Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Söngskólinn 1 Reykjavík Lokatónleik- ar í Islensku operunni TUTTUGASTA og sjöunda starfs- ári Söngskólans í Reykjavík er nú að ljúka og hafa hátt í 200 nemend- ur stundað nám við skólann í vetur. Skólaslit og afhending prófskír- teina verða sunnudaginn 21. maí kl. 14.30 í Islensku óperunni og loka- tónleikar verða kl. 16. Fram koma nemendur allt frá unglingadeild til útskriftarnema. Flutt verða íslensk sönglög og er- lendir Ijóðasöngvar, lög úr söng- leikjum og óperettum og aríur og samsöngsatriði úr óperum. Alls koma um 40 söngvarar fram ásamt píanóleikurum skólans. Skólinn út- skrifar að þessu sinni fjóra nem- endur með burtfararpróf og próf- gráðuna AC, „Advanced Certificate“: Bryndísi Jónsdóttur, Hjálmar P. Pétursson, Kristínu R. Sigurðardóttur og Ingibjörgu Al- dísi Ólafsdóttur. Þau eiga þó öll eftir lokaáfanga prófsins, einsöngs- tónleika. Einnig útskrifar skólinn nú einn söngkennara, Nönnu Maríu Cortes, með prófgi'áðuna LRSM, „Licentiate of the Royal Schools of Music“. Lokapróf úr almennri deild, 8. stigi, luku átta nemendur. Söngskólinn fær árlega prófdóm- ara á vegum „The Associated Board of the Royal Schools of Mus- ic“ í London. Að þessu sinni próf- dæmdi Mark Wildman, yfirmaður söngdeildar The Royal Academy of Musie í London, próf nemenda. Innritun fyrir næsta vetur stend- ur yfir og verða inntökupróf mið- vikudaginn 24. maí nk. Ljósmynd/ Marisa. Hólmfríður Árnadóttir textflhönnuður afhendir Hönnunarsafninu kirkjuliöklana. Á myndinni eru, auk hennar, Aðalsteinn Ingólfsson, umsjónarmaður safnsins, Laufey Jóhannsdóttir, fulltrúi Garðabæjar í stjórnarnefnd, og Stefán Snæbjörnsson, formaður sljórnarnefndar. Söngvarahópurinn sem Söngskólinn í Reykjavík útskrifar í vor. Aftari röð f.v. Hjálmar P. Pétursson, Auður Guðjohnsen, Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, Garðar Cortes skólastjóri, Kristveig Sigurðardóttir, Áslaug Helga Hálfdánardóttir, Jónas Guðmundsson. Fremri röð: Kristín R. Sigurðardóttir, Nanna Helgadóttir, Nanna María Cortes, Bryndís Jónsdóttir, Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir, Þóra S. Guðmannsdóttir, Þórhildur Örvarsdóttir. Opið hús hjá Hönnunar- safninu í TILEFNI af alþjóðlega safnadeg- inum verða húsakynni Hönnunar- safns Islands í Lyngási 7 í Garðabæ (hús Þjóðminjasafnsins) opin al- menningi laugardaginn 20. maí frá kl. 11-16. Gefst þá gestum og gang- andi tækifæri til að skyggnast inn í geymslu safnsins og skrifstofu og gaumgæfa þá muni sem safninu hafa borist að gjöf eða langtímaláni frá því það hóf starfsemi sína fyrir rúmu ári. Má þar nefna töluvert magn húsgagna eftir marga helstu húsgagnahönnuði og arkitekta Is- lendinga, lampa, textfla, leirmuni og ýmsa aðra nytjahluti eftir mis- munandi hönnuði. Einnig verða kynnt bæði hús- gögn og smærri hlutir, eftir ýmsa hönnuði í Danmörku og Finnlandi sem safninu hafa borist. Kirkjuhöklar að gjöf f þann mund sem undirbúningur þessa „opna húss“ stóð sem hæst, barst Hönnunarsafninu tveir kirkjuhöklar með stólum sínum að gjöf frá Hólmfríði Árnadóttur text- flhönnuði. Höklana gerði Hólmfríð- ur sérstaklega fyrir kvenpresta um 1970, þegar íslenska kvennabarátt- an stóð sem hæst. Höklarnir verða einnig til sýnis á „opnum degi“. Umsjónarmaður safnsins, Aðal- steinn Ingólfsson listfræðingur, verður á staðnum og veitir upp- lýsingar um það sem fyrir augu ber. TÖNLIST Safnaðarsalur Akureyrarkirkju LJÓÐ ATÓNLEIKAR Tónlistarfélag Akureyrar efndi til ljóðatónleika fimmtudagskvöldið 17. maí. Flytjendur voru þau Rósa Kristín Baldursdóttir sópran- söngkona og Daníel Þorsteinsson pianóleikari. Á söngskránni voru lög og lagaflokkar eftir Purcell, Haydn, Brahms, Bernstein og spænska tónskáldið Montsalvatge. EITT af þeim vandasömu verk- um sem tónlistarmenn þurfa að inna af hendi er að setja saman tónleikaefnisskrár. Uppröðun og val verkefna verð- ur að taka mið af ótalmörgum þáttum, sem bæði eru huglægir og hlutlægir. Slíkt val er auðveldara þegar ákveðið þema er haft að leið- arljósi, árstíðir, verk frá afmörk- uðu tímabili sögunnar eða heilu lagaflokkarnir. Röðun verka á efn- isskrá þarf að gera hvort tveggja í senn, að tónlistarmaðurinn njóti sín á réttum stöðum og að áheyr- andinn verði snortinn samtímis. Að vissu leyti er þarna hliðstæður vandi og kennarans með bekkinn sinn, þar sem rifjuð eru upp þekkt námsefni sem krakkarnir hafa gaman af