Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 51
I MORGUNBLAÐIÐ________________________________________________________FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 51 MINNINGAR SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR + Sigrún Sigurðar- dóttir fæddist á Siglufirði 23. desem- ber 1942. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 10. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Bjarn- veig Þorsteinsdóttir húsmóðir, f. 18.6. 1909, d. 11.3. 1984, og Sigurður Magnús- son múrarameistari, f. 12.1. 1913, d. 8.8. 1996. Systkini Sig- rúnar eru Sigurður matreiðslumeistari, f. 26.10. 1931, Hanna Stella, f. 27.11. 1935, d. 21.12. 1996, Aðal- heiður Ósk meinatæknir, f. 27.4. 1947, og Kristín Ingibjörg meina- tæknir, f. 22.7. 1949. Sigrún ólst upp á Siglufirði en fluttist síðan tii Akureyrar á menntaskólaárum sínum. Hinn 27. nóvember. 1965 giftist Sigrún Baldvini S. Ottóssyni, aðal- varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík, f. 4.4. 1944, og fluttu þau sama ár til Reykjavíkur. For- eldrar hans eru Þórlaug Baldvins- dóttir verslunarmaður, f. 3.11. 1922, og Ottó Valdimarsson raf- magnsverkfræðingur, f. 19.7. 1926, d. 13.12. 1998. Sigrún og Baldvin slitu samvistum. Börn þeirra eru: 1) Helga Rut Elsku mamma. Takk fyrir allar dýrmætu stundirnar sem við áttum saman þessa síðustu mánuði. Takk fyrir jólin og þá sérstaklega áramótin sem við eyddum saman og fögnuðum nýrri öld. Takk fyrir allar ömmustundirnar með bömunum mínum með tilheyr- andi ferðum í húsdýragarðinn, í „búð- ina okkar“ og allar nætumar sem elskumar litlu dvöldu hjá þér. Takk fyrir allan stuðninginn og ónefndan fjölda matarboða sem komu sér oft vel þegar við Halli vomm í námi. Takk fyrir alla þolinmæðina, traustið og skilninginn á unglingsár- unum. Takk fyrir bemskuna á Langholts- veginum og litla bróður. Takk fyrir lífíð sem þú gafst mér. Dóttlan þín, Helga. Sigrún Sigurðardóttii- var þekkt- asta óþekkta manneskja í Reykjavík sem ég vissi um. Hún bjó yfír miðils- gáfu og stundaði huglækningar um árabil, lengst með móttöku í Síðumúla 33 og var oft kölluð Sigrún í Síðumúl- anum. Signín auglýsti aldrei starf- semi sína og hún neitaði öllum beiðn- um um að koma í viðtal, hvort sem var í útvarp eða blöð. A hinn bóginn var mikil ásókn í að fá tíma hjá henni en hún taldi það ekki hafa tilgang að bóka sig meira en sex vikur fram í tímann. Bráðatilfellum sinnti hún hins vegar strax ef þvi varð við komið. Sigrún hafði símaviðtalstíma tvisvar í viku og „göngudeild," sem hún kallaði svo, þar sem fólk fékk skyndiaðhlynn- ingu. Að öðru leyti tók símsvarinn við skilaboðum og þau gátu orðið mörg, ekki síst þegar voveiflegir atburðir höfðu gerst hvar sem var á landinu. Sigrún sagðist hafa fengið skyggni- gáfuna frá móður sinni og fram eftir ævi litið á hana sem óþægindi. Með aldrinum sótti þessi hæfileiki hins vegar á hjá henni og hún fékk skýr skilaboð frá þeim, sem „komu í gegn“ að hún yrði að nýta þessa gáfu öðrum til hjálpar eða hafa ella verra af. Hún tók þá á sig þessa kvöð og gekk henni á hönd heil og óskipt. Sá starfstími hennar varð nokkuð á annan áratug. Sigrún var að upplagi jarðbundin manneskja, raunsæ, skynsöm og kunni að öllu leyti fótum sínum vel forráð. Hún var hégómalaus og gætti þess að verða ekki sett á stall. Hvað var það þá sem hún gerði, hvað var það sem fólk sótti til hennar? Fyrir óinnvígða er erfítt að svara því til hlítar og enn síðui- gagnvart þeim, sem líta skyggnigáfu homauga og Baldvinsdóttir, við- skiptafræðingur og forstöðumaður hjá EUROPAY íslandi, f. 5.10. 1968, hennar maki var Hallgrímur Jónsson viðskipta- fræðingur, f. 22.6. 1966, börn þeirra eru Daníel Smári, f. 9.11. 1990, og Elísa Rut, f. 26.10. 