Morgunblaðið - 19.05.2000, Side 26

Morgunblaðið - 19.05.2000, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sue vinsæl meðal Chicago- búa RISAEÐLAN Sue var kynnt fyrir gestum Field safnsins í Chicago á miðvikudag og gerðu tugþúsundir manna sér ferð í safnið til að skoða stærsta og heillegasta steingerving sem fundist hefur af Tyrannosaurus rex. Risaeðlan var nefnd í höfuðið á Sue Hendrick- son, áhugamanneskju um steing- ervinga, sem fann beinagrindina árið 1990 í Black Hills í Suður- Dakota. Sue kostaði Field safnið 8,36 milljúnir dollara, eða um 645 milljónir króna, á uppboði sem dregist hafði árum saman vegna lagadeilna. Þeim lauk með því að sambýlismaður Hendrickson var dæindur til fangelsisvistar að þvf er BBC greindi frá. Til að valda þeim kostnaði leitaði safnið sam- starfs við fyrirtækin McDonalds og Disney sem eiga nú einkarétt á afsteypum af beinum Sue. Þegar risaeðlan var kynnt Chicagobúum á miðvikudag var um leið greint frá nokkrum vís- indalegum uppgötvunum um Tyrannosaurus rex sem gerðar hafa verið á þeim þremur árum sem það tók að setja þessa 67 mil- ljón ára risaeðlu saman, bein fyrir bein. Ein þessara uppgötvana var óskabeinið. Þetta er í fyrsta skipti sem óskabein, sem nú finnst að- eins í fuglum, fmnst í Tyrann- osaurus rex og telst það spónn í ask þeirra sem telja risaeðlur skyldar fuglum. Þá fannst einnig í fyrsta skipti steingervingur fstaðs í Tyrannosaurus rex, en það er bein við hljóðhimnu sem aðstoðar við flutning hljóðs inn eftir eyr- anu. „Þetta viðkvæma bein varðveit- ist hérumbil aldrei í steingerving- um risaeðlna,“ sagði John Flynn yfirmaður jarðfræðideildar safns- ins. „Þessi fundur auðveldar okk- ur að skilja þróun fstaðsins og heyrnar bæði hjá risaeðlum og fuglum.“ Sérfræðingar segja Sue hafa verið frekar hæggenga. Göngu- hraði hennar hafi verið um 10 km á klst, en á hlaupum hafi hún mest náð um 24 km hraða, sem er minna en áður var talið. Þá benda stórar lyktarblöðkur til þess að risaeðlan hafi haft gott lyktarskyn og telja sumir sérfræð- ingar Tyrannosaurus rex hafa reitt sig meira á nasirnar en önn- ur skynfæri. Hauskúpan vegur tonn Hauskúpa Sue vegur um eitt tonn og er því of þung til að hægt sé að koma henni fyrir á beina- grind risaeðlunnar. Hauskúpan er þess í stað til sýnis í glerkassa í safninu eneftirlíking skreytir beinagrindina sjálfa. Sue er heillegasti Tyrann- osaurus rex steingervingurinn sem fundist hefur til þessa. Ekkert varpar þó ljósi á hvort þessar risa- eðlur voru rándýr eða hræætur og þá eru steingervingasérfræðingar heldur ekki vissir um kyn dýrsins. Þetta er í annað skipti sem framlimir finnast af Tyrann- osaurus rex og getur Sue einnig státað af Iengstu tönninni, sem mælist 30 sm frá rót að enda. Þá geta gestir Field safnsins skoðað tölvuunnar myndir af hauskúpu hennar og handleikið afsteypur beina, auk þess sem sögu Sue og myndir má finna á Netinu. Með blaðinu a morgun M'raunbUbib 32 síðna blaðauki um undirbúning og umgjörð brúðkaupa fylgir Morgunblaðinu á morgun. Bandaríkjaþing vill skera niður út- gjöld til hernaðaraðgerða í Kosovo Þingmenn að „leika sér að eldinum“ GEORGE Robertson, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins (NATO), sendi í gær full- trúum í bandarísku öldunga- deildinni bréf þar sem hann hvatti þá til að láta af andstöðu sinni við veru bandarískra hermanna í Kosovo-héraði og sagði að brottför þeirra myndi stofna aðgerðum bandalagsins í hættu. Öldungadeildarþingmennirnir John Wamer og Robert Byrd lögðu á miðvikudag fram breyting- artillögu við frumvarp um útgjöld til Bandaríkjahers og ef frumvarp- ið verður samþykkt mun það þýða að allir bandarískir hermenn sem gegna friðargæslustörfum í Koso- vo verði þaðan að hverfa fyrir 1. júlí 2001. Breytingartillagan sem nú liggur fyrir öldungadeildinni hefur mætt mikilli andstöðu ríkis- stjórnar Bills Clintons Bandaríkja- forseta og hefur Madeleine Al- bright utanríkisráðherra sagt að þingmenn væru að „leika sér að