Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Tölvur notaðar við kennslu f öllum námsgreinum f Grandaskóla
Ekkí kennt á tölvur
heldur með tölvum
Eldri
borgarar
og nem-
endur
vinna
saman
Vesturbær
NÆSTA vetur fer af
stað tilraunaverkefni í
Grandaskóla þar sem
eldri borgarar koma inn
í skólastarfið og vinna
með krökkunum.
Kristjana M. Krist-
jánsdóttir, skólastjóri
Grandaskóla, segir að-
standandendur félags-
hcimilis eldri borgara
við Lindargötu hafa
komið að máli við þau í
skólanum og stungið
upp á því að gerð yrði
tilraun um samstarf sem
byggðist meðal annars á
því að eldra fólkið
fræddi börnin og að
börnin aðstoðuðu eldra
fólkið við að ná aukinni
fæmi á tæknisviðinu.
„Hugmyndin er að
tengja þann fróðleik sem
fullorðna fólkið býr yfir
því sem krakkarnir eru
að gera í skólanum og
koma því svo jafnvel á
Netið. Fullorðna fólkið
er náttúmlega heill haf-
sjór af fróðleik og
krakkarnir eiga svo auð-
velt með að tileinka sér
tæknina. Hugmyndin er
að reyna að samtvinna
þetta,“ segir Kristjana.
Fullorðna fólkið fræði
börnin og börnin að-
stoði þau við tölvur
Kristjana segir til
dæmis hægt að hugsa
sér að tekið verði fyrir
eitthvert ákveðið efni, til
dæmis í náttúmnni eða
sögunni, sem krakkarnir
hafa áhuga á og em að
fást við í skólanum. Full-
orðna fólkið gæti þá
frætt börnin og bömin
gætu svo aðstoðað þau
við að finna efni á Net-
inu sem tengdist því sem
til umræðu væri hverju
sinni. Einnig væri hugs-
anlegt að þau útbyggju
sameiginlega verkefni
sem sett yrðu á Netið.
Kristjana segir að lík-
lega verði það bara einn
bekkur sem muni vinna
með eldra fólkinu íþessu
tilraunaverkefni í haust,
þvf betra sé að hafa
þetta einfalt og smátt í
sniðum á meðan verið sé
að fikra sig áfram. Hún
segist, vonast til að til-
raunin reynist það vel að
slíkt samstarf geti orðið
að föstum lið í skóla-
starfinu,
„I>etta er tilraun og
svo verður skoðað hvort
þetta sé eitthvað sem
getur orðið. Þetta er
náttúrulega mjög gott
fyrir skólana og eftir því
sem við fáum fleira full-
orðið fólk inn í skólana,
því betra," segir Krist-
jana.
Vesturbær
TÖLVUR eru notaðar við
kennslu í nasr öllum náms-
greinum í öllum bekkjardeild-
um Grandaskóla.
Nemendur venjast því
þannig strax í upphafi skóla-
göngunnar að tölvur séu sjálf-
sögð hjálpartæki í náminu og
öðlast jafnframt fljótt færni á
tölvumar enda eru „bömin
svo fljót að tileinka sér þessa
nýju tækni og fljótari oft á tíð-
um en við,“ eins og Kristjana
M. Kristjánsdóttir, skólastjóri
Grandaskóla, kemst að orði.
Haustið 1998 var Granda-
skóli valinn af Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur til að gegna
hlutverki móðurskóla í tölvu-
og upplýsingatækni í Reykja-
vík. Samkvæmt móðurskóla-
verkefninu er hlutverk skól-
ans að vera frumkvöðull á
þessu sviði í uppbyggingu
náms og honum er ætlað að
veita öðmm skólum ráðgjöf í
þessum málaflokki byggða á
þeirri reynslu sem hlýst af
vinnunni innan skólans. Með
þessu verkefni hafa tölvur ver-
ið notaðar í síauknum mæli í
kennslu í nær öllum náms-
greinum.
Nemendur semja eigin
tónlist með tónlistarforriti
Kristjana segir að þau líti
þannig á að ekki sé verið að
kenna nemendum á tölvur,
heldur sé verið að kenna með
tölvum. Tölvm-nar séu þannig
fyrst og fremst kennslutæki
sem nýtist nemendum í því
'sem fengist er við í hverri
námsgrein, líkt og bókin var
áður.
„Við leggjum áherslu á að
byija strax og erum með sér-
staka námskrá fyrir hvem
bekk þar sem því er lýst
hvernig unnið er með tölvum í
nánast öllum fögum. Hvort
sem það er íslenska, stærð-
fræði, samfélagsfræði, tón-
mennt, myndmennt eða annað
þá sýnum við þeim að tölvan
getur verið hjálpartæki og leið
til fróðleiks, alveg nákvæm-
lega eins og bókin,“ segir
Kristjana.
