Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
EFA leiðir Kaupás hf. í nýja samsetningu leiðandi eigenda og farfjárfesta
Liður í að
styrkja sam-
keppni á mat-
vörumarkaði
Kaup Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn,
EFA, á öllum hlutabréfum í Kaupási hf. er
framhald á þróun sem átt hefur sér stað á
undanförnum árum hjá þeim félögum sem
mynda Kaupás. Grétar Jiiníus Guðmunds-
son kannaði bakgrunn þessa máls.
Morgunblaðið/Þorkell
C«ri» svo vd!
Nóatún 17 þar sem fyrsta Nóatúnsverslunin var opnuð á árinu 1965.
TILBOÐ Eignarhaldsfélagsins Al-
þýðubankinn, EFA, í öll hlutabréf
Kaupáss hf. er tilkomið fyrir tilstilli
íslandsbanka F&M, að sögn Gylfa
Ambjörnssonar, framkvæmdastjóra
EFA. Tilboðið er liður í því að gera
Kaupás hf. að almennu hlutafélagi
og skrá það á Verðbréfaþingi ís-
lands. Gylfi sagði að bankinn hafi
kannað vilja EFA til að koma inn í
það ferli svo og hvort áhugi væri á
kaupum EFA á hlut í félaginu. Nið-
urstaðan úr því var að tilkynnt var í
síðustu viku um tilboð EFA í öll
hlutabréf í Kaupási hf. Gylfi vildi
ekki gefa upp hvaða fjárhæðir væru í
tilboðinu.
Einar Örn Jónsson, stjórnarfor-
maður Kaupáss hf., vildi ekki tjá sig
um tilboð EFA á þessu stigi að öðru
leyti en því að félagið hafi falið Is-
landsbanka F&M að vinna að þessu
máli og útkoman úr því hafi verið til-
boð EFA, sem félagið samþykkti.
Hann sagði þó að salan á Kaupási nú
væri eðlileg í framhaldi af þróun sem
hafi átt sér stað allt frá því að Nóa-
tún eignaðist helmingshlut í 11-11-
verslununum á árinu 1996 á móti
Kaupfélagi Arnesinga.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er salan á hlutabréfum
Kaupáss hf. gerð í góðu samstarfi við
Þorstein Pálsson, framkvæmda-
stjóra félagsins annarra, sem að mál-
inu koma.
Tilkynnt að stefnt skyldi
að skráningu
Stjórnir Nóatúns, 11-11 og Kaup-
félags Arnesinga samþykktu í mars
á síðasta ári að sameinast og mynda
keðju verslana á höfuðborgarsvæð-
inu og Suðurlandi undir nafninu
Kaupás. Þá var þegar tilkynnt að
stefnt skyldi að þvi að setja hið nýja
félag á almennan hlutabréfamarkað
og að Joað yrði skráð á Verðbréfa-
þingi Islands. Sameiningin varð að
veruleika 1. maí á síðasta ári. Is-
landsbanki F&M annaðist ráðgjöf til
handa verslununum varðandi sam-
eininguna og var einnig falið að
vinna að því að félagið verði skráð á
hlutabréfamarkað.
Reynt var að fá fleiri
til samstarfs
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins fóru viðræður fram milli
eigenda Nóatúns, Kaupfélags Ár-
nesinga, KEA og Kaupfélags Suður-
nesja haustið 1998 um hugsanlega
sameiningu þessara verslana auk 11-
11-verslananna. Tilraunum þar að
lútandi var hins vegar hætt um ára-
mótin 1998/1999 og ákveðið að leggja
þessar hugmyndir til hliðai’. I fram-
haldinu hófust hins vegar viðræður
milli Nóatúns og Kaupfélags Ames-
inga í febrúar 1999, sem leiddu til
framangreindrar ákvörðunar mán-
uði síðar um sameiningu þeiira í
Kaupási. Samstarf verslananna
tveggja hófst þó fyrr, eða á árinu
1995 er þau stofnuðu innkaupafyrir-
tækið Búr, sem sér um innkaup á
nýlenduvörum fyrir verslanirnar.
