Morgunblaðið - 19.05.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 13
FRÉTTIR
Umferðarmál voru Graf-
arvogsbúum hugleikin
Skipulag, fræðslumál og leikskólamál voru
meðal þess sem rætt var á fundum borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins með íbúum í
Grafarvogi. Stefán Stefánsson sat fund þar
sem fram fóru ýmis skoðanaskipti.
Morgunblaðið/Þorkell
Grafarvogsbúar mættu á opinn borgarafund í Grafarvoginum.
GRAFARVOGSBÚUM var í vik-
unni boðið á fundi með borgarfull-
trúum Sjálfstæðisflokksins þar sem
rætt var um fræðslumál, leikskóla-
mál og skipulagsmál. Borgarfull-
trúarnir Inga Jóna Þórðardóttir og
Guðlaugur Þ. Þórðarson riðu á vað-
ið á þriðjudagskvöldið og ræddu við
íbúa um fræðslu- og leikskólamál
og kvöldið eftir ræddu Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson og Júlíus Vífill
Ingvarsson um skipulagsmál.
I máli Ingu Jónu kom fram að
sjálfstæðismenn leggja áherslu á
aðgrunnskólarnir í Reykjavík fái
raunverulegt faglegt og fjárhags-
legt sjálfstæði, gera þurfi rekstrar-
samninga við stjórnir einstakra
skóla þar sem kröfur séu skil-
greindar og þannig eigi skólarnir
sjálfir ýmsa möguleika varðandi
kjör kennara og skipulag skóla-
starfs. Guðlaugur ræddi síðan stöðu
í leikskólamálum og lagði áherslu á
fjölbreyttar lausnir og valfrelsi for-
eldra.
Ekki sátu seinni fundinn ýkja
margir úr þessu tæplega 18.000
manna hverfi, um 14 manns þegar
mest var. Engu að síður var fundur
stundum fjörugur þegar skoðanir
fuku í bland við hnyttin tilsvör þeg-
ar fundarmenn báru upp ýmis mál,
sem ýmist snertu hitamál hverfisins
eða almenn málefni borgarinnar.
Loftur Már Sigurðsson, formaður
félags sjálfstæðismanna í hverfinu,
setti fundinn og tók Vilhjálmur
fyrstur til máls og skóf ekki utan af
hlutunum til að koma hita í fundar-
gesti, sem komu inn úr garranum.
Hann sagði skipulagsmál snerta
borgarbúa margvíslega og sjálf-
stæðismenn hefðu byggt upp Graf-
arvoginn þrátt fyrir ádeilur minni-
hlutans í borgarstjórn á þeim tíma
og síðan hefði stjórn R-listans verið
hörmung.
Vill íbúðabyggð í Geldinganesi
Vilhjálmur sagðist vilja íbúða-
byggð á Geldingarnesi þar sem
koma mætti fyrir allt að 6 til 7 þús-
und manna byggð og að ekki yrði
byggð höfn í Eiðsvík - sagðist að
vísu hafa haft aðra skoðun á því áð-
ur en það væri í lagi að skipta um
skoðun ef það yrði til hins betra.
Vilhjálmur sagðist vilja fram-
kvæmdir sem allra fyrst því allt út-
lit yrði fyrir seinkun á framkvæmd-
um við nýjar brýr inn í Hamra-
hverfið. Einnig ræddi hann fyrir-
hugaðar framkvæmdir við yfir-
byggt knattspyrnuhús á móts við
Hallveg og efast um að rétt væri að
leggja allar framkvæmdir á lóðinni
í hendurnar á einkaaðilum. Loks
tæpti Vilhjálmur á framtíð flugvall-
ar í Reykjavík og vildi greinilega að
hann færi hvergi. Fékk Vilhjálmur
gott klapp frá fundargestum enda
dró hann hvergi af í lýsingum sín-
um á mótherjum sínum í borgar-
stjórn.
Vilja lækka
fasteignaskatta
Júlíus Vífill Ingvarsson flutti
næstu ræðu og benti fyrst á að
sjálfstæðismenn vildu lækka fast-
eignaskatta því þó að þeir hefðu
verið miklir af Grafarvoginum legð-
ust þeir mest á fólk með börn.
Hann sagði einnig að Sundabraut,
brúargerð inn í Grafarvoginn, væri
í umhverfismati þar sem verið væri
að skoða ýmsar útfærslur. Júlíus
ræddi síðan um þéttingu byggðar
og flugvallarmál, sem hann sagði R-
listann fara illa með.
