Morgunblaðið - 19.05.2000, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Minguet-kvartettinn
í Fríkirkjunni
MINGUET-kvartettinn frá Köln
heldur tónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík á sunnudag kl. 20. Það
er þýska menningarstofnunin
Goethe-Zentrum sem stendur að
tónleikunum til að minnast þess að
í ár eru liðin 250 ár frá andláti
þekktasta tónskálds barokktíma-
bilsins, Johanns Sebastians Bachs.
Minguet-kvartettinn var stofn-
aður 1988. Hann hefur komið fram
í frægum hljómleikasölum á borð
við Wigmore Hall í Lundúnum og
Fílharmóníunni í Berlín en einnig
á alþjóðlegum lista- og tónlistar-
hátíðum svo sem í Salzburg,
Bergen og Slésvík-Holtsetalandi.
Kvartettinn hefur komið fram með
þekktum einleikurum á borð við
píanóleikarann Lars Vogt, horn-
leikarann Ab Koster og klarínettu-
leikarann Paul Meyer auk þess
sem sveitin hefur haldið tónleika
með Munchener Kammerorchest-
er.
Efnisskrá Minguet-kvartettsins
spannar breitt svið því auk verka
frá klassísk-rómantíska tímabilinu
hefur kvartettinn markvisst lagt
sig í líma við að flytja verk eftir
nútímatónskáld á borð við Pender-
ecki, Henze og Rihm og hefur þar
oft verið um frumílutning að ræða.
Minguet-kvartettinn var stofn-
aður í Dússeldorf en hefur í dag
aðsetur í Köln. Eftir nám í kamm-
ertónlist hjá meðlimum hinna
þekktu LaSalle-, Amadeus- og
Melos-kvartetta sótti sveitin
frekari listræna örvun í smiðju
Alban-Berg-kvartettsins. Minguet-
kvartettinn hefur hlotið fyrstu
verðlaun á alþjóðlegum tónlistar-
mótum og síðan 1997 hefur kvart-
ettinn gegnt sérstakri kennslu-
stöðu í kammertónlist við Robert-
Schumann-tónlistarháskólann í
Dússeldorf.
Kvartettinn hefur leikið inn á
margar plötur og fleiri upptökur
eru í undirbúningi. Þar hefur
sveitin lagt áherslu á að kynna
verk sem ekki hafa áður komið
fyrir almenningseyru.
í Fríkirkjunni flytur kvartettinn
Contrapunctus 1, eftir J.S. Bach,
Strengjakvartett op. 20 nr. 5 í f-
moll eftir J. Haydn, Contrapunct-
us 3, 4, 6 og 9 eftir J.S. Bach, Off-
icium Breve eftir G. Kurtág,
(1990), Contapunctus 2 og 10 eftir
J.S. Bach, Þætti úr Fjórum köflum
fyrir strengjakvartett op. 81, capr-
iccio F. Mendelssohn-Bartholdy,
Contrapunctus 18, kóral, eftir J.S.
Bach.
Minguet-kvartettinn skipa Ul-
rich Isford, flðla, Annette Reising-
er, fíðla, Irene Schwalb, lágfiðla og
Matthias Diener, selló.
Aðgangseyrir er 800 krónur (600
krónur fyrir félaga í Hollvinafélagi
Þýska menningarsetursins).
Karlarómur í Ými
KARLAKÓR
Keflavíkur heldur
tónleika í Ými,
húsi Karlakórs
Reykjavíkm',
sunnudaginn 21.
maí kl. 17. Á efnis-
skránni eru ís-
lensk og erlend
karlakóra- og
dægurlög.
Undirleikari á
Steinn
Erlingsson
píanó eru Ágota Joó, Ásgeir Gunnars-
son á harmoniku og Gunnar Ingi Guð-
mundsson á bassa. Einsöngvarar með
kómum eru Guðbjöm Guðbjömsson
tenór og Steinn Erlingsson baríton.
Karlakór Keflavíkur var stofnaður
1. des. 1953. Á þessum tíma hefur
kórinn sungið víða um land og í sjö
þjóðlöndum, bæði
austanhafs og
vestan. Einnig
hefur kórinn gefið
út hljómdiskinn
Suðurnesjamenn.