Tölviu' eru notaðar mikið í
tónmenntakennslu og nota
nemendur í sjöunda bekk tón-
listarfomt þar sem þeir semja
eigin tónlist. Þórdís Guð-
mundsdóttir tónmenntakenn-
ari segir nemendurna mjög
duglega við tónsmíðarnai-
enda séu þeir flestallir komnir
með góðan grann í tónmennt
og geti þar af leiðandi prófað
{sig áfram til dæmis með að
búa til laglínur ofan á hljóma
sem tölvan gefur þeim. Þórdís
segir áhugann og einbeiting-
una skína úr augum þeirra
þegar þau sitja með heymatól
hvert við sína tölvu sem tengd
er hljómborði, og setja saman
hin ýmsu hljóð og búa til eigin
lög.
Forritið Photo shop notað
í myndmenntarkennslu
Myndmenntakennslan er
einnig orðin nokkuð tölvu-
vædd og hefur Björn Sigurðs-
son myndmenntakennari með-
al annars kennt nemendum að
nota forritið Photo shop, til
dæmis við að búa til myndir,
breyta myndum og skeyta
myndir saman. Verkefnin
þeirra era mörg sett inn á
Netið og er hægt að skoða þau
á heimasíðu • skólans, www,-
grandaskoli.is. Þar er meðal
annars að finna verkefnið
„Frá kálfskinni á stafrænt
Morgunblaðið/Kristinn
Kristjana M. Kristjánsdóttir, skólastjóri Grandaskóla.
form“ sem era myndir sem
nemendur í sjötta bekk unnu í
Photo shop upp úr mynd-
skreytingum úr handritum
sem þeir höfðu farið að skoða í
Arnastofnun. Einnig er hægt
að sjá verkefni sjöundu bekk-
inga „Louisa og götulífsmynd-
ir“, þar sem nemendur höfðu
meðal annars tekið ljösmyndir
í nágrenni skólans og unnið
þær í Photo shop þannig að
þær líktust myndum Louisu
Matthíasdóttur.
Einnig eru nemendur þátt-
takendur í Comenius-verkefn-
inu, sem er hluti af Sókrates-
áætluninni, þar sem höfð eru
samskipti og samvinna, með
milligöngu tölya, við nemend-
ur í öðram löndum.
Kristjana segist oft dást að
því hversu færir nemendurnir
séu orðnir á tölvumar. Til
dæmis séu nemendur í
sjöunda bekk fullfærir um að
setja heimildarritgerðir upp í
tölvu og setja inn myndir og
fleira og segir hún að þetta sé
jafn eðlilegt íyrir þeim og það
að skrifa á blað vai’ fyrir tíu ár-
um. Hún segir að mörg verk-
efni, ritgerðir, myndir og
fleira, séu sett inn á Netið og
það telur hún mjög af hinu
góða.
„Við setjum alltaf meira og
meira inn á Netið, þannig að
heimilin geti líka séð það sem
við eram að vinna. Við höfum
fengið mjög góð viðbrögð frá
foreldram sem fylgjast margir
vel með heimasíðunni okkar
og fá að sjá það sem krakkarn-
ir eru að gera hér í skólanum,"
sé^r Kristjana.
Heilsugæslan í Reykjavík fær
úthlutað lóð í Hraunbæ 121
Ný heilsugæslu-
^stöð byggð
í Arbæjarhverfí
Morgunblaðið/Kristinn
Hér sjást nemendur í sjötta bekk við heimasíðugerð.
Nemendur í sjöunda bekk nota tölvur mikið í tónmenntartímum. Þau semja meðal ann-
ars eigin tónlist á hljómborð sem tengd eru við tölvurnar.
BORGARYFIRVÖLD hafa
úthlutað Heilsugæslunni í
Reykjavík um 4.200 fermetra
lóð í Hraunbæ 121. Á lóðinni
er gert ráð fyrir að byggja
húsnæði fyrir Heilsugæslu-
stöðina í Árbæ, en hún er nú
til húsa í Hraunbæ 102 og að
sögn Guðmundar Einarsson-
ar, forstjóra Heilsugæslunnar
í Reykjavík, er það húsnæði
lítið og ófullnægjandi fyrir
reksturinn.
„Það hefur verið mikil
mannfjöldaaukning austan
Elliðaáa síðustu ár,“ sagði
Guðmundur. ,Auk mikillar
fjölgunar í Árbæ og Grafar-
vogi, þá er að rísa nýtt hverfi í
Grafarholti og því þurfum við
að huga að uppbyggingu á
þessum slóðum."
