Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
'
FRÉTTIR
Skattrannsóknarstjóri rannsakar hrossaútflutning íslenskra fyrirtækja
í í
Y ísbendingar um
undanskot fyrir hendi
RANNSÓKN stendur nú yfir hjá skattrannsókn-
arstjóra rikisins á allstórum hópi fyrirtækja, sem
hafa hestaútflutning að aðalstarfi. Skúli Eggert
Þórðarson skattrannsóknarstjóri sagði að rann-
sóknin hefði hafist í kjölfarið á því að upplýsingar
bárust frá erlendum ríkjum um útflutning hrossa
frá Islandi.
„Það er of snemmt að segja til um hvort þær
grunsemdir, sem verið hafa, séu á rökum reistar,“
sagði hann. „En vísbendingar um undanskot eru
engu að síður fyrir hendi.“
Skúli Eggert sagði að upp'lýsingarnar hefðu
meðal annars komið frá yfirvöldum í Þýskalandi,
en einnig frá fleiri löndum.
Beinist aðeins að atvinnustarfsemi
Hann sagði að einnig væri verið að rannsaka
þjónustu, sem tengdist þessari atvinnustarfsemi,
en tók fram að ekki væri verið að rannsaka út-
flutning, sem ekki teldist atvinnustarfsemi, til
dæmis þegar maður flytti út eitt eða tvö hross.
Að sögn Skúla Eggerts eru rannsóknirnar um-
fangsmiklar og í eðli sínu tímafrekar og því
ósennilegt annað en að þær taki nokkra mánuði.
Skúli Eggert kvaðst ekki vilja nefna neinar upp-
hæðir, en hann gæti þó slegið því föstu að þýskur
rannsóknannaður, sem hefði tjáð sig um þetta
mál, hefði verið glannalegur í yfirlýsingum.
Skúli Eggert var þar að vísa til ummæla Wolf-
gangs Dudda, sem stjórnar rannsókninni á út-
flutningi til Þýskalands í Slésvík-Holtsetalandi,
Mecklenburg, Brandenburg og Berlín. Dudda
sagði í febrúar að hann hefði rannsakað innflutn-
ing á mörg hundruð hestum til Þýskalands og rétt
verð hefði ekki verið gefið upp í einu einasta til-
felli. „Eg get fullyrt að þegar farið er yfir gögn um
sölu íslenskra hesta til Þýskalands eru meiri líkur
á að finna fjögurra laufa smára en tollskýrslur þar
sem rétt söluverð á hestum er gefið upp,“ sagði
Dudda um rannsóknina í nóvember.
Undrast framkomu
starfsbróður íÞýskalandi
„Ég held að þetta séu mjög óvarleg ummæli og
óverðskulduð í garð heillar atvinnugreinar, þó að
það kunni að vera eitthvað athugavert hjá hópi
manna,“ sagði hann. „Mig undrar sú framkoma,
sem þessi maður hefur sýnt í garð íslenskra aðila,
bæði óbilgjörn gagnrýni á yfirvöld og á þá aðila,
sem era í þessari atvinnustarfsemi. Ég vil alls ekki
taka undir slíka sleggjudóma."
Skúli Eggert sagði að skattrannsóknarstjóra-
embættið hefði ekki sent mikið af upplýsingum til
Þýskalands, enda væri ríkistollstjóraembættið
tengiliðurinn við þýsk tollyfirvöld. Skattrannsókn-
arstjóraembættið hefði hins vegar átt mjög gott
samstarf við ríkistollstjóraembættið.
Konungur Jórdaníu
í opinbera heimsókn
ABDULLAH II, konungur Jórdan-
íu, og Rania drottning koma í opin-
bera heimsókn til íslands dagana
26.-27. maí nasstkomandi í boði for-
seta íslands, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. í íor með konungshjónunum
verða börn þeirra tvö, Hussein prins
og Iman prinsessa, ásamt ráðherr-
um úr ríkisstjórn Jórdaníu og fjöl-
mennu föruneyti.
Dagskrá heimsóknarinnar hefst
með móttökuathöfn á Bessástöðum
og viðræðum Jórdaníukonungs og
forseta Islands. Jafnframt munu
ráðherrar úr fylgdarliði konungs
eiga fundi með íslenskum starfs-
bræðrum sínum.