I byrjun júní
fer kórinn í söng-
ferð til Færeyja
og mun m.a. taka
Guðbjörn þátt í kóramóti
Guðbjörnsson sem haldið verður
í Þórshöfn, koma fram í dagskrá sjó-
mannadagsins í Klakksvík og halda
sjálfstæða tónleika í Þórshöfn og Mið-
vogi, sem er vinabær Reykjanesbæj-
ar.
Stjómandi kórsins er Vilberg
Viggósson, en hann hefur stjómað
kórnum undanfarin 7 ár.
Málverkasýning í Gall-
eríi Smíðar og skart
HANNA Hreinsdóttir opnar mál-
verkasýningu í Galleríi Smíðar og
skart, Skólavörðustíg 16A, á morg-
un, laugardag, kl. 14.
Hún útskrifaðist frá málaradeild
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands vorið 1995. Þetta er fyrsta
einkasýning Jóhönnu og allar
myndirnar á sýningunni eru mál-
aðar á þessu ári.
Jóhanna hefur tekið þátt í
tveimur samsýningum, í Hafnar-
firði og á Laugarvatni.
Sýningin verður opin til 5. júní.
Opnunartímar eru frá 10-18 virka
daga og til kl. 14 laugardaga.
M-2000
V
Föstudagur 19.
maí.
W Leiðsögurit um
^ íslenska byggingarlist.
Arkitektafélag íslands
stendur fyrir útgáfu tímamóta-
rits um íslenska byggingarlist
og sögu, en þetta er í fyrsta sinn
sem slíkt heildarrit er gefið út.
Mannlif við opið haf - Fræða-
setrið í Sandgerði
Jörundur Svavarsson flytur
fyrirlestur um hvað leynist í ís-
lenskum undirdjúpum kl. 20:30.
Dagskráin er hluti af samstarfs-
verkefni Menningarborgarinnar
og sveitafélaga.
Tunglið, tunglið,
taktu mig...
TOJVLIST
Sfgildir diskar
DVORÁK
Antonín Dvorák: Rúsalka, ðpera í 3
þáttum við söngrit eftir Jaroslav
Kvapil (sungin á tckknesku). Renée
Fleming (Rúsalka), Ben Heppner
(prins), Franz Hawlata (Vodnik
vatnsálfur), Dolora Zajick (nomin
Jezibaba), Eva Urbanová (erlenda
furstynjan), Ivan Kusnjer (Hajný
veiðistjóri/Lovec veiðimaður),
Zdena Kloubová (Kuchtik eldhús-
gutti), Lívia Ághová/Dana Bures-
ová/Hana Minutillo (skógardísir).
Kuhn kórinn & Tékkneska fílharm-
óníuhljómsveitin u. stj. Charlesar
Mackerras. Decca 460 568-2. Upp-
taka: DDD, Rudolflnum, Prag,
28.4.-9.5.1998. Útgáfuár: 1998.
Lengd (3 diskar): 162:58. Verð
(Skífan): 4.499 kr.
BÁÐIR tónhöfundar Sígildra
diska að þessu sinni voru fæddir árið
1841. Báðir vora innblásnir af þjóð-
lagaarfi og náttúrafegurð síns
heimalands, og var svosem ekki eins-
dæmi á seinni hluta 19. aldar. En
hvoragur varð heimskunnur ópera-
höfundur. Grieg einfaldlega vegna
þess að hann kláraði enga (sam-
starfsverkefni hans og Bjomstjern-
es Bjernsons um Ólaf konung
Tryggvason komst aldrei á leiðar-
enda vegna ósátta). Antonín Dvorák
samdi hins vegar hvorki fleiri né
færri en tíu óperur og sámaði einna
mest að sjá frægð sinfóníanna níu
skyggja á leikhústónlist sína sem
hann hafði lagt allan metnað í á efri
áram. Að vísu urðu sumar óperur
hans vinsælar heima fyrir, en á Vest-
urlöndum hefur aðeins aría Rúsölku
til tunglsins úr samnefndri ópera frá
1901 náð útbreiðslu.
Undarlegt má heita að þvílíkur
gimsteinn skuli ekki hafa vakið löng-
un til að kanna óperur Dvoráks bet-
ur hjá vestrænum plötuútgefendum
í nærri 100 ár. Burtséð frá tékknesk-
um Supraphon-útgáfum hefur sama
og ekkert birzt af þeim í búðarglugg-
um fram að þessu Decca-setti. En
vera má að horfur vænkist á næstu
áram. Meistaraverkið sem hér blasir
við vekur a.m.k. væntingar um að
eftir nokkru geti verið að slægjast í
öðrum óperam tékkneska sinfónist-
ans.
