Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 32

Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Sverrir Tryggvi Ólafsson: Sjálfur hef ég alltaf haft þá afstöðu að ég sé eins og hver annar maður að vinna sína vinnu. V erstur er hinn „góði“ smekkur ✓ Tryggvi Olafsson opnar afmælissýningu í Galleríi Fold á morgun kl. 14 en hann verð- ur sextugur 1. júní næstkomandi. Orri Páll Ormarsson ræddi við hann um aldur, aga, yfírsýn, innblásna klaufa og sitthvað fleira. Maraþon- sönghátíð á Selfossi UNGLINGAKÓR og barnakórar Selfosskirkju efna til söngs á sunnudag frá kl. 13.30 sem stend- ur uppstyttulaust allt til kl. 18, en þá hefst aftansöngur í kirkjunni. TVeir gestakórar taka þátt í söngnum, Litlir lærisveinar Landakirkju og Kór Hvassaleitis- skóla í Reykjavík. Ágóði tónleikanna rennur í ferðasjóð Unglingakórsins sem leggur af stað til Bandaríkjanna mánudaginn 22. maí. Par verður hann fulltrúi Islands við opnun þeirrar sýningar á íslenskum handritum, sem landafundanefnd stendur fyrir í Washington. Síðan heimsækir kórinn söfnuði og held- ur tónleika í Princeton í Phila- delphiu og húsi Sameinuðu þjóð- anna í New York. --------------- Kór Hjalla- kirkju á Akranesi KÓR Hjallakirkju í Kópavogi held- ur vortónleika í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi, þriðjudag- inn 23. maí kl. 20.30. Á dagskrá kórsins er kirkjuleg og veraldleg tónlist af ýmsu tagi, bæði innlend og erlend. Auk venjubundins kórsöngs verður boðið upp á karlakvartettsöng, einsöng, tvísöng og kvennakór. Einsöngvarar eru María Guð- mundsdóttir sópransöngkona, Gréta Jónsdóttir mezzosópran, Hákon Hákonarson tenór og Gunnar Jónsson bassi, þau eru öll úr röðum kórfélaga. Undirleikari með kórnum er Lenka Mátéová. Kór Hjallakirkju hefur um ára- bil haldið tvenna tónleika á ári auk þess sem hann flytur ýmis verk við kirkjulegar athafnir í Hjallakirkju. Á síðasta ári fór kórinn í 10 daga söngferð til Svíþjóðar og Dan- merkur. Raddþjálfari kórsins eru söng- konurnar og kórfélagarnii- María Guðmundsdóttir og Gréta Jóns- dóttir. .Söngstjóri og organisti Hjallakirkju er Jón Ólafur Sig- urðsson. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, 1.000 kr., og 400 kr. fyrir aldraða og öryrkja. Frítt fyr- ir börn innan fermingar. Háskóla- kórinn í Bologna NÚ er Háskólakórinn stadd- ur í Bologna þar sem hann tekur þátt í kóramóti með há- skólakórum frá menningar- borgum Evrópu árið 2000. Kórinn lagði af stað þriðju- daginn 16. maí og kemur aft- ur fimmtudaginn 25. maí, en að kvöldi þess dags frumflyt- ur hann vinningslagið í sam- keppni um nýjan háskólasöng við erindi úr ljóði Jónasar Hallgrímssonar, „Til herra Páls Gaimard" sem byrjar á orðunum „Vísindin efla alla dáð“. Kórinn, sem er undir stjórn Egils Gunnarssonar, fer í boði Háskólakórsins í Bologna og syngur ásamt kórum menningarborganna og einsöngvurum, Requiem eftir Verdi og heldur svo tón- leika með Háskólakórnum í Bologna þann 18. maí. ARNA stendur hann í frakkanum sínum, að- hnepptum, mitt í mynda- hrúgunni og leggur drög að upphengingu. Raunar hefur ljós- myndari Morgunblaðsins truflað hann rétt sem snöggvast, stillt hon- um upp. ,Á ég að