Þá var komið að Grafai-vogsbúum
og fyrsta spurning snerist um hvort
flokkurinn hefði komið sér saman
um leiðtogaefni. Vilhjálmur varð
fyrstur til svara og sagði hefð fyrir
prófkjöri í Sjálfstæðisflokknum,
sjálfur vildi hann hafa Ingu Jónu
Þórðardóttur í forystu og myndi
styðja hana ef til kæmi. Júlíus Vífill
bætti við að í flokknum væri ekkert
ósætti eins og hjá R-listanum þar
sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri er allt í öllu. Næsta
spurning var um hvort uppfylling
lands væri dýr og borgarfulltrúarn-
ir sögðu slíkt ódýran kost, sérstak-
lega þar sem grunnt væri.
Tónlistarhús
á Geldinganesi
Næsti fundargestur var með
ákveðnar skoðanir; sagði óheppi-
legt að eiginkona fjármálaráðherra
leiddi borgarstjórn og vildi Vil-
hjálm í forystu, upplýsti um mikið
ónæði af vinnuvélum við Veghamra,
sagði vegakerfið til skammar og að
hann vorkenndi Breiðhyltingum
sem væru í mestu vandræðum með
að komast út úr hverfinu á álags-
tímum. Mestar viðtökur vakti þegar
hann velti upp hvort ekki væri góð
hugmynd að byggja tónlistarhús á
Geldinganesi - ekki ósvipað og
Óperuhúsið í Sydney á Ástralíu er
staðsett.
Vegamál í hverfmu voru næst
tekin fyrir og spurt hvort ekki væri
hægt að koma á vegtengingu frá
Grafarvogi út á Vesturlandsveg á
móts við Korpúlfsstaði en þegar
spurt var um hliðið, sem sett var
upp til að hindra umferð í gegnum
Langarima fór umræðan á flug.
Hverfislögreglumennirnir Guðjón
Garðarsson og Óskar Bjarki
Bjarnason, sem stöldruðu við á
fundinum, sögðu mikil vandræði
hafa skapast þar í kring og vildu
loka götunni. Þá benti formaður
íbúasamtakanna, sem staddur var á
fundinum, á að í könnun, sem gerð
var meðal íbúa við götuna fyrir
nokkrum árum hefði skýr meiri-
hluti óskað eftir því að gatan yrði
opin og því hefðu samtökin beitt sér
fyrir lokun. Fundargestir lágu ekki
á skoðunum sínum um málið og
komu fram margar tillögur í bland
við reynslusögur.
Einnig var spurt um arðsemi
tónlistarhúss og svaraði Júlíus Víf-
ill þvi til að arðsemi væri líklega
ekki mikil en á móti kæmi að erfitt
væri að reikna út arð af menningu.
UM þrjúleytið eftirmiðdaginn 17.
maí árið 1950 voru vinkonurnar
Ólöf Sigurðardóttir og Kristín Súl-
veig Jónsdóttir á gangi á Barón-
stignum í Reykjavík, sem oft áður,
og datt þeim þá í hug að gera með
sér samning. Þá voru þær nemend-
ur á fyrsta ári í Menntaskólanum í
Reykjavík og ákváðu að ef þær ■
yrðu ennþá hér eftir fimmtíu ár,
skyldu þær hittast á nákvæmlega
sama tima á sama stað.
„Við erum báðar aldar upp í
Borgarnesi og bjuggum saman
fyrsta árið sem við vorum hér í
Menntaskólanum í Reykjavík. Við
leigðum stórt herbergi á Laufás-
vegi og sváfum þar saman í hjóna-
rúmi! Það var voða notalegt að búa
þarna og við gengum náttúrlega í
skólann og eins mikið um þetta
hverfi,“ segir Ólöf.
„Svo vorum við á gangi þennan
dag fyrir fimmtiu árum, að koma
úr Sundhöllinni minnir mig, og
ákváðum að eftir fimmtiu ár
myndum við hittast aftur þarna, ef
við yrðum báðár ennþá hérna
megin, eins og sagt er.“
Upphaflega fannst okkur
þetta Óendanleiki
Þær Ólöf og Kristín hafa hist
annað veifið siðan þær voru saman
í skóla en ekki verið í stöðugu sam-
bandi. Ólöf segir að þær hafi alltaf
munað eftir samningnum og
minnst á það í seinni tíð að nú fari
þetta að nálgast.