Þrennt kann að hafa staðið
Rúsölku fyrir þrifum á Vesturlönd-
um. Tafir komu í veg fyrir flutning
hennar í Vínarborg meðan Gustavs
Mahlers naut þar við. Vandskiljan-
leg óvild tékkneskra yfirvalda á
jámtjaldsárunum hafði ugglaust
einnig sitt að segja. En kannski er
það ekki sízt þýðingarvandi tékk-
neskunnar. Eins og reynslan af
óperum Smetana og Janaceks sýnir,
virðist vestslavnesk tunga Bæheims-
búa jafnillþýðanleg til söngs og hún
er hljómfögur. E.t.v. skipti slíkt þó
meira máli í vestrænum húsum fyix
á áram en nú á tímum þar sem menn
virðast síður setja fyrir sig að flytja
slavneskar óperur á frumtungu.
Héramrædd útgáfa er þannig sung-
in á tékknesku og er ekki að heyra að
málið þvælist fyrir bandarísku
prímadonnunni á nokkurn hátt.
Rúsalka er ævintýraópera. Kven-
hetjan er vatnadís, e.k. „ferskvatns-
hafmeyja“ sem lifir ódauðleg í kyrr-
látri skógartjöm og getur aðeins
öðlazt mannslíf með því að giftast
mennskum manni og eignast með
honum barn. Söguefnið er rannið úr
slavneskum þjóðsögum, en kviknaði
fyrst á óperusviðinu út frá sögu De
la Motte Fouqués, Undine, sem E. T.
A. Hoffmann (1816) og Lortzing
(1845) sömdu óperur við. Einnig
gerði Púsjkin ljóð um efnið, sem
varð uppistaða að Rúsölku-ópera
Dargomysjkíjs (1832), Undine
Tsjækovskíjs og fleiri tónskálda.
Líbrettisti Dvoráks, Jaroslav Kvap-
il, virðist hins vegar hafa gripið tölu-
vert í ævintýri H. C. Andersens um
Litlu hafmeyjuna.
Vatnadísin verður hugfangin af
konungssyni á dýraveiðum. Hún fær
nornina Jezibaba til að ljá sér
mennskan ham gegn þeim afarkosti
að verða mállaus, auk þess sem kon-
ungssonur verði feigur, ef hún missir
ást hans. Og auðvitað fer allt á versta
veg, eins og fallegri harmsögu sæm-
ir. Eftir að hafa svikið Rúsölku hníg-
ur iðrandi prinsinn að lokum í faðm
vatnadísarinnar og þiggur af henni
banakoss í dimmu skógartjörninni.
Vera má að sagan geri sig ekki
nógu vel á sviði, en sem ljóðrænt
tónlistardrama er Rúsalka öndvegis
hægindastólsópera. Lagræn snilldin
beinlínis fossar úr ótæmandi æðum
Dvoráks og hljómsveitarmeðferð
hans gengur göldram næst í lúxus-
flutningi Tékknesku fílhannóníu-
hljómsveitarinnar. Kannski lítil
furða, því um völinn heldur einn
reyndasti sérfræðingur Vesturlanda
í tékkneskum óperam, Sir Charles
Mackerras. Kúhn-kórinn syngur
óaðfinnanlega og það er langt síðan
maður hefur heyrt jafnflekklaust
ópera„kast“, þar sem allt niður í
minnstu hlutverk er sungið af úr-
valsröddum. Renée Fleming stendur
einmitt nú á hátindi ferils síns og
heillar sem vænta má hlustandann
langt upp úr skónum með sannkall-
aðri stjörnutúlkun; saklaus sem
Ófelía, sár sem Medea, bljúg og vold-
ug á víxl. Þessi söngkona er engri lík.
Það þarf vart að taka fram, að
tæknimenn Decca skila hverju smá-
atriði með upptöku sem er frábær-
um flutningi að fullu samboðin. Disk-
bæklingurinn er vel frá genginn að
öllu leyti en einu: Tékkneskum söng-
texta þarf að fletta meira en kunn-
ugra tungumáli - með þeim hvim-
leiðu afleiðingum að samlímd blöðin
tolla skammt á sínum stað. Hvenær
ætla sómakærar plötuútgáfur að
læra að nota heftara?
