mestu máli skipta við val á húsnæði. Þá töldu 79% ná- lægð við skóla skipta miklu máli við val á húsnæði, 77% nálægð við úti- ' 'ýistarsvæði og 75% að verslanir séu í nágrenninu. Næstum 88% höfuð- borgarbúa telja ólíklegt að þeir kaupi húsnæði við mikla umferðar- götu jafnvel þótt þeim líkaði húsið. Mikil afföll af húsbréfum valda yfírvöldum áhyggjum Ráðherrar kalla til sam- ráðsfundar vegna málsins að hækka vextina stöðugt, en vextirnir á húsbréfunum hafa ver- ið óbreyttir. Lífeyrissjóðirnir eru ólmir að huga að útlöndum og virðast fremur kjósa að fjárfesta þar. En vextir húsbréfanna hafa sem sagt ekki fylgt vöxtum Seðla- bankans eða vöxtunum á mark- aðnum sem hafa verið spenntir upp.“ Eitthvað óeðlilegt gerst „En í framhaldi af þessum áhyggjum eða þessum breyting- um, munum við á morgun [í dag] efna til fundar félagsmálaráðu- neytis, fjármálaráðuneytis, Ibúða- lánasjóðs, Lánasýslu ríkisins og Seðlabanka til þess að fara yfir málið og bera saman bækurnar um hvað hægt sé að gera, því þetta ástand er ómögulegt. Og í kjölfarið ætlum við að reyna að hafa samband við markaðinn og reyna að fá eitthvert samkomulag í gang,“ sagði félagsmálaráðherra. Hann sagðist ekki sjá fyrir sér á þessari stundu tii hvaða aðgerða ætti að grípa, en hins vegar væri óhjákvæmilegt að snúa þessari þróun við. „Það hefur eitthvað gerst sem er mjög óeðlilegt. Það er ástæða til að benda á að húsbréfin eru mjög góð eign. Þetta eru bréf með ríkisábyrgð og eru miklu traustari en mörg þau bréf sem eru að selj- ast á háu verði á markaði og eru fyrst og fremst bara fjárfesting í einhverjum óljósum draumum. En þarna er um ríkisábyrgð að ræða.“ Páll segir að sú mikla þensla sem verið hefur á húsnæðismark- aði á höfuðborgarsvæðinu geti haft þarna áhrif, en þenslan stafi af mikilli kaupmáttaraukningu undanfarið og þjóðflutningum inn- anlands til höfuðborgarsvæðisins. MIKIL afföll hafa verið af húsbréfum undanfarið og hefur verið boðað til samráðsfundar félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra og fjármálastofnana vegna þessarar þróunar. í gær voru afföll af 40 ára húsbréfum 19,3% og 14% afföll af 25 ára bréfum. í janúar í fyrra var yfirverð á sömu bréfum 7,4% og 4,4% og í upphafi þessa árs var yfirverð 1-2%. Þessi háu afföll af húsbréfum valda því að eigendur húsbréfa tapa nú umtalsverðum fjárhæðum, en það hefur óhjákvæmilega áhrif á fasteignamarkaðinn. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að þetta væri sannarlega áhyggjuefni og sér- staklega hvernig þróunin hefði breyst. „Allt síðasta ár voru húsbréf án affalla og sþundum voru þau seld á yfirverði. í apríl voru afföllin 7- 10%, en eftir því sem ég best veii hafa þau verið komin upp í 15-17% í gær. Orsakirnar eru væntanlega þær að Seðlabankinn hefur verið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.