Morgunblaðið - 19.05.2000, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsetinn greiðir skatt frá 1. ágúst en heldur húsnæðis- og bifreiðahlunnindum:
Ekki til höfuðs Dorrit
— segir fyrsti flutningsmaður — sendiráðsstarfsmenn næstir
r
Nei, nei, Dorrit mín, strákarnir þurfa bara að hífa upp launin sín. Dabbi er að byggja og
Dóri þarf að skrapa saman fyrir útför flokksins.
Grafarvogskirkj a
vígð eftir mánuð
FRAMKVÆMDIR við seinni hluta
Grafarvogskirkju eru komnar á
lokastig og verður kirkjan vígð
eftir rúman mánuð. Séra Vigfús
Þór Arnason, sóknarprestur í
Grafarvogskirkju, segir að nú sé
unnið af krafti við byggingarfram-
kvæmdir, en það er byggingarfyr-
irtækið Eykt hf. sem sér um verk-
ið.
Utan og innan á kirkjuna er ver-
ið að festa sérstaka granítsteina
frá Spáni. Vígsla
kirkjunnar 18. júní í
sumar verður hluti af
Kristnitökuhátíðinni.
Kirkjan verður næst-
stærsta kirkja landsins í
fjölmennustu sókninni.
Fyrri hluti kirkjunnar
var vígður árið 1993, en
framkvæmdir við bygg-
ingu hennar hófust árið
1991.
Morgunblaðið/Kristinn
Þegar haldið er í sveitina er yndislegt að geta slappað
af og hvílst f góðu rúmi. í Húsgagnahöllinni finnur þú
margar góðar svefnlausnir. SCANDI SLEEP boxdýnurnar
eru einstök lína af úrvals boxdýnum frá Norðurlöndum.
Til eru margar gerðir sem henta við mismunandi aðstæður.
KUTM0LLER - rúm úr hvítkalkaðri, gegnheilli furu.
B180 x L200 sm, með SCANDI SLEEP 3010 boxdýnum
kr. 46.250,-. Fæst einnig B140 x L200 sm, með SCANDI
SLEEP 3010 boxdýnum kr. 43.370,-. KLITM0LLER -
náttborð B46 x H62 x D34 sm, kr. 11.190,-
Fyrirlestur um mannfræði og fornieifafræði
Breytt viðhorf
Cliris Gosden
Mannfræðistofnun
Háskóla íslands
stendur fyrir fyr-
irlestri í dag klukkan
13.00 í stofu 101 í Odda.
Þar mun dr. Chris Gosden
ræða um tengsl fomleifa-
fræði og mannfræði, eink-
anlega í Bretlandi. Jafn-
framt mun hann fiytja
fyrirlestur á Akureyri
miðvikudaginn 24. maí nk.
klukkan 17.00 í boði
Minjasafnsins og Háskól-
ans á Akureyri. Þess má
geta að kona Gosden, Jane
Kaye, er um þessar mund-
ir að vinna að doktorsrit-
gerð um lagarammann í
tengslum við íslenskan
gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði og er hún hér í för með
manni sínum. Chris Gosden var
spurður hvað hann ætlaði að
fjalla um í fyrirlestri sínum.
„Eg mun fjalla um breytt við-
horf hvað varðar samstarf forn:
leifafræðinga og mannfræðinga. í
Bretlandi hafa þessir fræðihópar
löngum verið aðskildir af sögu-
legum ástæðum, en upp á síðkast-
ið hafa fræði þeirra átt vaxandi
samleið og þar kemur tvennt til.
Annars vegar hefur mannfræðin
lagt aukna áherslu á sögu, en
mannfræðin hefur löngum sýnt
hinu liðna lítinn áhuga. Hins veg-
ar hefur fornleifafræðin í vaxandi
mæli seilst inn á ný svið, m.a.
rannsóknir á listmunum og skiln-
ingi fólks á landi og rými. Það má
því segja að greinarnar hafi færst
nær hvor annarri. Fornleifafræð-
in leitar til mannfræðinnar sem
veitir skilning á hvernig fom
samfélög hafa starfað og mann-
fræðin leitar til fornleifafræðinn-
ar til þess að öðlast vitneskju um
mannvistarleifar frá fyrri tíð.
Báðar greinarnar leggja áherslu
á fjölbreytni mannlegra samfé-
laga og breytingar, þær hljóta því
að hafa gagn af náinni samvinnu."
- Hvernig telur þú að mætti
hafa gagn af samþættingu fom-
leifafræði og mannfræði við rann-
sóknirá víkingatímanum?
„Aðstæður eru mjög breytileg-
ar á ýmsum svæðum jarðarinnar.