og taka hið nýja fyrir þegar móttökuskilyrði þeirra og einbeiting er mest. Rósa Kristín Út í kalt vorið með hita í hjarta valdi efnisskrá sem uppfyllti slík skilyrði ágætlega, enda þekkt fyrir frábæran árangur sem tónlistar- uppalandi og kórstjóri. Hún valdi lög og ljóð sem henni lét vel að syngja og við hæfi raddarinnar. Jafnframt varð fjölbreytni í efn- isskránni og breidd í túlkun áheyrandanum gleðiefni. Rósa Kristín hefur verið búsett í Svarf- aðardal um tíu ára skeið, og sam- einað það að afla sér ágætrar söngmenntunar hjá úrvalskennur- um og jafnframt verið lyftistöng í tónlistarlífi þessa svæðis og víðar. Þar nægir að benda á Tjarnar- kvartettinn sem sungið hefur vítt um heim og hún stofnaði, stjórnaði og söng í frá upphafi. Ekki var henni í kot vísað að hafa sér við hlið jafn góðan og vandvirkan píanóleikara og Daníel Þorsteins- son. Hann hefur svo sannarlega unnið til starfslauna listamanna hjá Akureyrarbæ, sem hann hlaut nú nýverið. Skemmtilegar munn- legar kynningar þeirra Daníels og Rósu Kristínar og þýðingar í efnis- skrá á textum sönglagaflokka þeirra Bernstein og Montsalvatge gerðu tónleikana áhrifameiri og náðu vel til áheyrenda. Fram að hléi var haldin leið krónólógíunn- ar, sögulegrar tímaröðunar, frá þeim enska Pureell og komið við söngvaslóð Haydns og síðan sótt í söngvasjóð Johannesar Brahms. Rósa Kristín hefur lýríska rödd, fallega en ekki kraftmikla. Hún túlkar eins og góðum ljóðsöngvara sæmir efni ljóðanna, mótar hend- ingar einkar fallega með breytileg- um blæ raddar og spennir boga styrkleikabreytinga frá því mýksta og veikasta til hins þrótt- mikla og heldur sig ávallt innan marka smekkvísinnar. Hlutur Daníels í sannfærandi túlkun var mikill og samleikur þeirra einstak- lega góður. Söngkonan opnaði tón- leikana með laginu „Music for a while“ eftir Purcell og þar náði hún sannfærandi mjúkum crec- endo-söng, vaxandi styrk, á löng- um liggjandi tónum þessa unaðs- lega lofsöngs um tónlistina. Það er ljóst þegar maður hlýðir á ljóðalög Haydns hversu mikil fyrirmynd tónskáldið hefur orðið helstu ljóðatónskáldum sögunnar, s.s. Beethoven og Schubert, enda stundum nefndur „pabbi Haydn“. Lag Beethovens Adelaide sver sig býsna sterkt í ætt lagsins „Fidel- ety“ eftir Haydn, sem þarna var ágætlega flutt. Eftir flutning á þremur lögum eftir Haydn komu jafn margir söngvar eftir Brahms, með þessu meistarahandbragði höfundarins sem er aldrei fjarri rót þjóðlaga, þrátt fyrir sína há- lærðu útfærslu. Flutningur var sannfærandi, þó fannst mér Rósa Kristín ekki kveða nógu sterkt að þýsku orðunum svo merking þeirra yrði skýrari í okkar eyrum. Túlkun þeirra á þremur írskum þjóðlögum í einkar skemmtilegum útsetningum Howard Hughes var frábær og líður vandræðagangur stamandi elskendanna í loka- söngnum seint úr minni. Eftir hlé kom lagaflokkurinn sem ber þetta músíkfjandsamlega nafn „Ég þoli ekki tónlist", sem er í senn ein mesta ástarjátning til tónlistarinn- ar, enda er „gaman að syngja" seg- ir Barbara litla í ljóðinu, en hatrið nær aðeins til þessara svart- klæddu manna sem leika tónlist sem hún getur ekki kallað tónlist. Hér er að sjálfsögðu átt við fimm barnalög eftir Bernstein og ber heitið „I hate music“ og frumflutt var af honum og vinkonu hans og söngkonunni frægu Ann Turrell árið 1943. Það gildir bæði um þennan lagaflokk og fimm negra- söngva eftir Montsalvatge að þar risu tónleikarnir hæst. Heillandi tónlist, litríkir textar og túlkun sem gerði herlegheitunum bestu skil. Bernstein er óefað einn fjöl- hæfasti listamaður 20. aldarinnar og varð heimsfrægur sem tón- skáld, hljómsveitarstjóri, píanó- leikari, kennari og rithöfundur. Montsalvatge fæddist 1912 og hef- ur ekki notið heimsljóssins á sama hátt. Söngvasveigurinn, fimm negra- lög, hefur þó notið verðskuldaðra vinsælda og er einnig til í hljóm- sveitarbúningi. Negrasöngvum þessum má ekki rugla saman við negrasálma. Montsalvatge sækir í þann brunn sem er afró-ameríska tónlistin á Karíbaeyjunum. Hann blandar listilega saman ljúfum dönsum og ómstríðum hljómum, habanera-hljóðfall og flamengo, spænsk-arabísk blanda sem er alltaf smekkleg og hrífandi. Rósa Kristín og Daníel þökkuðu góðar viðtökur áheyrenda og fluttu hið ágæta lag Atla Heimis, Vorið góða, við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. Út í kalt vorið fór maður með hita í hjarta. Jón Hlöðver Áskelsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.