„Upphaflega fannst okkur þetta
ócndanlciki. Fimmtíu ár eru nátt-
úrlega svo langur tími þegar mað-
ur er ungur. Þá hugsuðum við
sennilega að það kæmi aldrei að
þessu. En nú erum við búin að lifa
þessi svokölluðu aldamót, erum í
góðu ástandi og báðar útivinnandi
konur á efri árum.“
Morgunblaðið/Golli
Ólöf og Kristín hittust í gær, eftirmiðdaginn klukkan þrjú á Barónstígn-
um, alveg eins og þær höfðu ákveðið fyrir nákvæmlega fimmtíu árum.
Það var hátíðleg og gleðileg
stund þegar þær Ölöf og Kristín
hittust á Barónstígnum fyrradag.
Þær fóru í Listasafnið og fengu sér
kaffi og ætluðu svo að ganga um
bæinn og borða saman kvöldmat.
Ólöf segir að vissulega hafi
borgin breytt verulega um svip á
fimmtiu árum en segir að þær
Kristín hafi lítið velt því fyrir sér
þá hvernig borgin myndi líta út
eftir fimmtíu ár. Þeim hafi bara
þótt þetta óendanlega langur tími
og í raun mjög óraunverulegt að
það kæmi nokkurn tímann að þess-
um degi.
Vinkonur uppfylla fímmtíu ára gamlan samning um endurfundi
Hittust aftur á
nákvæmlega
sama tíma og stað
Mikilvægt
efnisatriði
ekki í nýju
lögnnum
AÐALHEIÐUR Jóhannsdóttir lög-
fræðingur er ekki sammála Ólafi
Erni Haraldssyni, formanni um-
hverfisnefndar Alþingis, um að hún
hafi ekki sett fram efnisatriði máli
sínu til stuðnings í gagnrýni á nýsett
lög Alþingis um mat á umhverfis-
áhrifum.
í Morgunblaðinu í gær sagði Ólaf-
ur að Aðalheiður yrði að tala skýrar
en hún hefði gert í Morgunblaðinu sl.
miðvikudag.
„I fréttinni sagðist ég hafa
ákveðnar áhyggjur og efasemdir um
að nýju lögin stæðust EES-rétt, sér-
staklega hvað leyfisveitingarnar
varðaði," segir Aðalheiður. „Eg hef
mestar áhyggjur af þessu efnisatriði
en það varðar breytingu sem var
gerð á tilskipuninni [Evrópubanda-
lagstilskipun 97/11/EB], þ.e. 9. grein
hennar, sem ég hef ekki getað fundið
í nýju lögunum. Það sem vantar í lög-
in er að tryggja aðkomu fyrir al-
menning að endanlegu leyfi. Ég tel
mig því hafa bent á það sem ég tel
vera eitt það mikilvægasta."
Marea
Loftkœling með hitaslýringu (AC
Stilianlegur hltablástur afturí)
Þrjú þriggja punkta belti (aftursœti
Fimm hnakkapúðar
Lúxusinnrótting
Samlltir stuðarar
Samlitir speglar og huröarhandföng
Flalogen llnsuaðalljós
Rafstýrðlr og upphitaðir útispeglar
RafstýTðlr bílbeltastrekkjarar
Vökvastýri
Fjarstýrðar samlœsingar
Gelslaspilari 4x40 wött
Fjórir hátalarar
Rafdrifnar rúður að framan
.010.-
Weekend ELX estiva
Ótrúlega vel
útbúinn á kr:
Snúnlngshraðamœlir
Útihitamœlir
103 hestafla 1.6 lítra 16 ventla vél
Tölvuslýrð fjölinnsprautun
ABS hemlalœsivöm
EBD hemlajöfnunarbúnaður
Flœðarstilllng ó ökumannssœti
Rafstýrð mjóbaksstllllng
Armpúðl í aftursœti
Vasl á mlðjustokk
Vasar aftan á framsoetlsbökum
Flaeðarstllllng á stýri
Lesljós í aftursœti
Lltaðar rúður
Þakbogar
Rœslvörn í lykli
þrlðja bremsuljóslð
Hiti, þurrka og rúðusprauta á afturrúðu
14" felgur
Stlllanleg hœð aðalljósa
Tvísklpt aftursœti
Fleilklœtt farangursrými
Geymsluhólf í farangursrýml
Tvískiptur afturhleri
Mottusett
Galvanhúöaður
8 ára ábyrgð á gegnumtœringu
Eyðsla skv. meglnlandsstaðll 8,3 1/100 km
Ístraktor i°
BlLAR FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - S I MI 5 400 800