eldinum". Sagði hún jafnframt að ef Bandaríkin sýndu slík veikleika- merki mundi það draga að hrææt- ur. í bréfi Robertsons, sem var sent Trent Lott og Tom Daschle, leið- togum repúblikana og demókrata í öldungadeildinni, sagði að með til- lögunni væri verið að senda Slobodan Milosevic Júgóslavíufor- seta þau hættulegu skilaboð að bandalagið sé klofið og að stærsti og mikilvægasti aðili þess sé að víkja sér undan skuldbindingum. I [ yfirlýsingu forsetaembættisins í gær sagði að tillögur þingmanna gætu spillt fyrir friði í Kosovo og • talsmaður George W. Bush for- setaframbjóðanda Repúblikana sagði að þingmenn hefðu farið út fyrir svið sitt með tillögunum, sem myndu binda hendur verðandi for- seta Bandaríkjanna. Evrópuríkin axli fjárhags- byrðarnar Á Bandaríkjaþingi ríkir nokkur andstaða við víðfeðmar öryggis- skuldbindingar hersins á erlendri P grund og á þriðjudag samþykkti mikill meirihluti fulltrúadeildar- innar frumvarp sem kveður á um að bandarískir hermenn í héraðinu verði kallaðir heim nema að Evi-ópuríkin í NATO axli þær fjár- hagsbyrðar vegna aðgerðanna í Kosovo sem þeim séu ætlaðar. I bréfi Robertsons var þingmönnum , þó bent á að Evrópuríki NATO leggi þegar til um 80% friðargæsl- uliða í Kosovo og greiði meirihluta P alls kostnaðar. Boo.com leggur upp laupana Fyrsta gjaldþrot stórrar netversl- unar í Evrópu London. Reuters, AP, AFP. TILKYNNT var í gær að breska netverslunin boo.com hefði óskað eftir gjaldþrotsmeðferð, aðeins hálfu ári eftir að hún hóf starfsemi með miklu fjármagni frá þekktum fjárfestum. Er þetta fyrsta stóra netverslunin í Evrópu sem leggur upp laupana. Stjórnendur boo.com, sem selur einkum íþrótta- og tískufatnað á Netinu, höfðu reynt án árangurs að bjarga fyrirtækinu með því að óska eftir andvirði rúmra tveggja millj- arða króna frá fjárfestum. Tilraunir til að selja fyrirtækið mistókust einnig. Skorti fjárhagslegt aðhald Annar stofnenda boo.com, Svíinn Ernst Malmsten, sagði að salan hefði aukist verulega síðustu mán- uði en viðurkenndi að fyrirtækinu hefðu orðið á þau mistök að minnka ekki kostnaðinn nægilega. „Við vild- um að allt yrði fullkomið," sagði hann í viðtali við Financial Times. „Mistök mín voru að fá ekki traust- an fjármálamann til að tryggja fjár- hagslegt aðhald.“ Malmsten stofnaði fyrirtækið ásamt Kajsu Leander, fyrrverandi fyrirsætu, og saman áttu þau 40% hlut í fyrirtækinu. Um 300 starfsmenn fyrirtækisins missa atvinnuna og fá aðeins and- virði rúmra 90.000 króna hver í starfslokagreiðslur. Mikil gremja er meðal starfsmannanna og einn þeirra sagði að fyrirtækið hefði orð- ið gjaldþrota vegna óstjórnar. Tekjur fyrirtækisins námu and- virði rúmra 50 milljóna króna í nó- vember, desember og janúar og voru nánast jafnmiklar í febrúar- mánuði einum. Kostnaðurinn reynd- ist hins vegar of mikill. Þekktir íjárfestar veðjuðu á fyrirtækið Fjárfestar lögðu andvirði rúmra níu milljarða króna í boo.com á síð- asta ári, þeirra á meðal franski kaupsýslumaðurinn Bernard Arna- ult, stjórnarformaður LVMH, sem framleiðir ýmsan lúxusvarning. Fyrirtæki Ai-naults, Groupe Arn- ault, á 8% hlut í boo.com. Á meðal annarra þekktra fjár- festa, sem keyptu hlutabréf í net- versluninni, voru Benetton-fjöl- skyldan á Ítalíu og mörg fjárfestingarfyrirtæki, svo sem J.P. Morgan og Goldman Sachs. Spáir samruna netfyrirtækja Gjaldþrot boo.com kyndir undir áhyggjum margra fjárfesta af því að margar nýju netverslananna kunni að hafa verið ofmetnar og geti ekki haldið velli til lengdar þar sem margt bendir til þess að þær muni aldrei skila hagnaði. Endurskoð- endafyrirtækið PriceWaterhouse- Coopers varaði til að mynda við því í vikunni sem leið að fjórða hvert net- fyrirtæki í Bretlandi kynni að verða uppiskroppa með fjármagn á næstu sex mánuðum. Fyrirtækið spáði því að þörfin fyrir nýtt fjármagn yrði til þess að mörg netfyrirtækjanna sameinuðust til að minnka kostnað- inn og auka tekjurnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.