A fyrri degi heimsóknarinnar mun
konungur m.a. kynna sér íslensk há-
tæknifyrirtæki. Hann heimsækir
höfuðstöðvar íslenskrar erfðagrein-
ingar og síðar um daginn kynna ís-
lensk hugbúnaðarfyrirtæki konungi
og sendinefnd hans starfsemi sína.
Þá mun konungur gera grein fyrir
þeim möguleikum sem íslenskum
fyrirtækjum bjóðast í Jórdaníu, seg-
ir í frétt frá skrifstofu forseta Is-
lands. Rania drottning, sem lagt hef-
ur áherslu á menntun og málstað
bama, mun eiga fund með forstjóra
Barnaverndarstofu og jafnframt
fræðast um það hvernig staðið er að
umferðarfræðslu fyrir yngstu veg-
farendur. Fyrri degi heimsóknarinn-
ar lýkur með hátíðarkvöldverði að
Bessastöðum.
Síðari dag heimsóknarinnai’ verð-
ur haldið til Svartsengis. Þar fá kon-
ungshjónin og fylgdarlið þeirra
stutta fræðslu um jarðfræði og jarð-
sögu Islands og kynnt verður starf-
semi orkuversins. Þá munu fulltrúar
frá Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóð-
anna gera grein íyrir starfi skólans.
Þaðan verður farið í Bláa lónið og
aðstaða þar skoðuð en síðan halda
konungshjónin og fylgdarlið af landi
brott.
Reuters
Von er á Abdullah Jórdaniukonungi og Rainu drottningu í opinbera
heimsókn til Islands dagana 26. og 27. maí næstkomandi.
Utanríkis-
ráðuneytið
semur við
Alþjóða-
bankann
SAMSTARFSSAMNINGUR
milli utanríkisráðuneytisins
annars vegar og Alþjóðabank-
ans (World Bank), Alþjóða-
stofnunarinnar um fjárfesting-
arábyrgðir (MIGA) og Al-
þjóðalánastofnunarinnar
(IFC) hins vegar verður undir-
ritaður í dag.
Samningurinn felst í því að
hér á landi muni verða fastur
starfsmaður sem hafi það hlut-
verk að kynna möguleika ís-
lendinga til að taka að sér störf
fyrir þessar alþjóðastofnanir
eða í samvinnu við þær í þeim
löndum sem þær veita aðstoð.
Þjálfun hjá
Alþjóðabankanum
Viðskiptaþjónusta utanríkis-
ráðuneytisins (VUR) er form-
legur umsjónaraðili með þessu
samstarfsverkefni og mun
ráðuneytið greiða laun starfs-
mannsins, en hann mun fá alla
þjálfun og aðstoð frá Alþjóða-
bankanum og starfa í nánum
tengslum við hann. Eins og
fyrr segir verður samningur-
inn undirritaður í dag.
Bygging íbúða í
Reykjavík 1997-99
1999
: 1 herb. 1 1 0
2 herb. 89 30 47
3 herb. 209 111 116
4 herb. 101 152 159
5 herb. 85 99 105
6 herb. 53 81 85
7 herb. 11 78 77
Samtals 549 551 589
Ekkijafn-
mikið byggt
í fermetrum
síðan 1989
EKKI hefm’verið byggt jafnmikið og
á síðasta ári, í fermetrum talið, í
Reykjavík síðan 1989. Þetta kemur
fram í yfirliti um byggingarfram-
kvæmdir sem byggingarfulltrúi
Reykjavíkur hefur tekið saman.
I fyira voru byggðir yfir 200.000
fermetrar en rúmlega 270.000 árið
1989. Stærsti hlutinn nú er íbúðai’-
húsnæði og svipað hlutfall er milli
verslunar- og skrifstofuhúsnæðis og
iðnaðar- og verslunarhúsnæðis.
Byggðar voru 598 íbúðir í fyrra en
551 íbúð 1998 og 549 íbúðir 1997.
Meðalstærð íbúða í fyrra var 354 fer-
metrar sem er fjórum fermetrum
stærra en árið 1998. í smíðum um
áramótin voru alls 633 íbúðir og þar
af voru 205 fokheldar eða meira. Á ár-
inu var hafin bygging á 565 íbúðum.