Sama ár keypti Kaupfélag Árnes-
inga 11-11-verslanimar og ári síðar
keypti Nóatún síðan helmingshlut í
þeim af Kaupfélaginu.
Mikilvægt að eyða óvissu
Gylfi Arnbjörnsson sagði að hug-
myndir eigenda Kaupáss hf. og EFA
um með hvaða hætti félagið ætti að
fara inn á hlutabréfamarkað hafi
ekki alveg farið saman. EFA vildi
kaupa stærri hlut en Kaupás hafði í
byrjun hugsað sér að selja. Upphaf-
legar hugmyndir Kaupáss hf. vom
að selja einungis um 20-30% hlut í fé-
laginu. Það varð hins vegar úr að
EFA gerði tilboð í öll hlutabréf fé-
lagsins. Gylfi sagði að það hafi verið
gert því það væri mat EFA að mikil-
vægt sé fyrir væntanlega fjárfesta
að ekki ríki óvissa um hverjir verði
helstu eigendur félagsins. Hlutverk
EFA er að leiða félagið inn í aðra
samsetningu, mynda hóp fjárfesta,
bæði leiðandi eigenda og fagfjár-
festa, sem síðan munu standa saman
að skráningu Kaupáss hf. á hluta-
bréfamarkaði á næsta ári. Gylfi sagði
að EFA vildi sjá ákveðna þætti klár-
aða áður en félagið yrði sett á al-
mennan markað. Það væri mikilvægt
til að minnka áhættu, en Ijóst væri að
félagið muni fara í skráningu. Skrán-
ing Kaupáss hf. á hlutabréfamarkaði
muni stuðla að því að styrkja sam-
keppni á matvörumarkaði.
Samstarf við erlenda
aðiia hugsanlegt
Aðspurður um hvort til greina
komi að leita til erlendra fjárfesta
sagði Gylfi að ekkert væri útilokað í
þeim efnum, þó viðræður um slíkt
hafi ekki farið fram. Hann sagði ís-
land hluta af umhverfinu. Sam-
keppni á matvörumarkaði væri hörð
og skynsamlegt væri að eiga mjög
náið samstarf við erlenda aðila. Sam-
starf við erlenda aðila komi því vel til
greina. Hann bætti við að fjárfestar
erlendis væru í vaxandi mæli að sjá
að ísland væri áhugaverður kostur
fyrir fjárfestingar, hér væri mikill
hagvöxtur, menntunarstig lands-
manna væri hátt og samfélagið fram-
arlega á öllum mælikvörðum. EFA
hefur átt samstarf við erlenda aðila á
A Ití i einu r !■ 1
Ljósritari/prentari AR-161
• 16 eintöká mínútu
• Afritastærð stærst A3
• Frumritastærð stærst A3
• Minnkun & stækkun 50% - 200%
• Sjálfvirk lýsing afrita
• Sérstök Ijósmyndastilling
• 250 blaða pappírsskúffa
• 100 blaða sjálfvirkurframhjámatari
• 600 x 600 dpi upplausn
• 1200 x 1200 með “smoothing"
• Aukabúnaður:
Prentaratengi, netkort, frumritamatari,
rafrænn raðari, verkaðskiljari,
2 x 250 blaða skúffa
RdDIOfMUST
Glerárgötu 32 • Síml 462 3626
Morgunblaöið/Þorkell
11-11 við Grensásveg, önnur af fyrstu tveimur klukkuverslununum hér á
landi, opnuð árið 1991.
öðrum sviðum og það mun án efa
aukast.
Gamalgróin fyrirtæki verða
almenningshiutafélög
Fram kom hjá Gylfa að hugsunin
að baki þessari sölu sé á vissan hátt
svipuð og þegar FBA og Kaupþing
keyptu 75% eignarhlut í Hagkaup,
Bónus og tengdum félögum í júní
1998. Markmiðið með þeim viðskipt-
um var að brúa bilið og aðstoða við
umbreytingu á gamalgrónu fjöl-
skyldufyrirtæki í almenningshluta-
félag.