Á Kyrrahafssvæðinu þar sem ég
hef unnið mikið við rannsóknir er
lítið vitað um söguna, skammt er
frá því að menn tóku að rita um
það efni þar, þess vegna hefur
fornleifafræðin sérstöku hlut-
verki að gegna á því svæði en
mannfræðin að sama skapi gegnir
mikilvægu hlutverki vegna þess
að hún hefur fengist við að lýsa í
smáatriðum samfélögum á þessu
svæðj síðustu eitt hundrað ár eða
svo. I Evrópu hins vegar er mun
meira vitað og skráð um söguna,
m.a. um víkingatímann og ís-
lenska þjóðveldið. Hér held ég að
þríþætt samstarf skipti sköpum,
samstarf sagnfræði, fornleifa-
fræði og mannfræði. Mannfræð-
ingamir hjálpa okkur að skilja
framandi lifnaðarhætti og hugs-
unarhátt og fomleifafræðingarn-
ir draga fram í dagsljósið vitn-
eskju um mannvist sem ekki er
hægt að öðlast með öðram hætti.“
-Er mikill áhugi á fornleifa-
fræðirannsóknum í
þínu umhverfí?
„Já áhugi á forn-
leifafræðirannsóknum
hér fer vaxandi. Þess
má geta að um þessar
mundir er mikill áhugi
í Bretlandi á víkingatímanum.
Erfðafræðingar og líffræðimenn-
taðir mannfræðingar era að kort-
leggja ferðir manna um Norður-
lönd og Bretlandseyjar og
skyldleika mannhópa. Þetta helst
í hendur við vaxandi áhuga meðal
Skota, íra, Walesbúa og Eng-
lendinga á uppruna sínum, sögu
og þjóðerni. Af þessum ástæðum
► Chris Gosden fæddist 6. sept-
ember 1955. Hann er breskur
og ástralskur ríkisborgari.
Hann er lektor og safnvörður
við Pitt Rivers-fornleifasafnið
við Oxford-háskóla í Bretlandi.
Hann lauk doktorsprófi frá
Sheffield-háskóla árið 1983 og
hefur starfað að kennslu og
rannsóknum á sviði forn-
leifafræði m.a. í Ástralíu, Vest-
ur-Þýskalandi, Englandi og
Nýju-Gíneu. Hann hefur ritað
nokkrar bækur og fjölda
greina um fræðigrein sína.
Nýjasta bók hans nefnist
Anthropology & Archaeology -
A Changing Rclationship sem
kom út hjá Routledge-forlaginu
1999. Gosden er kvæntur Jane
Kaye, doktorsnema við Oxford-
háskóla, og eiga þau tvö börn.
er endurvakinn áhugi á Bret-
landseyjum á víkingatímanum og
ferðum norrænna manna. I
Oxford era t.d. a.m.k.tveir rann-
sóknarhópar að rekja erfðasögu
Breta og norrænna manna og
hafa niðurstöður þeirra vakið
töluverða athygli, meðal annars
niðurstöður Agnars Helgasonar,
sem vinnur að doktorsritgerð við
Oxfordháskóla um þetta efni.“
- Hvaða fornleifarannsóknir
ert þú að fást við um þessar
mundir?
„Eg vinn nú við rannsóknir í
Suður-Englandi en áður vann ég
mikið á Papúa Nýju-Gíneu. Ég er
að kanna hvernig landnýting
breyttist á fimmtán hundrað ára
tímabili, frá um það bil 1000 f.Kr.
og þar til rómverska skeiðinu
lauk um 400 e.Kr. Athygli okkar
beinist að skiptingu akurlendis og
landamerkjum og m.a. byggjum
við á tölvutækni og loftmyndum.
Komið hefur í ljós að sum af þeim
landamerkjum sem enn eru í fullu
gildi era allt að 3.000 ára gömul.
Einn mikilvægur þáttur þessara
rannsókna á Suður-Englandi,
sem Islendingar kynnu að hafa
sérstakan áhuga á, varðar hug-
myndir fólks um landið sem það
byggir. Rannsóknirnar miða m.a.
að því að grafast fyrir um skoðan-
ir fólks á því hvernig beri að um-
gangast landið og fornminjar í
jörðu og hvað fornminjar merki.
Við leggjum ríka áherslu á
íræðslugildi fornminja- og fom-
leifarannsókna. Við
hvetjum fólk til þess að
koma í heimsókn á
svæðið til að kynna sér
hvað fram fer og koma
fram með sínar hug-
myndir um hvaða þýð-
ingu fornminjarnar hafi og hvern-
ig eigi að umgangast þær.“ Þess
má geta að dr. Gosden dvelst á
Islandi í eina viku og hefur mik-
inn áhuga á að kynna sér forn-
leifarannsóknir og fornminjar á
meðan á dvöl hans stendur. Hann
hefur einnig áhuga á að kynna sér
samskipti almennings og forn-
leifafræðinga hér.
Vaxandi
áhugi á vík-
ingatímanum
í Bretlandi