líta upp, eins og Mussolini?" spyr hann sposkur á svip. Alltaf stutt í spaugið á þessum bænum. Síðan er það búið. „Hvað, ertu búinn? Ekki var þetta erfitt." Ljósmyndarinn er kvaddur með virktum. Þá kemur röðin að blaða- manni. Tryggvi Ólafsson er kominn heim, rétt eina ferðina. Raunar efast maður alltaf um að hann hafi nokkurn tíma farið. Hver trúir því að þessi maður hafi búið í Danmörku í bráðum fjöru- tíu ár? Svo íslenskur er hann. Þannig er það nú samt. Og Tryggvi er ekki á leiðinni heim. ,;Það er ekkert sem bendir til þess. Eg væri að skrökva ef ég segði að svo væri. Eg er samt ekki á nokkum máta minni íslendingur fyrir það. Maður hleypur ekki frá því að vera fæddur austur á fjörðum." En þá að sýningunni. Vettvangur- inn er Baksalur Gallerís Foldar við Rauðarárstíg og tilefnið ekki af lak- ara taginu - kappinn er að verða sextugur. Nánar tiltekið 1. júní. „Það átti ekki að vera sýning núna. Eg hélt afmælissýningar héma fer- tugur og fimmtugur en bjóst ekki við að gera það að þessu sinni. Síðan gekk einhver úr skaftinu og ég var beðinn um að koma. Þetta em miklir vinir mínir hérna í Galleríi Fold þannig að ég lét slag standa." Afmælisveisla í garðinum - Eru þetta þá verk sem þú áttir í fórum þínum? „Bæði og. Sumt átti ég en annað er glænýtt. Eg er alltaf með svona tutt- ugu til þrjátíu myndir í gangi í einu.“ - Ertu búinn að halda afmælissýn- ingu úti í Danmörku ? „Já, hún var í mars. Nú er bara eft- ir að halda veisluna í garðinum heima, 3. júní. Ég er búinn að hringja í Tuborg og fá þrjá dunka af öli og pípu. Síðan mætir hljómsveit. Djass. Það verður líf í tuskunum!" - Jæja Tryggvi, svo þúertað verða sextugur. Erþað ekki ógnvekjandi? „Ég finn ekki fyrir því en auðvitað er það það,“ svarar listamaðurinn hlæjandi. ,Ánnars er tíminn svo af- stæður, maður. 39 ár í Danmörku - ég botna ekkert í því heldur. Það var aldrei planlagt. Fólk spyr mig oft af hverju ég sé alltaf þarna og ég svara því jafnan til að ég fái að vera í friði. Ég hef allt til hlutanna í Danmörku, húsnæði og vinnustofu. Mig vantar ekki neitt. Það er kannski ágætt að það komi fram. Fólk þarf alls ekki að koma með pakka á sýninguna - ekki nema hann gutli!“ - Þú málar alla daga ? „Já, blessaður vertu. Mála og juða. Það er mitt líf. Ef ég fæ að vera í friði þá er ég glaður. Hvunndagurinn er dýrmætastur. Ég er sannfærður um það. Sennilega kemst maður á þá skoðun þegar maður fer að hugsa um dauðann. Hann er áhugaverður. Birtan gefur skuggann og skugginn gefur formið." Að fylgja sinni sannfæringu - Það hlýtur að hafa sína kosti að eldast? „Það má nú segja. Það er um margt þakklátt hlutskipti. Maður þarf að fara skemmri veg til að hríf- ast. Ég fór til dæmis að tína fyrstu túnfíflana í Danmörku um daginn og féll í stafi - æskan kom til mín.