GRIEG
Edvard H. Grieg: Píanésónata í e
Op. 7; 7 fúgur f. píanó (frumhljóð-
ritun); Ljóðræn stykki Op. 38 (1.),
Op. 43 (1. & 6.), op. 47 (3.), Op. 54
(3., 5. & 6.), Op. 57 (1.), Op. 62 (4.),
Op. 65 (5. & 6.) og Op. 68 (2.); Kjöt-
kveðja úr Þjóðlífsmyndum Op. 19
nr. 3. Mikhail Pletnev, píanó.
Deutsche Grammophon 459 671-2.
Upptaka: DDD, Teldec hljóðupp-
tökuverinu, Berlín, 11/1999. Ut-
gáfuár: 2000. Lengd: 74:59. Verð
(Skífan); 2.199 kr.
PÍANÓVERK Edvards Hager-
ups Griegs bar síðast á góma í Sí-
gildum Diskum fyrir rúmum tveim
áram (SD 21.3. 1998), þegar hinn
snjalli ungi norski slagherpill Leif
Ove Andsnes lék inn eftir hann
Norsk þjóðlög og slagi, ásamt verk-
um eftir aðra eldri norska höfunda
(The long, long winter night, EMI
Classics 7243 5 56541 2 0). Það var
ymprað á því þá, en sakar ekki að
endurtaka sem enn er ekki öllum
kunnugt, að í seinni píanóverkum
sínum fleytir Grieg norsku þjóðlaga-
rómantík sinni áfram á vit nýrri
tíma og hafði áhrif á bæði Debussy
og Bartók. Gleggsta dæmið hér er
Klukknahljómur (Op. 54,6) sem
beitir samstíga raddfærslu 16 áram
fyrir „Cloches á travers les feuilles"
Debussys, en víðar má heyra bram-
hnappa frjórrar nýhyggju í vel völdu
úrvali ljóðrænna smáverka fyrir
píanó á þessum diski. Grieg samdi
alls 10 bækur í þeirri grein, er teygir
sig yfir mestallan sköpunarferilinn.
„Lyriske Stykker" hans nutu mikilla
vinsælda, og sagt er að forleggjar-
inn Peters í Leipzig hafi flaggað í
hvert sinn sem ný bók barst frá
Björgvin.
Grieg var meistari litla formsins,
en eina píanósónata hans fremst á
diskinum hefur elzt vel og er enn
mikið spiluð, enda jafndöggfersk að
hugviti og þegar hún var samin.
Flest er hér í þekktari kantinum,
með Brúðkaupsdegi að Troldhaugen
efst á vinsældarlista, en þó hefur
tekizt að grafa fram áður óinnspilað
verk - 7 píanófúgur frá námsárum
Griegs hjá Tómasarkantornum í
Leipzig Ernst F. Richter. Það er
ekki nema von að andi Bachs skíni í
gegnum þessi æfingarstykki, en
þrátt fyrir það er líka yfir þeim sami
sjarmerandi tærleiki sem átti eftir
að einkenna flest úr smiðju norska
snillingsins.
Mikhail Pletnev er meira en
forkunnar brilljant píanisti. Hann er
líka slyngur hljómsveitarstjóri, og
það heyrist í túlkun hans, sem er sér-
lega lagin við að draga fram kjarn-
ann og framleikann. Maður hélt vart
vatni yfir leiftrandi meðferð hans á
sónötum Domenieos Scarlattis (SD
6.6.1998), og mér er til efs að margir
norrænir píanistar skili tærleika
Griegs með öðru eins trompi, þó að
Eva Knardahl kunni að skyggnast
dýpra. Finnist einhverjum hraðaval-
ið stundum í hressilegasta lagi, þá er
dúnmjúk syngjandi vissulega til
reiðu á réttum stöðum. Pletnev kann
þetta allt saman og þeir sem kunna
að meta skýran píanóleik fá hér vel í
hnefa. Hljóðupptakan er vel við
hæfi; DG upp á sitt bezta.
Þessi diskur er upplyftandi ígildi
sólarlandarferðar á sjötíu og fjóram
mínútum. Hreinasta sálarvítamín.
Takist inn um hlustir við grámóska
og dranga.
Ríkarður Ö. Pálsson