Morgunblaðið - 19.05.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 33
LISTIR
Glæpasaga
frá Ffladelfíu
Biskupi fært
fyrsta eintakið
ERLENDAR
BÆKUR
Spennusaga
„Tlie Bluest Blood“
eftir Gillian Roberts. Ballantine
Books 1999.285 síður.
GILLIAN Roberts er dulnefnið
á bandarískum spennusagnahöf-
undi sem heitir í raun Judith
Greber. Hún skrifar líka öðruvísi
bækur og útgefandanum fannst að
hún ætti að nota annað nafn í
spennusagnaskrifin til þess að
trufla ekki lesendur sína. Þetta
gerði hún og hefur nú sent frá sér
átta sögur í bálki sem fjallar um
bókmenntakennarann knáa Am-
öndu Pepper og gerast allar í stór-
borginni Fíladelfíu. Attunda bókin
kom nýlega út í vasabroti hjá Ball-
antine Books og heitir „The Bluest
Blood“ og vísar til peningaaðalsins
í Fíladelfíu en sagan er ekki
skemmtileg, óspennandi með öllu
og aðalpersónan, Pepper, eiginlega
líflaus að kalla.
Uppsveifla
Að undanförnu hefur maður les-
ið margar af þeim spennubókum
sem konur skrifa en mikil upp-
sveifla hefur verið í þeirri útgáfu
bæði í Bretlandi og ekki síst
Bandaríkjunum. Bækur þessar eru
mjög misjafnar að gæðum eins og
gengur. Yfirleitt er sagt frá í
fyrstu persónu, við upplifum at-
burðina með augum aðalsöguhetj-
unnar, sem er kona um þrítugt en
ekki miklu eldri, á gjarnan gælu-
dýr, móðirin spilar stundum rullu,
það er karlmaður í spilinu en hann
er mismikilvægur, glæpur er fram-
inn en skiptir kannski ekki mestu
máli, söguhetjan er oft áhugaspæj-
ari sem flækist í vond mál fyrir til-
viljun, en stundum atvinnumaður
og þarf að sanna sig sem kona í
karlaveröld glæparannsókna.
„The Bluest Blood“ á sitthvað
sameiginlegt með þessum sögum.
Amanda Pepper segir mikið frá
sjálfri sér og er með alls konar at-
hugasemdir um lífið og tilveruna
sem ekki eru sérlega frjóar eða
merkilegar. Karlmaðurinn í spilinu
er rannsóknarlögreglumaður að
nafni Mackenzie en er alltaf kall-
aður CK; það kemur aldrei í ljós
fyrir hvað þeir stafir standa og er
það gegnumgangandi stef í bókun-
um. Hann er stoð og stytta Am-
öndu. Gæludýr kemur við sögu.
Amanda er áhugaspæjari, kennari
fyrst og fremst, og flækist inn í
vond mál í gegnum starf sitt. Höf-
undurinn, Gillian Roberts/Judith
Greber, skrifar um það sem hún
þekkir. Hún kenndi áður við fram-
haldsskóla m.a. í Los Angeles.
Svoleiðis að „The Bluest Blood“
tekst fyrir það fyrsta hvergi að
koma manni á óvart. Hún sver sig
mjög í ætt við þær spennusögur
eftir konur sem fást hér í bóka-
búðunum nema hún er á flestum
sviðum leiðinlegri. Margar þessara
bóka eru ágætlega heppnaðar og
oft húmorískar en það er „The
Bluest Blood“ ekki.
Amanda Pepper flækist inn í
glæpamál eftir heimsókn á heimili
þekktrar millafjölskyldu í Fíladelf-
íu. Þar eru samankomnar nokkrar
af þeim persónum sem flækjast
inn í plottið. Utan við húsið eru
mótmæli áhugafólks um bætta les-
menningu, eins og það mundi sjálf-
sagt kallast í þeirra augum. Það
vill bækur eins og The Color Purp-
le og Slaughterhouse Five út úr
skólakerfinu, jafnvel Dagbók Önnu
Frank. Astæðan fyrir mótmælun-
um er sú að húseigendurnir ríku
hafa veitt fjárstuðning til bóka-
safnsins við skólann þar sem Am-
anda kennir.
Eftir nokkurt japl, jaml og fuður
kemur í ljós að forsprakki mót-
mælendanna hefur verið myrtur á
hroðalegan hátt og þar sem stjúp-
sonur hans og fóstursonur milla-
hjónanna eru nemendur Amöndu
tekur hún að sér rannsókn málsins
og verður talsvert meira ágengt en
lögreglunni.
Ur þessu spinnur Gillian/Judith
lítt áhugaverða sögu um van-
rækslu í sambandi foreldra og
barna, um svindlara sem teygja
anga sína til Kanada, um grugg-
uga fortíð og leyndarmál sem ekki
þola dagsljósið. Höfundinum er
fyrirmunað að búa til hina minnstu
spennu eða persónur sem vekja
snefil af forvitni og kæfir söguna í
kjaftavaðli sem engu máli skiptir.
Arnaldur Indriðason
NÝLEGA sendi Háskólaútgáfan
frá sér bókina Kristnitakan á ís-
landi eftir Jón Hnefil Aðal-
steinsson. Bókin er ein þriggja
bóka sem útgáfan sendir frá sér í
tilefni 1000 ára afmælis kristni-
tökunnar og er gefin út í 1000
tölusettum eintökum. Af þessu til-
efni færðu höfundurinn og
Jörundur Guðmundsson, for-
stöðumaður Háskóiaútgáfunnar,
biskupi, herra Karli Sigur-
björnssyni, fyrsta tölusetta ein-
takið.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
AKRANES: Bllver sf„ slmi 431 IS8S. AKUREYRI: HSIdur hf„ slmi 4813000. KEFLAVÍK: Bílasalan Bllavlk, sími 421 7800. VESTMANNAEYJAR: Bílaverkstæðið Bragginn, slmi 481 1535.
HONDA HR-V 5 DYRA
[HONDA HR-V 1.61 4x4 5 DYRA
105 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir
loftpúöar, rafdrifnar rúður og speglar,
hiti I sætum og speglum, fjarstýröar
samlæsingar, samlitaður.
I
verðfré 1.890.000 kr.