Guðmundur sagði að
Heilsugæslan hefði lengi haft
vilyrði íyrir lóð á þessum stað
en að nú væri formlega búið
að ganga frá því. Hann sagði
að enn væri málið allt á
frumstigi og ekki búið að taka
ákvörðun um það hversu stórt
húsnæði yrði reist, en að leyfi-
legt væri að byggja um 1.600
ferínetra húsnæði á lóðinni.
Vonast til að framkvæmd-
ir heljist á næsta ári
Að sögn Guðmundar er von-
ast til þess að framkvæmdir
muni hefjast strax á næsta ári,
en ekki er heimildfyrir þeim í
fjárlögum þessa árs.
„Miðað við fjölgunina þarna
á þessu svæði þá þolir þetta
ekki mikla bið. Það liggur fyr-
ir að heilsugæslustöðin í Graf-
arvogi verði stækkuð, en
byggt verður nýtt húsnæði
fyrir hana í Spönginni, en mið-
að við fjölgunina á svæðinu þá
dugar sú stækkun ekki ein og
sér og því er mikilvægt að
stöðin í Árbænum flytji í nýtt
og betra húsnæði fljótlega til
þess að koma þessum málum í
réttan farveg."
Minnihluti bæjarsljórnar Hafnarfjarðar gagnrýnir harðlega samning um sameinað slökkvilið
Hafnarfjörður
BÆJARFULLTRÚAR Sam-
fylkingarinnar í Hafnarfirði
segja að með samningi um
sameiningu slökkviliðanna á
höfuðborgarsvæðinu sé geng-
ið þvert á þá meginstefnu
sveitarfélaganna í landinu að
færa þjónustuna nær fbúun-
um og að stefnt sé að því að
gera bæinn að áhrifasnauðu
úthverfi. Þetta kemur fram í
bókun Samfylkingarinnar á
bæjarstjómarfundi sl. þriðju-
dag við afgreiðslu á drögum að
stofnsamningi um sameinað
slökkvilið á höfuðborgarsvæð-
inu.
I bókuninni kemur fram það
álit bæjarfulltrúa Samfylking-
Telja bæinn verða
áhrifasnautt úthverfí
arinnar að enginn spamaður
verði með sameiningunni og
að líklega muni draga úr ör-
yggi Hafnfirðinga í branamál-
um. Bæjarfulltrúar minnihlut-
ans halda því fram að fulltrúar
meirihluta Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks séu með
samningnum að skjóta sér
undan ábyrgð á veigamiklum
öryggisþætti í bænum.
„Ibúamir geta ekki lengur
sótt með umkvartanir eða
ábendingar varðandi þennan
málaflokk til sinna lýðræðis-
lega kjömu bæjarfulltrúa.
Heldur eiga þeir allt sitt undir
borgarstjóranum í Reykjavík
sem hefur ekkert umboð frá
hafnfirskum kjósendum og
þarf ekkert undir þá að sækja.
Hætt er við að upp renni tími
hafnfirskra bónarbréfa og
betligangna til borgarstjórans
í Reykjavík," segir í bókun-
inni.
Jafnframt segir í bókuninni
að líta megi á samninginn í
víðara samhengi sem lið í að
gera bæinn að áhrifasnauðu
úthverfí, „þ.e. „Grafarvogs-
yæðingu" Hafnarfjarðar.“ Þá
segir einnig að sjálfstæðis-
menn láti „höfuðborgina vaða
yfir sig á skítugum skónum"
og að meirihlutinn sé „á bull-
andi flótta frá flestum þeim
viðfangsefnum og verkefnum
sem ætluð era sveitarstjórn-
um.“
Samfylkingarmennimir
benda á að samkvæmt samn-
ingunum fari Reykjavíkur-
borg með meirihlutavald 1
sameinuðu slökkviliði, eða
64% af atkvæðum. Einnig s£
bundið í samningnum ac
stærsta sveitarfélagið fari
með formennsku í stjórr
byggðasamlagsins.
„Þá er fyrir stofnur
byggðasamlagsins búið ac
ráða slökkviliðsstjóra og vara-
slökkviliðsstjóra slökkviliðE
Reykjávíkur áfram í þær stöð-
ur án auglýsingar á þessurr
toppstjómarstöðum. Það ei
afar öeðlilegt. í reynd virðist
því hér vera um yfirtökr
Reykjavíkurborgar á Slökkvi-
liði Hafnaríjarðar að ræða er
ekki sameiningu," segir í bók-
uninni.