1992.2) Sigurður Birgir Baldvinsson, lög- reglumaður hjá lög- reglunni í Reykja- vík, f. 23.10. 1973, sambýliskona hans er Erika Erna Cubero húsmóðir, f. 8.6. 1972, börn þeirra eru Alexander Bald- vin, f. 30.9. 1998, og óskírður son- ur, f. 9.4.2000. Sigrún starfaði á fyrstu hjú- skaparárum sínum hjá gullsmið- unum Laugavegi 32 og um tíma á bókasafni Tónlistarskólans í Reykjavík. Hún gerðist síðan sjálfstæður atvinnurekandi og var það allt til dauðadags. Sigrún gekk í ITC árið 1977 og gegndi meðal annars embætti forseta, varaforseta, ritara og ráðsfull- trúa. Hún var einnig meðlimur í JC og Samfrímúrarareglunni. Útför Sigrúnar verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. jafnvel sem blekkingar einar. Fólk leitaði til Sigrúnar með veikindi sín, andleg sem líkamleg, yfirleitt ekki sem valkost gagnvart heilbrigðiskerf- inu, heldur sem viðbót við þjónustu lækna og hjúkrunarfólks þegar úr- ræði þess nægðu ekki. Sigrún sendi fólk umsvifalaust til læknis ef hún taldi þess þörf. Fólk sótti þó mjög til hennar og hún lýsti fyrir því hvar í lík- ama þess hún sæi veilur með innri augum sínum. Við tóku þeir, sem unnu í gegnum hana, og á meðan ræddi hún um heima og geima og oft um sjálfa sig eða svaraði spumingum fólks. Vinnuaðferðir Sigrúnar voru eðlis- líkar þeim, sem menn eins og Einar á Einarsstöðum og Ólafur Tryggvason, kenndur við Hamraborg á Akureyri, notuðu, og fjöldi Islendinga hefur leit- að eftir. Mér er kunnugt um ýmis til- felli þar sem ein heimsókn til Sigrún- ar var talin hafa læknað einstakling, eða átt verulegan þátt í bata, að hans eigin sögn eða hans nánustu. Aðrir leituðu eftir að fá tíma með reglulegu millibili „til að halda sér gangandi" eins og þeir orðuðu það. Það leiðir af sjálfú sér að illa haldið fólk á sál og líkama sótti mjög stíft í að ná fundi hennar eða símasambandi við hana þannig að hún varð að hafa sitt öryggisnet la-ingum sig. Hins vegar voru vinnudagar hennar gríð- arlega langir meðan starfskraftarnir entust. Nær allir komu ánægðir af fundi hennar, einstaka manneskja kom þó ekki ánægð. Það tengdist gjaman því að viðkomandi vildi láta hana taka fyrir sig ákvarðanir. Það gerði Sigrún ógjaman. Henni var heldur ekki um það að segja fyrir óorðna hluti. Hún taldi sig ekki spá- konu og sagði einnig aðra sér hæfari að finna týnda hluti. Hins vegar virtist hún geta skyrgað fólk hvar sem það var niður komið og lýst ástandi þess, oft með því að nefna liti sem hún tengdi fólkinu. Þá gat hún sent fjarstöddu fólki hjálp og líkn og það var verulegur þáttur í starfi hennar. Jafnvel kom fyrir að hringt væri í hana frá útlöndum með beiðni um hjálp. Það segir svo nokkuð um þá trú, sem fólk hafði á hæfileikum henn- ar, að til hennar leitaði fólk, sem stundaði það að hjálpa öðmm en var síðan sjálft hjálparþurfi. Um u.þ.b. tveggja ára skeið um miðjan þennan áratug hafði Sigrún samkomur, bænahringi, sem fóm fram í húsakynnum Þroskaþjálfa- skólans við Skipholt. I upphafi sóttu þær samkomur um 40 manns en yfir 90 í lokin, sumir langar leiðir að. Þeg- ar til lengdar lét tóku þessar sam- komur of mikið á krafta Sigrúnar þannig að hún varð að hætta þeim. Fjöldi fólks kom til Sigrúnar einu sinni eða í örfá skipti og fékk úrlausn mála sinna eða taldi hana ekki geta gert meira fyrir sig. Við fleiri komur og nánari kynni kafaði hún dýpra of- an í vitund viðkomandi. Þá komu fram skýringar á ástandi og líðan gestsins aftan úr fortíðinni sem og tengingar við fólk frá fyrri lífsskeið- um. Fyrir henni var það sjálfsagt mál að fólk hefði lifað áður á jörðinni og bæri með sér fortíð sína. Það stangað- ist ekki í huga hennar á við einlæga kristna trú hennar og tilbeiðslu á Jesú Krist. Kunnugt er að miðilsstarf er afar