Nóatún er gamalgróið fjölskyldu-
fyrirtæki. Jón Júlíusson opnaði
fyrstu Nóatúnsverslunina í Nóatúni
17 í Reykjavík í október 1965. Önnur
Nóatúnsverslun bættist við á árinu
1973. Frekari fjölgun verslana varð
síðan ekki fyrr en á árinu 1988 en í
dag er fjöldi þeirra samtals 11 á höf-
uðborgarsvæðinu.
Kaupfélag Árnesinga er enn eldra
en Nóatún en það var stofnað árið
1930. Kaupfélagið hóf mikla sókn á
matvörumarkaði á árinu 1994 og upp
frá því fór verslunum þess að fjölga.
Velta verslunarsviðs félagsins á ár-
inu 1994 var um einn milljarður
króna en hún var komin upp í um 2,7
milljarða á árinu 1998. Með þátttöku
Kaupfélags Árnesinga í Kaupási hf.
1. maí á síðasta ári hætti Kaupfélagið
þar með sjálft verslunarreksti. Svip-
aðar breytingar hafa átt sér stað
varðandi flest kaupfélögin í landinu á
undanförnum árum og einungis örfá
þeirra eru enn í verslunarrekstri.
Mikligarður, sem var í eigu Sam-
bandsins sáluga, opnaði fyrstu tvær
11-11-verslanirnar í Reykjavík á ár-
inu 1991. Þar var um nýjung að ræða
á matvörumarkaði með svonefndum
klukkuverslunum. Markmiðið með
þeim var upphaflega að ná til þeirra
sem ekki koma í stórmarkaði og eiga
erfitt með að koma á hefðbundnum
opnunartíma verslana.
Heildarfjöldi verslana Kaupáss hf.
er 41, þai- af eru 11 Nóatúnsverslan-
ir, 16 verslanir undir merkjum 11-11
og 13 verslanir Kaupfélags Árnes-
inga. Þessu til viðbótar rekur Kaup-
ás lágvöruverslunina Kostakaup á
Selfossi. Heildarfjöldi starfsmanna
er um 1.000 í um 700 stöðugildum.
Velta Kaupáss hf. á síðasta ári var
um 10 milljarðar króna. Til saman-
burðar má geta þess að velta Baugs
var um 25 milljarðar króna, en þar
inní er einnig sérvara, s.s. fatnaður.
Hvað er kostgæfnisúttekt?
Tilboð EFA um kaup á hlutabréf-
um í Kaupási hf. var skilyrt af EFA
hálfu og mun endanleg niðurstaða
liggja fyrir síðar í þessum mánuði. í
fréttatilkynningu frá EFA frá síð-
astliðnum föstudegi segir að fram til
þess tíma verði unnið að kostgæfnis-
úttekt á félaginu. Kostgæfnisúttekt
vísar til hugtaksins tilhlýðileg kost-
gæfni (e.: Due Diligence). Um til-
hlýðilega kostgæfni segir í upplýs-
ingahandbók Verðbréfaþings ís-
lands að það sé hugtak sem „snúist
um ábyrgð þeirra sem veita upplýs-
ingar á því að þær séu áreiðanlegar
og nægjanlegar. Að gerð skráning-
ar- og útboðslýsinga koma margs
konar sérfræðingar og er þeim ætlað
að sjá til þess að upplýsingarnar sem
fram koma séu tæmandi og fullnægi
þeim stöðlum sem settir eru fyrir
slíka upplýsingagjöf‘.
Að sögn Gylfa Arnbjörnssonar
munu starfsmenn EFA vinna þann
hluta kostgæfnisúttektarinnar er
varðar viðskiptalega þætti í starf-
semi Kaupáss hf. en vinna sérfræð-
inga verður keypt að varðandi aðra
þætti. Hann sagði EFA hafa beitt
þeirri aðferð á undanförnum árum í
æ ríkari mæli að ganga fyrst frá til-
boðum, þegar um kaup á félögum
eða fyrirtækjum er að ræða, en fara
síðan í skoðun á því hvort þær upp-
lýsingar sem fram koma af hálfu
seljenda séu réttar. Þetta hafi sparn-
að í för með sér.