Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
IF0RRETT VILJUW VI£) FÁ SÆNSKAR KJOTgOLLUR, UTLAR B0LLUR Á 06 AÐALRETTUR-iSÆNSKAR KJÖTB0UUR . t INN? r} MEÐ NÚ6LUM! SÓSAN [ L ER FRÁBÆR.. j 1 ÁEFTIR Y SÆNSKAR ) HVAÖ 6ETE6 t ? r-L kjotbollur^sert? rettaer r&zét /AFMÆUÐ ,r— jSl E6FÆ ÍHANS ALDREI S )
mÆá. ^ SrMgS -^v l-A \ /\ |
Ferdinand
Smáfólk
borða með fjölskyldunni í stað
En hugulsamt af þér,
flaska af tannkremsgosi.
þess að borða einn hérna úti.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reylgavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hitamælingar
Gísla fréttamanns
á Akureyri
Frá Sigurði Þór Guðjónssyni:
í FRÉTTUM sjónvarpsins fyrir
skömmu lofaði Gísli fréttamaður
mjög veðurblíðuna þann daginn á
Akureyri. Hann sagði að það hafi
verið nánast logn og 25 stiga hiti.
Hitinn á veðurstöðinni á Akureyri
var hins vegar ekki mældur meiri
en 21 stig.
Þó er hitamælaskýlið á malbiki
og uppfyllir því strangt tiltekið
ekki þá staðla sem settir eru fyrir
lögiltar hitamælingar. Mælingarn-
ar þar sýna því líklega of mikinn
hita á sólríkum dögum. Þá vaknar
hin brennandi spurning: Hvaðan í
ósköpunum kom Gísla sú viska að
25 stiga hiti hafi verið í bænum?
Munurinn á þeim hita og hámarks-
hitanum á malbikinu á veðurstöð-
inni er fjögur stig sem er of mikill
til að einhver glóra sé í því. Svo
heitt hefur varla orðið á milli húsa
í miðbæ Akureyrar nema geislun
hafi leikið um mæla. Og þetta er
ekki í fyrsta sinn sem Gísli kemur
með hitamælingar frá Akureyri
sem eru hreinlega út í hött. Jafn-
vel mælirinn frægi á ráðhústorginu
hefur ekki við honum. Þó er sá
mælir alveg örugglega bandvit-
laus. Hann er alltof hástemmdur.
Fátt er eins vonlaust og hitamælir
sem sýnir mörgum stigum of hátt
- já, eða of lágt. Þá er enginn mæl-
ir betri. Það er bara eitt sem er
vonlausara en ruglaður hitamælir.
Það er rígur milli héraða um veðr-
ið. Ailir landshlutar eiga sína góðu
og vondu veðurdaga, sitt sérstaka
veðurfar. Bestu dagarnir á Akur-
eyri eru með þeim heitustu sem
gerast hér á landi. Þeir eru hrein
paradís þó norðansúldin sé að visu
verri en í nokkru helvíti. Þess
vegna ættu bæjarbúar að leggja
metnað sinn í að láta hitamælinn á
aðaltorgi bæjarins greina rétt hita-
stig.
Um fréttaflutning á svo auðvitað
bara ein regla að gilda. Staðreynd-
ir. Fréttir Gísla af veðri fyrir norð-
an, bæði að sumri og vetri, eru
hins vegar þannig að það er því
miður ekki hægt að taka mark á
þeim. Reyndar hef ég oft furðað
mig á því hvernig eiginlega á því
stendur að fréttamenn sem al-
mennt flytja traustar og vandaðar
fréttir, eins og Gísli, missa skyndi-
lega allra átta þegar þeir segja frá
veðrinu. Þá fýkur nákvæmni og
vandvirkni út í veður og vind.
Þetta getur bara ekki gengið si
sona öllu lengur og verður að vinna
á því skjóta bragarbót. Fyrir und-
irritaðan er það alveg sérstaklega
mikið hitamál.
Að lokum vona ég innilega að
hitametið fjúki á Akureyri í sumar
og þrjátíu og fimm stiga múrinn
hrynji eins og hver önnur spila-
borg.
SIGURÐUR ÞÓR
GUÐJÓNSSON,
Skúlagötu 68, Reykjavík.
Helgigöngur á
Þingvöllum
Frá ÞórhalliHeimisSyni:
ÞÁ STYTTIST í Rristnihátíðina
miklu sem haldin verður að Þing-
völlum dagana l.-2r júlí næstkom-
andi. Undirbúningur er í fullum
gangi um allt land og á Þingvöllum
er unnið hörðum höndum að því að
allt verði tilbúið fyrir hátíðina.
Mikilvægt er að vanda allan
undirbúninginn sem best þannig
að allt fari vel. En það er ekki á
færi okkar mannanna að ráða öll-
um hlutum og sama hversu iðnar
og færar hendur starfa að ein-
hverju málefni, þá er starf þeirra
hjóm eitt ef Guð gefur ekki vöxt-
inn.
Þetta veit hópur kvenna sem á
páskahátíðinni hóf bænastarf á
Þingvöllum er mun fara fram alla
helga daga allt þar til er Kristnihá-
tíðin rennur upp. Markmið þess
starfs er að biðja fyrir öllu því sem
fram fer á Þingvölíum á Kristnihá-
tíðinni á komandi sumri og öllum
undirbúningi hátíðarinnar.
Eftir messu í Þingvallakirkju
sem hefst kl. 14.00 er gengið í
helgigöngu frá kirkjunni að
ákveðnum stöðum á Þingvöllum
þar sem einhver hluti hátíðahald-
anna mun fara fram 1. og 2. júlí.
Þar er beðið fyrir því starfi er
tengist staðnum og öllum þeim
sem nærri koma. Einnig er beðið
fyrir íslensku þjóðinni. Gengið er á
þrjá staði hvern sunnudag. Að
göngu lokinni kveðjast göngugest-
ir í Þingvallakirkju. Starfandi
Þingvallaprestur er með í för og
segir frá því sem fyrir augu ber á
göngunni en bænahópur kvenna
leiðir sjálft bænahaldið.
Allir eru að sjálfsögðu velkomn-
ir, ungir sem aldnir, karlar og kon-
ur.
Vonandi sjá sem flestir sér fært
að taka þátt í þessum Helgigöng-
um. Því bænagjörðin er grundvöll-
ur alls undirbúningsins sem fram
fer fyrir Kristnihátíðina í sumar.
SR. ÞÓRHALLUR HEIMISSON,
starfandi sóknarprestur
á Þingvöllum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.