slítandi fyrir Ukama jafnt og huga þeirra sem það stunda í verulegum mæli. Heilsa Sigrúnar var léleg lengst af ævinnar og fólk eins og hún virðist ekki geta fengið þá hjálp fyrir sjálft sig sem það getur veitt öðrum. Fyrir um hálfu ári greindist hún með krabbamein sem nú hefur lagt hana að velli. Ég á Sigrúnu mikið að þakka, bæði fyrir hjálp fyrir mig og mína og fyrir margra ára vináttu. Jafnframt var hún mér sífellt undrunarefni vegna hinna sjaldgæfu hæfileika manns- andans sem hún bjó yfir. Hún gaf mér í ýmsu nýja sýn á tilveruna. Ég flyt Sigrúnu og ástvinum henn- ar blessunaróskir okkar hjóna. Matthias Eggertsson. Veðradimmur vetur er að baki. Þungri þraut er létt. Baráttu við ill- vígan sjúkdóm lokið. Þessi glaðlynda kona, sem hafði það að leiðarljósi í líf- inu að gefa meira en hún tók, tekm- ekki á móti fieirum í litla herberginu í Síðumúla. Hún var ekki há í loftinu og lífs- gæðakröfur hennar í samræmi við það. Hennar auðæfi voru á allt öðru sviði. Og þar var hún risavaxin. Þeim verðmætum fá hvorki mölur né ryð grandað. Við þökkum Sigrúnu samveruna og vottum ættingjum hennar okkar dýpstu samúð. Kristín og ÓIi Hilmar. Kæra Sigrún, það er komið að kveðjustund og margs að minnast. Við höfum verið samferðamenn í meira en tuttugu ár. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Málfreyjunum, en sá félagsskapur heitir nú ITC. Það var skemmtilegt í þá daga, er við þeyttumst vítt og breitt um landið. Við vorum í sérstakri kynningar- nefnd og nokkrar skemmtilegar ferð- ir fórum við líka til annarra landa. Síðar stofnuðum við Steingeitar- klúbb, ásamt Patriciu Hand, en það er vinahópur, sem hefur það að mark- miði að halda sameiginlega upp á af- mælin sín með því að fara „flott“ út að borða. Það var í desember sl., sem við héldum þessa hátíð í tuttugasta sinn með því að fara á Borgina í jólahlað- borð, nema hvað? Það var létt yfir hópnum að vanda og við skiptumst á litlum afmælispökkum, eins og við er- um vanar. Þú gafst okkur alltaf litla viskubók, það var fastur punktur og þér líkt að vilja næra sál okkar. Við hlökkuðum alltaf til þessa dags og vorum eins og smástelpur, svo kátar og áhyggjulausar. Aðeins þú ein, af okkur stöllum, sem nú hlógu svo dátt, vissir, að vágestur hafði barið að dyr- um, en þú kaust að bera harm þinn í hljóði. Steingeitarklúbburinn verður aldrei samur án þín og viskubækum- ar ekki fleiri, - en þær sem við eigum frá þér eru þeim mun dýrmætari. Og leiðir okkar tveggja lágu saman á þriðja vettvanginum og var það í Al- þjóða Sam-Frímúrarareglunni. Hinn 25. apríl 1992 var stúkan Sindri í Alþjóða Sam-Frímúrararegl- unni Le Droit Humain stofnuð og var Sigrún stofnfélagi. Nú er leiðir okkar skilja um stund minnumst við stúku- systkini þín alh'a góðu samverustund- anna, sem við fengum að njóta með r 3lómabúðirí > öarSskom . v/ T'ossvo^skii’Ujugarci . Símó 554 0500 þér. Það var lengi von okkar að þú ættir eftir að vera með okkur á ný, en þú varst búin að vera fjarverandi vegna veikinda og það er ekki svo langt síðan við vissum hve alvarleg þau voru. Það var ekki tilviljun að þú gekkst í reglu okkar, hún höfðaði svo til þín, þú varst djúpt hugsandi kona, sterk, en samt svo ljúf og hógvær. Við biðj- um góðan Guð að varðveita og styrkja bömin þín, Helgu og Sigga, bama- böm og tengdadóttur, svo og aðra ættingja og vini og tek ég þá Baldvin sérstaklega fram. Við minnumst okk- ar kæra stúkusystur, Sigrúnar Sig- urðardóttur, með þökk og virðingu. Nú ertu leidd, mín ljúfa lystigarðDrottinsí, þaráttuhvíldaðhafa hörmunga’ og rauna fn', við Guð þú mátt nú mæla, miklufegriensól unanogeilífsæla erþínhjálambsinsstól. (H. Pétursson.) F.h. stúkusystkinanna í stúkunni Sindra, Sjöfn Siguijónsdóttir. Ein af okkur sem