“ - Er æskan alltaf á næstu grösum ? „Já, af því hún hefur kontrastinn. Maður fær yfirsýn með aldrinum. William Heinesen sagði einhverju sinni að maðurinn væri ekki endilega gáfaðastur gamall en hann hefði aft- ur á móti yfirsýn." - Ertu öruggari með þig að feng- inni þessari yfírsýn? ,Að mörgu leyti- Ég er til dæmis öruggari á því en áður að ég hef alltaf ,gétt fyrir mér“. Þá á ég ekki við að ég viti betur en aðrir, heldur að ég verð að íylgja eigin sannfæringu - standa og falla með mínum verkum. Ég hefði ekki hugsað svona þrítugur. Menn mega þó gæta sín á því að verða ekki „of meðvitaðir", þá eiga þeir á hættu að verða hrokanum að bráð. Það er eitur. Sjálfur hef ég allt- af haft þá afstöðu að ég sé eins og hver annai' maður að vinna sína vinnu." - Hvert sækirðu hugmyndir? „Hingað og þangað. Ég skil ekkert í mönnum sem æða á fjöll til að mála myndir. Fyrir mig er nóg að fara í næstu götu. Það kveikir svo margt í mér. Á leiðinni hingað í flugvélinni var ég að skoða Ferðablað Morgun- blaðsins og sá þar gamlan ítalskan haus sem ég greip strax. Þú átt ef til vill eftir að sjá hann aftur.“ - Heldurðu þrútinn af hugmynd- um frá Islandi? „Ekki segi ég það en það kemur alltaf eitthvað út úr þessum ferðum. Ég ligg yfirleitt nokkuð lengi á melt- unni. Þannig var ég nýlega í Færeyj- um og Flórens og er enn að vinna úr hugmyndum sem kviknuðu á þeim stöðum," segir Tryggvi og dregur úr pússi sínu minnisbók, uppfulla af „krassi“, og myndavél. „Ég skil þessa hluti aldrei við mig.“ Tryggvi greinir blaðamanni líka frá steypujárnum sem hann kom auga á einhvers staðar, sennilega í Árbænum, og óteljandi möguleikum sem í þeim felast. - Þú ert alltaf á vai-ðbergi? ,Að sjálfsögðu. Þegar menn gapa upp í loftið og bíða eftir innblæstri eru þeir komnir á villigötur." - Það er ekkert þema á þessari sýningu. Ertþú lítið fyrirþemu? „Já, ég hef aldrei haldið þemasýn- ingu. Það kemur þó fyrir að ég geri tilbrigði við sama stefið. Það eru dæmi um það hér enda þykir mér áhugavert að velta fyrir mér spurn- ingunni „hvenær er hugmynd búin?“ Á síðari árum hef ég minni trú á því sem er „perfekt". Hlutir eiga að hafa einhverja opnun þótt þeim sé lokið. Galli Thorvaldsens er til dæmis sá að hann er svo „perfekt“ að hann er blóðlaus. Flinkur andleysingi segir þér ekki neitt. Þá bið ég frekar um klaufa sem hefur eitthvað að segja. Innblásnir klaufar eru áhugaverðir.“ Það er alltaf eitthvað - Hvað tekur við hjá þér að lokinni afmælishátíð? „Það stendur til að ég verði með myndir á sýningu í Washington í október. Ég verð líka með tíu grafík- myndii' á norrænni sýningu sem á að fara hringinn, eins og sagt er. Síðan á ég sex litmyndir í ljóðabók sem verið er að prenta í Danmörku. Það er allt- af eitthvað. Ég hef líka orðið fleiri járn í eldinum í seinni tíð, kem víðar við. Ég hef gaman af því. Þetta hreyf- ir hvað við öðru, svo maður horfi ekki endalaust á naflann á sér.“ - Krefst það ekki aga að koma svona víða við? „Jú, það gerir það. Og aginn er vin- ur þinn! Einn sá besti.“ - Hver er verstur óvinur? „Hinn „góði“ smekkur. Vegna þess að hann er háður normum og norm eru alltaf háð stýringu eða valdi. Ég er ekki anarkisti - og hef aldrei verið - en maður sem málar blóm má ekki gera það út frá öðru sjónarmiði en sinu eigin. Evróvisjón söngvakeppn- in er gott dæmi um þetta. Hún er ekkert annað en tónlistarlegt vændi. Allt samkvæmt sömu formúlu." - Þú gleðst þá ekkiyfír sigri Dana í keppninni? „Það dugar ekki að bjóða upp á vatn fyrir vín!“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.