-----------f-4-*-----
Tíföld eftir-
spurn í útboði
Húsasmiðj-
unnar
YFIR 8.000 manns skráðu sig fyrir
hlutaféí Húsasmiðjunni í opnu hluta-
fjárútboði með áskriftafyrirkomu-
lagi sem lauk hjá Íslandsbanka-FBA
kl. 16 í gær. Útboði með tilboðsfyrir-
komulagi lýkur síðdegis í dag.
í boði voru 15% hlutaíjár Húsa-
smiðjunnar, sem eru 42.105.396 kr.
að nafnverði. Gengið í útboðinu var
18,35, og því heildarverðmæti þeirra
bréfa sem í boði voru 772,6 milljónir
kr. Þátttakendurnir í útboðinu
skráðu sig fyrir tæpum átta milljörð-
um kr. og var því rúmlega tíföld eft-
irspurn eftir hlutafé fyrirtækisins.
Islandsbanki-FBA var umsjónar-
aðili útboðsins.
FerÖShandbækur
Hvort sem þú ætlar að ferðast í eigin persónu eða i
huganum þá eru ferðahandbækur ótæmandi fróðleiks-
náma. Ótal kort, áhugaverðar og öruggar ferðaleiðir, upp-
lýsingar um gistíngu og veitingastaði, yfirlit um sögu og
menningu - hvað viltu vita? Mikið úrval af ferðahand-
bókum t.d. frá Lonely Planet, Turen gár til... og Fodor's.
Exploring Israel
Turen gártílúapan
Erlendar bækur
daglega
w Eyniundssoii
Austurstræti 5111130» Kringiunni 533 1130 • Hafnarfirði 555 0045
Líklegt að Byggða-
stofnun flytji næsta ár
STJÓRN Byggðastofnunar ræddi á
síðasta fundi sínum þann möguleika
að flytja starfsemi stofnunarinnar til
Sauðárkróks og segir Kristinn H.
Gunnarsson, fonnaður stjórnarinn-
ar, að stofnunin muni flytja innan árs
þegar ákvörðun liggur fyrir um
flutninginn. Málið var ekki afgreitt á
síðasta fundi þar sem beðið var um
frestun, en Kristinn segir að ákvörð-
un verði tekin á næsta fundi.
Kristinn segist sjálfur vera fylgj-
andi því að stofnunin verði færð út á
landsbyggðina og telur að hugur
stjórnarmanna standi til þess.
„Ég sé þetta fyrir mér þannig að
menn myndu ákveða þetta með
nokkrum fyrirvara og miðuðu við að
flutningur yrði um garð gepginn inn-
an árs, eða eftir u.þ.b. ár. Ég bendi á
að Lánasjóður landbúnaðarins var að
opna á dögunum á Selfossi og þá var
liðið ár frá því að ákveðið var að flytja
hann. Og síðan er rétt að gefa starfs-
mönnum rúman tíma til að bregðast
við og útvega sér vinnu ef þeir hafa
ekki hug á því að flytja, og hjálpa
þeim þá við það eftir atvikum."
Hagkvæmnisrök benda
á Sauðárkrók
Að sögn Kristins þykir stjóminni
að mörgu leyti ákjósanlegur tími til
að skoða flutning núna. Gott atvinnu-
ástand sé á höfuðborgarsvæðinu og
jafnframt sé greinilega hagkvæmt að
flytja. Fasteignaverð sé gott hér fyr-
ir sunnan og gott að selja eignir en
fasteignaverðið sé tiltölulega lágt úti
á landi. Þannig muni húsnæðiskostn-
aður lækka verulega og stofnunin
geti losað eignir með sölunni.
Kristinn segist jafnframt telja
eðlilegt að Byggðastofnun sé á sínu
starfssvæði, sem er landsbyggðin og
ekkert óeðlilegt að starfsmennimir
séu í því umhverfi sem þeir eiga að
vera talsmenn fyrir.
„Og þegar menn velta því fyrir sér
hvar eigi að velja stað á landsbyggð-
inni þá er svona augljóslega hag-
kvæmast að setja hana niður þar sem
að þegar er þriðjungurinn af starf-
seminni. Þannig að hagkvæmnisrök
benda á Krókinn. Á Sauðárkróki
verða þeir einnig í nánu sambandi við
Akureyringa, sem er auðvitað höfúð-
staður landsbyggðarinnar.“
í dag starfa rúmlega 20 manns hjá
Byggðastofnun.
í:
I