vorum í Mál- freyjudeildinni Kvisti fyrir rúmum 20 áram, Sigrún Sigurðardóttir, er látin. Við höfðum haft fregnir af alvarleg- um veikindum hennar sl. haust er hún gat ekki mætt á fund okkar gullkvist- arkvenna. Ein fyrsta minning um hana Sig- rúnu rifjast nú upp en það er ljós- mynd er birtist í Morgunblaðinu þar era konur að gróðursetja tré í Heið- mörk í lundi er nefnist Freyjulundur en þann reit höfðu málfreyjur fengið útthlutað. Þar var Sigrún í forgranni myndarinnar á peysufötum með stunguskóflu í höndum. Þetta var 30. ágúst 1980 og hún var þá nýkjörin forseti I Ráðs. Sigrún hlúði vel að þessum gróðurreit sem og okkar litlu samtökum er óðum vora að stækka en hlutverk samtakanna var að efla konur til félagslegrar þátttöku sem og þroska til mannlegra samskipta. Þessi samtök era upprunnin í Banda- ríkjunum og era starfrækt um heim allan undir heiti ITC, Intemational Training in Communication, Sigrún var stofnaðili að mfd. Kvisti í janúar árið 1977. Allt fræðsluefni var á ensku og þurfti því að þýða það yfir á ís- lensku. Sigrún lagði hönd á plóg og vann að þessu ásamt fleirum, en það var mikið og erfitt verk. Þegar Sigrún var forseti I Ráðs 1980-1981 var kjörorð hennar .Áfram við höldum frá draumi til veraleika". Samtökin stækkuðu og efldust með hverju ári og æ fleiri kon- ur gengu til liðs við samtökin. Þar fór heimskona sem stýrði þessum ráðs- fundum, félagsmálin vora flutt bæði á íslensku og ensku vegna enskumæl- ^ andi kvenna er búsettar vora hér á landi og áttu aðild að samtökunum, stjóm fundanna fór henni vel úr hendi. A einn fundinn mætti frú Hilda Firer frá Suður-Ameríku en hún var verðandi heimsforseti samtakanna og tókst með þeim Sigrúnu góður vin- skapur upp frá því, var aðdáunarvert hvað Sigrún var fær að túlka á milli tungumálanna. Vegna embættisins ferðaðist Sigrún utan á ráðstefnur og er heim kom var hún uppfull af fróð- leik er hún miðlaði til okkar hinna. Sigrún var gift Baldvini Ottóssyni og eignuðust þau tvö börn. Þau^ bjuggu á Langholtsvegi 102 og oft vora haldnir fundir á þeirra fallega og hlýleg heimili. Er hún var spurð hvort eiginmaðurinn væri ekki orðinn þreyttur á þessu félagsstússi hennar kom svarið rólegt og yfirvegað: Hann Balli minn hefur fullan skilning á þessari þörf minni að láta gott af mér leiða. Seinna skildi leiðir þeirra. Sigrún starfaði í hlutastarfi utan heimilis við skrifstofustörf. Seinna á lífsleiðinni fékk hún köllun til að liðs- inna veiku fólki með lækningamætti sínum. Hélt hún stofu í þeim tilgangi og ófá sporin vora farin inn á spítala hér í borg til að lina þrautir þeirra sem veikirvora. Ein úr hópnum okkar fór á hennar fund vegna asma. Sigrún sagði að er- lendur læknir kæmi að kvöldi þess sama dags, um nóttina var hvíslað í eyra viðkomandi að taka í burtu koddann því það væri fiðurkoddi og væri hann ein af orsökunum. Varð skjótur og góður bati og er sárt til þess að hugsa að þeir sem hafa slíkan mátt til að bera að lækna sjúka geti ekki fengið þá lækningu sjálfum sér til handa. Nú að leiðarlokum færam við Sig- , rúnu okkar bestu þakkir fyrir allt og ‘ allt. Sofðu, raín Sigrún ogsofðunúrótt. Guðfaðirgefi góðaþérnótt. (JónThoroddsen.) Friður guðs þig blessi. Við vottum bömum, bamabömum og öðram aðstandendum okkar dýpstu samúð. F.H. kvenna í Gullkvisti, Lísbet Bergsveinsddttir. VesturhKð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst aila þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins ^JtARy^ með þjónustu allan £ ljKT sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja ¥ UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yflr áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederikscn útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.