Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 29 ERLENT Bronsstytta af hergfuöinum Mars er meðal þeirra fornminja sem fundist hafa við uppgröft Zeugma. Unnið í kapp við tímann til að bjarga fornminjum borgarinnar Zeugma undan ánni Efrat. Stíflugerð ógn við tyrkneskar fornmini ar Bclkis. AP. UNNIÐ er í kapp við tímann við uppgröft rómversku borgarinnar Zeugma í Tyrklandi því yfirborð árinnar Efrat hækkar um hálfan metra á hverjum degi vegna stíflugerðar. Mehmet Onal, sem stjórnar uppgreftrinum, hefur far- ið þess á leit við yfirvöld að því verði frestað um nokkra mánuði að fylla stíflulónið af vatni meðan lokið er við uppgröftin. Skiptar skoðanir eru hins vegar í Tyrkl- andi um mikilvægi Zeugma og kostnaðinn sem frestun fylgi. Fjórtán merkar mósaíkmyndir „Mósaikmyndirnar í Zeugma standast samanburð við þær sem sjá má í stærstu söfnum heims,“ sagði Onal. Þegar hafa fundist 14 mósaíkmyndir, 60.000 leirinnsigli, vandaðar rómverskar súlur, fresk- ur, bronsstytta af herguðinum Mars og 3.700 gull- og silfurmynt- ir. Meðal mósaíkverkanna er tjöm skreytt myndum af sjávarguðinum Poseidon, Ókeanosi, litríkum fisk- um í tugatali, álum og rækjum. „Þetta er bara dropi í hafið,“ sagði Yusuf Yavas, einn fornleifa- fræðinganna. „Enn höfum við bara grafið upp tvö setur og það sem finnst þar er ótrúlegt." Kostnaðarsamar framkvæmdir Zeugma, eða a.m.k. hluti borg- arinnar, mun þó lenda undir vatnsborði Efrat innan tveggja vikna samþykki tyrknesk yfirvöld ekki frestun frekari stífiufram- kvæmda. Nú þegar er vatnsborðið einungis um 27 m frá uppgraftar- staðnum. Yfirvöld í Tyrklandi eru hins vegar ófús að fresta því að taka stifluna í notkun og segja kostnað- inn sem því nemur vera um 30 milljón dollara, eða 2,3 milljarða kr. á mánuði. „Ég tel ekki að þjóðin hafi efni á þeim munaði að fresta þessu,“ sagði Yuksel Onar- an, framkvæmdastjóri Birecik A.S. sem sér um stífluframkvæmdina. Þrýst er nú í auknum mæli á Istemihan Talay, menningarmála- ráðherra landsins. Hann hefur lof- að að fjarlægja akra með pistasíu- trjám úr efri hlíðum Zeugma með fjárgjöfum frá Birecik A.S. og breyta þeim hluta borgarinnar sem bjarga má í útilistasafn. Þriðjungur Zeugma mun með þessu móti eigi að síður hverfa undir vatn og þar með fjöldi forn- minja. Ekki eru hins vegar allir á því að fornminjar Zeugma séu mikil- vægur hluti tyrkneskrar menning- ar. Toni Cross við bandarisku rannsóknarmiðstöðina í Tyrklandi segir m.a. mörg önnur svæði áhugaverðari og lærdómsríkari. Forngríska, rómverska eða býs- antinska fornmuni má, vegna sögu landsins, finna í flestum héruðum Tyrklands. Zeugma þýðir brú á grísku og var borgin útvarðstöð rómverska hersins á tímum heimsveldisins. Talið er að borgin hafi á hápunkti sínum verið stærri en bæði Pomp- eii og London á tímum Rómverja. Leifar „fyrstu Evrópu- mannanna“ fundnar London. The Daily Telegraph. HÖFUÐKÚPUR, sem fundist hafa í Georgíu, hafa hugsanlega tilheyrt „fyrstu Evrópumönn- unum“ auk þess sem þær segja ákveðna sögu um ferðir fyrstu manntegundanna frá Afríku fyrir um tveimur milljónum ára. Kúpurnar eru elstu manna- leifar, sem fundist hafa á evras- íska meginlandinu, og bera ým- is afrísk einkenni. Grefur fundurinn einnig undan þeirri kenningu, að aukin kunnátta í gerð steinverkfæra hafi gert mönnum kleift að leggja land undir fót og aldurinn, 1,7 millj- ónir ára, bendir til, að þessi manntegund hafi komið til Georgíu ekki löngu eftir, að hún kom fram í Afríku. Kúpurnar eru tvær og er önnur þeirra talin vera af ung- um karli en hin af ungri konu. Hafa georgískir, þýskir, fransk- ir og bandarískir vísindamenn rannsakað kúpumar. A Italíu hefur fundist mjög brotin höfuðkúpa, sem er 900.000 ára, en þær georgísku eru miklu eldri og styðja kenn- inguna um „Ferðina löngu“, að menn hafi fyrst farið frá Afríku til Kína og Jövu en siðar i norð- ur og aftur í vestur. Höfuðkúp- umar em þær fyrstu utan Afríku, sem sýna augljós, afrísk einkenni. MUNAR ENGU NEMA 364.000 KR. í VERÐI Þér er óhætt að bera nýjan Accent saman við bíla af svipaðri stærð. Hann gefur þeim ekkert eftir og er betur búinn ef eitthvað er. Og þegar verðið er skoðað hefur hann alltaf vinninginn. HYunom Hyundai söludeíld, sími 575 1280 \. 1 ■ COROLLA LIFTBAG vél 1,5 1,6 hestöfl 102 110 dyr 5 5 lengd 4200 4270 breidd 1670 1690 haeð 1395 1385 skottrými 480 372 ABS Já Já loftpúðar 2 2 CD Já Já áfelgur Já Nei stuðarar Já Nei samlæsingar Já Já rafmagn í rúðum Já Já verð 1.195.000 1.559.000 .... 1 Grjóthálsi 1, sími 575 1200
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.